Morgunblaðið - 12.03.1981, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. MARZ 1981
33
Barna- og tjölskyldusíðaii
Þar sem
orðin eru
seld
Á sumum eyjum í Suður-
höfum er það siður að
„selja“ ýmis orð, sem eiga
að hafa töframátt fólginn í
sér, geta læknað sjúkdóma
og rekið burt illa anda.
Hinir innfæddu trúa á
töframátt orðsins, en selj-
andinn verður að skuld-
binda sig til að nefna aldrei
þetta orð framar, því að
annars missir það töfra-
mátt sinn.
Fiskar í
harðri keppni
Talið er, að Kínverjar
hafi látið fiska taka þátt í
keppni, þar til fyrir fáum
árum. Þeir höguðu keppn-
inni þannig, að sérstök teg-
und af fiskum, sem voru á
stærð við meðalstóra síld,
með fallega sporða og ugga,
dökkgræn að lit, var sett í
fiskabúr þar sem menn
gátu fylgst með þeim. Þeg-
ar fiskarnir urðu ákafir og
reiðir, skiptu þeir litum og
urðu blóðrauðir. Sá fiskur-
inn, sem fyrstur varð aftur
dökkgrænn, beið ósigur í
keppninni.
Já, margt er sér til gam-
ans gert, stendur einhvers
staðar. Hver veit nema nú
standi yfir ólympíumót ís-
lenska síldarstofnsins í ál-
um Atlantshafs?
Ódýr
bátur
Einu sinni vildi Gunna
litla endilega kaupa dýran
bát í búð. Pabbi hennar var
ekki alveg á sama máli.
Báturinn átti að kosta 24
krónur!
„Ég er viss um, að þú
getur fundið skemmtilega
kubba í dótinu okkar, ef þú
leitar vel,“ sagði pabbi
hennar og bætti við: „Ég
skal gefa þér 12 krónur, ef
þú smíðar bát úr efni, sem
kostar þig ekkert."
Þegar heim var komið
rauk Gunna strax til að
leita og eftir tvær klukku-
stundir hafði hún smíðað
bát úr efni, sem kostaði
hana ekki neitt! Og svo
ánægð og hamingjusöm var
hún, að hún gleymdi að
rukka föður sinn um 12
krónurnar. (Hins vegar
geymir hann krónurnar
hennar í bankabók. Þegar
tækifæri gefst ætlar hann
að skýra það betur fyrir
henni, hvernig unnt er að
nýta hluti vel.)
ÞorStfikh' tira. Heifcarfi«rnil.YÁ
GAMLÁRSKVÖLD
Eftir Þorstein, 8 ára. Heiðarhorni 3, Keflavík.
i 'JL.
SEINNI HEIMSSTYRJÖLDIN
Teikning: Helgi Hafþórsson, 10 ára.
Kvlkmyndlr
eftir ÓLAF M.
JÓHANNESSON
Hnefahúmor
Nafn á frummáli: Every Which
Way But Loose.
Leikstjóri: Jame Fartto.
Handrit: Jeremy Kronsberg.
Framleiðandi: Robert Daley.
Clint Eastwood hefir löngum
tilheyrt þeim flokki kvikmynda-
leikara sem undirritaður hefir
hvað mestar mætur á. Nú kann
einhver menningarvitinn að
lyfta brúnum, býst sennilega við
að í þapn flokk falli bara Sörar á
borð við Laughton, Gielgud eða
Olivier. Síðasttöldu leikararnir
hlutu eldskírn sína á sviðinu, í
skóla Shakespeare o.co. Þeir
voru því jafn vel heima í leikhúsi
og fyrir framan kvikmyndatöku-
vél. Ég efast um að Clint
Eastwood gæti kraflað sig fram
úr smáhlutverki á sviði því hann
er raunverulega enginn leikari í
þeirri merkingu orðsins. Hins
vegar kann hann að nýta til
fullnustu möguleika kvikmynd-
arinnar. Með sérstæðri rödd
sinni sem eins og smýgur inn í
hlustirnar, yfirveguðum svip-
brigðum sem oftast eru nánast
engin svipbrigði og þaulæfðu
göngulagi nær hann furðugóðu
taki á hinni „nútímalega kántrí-
hetju" sem er hans sérsvið.
Aðeins Charles Bronson sem er
búinn óvenju myndrænu andliti
frá náttúrunnar hendi er hér
fremri. Æfðir sviðsleikarar eins
og Burton, Brando og sir Alec
Guinnes hafa á síðari árum tekið
upp þennan leikstíl. Þeir láta æ
meir persónuleika sinn tala til
áhorfandans. Samkvæmt þessu
skiptir persónuleiki, útlit, rödd
og göngulag mestu máli fyrir
kvikmyndaleikarann. Lýsing og
sjónhorn sjá um hitt.
Nýjasta mynd Eastwood „Ev-
ery Which Way But Loose“ er í
nokkuð öðrum stíl en fyrri
myndir hans. Hér reynir kall
sem sé að vera fyndinn og töff í
senn. Töffarahátturinn bregst
ekki þótt miðjan sé nú farin að
slakna en ekki hlær maður að
Eastwood. Hins vegar hefur
hann fengið með sér leikara úr
dýraríkinu, apa nokkurn Clyde
að nafni. Má segja að apinn
bjargi Eastwood og skyggir ger-
samlega á hann í sumum atrið-
unum. Enda andlit apans óvenju
myndrænt, sérstaklega munn-
stæðið sem býr yfir miklum
tjáningarmætti. Göngulagið er
og frábært. Skyggir apinn á alla
leikendur myndarinnar þegar
hann gengur, jafnvél John
Wayne heitinn var ekki fremri
að þessu leyti. Annars er athygl-
isverður húmorinn í þessari
mynd. Má nefna hann apahúmor
saminn fyrir greindarvísitölu 30
og þar fyrir neðan. Máski eru
Eastwood og félagar að hæðast
að okkur með þessum hálfvita-
húmor. Við sem hlægjum hvað
ákafast að Clyde séum raunveru-
lega þeir sem hlægja ber að . En
Eastwood getur ekki stillt sig
um að blanda ofbeldi saman við
húmorinn, svona eins og til að
gera myndina hæfa til sýningar í
heimi hinna fullorðnu. Þessi
sérkennilega blanda ofbeldis og
kátínu virðist við fyrstu sýn
býsna lágkúruleg, en er hún ekki
bara tákn þess hugarástands
sem er smám saman að skjóta
rótum í okkar veröld.
Bæjarstjórn Neskaupstaðar:
Óviðunandi ,vetr
aráætlun FÍ
EFTIRFARANDI ályktun var
samþykkt á bæjarstjórnarfundi
Neskaupstaðar 10. febrúar sl.:
„Frá því að vetraráætlun FÍ tók
gildi sl. haust hafa flugsamgöngur
við Neskaupstað verið afar strjálar
og mun lakari en um langt skeið.
Bæjarstjórn Neskaupstaðar telur
að ekki verði áfram unað við þetta
ástand og samþykkir að leitað verði
allra úrræða til að bæta og auka
þessi sjálfsögðu nauðsynlegu þjón-
ustu við íbúana.
Höfuðáherslu skal leggja á eftir-
farandi: 1.) Ferðum milli Neskaup-
staðar og Reykjavíkur verði aftur
fjölgað í þrjár á viku enda hefur
sýnt sig að færri ferðir duga ekki.
2) Aftur verði tekin upp sú sjálf-
sagða regla, að falli niður ferð
vegna veðurs eða annarra ástæðna,
skuli flogið næsta færan dag. 3) Þá
daga, sem ekki eru beinar ferðir til
Neskaupstaðar, verði haldið uppi
flugferðum milli Neskaupstaðar og
Egilsstaða í samvinnu við Fiugfélag
Austurlands. 4) Jafnframt þessu
verði kannað, hvaða þjónustu Arn-
arflug hf. getur boðið upp á á
leiðinni Nesk,—Rvík.“
Afsláttarkort hjá
Alþýðuleikhúsinu
í tilefni af aukinni starfscmi i
nýju húsnæði hefur Alþýðuleik-
húsið nú tekið upp þá nýbreytni
að bjóða einstaklingum og fyrir-
tækjum afsláttarkort.
Korthafar munu fá afslátt á
allar sýningar leikhússins gegn
framvísun þeirra í miðasölu Al-
þýðuleikhússins í Hafnarbíói.
Gildistími kortanna er eitt ár og
gildir hvert kort fyrir tvo miða.
Eins og stendur er Alþýðuleik-
húsið með fjórar sýningar í gamla
Hafnarbíói: Unglingaleikritið
Pæld’í'ðí, barnaleikritið Kóngs-
dóttirin sem kunni ekki að tala,
og tvö verk eftir Dario Fo: Kona
og Stjórnleysingi ferst af slysför-
um, og áætluð eru fleiri verk fyrir
vorið.