Morgunblaðið - 20.11.1980, Side 27

Morgunblaðið - 20.11.1980, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1980 27 „Sannfærður um að málefni fé- lagsins koma aftur til kasta Al- þingis áður en langt um líður“ Flugleiðafrumvarpið orðið að lögum: — sagði Halldór Ásgrímsson Frumvarp ríkisstjórnarinnar um IjárstuóninK við Flu>fleiðir hf. var samþykkt sem lög frá neðri deild Alþingis i fyrradaic. eftir nokkrar umra“ður. Halldór Ásgrimsson (F). formaður fjárhajís- og viðskipta- deildar nefndarinnar, fylgdi málinu úr hlaði við aðra umra'ðu málsins, og hóf hann mál sitt á því að ra*ða almennt um erfiðleika Flujileiða. sem svo mjöjf hafa verið i fréttum að undanförnu. Ilalldór kvað þessa erfiðleika fyrst ojc fremst stafa að utanaðkom- andi erfiðleikum, einkum á flujfleiðinni yfir Norður-Atlantshaf. Fleira ka'mi þó einnijf til, svo sem ólj?a meðal starfsfólks. yfirbyKKÍnB félajísins hefði verið of mikil oj? stjórnin ef til vill of sein á að átta sij? á breyttum aðsta'ðum. Þinjjmaðurinn sagði að margt mætti af þessum erfiðleikum læra, og kvað hann til dæmis alls ekki sjálfgert að önnur fyrirtæki í landinu eða hið opinbera hefðu brugðist við á skynsamlegri hátt. Vafalítið yrði þröngt í búi hjá allflestum, ef svipaðir erfiðleikar kæmu upp og þeir er Flugleiðir hefðu orðið að mæta. Halldór Ásgrímsson sagði að sínu mati réttlætanlegt að halda Atlantshafsfluginu áfram af ýms- um ástæðum. Til dæmis þeirri að hér væru hagsmunir fjölmargra starfsmanna í veði, og einnig gæti verið að birti til á umræddri flugleið. Hið síðarnefnda taldi hann þó ekki beinlínis líklegt eins og nú stæði á, og sagðist hann raunar sannfærður um að málefni Flugleða kæmu aftur fyrir Alþingi innan tíðar. Halldór gerði að því loknu grein fyrir áliti meirihluta fjárhags- og viðskiptanefndar, og kom fram i því, að stjórnarfor- Vilmundur Gylfason Undirritaðir nefndarmenn telja mikilvægt að efla samstöðu og áhrif starfsfólks í stjórn félagsins. í 47. gr. laga nr. 32/1978, um hlutafélög, segir: „í samþykktum er heimilt að veita stjórnvöldum eða öðrum rétt til að tilnefna einn eða fleiri stjórnarmenn." Við telj- um rétt að starfsfólk fái tækifæri til að tilnefna fulltrúa á þessum grundvelli og samþykktum félags- ins verði breytt í þessu skyni. Félag allra starfsmanna tilnefni fulltrúa að undangenginni kosn- ingu. Stjórn félagsins telur að ann- mörkum sé háð að halda aðalfund í febrúar vegna ársuppgjörs. Samkv. 2. mgr. 47. gr. laga um hlutafélög skal hluthafafundur kjósa stjórn hlutafélags. Samkv. því er ekkert til fyrirstöðu að hluthafafundur verði haldinn í febrúar. Nefndarmenn eru sammála um að starfsmannafélagi Arnarflugs Steingrimur Hermannsson Halldór Ásgrimsson tvær til viðbótar, þar af mjög mikilvæga tillögu um að allir starfsmenn Flugleiða hefðu sama atkvæðisrétt á aðalfundum, án tillits til hlutafjáreignar. Gerði. Vilmundur síðan grein fyrir minnihlutaáliti sínu í fjár- hags- og viðskiptanefnd deilarinn- ar, en megininntak þess eru eftir- talin tvö atriði: Allir starfsmenn Flugleiða hf., óháð kaupi, kjörum eða hlutafjár- eign, hafi jafnan rétt þegar kosið er í stjórn félagsins og megi Matthias Bjarnason vígur. Þá vék hann að því að Flugleiðir hefðu beðið álitshnekki að undanförnu, og væri þar meðal annars um að kenna neikvæðu umtali um félagið hérlendis. Matt- hías sagðist hafa ýmislegt við reksturinn að athuga, þar væri margt sem betur hefði mátt fara á undanförnum árum. En hann sagði, að einnig þyrfti að huga að ýmsu því er sneri að ríkisvaldinu í þessu sambandi, einkum eftir að ríkisvaldið hafði frumkvæði að því að sameina Fluj?félag íslands og Loftleiðir á tímum fyrri vinstri stjórnar Ólafs Jóhannessonar. Þá hefði því meðal annars verið lofað, að ef af sameiningu yrði, hefði félagið einkarétt á áætlunarleið- um er það kysi að fljúga á til annarra landa og til staða úti á landi, svo og leiguflugi til þeirra landa er félagið kysi að fljúga til. — Nú virðist hins vegar komin fram ný stefna stjórnvalda, sagði Matthías, og vitnaði til leyfisveit- ingar til handa íscargo, og sagði hann að ástæða væri til að spyrja, hvort áhugi starfsfólks Arnar- flugs á hlutabréfakaupum væri ef til vill í samhengi við þessa nýju stefnu. Árni Gunnarsson (A) tók næst- ur til máls, og sagði hann langt frá því, að þingmenn hefðu fast land undir fótum í máli þessu. Sagðist hann þess fullviss, að erfiðleikar Flugleiða væru síður en svo úr sögunni, og benti því margt til, að hér væri að hefjast Albert Guðmundsson og jafnvel flugvélakaupa, á sama tíma og hluti eigna félagsins væri á nauðungaruppboði? Steingrímur Ilermannsson (F) samgönguráðherra. sagði, að ekki væri verið að vinna að stefnu- mörkun í flugsamgöngum, en slíkt væri þó til athugunar. Yrðu þá fengnir til þess færir og hlutlausir aðilar, og ekkert gert í átt til breytinga fyrr en að vel yfirveg- uðu og athuguðu máli. Fjárhag Iscargo sagði Stein- grímur ekki vera mjög slæman að mati viðskiptabanka, en þeirra yrði að sjálfsögðu að meta það hvort lán yrði veitt til flugvéla- kaupa er þar að kæmi. Flugrekstr- arleyfi til þeirra á leiðinni millt Hollands og íslands sagði Stein- grímur hafa verið veitt eftir samhljóða meðmæli flugráðs, og í ljósi þess, að á þeirri leið hefðu Flugleiðir ekki flogið í 13 ár. í því fælist þvi engin stefnubreyting, og engin fyrirheit til starfsmanna Arnarflugs um að það félag fengi leyfi til flugs á áætlunarstaði. Þó gæti slíkt komið til greina, og væri til dæmis vitað um áhuga Arnar- flugsmanna á flugi til Ziirich í Sviss og jafnvel til fleiri staða. Þá ræddi ráðherrann um það, hvort ef til vill bæri að setja skorður við útþenslu Flugleiða, en Matthías Bjarnason hafði í ræðu sinni minnst á lögjíjöf um auð- hringa, án þess þó að hann teldi það eiga við um Flugleiðir. Stein- grímur sagðist vikulega fá alls kyns kvartanir vegna Flugleiða, svo sem frá hótelum og ferða- skrifstofum, sem bæru sig illa, vegna þess að Flugleiðir færu inn á starfssvið þeirra og undirbyðu jafnvel í mörgum tilvikum til þess að sölsa undir sig viðskipti er aðrir hefðu haft. Albert Guðmundsson (S) tók einnig til máls, og nefndi hann dæmi um, að Flugleiðir yrðu að standa betur að kynningu á verði fargjalda sinna, og að þar yrðu Islendingar að búa við sama hlut- skipti og útlendingar. Þá vék Alþert að því, að hann hefði lesið um að Flugleiðir hygðu nú jafnvel Árni Gunnarsson maður Flugleiða, starfsmenn Arn- arflugs, samgönguráðherra og fleiri hefðu komið á fundi nefnd- arinnar og gefið upplýsingar. Meirihluti nefndarinnar lagði til að frumvarpið yrði samþykkt, en gat sérstaklega nokkurra atriða úr svörum Flugleiða við skilyrðum ríkisins. í nefndarálitinu segir svo meðal annars: Stjórn félagsins er samþykk því að auka hlutdeild ríkissjóðs í 20%. Matthías Á. Mathiesen og Matthí- as Bjarnason eru andvígir því, að ríkissjóður auki hlutafjáreign sína í félaginu. Albert Guðmundsson er samþykkur því að auka hlutdeild ríkissjóðs í félaginu í 20%, sem tryggingu fyrir áhrifum og eftir- liti með rekstri Flugleiða hf., á meðan umrædd fyrirgreiðsla stendur yfir, en telur að ríkissjóði beri skylda til að selja hlutabréfin þegar fjárhagsstaðan batnar og ríkisábyrgðin fellur brott. Stjórn félagsins hefur hrundið í framkvæmd útboði hlutafjár að fjárhæð 234.974.000 kr. til starfs- manna félagsins og telur þess vegna að skilyrðið sé uppfyllt. sé gefinn kostur á að kaupa hlut Flugleiða hf. í Arnarflugi hf. Matthías Á. Mathiesen tekur fram að óeðlilegt sé að gera þær kröfur til fyrirtækis, sem leitar aðstoðar ríkisins, að það selji eignir sínar nema til þess að bæta fjárhagsstöðu eða koma fram stefnumótun löggjafans. Að því tilskildu er eðlilegt að starfs- mönnum viðkomandi fyrirtækis sé gefinn kostur á að kaupa hluta- bréfin. Undir nefndarálitið rita nöfn sín þessir þingmenn: Halldór Ás- grímsson, Ingólfur Guðnason, Guðm. J. Guðmundsson, Matthías Á. Mathiesen, Matthías Bjarnason og Albert Guðmundsson. — Einn nefndarmanna, Vilmundur Gylfa- son, skilaði hins vegar séráliti, og tók hann til máls að ræðu Hall- dórs lokinni. Vilmundur Gylfason (A) hóf mál sitt á því að segja, að breytingartillögur sínar við frum- varpið væru þær sömu og Kjartan Jóhannsson hefði flutt í efri deild við afgreiðslu málsins. Að auki kvaðst þingmaðurinn svo flytja starfsmenn með þessum hætti tilnefna tvo í stjórn; aðalfundur verði haldinn fyrir marslok, en ekki febrúarlok, eins og meirihlutinn leggur til. Því valda tæknilegar ástæður, sem Örn Ó. Johnson hefur gert nefnd- armönnum grein fyrir. Þá dreifði Vilmundur einnig áliti því er Kjartan Jóhannsson hafði lagt fyrir efri deild, og sagðist þingmaðurinn þannig vilja enn árétta sérstöðu Alþýðuflokks- ins í þessu máli. Matthías Bjarnason (S) tók næstur til máls, og kvaðst hann fagna þeirri málsmeðferð er mál þetta hefði fengið í neðri deild, einkum í nefnd. — Sú meðferð væri önnur en í efri deild Alþingis, þar sem svo hefði virst, að mest kapp væri lagt á að fjalla um málið á síðum dagblaðanna. Matthías vék því næst að nokkr- um atriðum málsins, og sagði meðal annars, að enn væri ekki kominn fram nægilegur rökstuðn- ingur fyrir því að nauðsynlegt væri að ríkið eignaðist stærri hlut í Flugleiðum, því væri hann and- svipað „ævintýri" og með útflutn- ingsuppbætur á landbúnaðarvör- um. Nú væri byrjað á því að niðurgreiða fargjöld fyrir útlend- inga milli meginlanda Evrópu og Ameríku. Þá beindi Árni þeim spurning- um til samgönguráðherra, hvort verið væri að vinna að stefnumót- un í flugsamgöngum landsmanna í samgönguráðuneytinu. — Hvort stefna ríkisstjórnarinnar væri að hafa hér á landi starfandi 3 flugfélög, þ.e. íscargo, Arnarflug og Flugleiðir? — Hvort ekki væri óskynsamlegt að veita Iscargo leyfi til áætlanaflugs til útlanda niÞinci á stofnun flugfélags í Afríku. Sagðist Albert vilja fá svör við því, hvað væri hér á ferðinni, — að því er virtist fjárvana fyrirtæki væri að færa út kvíarnar til fjarlægra heimsálfa. — Erum við hér ef til vill að samþykkja fjárstuðning til útvíkkunar á fé- laginu í stað þess að halda í horfinu, spurði þingmaðurinn? — Samgönguráðherra svaraði úr sæti sínu, og sagðist ekki geta gefið svör við þessu að svo komnu, áður yrði hann að afla sér nauð- synlegra gagna um hvað hér væri á ferðinni. Að því loknu var gengið til atkvæða, og frumvarpið samþykkt sem lög sem áður segir, eftir að hafa farið með afbrigðum í gegn- um þriðju umræðu. Allar breyt- ingartillögur Vilmundar voru felldar, og frumvarpið því sam- þykkt eins og það kom frá efri deild. Nafnakall var viðhaft um ýmsa liöi frumvarpsins, og gerðu margir þingmenn grein fyrir at- kvæði sínu við hina ýmsu liði, ýmist er þeir voru fylgjandi, andvígir eða sátu hjá.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.