Morgunblaðið - 12.03.1981, Side 1
48 SIÐUR
59. tbl. 69. árg.
FIMMTUDAGUR 12. MARZ 1981
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Auka stuðning við
þýskan f iskiðnað
Bonn. 11. mars. AP.
VESTUR-þýsk stjórnvöld hafa
ákveðið að auka mjög stuðning-
inn við sjávarútveginn þar í
landi vegna þess, að Efnahags-
bandaiagsrikjunum hefur rétt
einu sinni mistekist að koma sér
saman um fiskveiðistefnu. Er
áætlað að verja til sjávarútvegs-
ins aukalega 30 milljónum
marka á þessu ári eða um 90
milljónum isl. nýkr.
Viðræður EBE-ríkjanna um
stefnuna í fiskveiðimálum fóru út
um þúfur í dag eftir samfellda
fundarsetu í 16 klukkustundir en
búist er við að tekið verði til við
þær að nýju 6. apríl nk. Það eru
einkum deilur Frakka og Breta
um aðgang að breskum miðum
sem hafa komið í veg fyrir sam-
komulag.
Ósamkomulag Efnahagsbanda-
lagsríkjanna í fiskveiðimálum
hefur til þessa komið í veg fyrir
samninga við Kanadamenn og
hefur það komið mjög illa við
vestur-þýskan sjávarútveg.
Haft var eftir talsmanni land-
búnaðarráðuneytisins v-þýska í
dag, að stuðningur stjórnarinnar
við fiskiðnaðinn yrði einkum
notaður til að endurnýja fiski-
skipaflotann og leita nýrra miða.
Saudi-Arabar fá
ratsjárflugvélar
Ronald Reagan, Bandarikjaforseti, og Pierre Trudeau, forsætisráðherra Kanada, hvilast hér um stund
á svöium hins opinbera bústaðar kanadiska forsætisráðherrans i Ottawa. Myndin var tekin i fyrradag
á fyrsta degi opinberrar heimsóknar Bandarikjaforseta i Kanada, sem er jafnframt hans fyrsta
erlendis. Sjá nánar _Ána*K)a með Kanadaferð ...“ á bls. 22. AP-símamynd
W'ashinifton. 11. mars. AP.
HAFT var eftir heimildum i
Washington i dag, að bandariska
ríkisstjórnin hafi ákveðið að selja
Saudi-Aröbum fjórar Awacs-
ratsjárflugvélar, sem eru þær
fullkomnustu i heimi, og endur-
byggja egypskan flugvöli nálægt
Rauðahafi. Sagt er að þessar
Gordon Liddy
G. Gordon Liddy hf.:
Annast ráðgjöf
í öryggismálum
ChicaKo. 11. mars. AP.
GORDON Liddy, sem var einna
fremstur í flokki þeirra, sem
skipulögðu innbrotið í aðal-
stöðvar Demókrataflokksins í
Watergate í Washington, til-
kynnti í dag, að hann hefði
stofnað ráðgjafarfyrirtæki í ör-
yggismálum.
Liddy sagði, að aðalstöðvar
fyrirtækisins, sem heitir G.
Gordon Liddy h/f, yrðu í Chi-
cago vegna þess hve borgin væri
vel í sveit sett, en útibú þess í
New York, Las Vegas og Wash-
ington.
Arið 1973 var Liddy dæmdur
til 20 ára fangelsisvistar fyrir
þátt hans í Watergate-innbrot-
inu, en fjórum árum síðar
breytti Carter forseti þeim dómi
í átta ára fangelsi. Liddy var
látinn laus um haustið sama ár
og hafði þá setið inni í 52
mánuði.
ákvarðanir Reaganstjórnarinnar
séu liður í þeirri áætiun að koma
í veg fyrir rússneska útþenslu-
stefnu i þessum heimshluta.
Með Awacs-ratsjárflugvélunum,
sem kosta 400 milljónir dollara
hver, geta Saudi-Arabar fylgst
með viðbúnaði ísraelska flughers-
ins og af þeim sökum hefur
hugsanleg sala þessara véla verið
mjög umdeild í Bandaríkjunum.
ísraelar hafa einnig mótmælt
henni ákaflega.
Með ákvörðun sinni vill banda-
ríska ríkisstjórnin gera Saudi-
Aröbum kleift að vera á varðbergi
gegn hugsanlegri ógnun frá Sovét-
ríkjunum, írak eða Suður-Jemen
og bandarískir sérfræðingar munu
aðstoða við rekstur vélanna. Sú
ráðstöfun er einnig hugsuð sem
trygging fyrir því að ekki skerist í
odda með Saudi-Aröbum og ísra-
elum.
Samkvæmt leynilegu samkomu-
lagi við Egypta, að því er heimild-
ir herma, ætla Bandaríkjamenn
að gera miklar endurbætur á
flugvellinum í Ras Banas og verja
til þess einum milljarði dollara.
Bandaríkjamenn hafa nú þegar
fengið herbækistöðvar í Kenya,
Oman og Sómaliu.
Að sögn heimildarmanna hefur
bandaríska ríkisstjórnin tekið
endanlega ákvörðun í þessu máli
en það hefur hins vegar ekki verið
lagt fyrir þingið, sem verður að
leggja blessun sína yfir sölu
Awacs-ratsjárvélanna.
Verkföllum enn
hótað i Póllandi
Varsjá, 11. mars. AP.
FRAMMÁMENN Samstöðu, hins
óháða verkalýðssambands, í
borginni Radom í Suður-Póllandi
hafa hótað verkföilum ef stjórn-
völd verða ekki við kröfum
þeirra, sem flestar eiga rætur
sinar að rekja til verkamanna-
óeirðanna fyrir fimm árum. Þær
eru helstar, að ofsóknum á hend-
ur Samstöðufélögum verði hætt,
að þeir embættismenn verði rekn-
ir, sem stóðu fyrir árásum á
verkamenn 1976 og að pólitiskir
fangar verði látnir lausir.
Talsmaður Samstöðu í Radom
sagði í dag, að spennan hefði
aukist mjög í borginni þegar
fréttist, að herlögreglumenn hefðu
ráðist með barsmíðum á fjóra
menntaskólanemendur, sem báru
kröfuspjöld frá Samstöðu. Hann
sagði einnig að verkamenn í Rad-
om hefðu sent frá sér áskorun til
allra „heiðarlegra lögreglumanna"
um að „losa“ sig við slíka menn.
Radom var einn helsti vettvang-
ur óeirðanna 1976 í kjölfar mikill-
ar hækkunar á matvörum og þar
voru aðalstöðvar kommúnista-
flokksins brenndar til grunna. í
Radom var einnig stofnuð Varnar-
nefnd verkamanna, sem hafði það
á stefnuskrá sinni að aðstoða þá,
sem lentu í klóm lögreglunnar.
Málsvari Samstöðu í Varsjá
sagði í dag að Jaruzelski, forsætis-
ráðherra, væri fús til að ræða við
yfirstjórn Samstöðu um ágrein-
ingsmálin og hefði um það samist
á fimm tíma löngum fundi hans og
Lech Walesa í gær. í Varsjárblað-
inu Zycie Warszywy birtist í dag
heilsíðugrein til varnar sósíalism-
anum og bandalagi Pólverja og
Rússa og er litið á hana sem
áminningu um að Pólverjar eigi
ekki margra kosta völ í þeim
efnum. í blaðinu sagði einnig að
Lech Walesa hefði sagt félögum
sínum í Radom, að hann væri
hlynntur verkfalli þar ef allt um
þryti en ekki fyrr.
í borginni Lodz hafa verkamenn
komist að samkomulagi við
stjórnvöld og hafa afboðað verk-
fall, sem hefjast átti á morgun.
Samkomulagið tókst þegar heitið
hafði verið endurráðningu fimm
verkamanna, sem reknir höfðu
verið úr starfi á sjúkrahúsi.
Hóta að hindra
skipaflutninga
London. 11. mars. AP.
VERKFALL ríkisstarfsmanna
gerir breskum stjórnvöldum enn
lífið leitt þriðja daginn í röð og
hefur m.a. komið í veg fyrir að
Ogaden:
Skæruliðar segjast
ráða lögum og lof um
Mogadishu. 11. mars. — AP.
SKÆRULIÐAR. sem berjast
gcgn yfirráðum Eþíópiumanna
i Ogaden-eyðimörkinni, segjast
hafa unnið mikla sigra á eþióp-
ískum hermönnum að undan-
förnu og að þeir ráði nú lögum
og lofum í Ogaden eða Vestur-
Sómaliu eins og þeir kalla hana.
Jafnframt hafa þeir farið fram
á aukna aðstoð við flóttafólk á
þessum slóðum.
Á blaðamannafundi, sem tals-
maður Frelsisfylkingar Vestur-
Sómalíu efndi til í dag, sagði
hann að tugir eþíópískra her-
manna hefðu fallið í átökunum
síðustu dagana og að í raun
réttri hefðu skæruliðar alla
Ogaden á valdi sínu. Hann sagði,
að Eþíópíumenn, sem njóta
stuðnings Kúbumanna, reiddu
sig nú nær eingöngu á flugher-
inn í baráttunni við skæruliða og
væri það einkum saklaust fólk í
þorpum og bæjum, sem yrði
fyrir barðinu á sprengjuregninu.
Að sögn talsmanns Frelsis-
fylkingarinnar er ástandið í
flóttamannabúðunum í Sómalíu
mjög alvarlegt og að 20—30
manns deyi þar daglega. Hann
skoraði á allar þjóðir að koma
fólkinu til hjálpar án tafar með
matarsendingum og lyfja.
stjórnin hafi getað hrint í fram-
kvæmd áætluðum skattahækkun-
um. Fiutningar með skipum milli
Bretlands og írlands hafa stöðv-
ast og í dag hótuðu verkalýðsleið-
togar að hindra líka viðskipti við
önnur Evrópulönd.
Talsmenn hinna níu félaga
breskra ríkisstarfsmanna, sem
hafa innan sinna vébanda 530.000
manns, sögðu í dag, að verkfalls-
aðgerðirnar hefðu komið í veg
fyrir nýtilkynnta skattahækkun á
tóbaki, áfengi og bensíni, sem
áætlað er að nemi tveimur millj-
örðum punda á ári. Félög ríkis-
starfsmanna hafa krafist 15%
launahækkunar og hafa hafnað
tilboði stjórnarinnar um 7%
hækkun.
130 tollverðir í níu höfnum í
Wales og Norðvestur-Englandi
bættust í dag í hóp verkfalls-
manna og af þeim sökum hafa
allir flutningar með skipum milli
írlands og Bretlands lagst niður.
44% af útflutningi íra fara um
breskar hafnir og 50% innflutn-
ingsins. Búast má við miklum
erfiðleikum á írlandi ef verkfallið
stendur lengur en í viku.