Morgunblaðið - 15.11.1980, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1980
47
Pauðafærin nýttust ekki
r
— Sigurður Sveinsson skoraði
sjö af níu mörkum liðsins
Satt best að segja þá olli islenska landsliðið i handknattleik
nokkrum vonbrigðum i gærkvöldi er liðið mætti heimsmeisturum
Vestur-bjóðverja. Ekki vegna þess að liðið tapaði heldur vetfna þess að
leikmenn misnotuðu möri? upplögð marktækifæri, og eftir stórgóðan
fyrri hálfleik réði einstaklingsframtakið alveg rikjum i siðari hálfleik
bæði i sókn og vörn. Og allur leikur liðsins riðlaðist og var afar
tilviljunarkenndur. býska liðið sigraði með fimm marka mun í
leiknum 14—9, eftir að hafa haft yfir i hálfleik 5—4. Ekki er gott að
segja hvernig leikurinn hefði endað ef ekki hefði komið til stórgóður
leikur Sigurðar Sveinssonar sem skoraði 7 af 9 mörkum íslenska
liðsins og þar af aðeins eitt úr vitakasti. bað er áreiðanlega einsdæmi
i landsleik i handknattleik að sami maður skori öll mörkin nema tvö
fyrir lið sitt.
• Sigurður Sveinsson með eitt aí þrumuskotum sínum
sem þýski markvörðurinn réði ekkert við. Sigurður
skoraði 7 mörk öll stórglæsileg. Kn»tján eimtko..
ísland:V-Þýskaland
9:14
Handknatllelkur
V.................✓
Stórgóð byrjun.
Stórgóð byrjun íslenska
landsliðsins vakti miklar vonir hjá
hinum fjölmörgu áhorfendum sem
lögðu leið sína í Laugardalshöllina
í gærkvöldi. Og stemmning í
höllinni var eins og hún gerist
best. Sigurður Sveinsson skoraði
fyrsta mark leiksins með sann-
kölluðu þrumuskoti úr uppstökki.
Þjóðverjar jafna 1—1, en ísland
komst í 3—1 með glæsilegum
mörkum Björgvins og Sigurðar. 10
mínútur voru búnar af leiknum.
Þegar fyrri hálfleikur var hálfn-
aður náðu Þjóðverjar að jafna
metin 3—3, en á 16 mínútu skorar
Bjarni 4—3. Þetta mark reyndist
vera síðasta mark íslenska liðsins
í fyrri hálfleik. Hvert dauðafærið
rak af öðru, Páll Björgvinsson
komst tvisvar í gegn en mistókst í
bæði skiptin. Ólafur H. Jónsson
komst inn í sendingu og brunaði
upp en missti boltann of langt frá
sér. Fyrirliðinn Ólafur Jónsson
misnotaði þrjú tækifæri úr horn-
unum. Þrátt fyrir þetta jöfnuðu
Þjóðverjar ekki metin fyrr en á 22
mínútu og komust loks yfir á 26
mínútu.
Varnarleikur íslenska liðsins
var stórkostlegur í fyrri hálfleikn-
um. Leikinn var flöt vörn en þó
var Björgvin látinn leika aðeins
framar á miðjunni og gaf það góða
raun og truflaði leikfléttur Þjóð-
verjanna. Þá varði Kristján Sig-
mundsson mjög vel í markinu
allan leikinn. Sóknarleikurinn var
góður en er líða tók á hálfleikinn
misnotuðu leikmenn upplögð
tækifæri og það er fljótt að segja
til sín þegar leikið er gegn jafn
sterku liði.
Sigurður Sveinsson
skoraði öll mörkin í
síðari hálfleiknum:
Þjóðverjar byrjuðu með boltann
í síðari hálfleik og skoruðu fyrsta
markið og náðu tveggja marka
forystu. Sigurður Sveinsson svar-
aði með glæsilegu langskoti. Nú
fór að bera á því að varnarleikur-
inn fór að riðlast hjá íslenska
liðinu leikmenn hlupu út úr
stöðum sínum og þýsku leikmenn-
irnir gengu á lagið og ef ekki hefði
komið til góð markvarsla Krist-
jáns hefðu Þjóðverjar náð góðri
forystu en það var ekki fyrr en um
miðjan síðari hálfleikinn sem þeir
fóru virkilega að síga fram úr þá
var staðan 10—6. Síðan kom mjög
slæmur kafli hjá íslenska liðinu og
staðan breyttist úr 10—6 í 14—7.
Á þeim tíma komu íslensku leik-
mennirnir varla skoti í gegn um
vörnina þyska liðsins. Hvað þá að
þeir skoruðu mörk. Sá eini sem
eitthvað lét að sér kveða var
stórskyttan Sigurður Sveinsson en
hann skoraði 5 mörk í síðari
hálfleiknum eða öll mörk íslenska
liðsins.
íslcnska liðið
olli vonbrigðum.
Þeir voru ekki margir íslensku
leikmennirnir sem stóðu fyrir sínu
í leiknum. Sigurður Sveinsson átti
stórleik í sókninni og skoraði 7 af
9, mörkum liðsins. Það segir sína
sögu. Þó hefði Sigurður gjarnan
mátt fá meiri hjálp í leiknum við
skot sín. Of sjaldan var til dæmis
blokkerað fyrir hann. Ólafur H.
Jónsson bregst aldrei reyndur og
harðskeyttur baráttujaxl og að
venju stóð hann sig vel í varnar-
leiknum allan tímann. Kristján
markvörður lék einn af sínum
betri landsleikjum og varði allan
leikinn vel. Þrátt fyrir að vörnin
opnaðist illa sér í lagi í síðari
hálfleiknum. Björgvin stóð sig vel
en fékk of fáar sendingar inn á
línuna. Aðrir leikmenn náðu ekki
sínu besta. Fyrirliðinn Ólafur
Jónsson átti til dæmis 5 tilraunir
úr horninu en allar mistókust.
Trimmarahlaup
LAUGARDAGINN 29. nóvember
nk. verður haldið hlaup á Mikla-
túni kl. 14.30 sem sérstaklega er
atlað skokkurum á öllum aldri
og öllum öðrum er vilja skokka
og/eða ganga. í þessu samhandi
ber að geta þess, að nokkrir
reyndir hlauparar hafa tekið að
sér að mæta á þrjá staði i
borginni, ákveðna daga, og
skokka með og leiðbeina þeim er
vilja. Er þetta á eftirfarandi
dögum:
Miðvikudögum kl. 18.00 við
Sundhöll Reykjavíkur. Laugar-
dögum kl. lfi.OO við Laugardals-
laug, kl. 16.00 við Breiðholtskjör.
Er öll fjölskyldan hvött til að
mæta.
Selfosshlaup
SELFOSSHLAUPIÐ verður háð í
dag og hefst kl. 15 við íþrótta-
völlinn á Selfossi. Illaupið er
liður í vetrarhlaupum víðavangs-
Hlaupara, og eru hlaupnir 11
kilómetrar í karlaflokki og 3—4 í
kvennaflokki. IUaupið verður i
^tóran hring um götur Selfoss-
hæjar og um sveitina þar i kring.
• Fyrirliðinn ólafur Jónsson reynir skot úr horninu, en þýski markvörðurinn varði
Ljósm.: KE
Hefði Ólafur átt að fara sér hægar
þegar hann sá hversu illa sér gekk.
Þá kom ekkert út úr jafnsterkum
leikmanni og Alfreð Gíslasyni,
Þorbergur kom ekki skoti í gegn
um vörnina og línumennirnir
Bjarni og Steindór voru báðir
óheppnir. Það vantaði meiri aga í
allan leik liðsins, leikmenn voru of
bráðir. Þetta eru allt hlutir sem
hægt er að laga og ef leikmenn
leggja sig alla fram er varla
spurning um að úrslit í síðari
leiknum verða okkur mun hag
stæðari og með því að vera
heppnir og nýta marktækifærin er
stórgóður möguleiki á sigri. Það er
hlutur sem ekki gengur á móti liði
jafnsterku og Vestur-Þjóðverjar
eru. Þeirra lið var jafnt að getu og
leikmenn gáfu ekkert eftir hvorki
í sókn né vörn. En lið þeirra á að
vera hægt að sigra með skynsöm-
um leik.
Mörk íslands: Sigurður Sveinsson
7 1 víti, Björgvin Björgvinsson 1,
Bjarni Guðmundsson 1.
Mörk Þjóðverja: Meisinger 3,
Gnau 3, Ohly 2, Voik 2, Freisler 1,
Ehret 1, Damman 2.
Brottvísanir: Fimm Þjóðverjum
var vísað af leikvelli í 2 mínútur
en þremur íslendingum. —ÞR.
^TrmnTfr^^^mirm
Báturinn
sprakk í
tætlur
SÍÐAST þegar fréttist, hafði ekki
fundist tangur eða tetur af Lee
Taylor. glæframanni sem reyndi
að setja heimsmet í hraðbáta-
akstri á Lake Tahoe i Nevada.
Hinn 45 ára gamli Taylor hafði
náð um 500 kilómetra hraða á
klukkustund, er vélin sprakk
skyndilega í tætlur. Dreifðist
brak úr hátnum um allt vatn og
allar strendur stöðuvatnsins. en
ekkert fannst af bátsverja nema
hjálmurinn. Um 1000 manns
horfðu agndofa á bátinn springa.
þar á meðal móðir kappans,
eiginkona og börn.
B-flokks mót
í badminton
HELGINA 22.-23. nóvember
verður haldið B-flokksmót i Bad-
minton í íþróttahúsi Glerárskól-
ans á Akureyri. Keppt verður í
einliða- og tvíliðaleik karla.
Kcppni hefst kl. 10.00 háða dag-
ana.
Þátttökugjald verður kr. 5000
fyrir hvern keppanda í einliða-
Ieik og kr. 6000 fyrir hvert par í
tviliðaleik. Þátttökutilkynningar
skulu hafa borist formanni
T.B.A., Hauki Jóhannssyni.
Grundargerði 1 G, Akureyri. í
siðasta lagi þriðjudaginn 18. nóv-
ember.
K
✓