Morgunblaðið - 21.03.1981, Síða 30
HVAÐ ER AO GERAST UM HELGINA?
30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. MARZ 1981
TÓNLISTARSKÓLI KÓPAVOGS
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR
Tónleikar í Kópavogskirkju
Á morgun verða haldnir tón-
leikar í Kópavogskirkju í tilefni
af 25 ára afmæli Kópavogskaup-
staðar. Mun Tónlistarskóli
Kópavogs annast tónleikana og
hefjast þeir kl. 17.00.
Flutt verða einsöngslög eftir
elsta núlifandi tónskáld kaup-
staðarins, Sigfús Halldórsson.
Guðmundur Guðjónsson tenór,
syngur við undirleik höfundar.
Einnig verða flutt verk eftir
yngstu tónskáldin þ.e. nemendur
í skólanum, bæði sönglög og verk
fyrir hljóðfæri.
Að lokum munu fyrrverandi
og núverandi nemendur og kenn-
arar skólans sameinast um að
flytja Concerto grosso nr. 1 í
D-dúr eftir Corelli.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill meðan húsrúm leyfir.
Sýning á borðskreyt-
ingum og „floral objects"
Strengjasveitin sem flytur Concerto grosso eftir Corelli.
Á morgun og mánudag verður
haldin sýning á borðskreytingum
og „floral objectum“ í Borgar-
blóminu, Grensásvegi 22. Verða
þar sýnd verk eftir Sigríði Ingólfs-
dóttur, Juttu Zernikov og Albert
Hofer.
Borðskreytingarnar eru unnar á
nátturulegan hátt, en við gerð
„floral objecta" er lögð mest
áhersla á form og áferð hvers
plöntuhluta og þessi einkenni
dregin fram með ónáttúrlegum
efnum eins og járni og viði.
Sigríður Ingólfsdóttir sagði:
— Við ákváðum að hafa þessa
Sýningu Ronalds
lýkur annað kvöld
Annað kvöld lýkur í Ásmundar-
sal á Skólavörðuholti sýningu
Ronaids Símonarsonar á olíumál-
verkum og vatnslitamyndum.
Ekki er liðið nema ár síðan
Ronaid hélt stóra yfirlitssýningu í
Reykjavík, en öll verkin nú eru ný
af nálinni.
Aðsókn hefur verið mjög góð og
um helmingur verkanna er þegar
seldur.
Þrjár sýningar eft
ir á „Ótemjunni“
í kvöld verður sýning á banda-
ríska leiknum Rommí hjá Leik-
félagi Reykjavíkur í Iðnó, en
leikurinn hefur verið sýndur
fyrir fullu húsi í allan vetur. Á
meðfylgjandi mynd sjást þau
Sigríður Hagalín og Gísli Hall-
dórsson í hlutverkum sínum.
Annað kvöld verður Ótemja
Shakespeares sýnd, en hún var
frumsýnd í janúar sl. Nú eru
eftir þrjár sýningar á þessum
sígilda gamanleik. Á meðfylgj-
andi mynd sjást þeir Guðmund-
ur Pálsson og Sigurður Karlsson
í hlutverkum sínum.
Síðasta sýning-
arhelgi hjá
Jakobi Hafstein
Annað kvöld lýkur sýningu
Jakobs Hafstein í Sjálfstaeðis-
húsinu í Njarðvíkum, en þar
sýnir hann 15 olíumálverk, 14
vatnslitamyndir og 16 pastel-
myndir. Flest verkanna eru
unnin á síðasta ári, en nokkur
þeirra fullgerð á þessu ári.
Aðsókn hefur verið góð.
Sýning Jakobs Hafstein verð-
ur opin í dag og á morgun frá kl.
16—22, en henni lýkur annað
kvöld eins og fyrr segir.
Jakob Ilafstein að
störfum í vinnustofu sinni.
■k. 'Wt
Gunnar Kvaran og Gfsli Magnússon.
Klassík á Hlíðarenda
Annað kvöld munu þeir Gísli
Magnússon píanóleikari og Gunn-
ar Kvaran cellóieikari koma fram
á veitingastaðnum Hlíðar-
enda, en þá leika þeir m.a. verk
eftir Mozart, Beethoven, Vivaldi,
Saint-Saéns, Massenet og Crisler.
sýningu til þess að sýna hve mikla
möguleika þessi efni gefa. Jutta
Zernikov og Albert Hofer eru bæði
vestur-þýsk, en hafa verið hér á
landi síðan í október. Þau eru
blómaskreytingamenn, en hafa að
auki lokið tækninámi á því sviði
frá Fachschule fur Blumenkunst í
Weihenstephan.
Sýnendurnir f Borgarblúminu,
f.v. Jutta Zernikow, Sigrfður Ing-
ólfsdóttir og Albert Hofer með
tvö „floral object“.
Schubert-kvöld
í Njarðvík
Annað kvöld verða haldnir
tónleikar í Ytri-Njarðvíkur-
kirkju, þar sem eingöngu verð-
ur fiutt tónlist eftir Franz
Schubert. Að tónieikunum
standa kór Ytri-Njarðvíkur-
kirkju og Tónlistarskóli Njarð-
víkur og hefjast þeir kl. 20.30.
Á tónleikunum verður leitast
við að kynna tónskáldið í tali
og tónum. Leikin verður píanó-
tónlist, og nemendur og kór
Tónlistarskólans syngja ljóð og
lög. Kór Ytri-Njarðvíkurkirkju
flytur Messu í G-dúr og þar
fara þrír nemendur tónlist-
arskólans með einsöngshlut-
verkin. Hljóðfæraleikarar úr
Sinfóníuhljómsveit íslands að-
stoða.
Að loknum tónleikunum
mun systrafélag Ytri-Njarð-
víkurkirkju vera með kaffisölu.
BORGARBLÓMIÐ:
Úr „Peysufatadegi“ nemendaleikhússins.
NEMENDALEIKHÚSIÐ
„Peysufatadagur“ í Lindarbæ
Á morgun sýnir Nemendaleikhús
Leiklistarskóla íslands „Peysufata-
dag“ Kjartans Ragnarssonar og
hefst sýningin kl. 20 í Lindarbæ.
Leikritið gerist daginn fyrir og á
Peysufatadagirin í Verslunarskólan-
um 1937 og bregður upp myndum af
lífi, aðstæðum og skoðununum
nokkurra ungmenna á þeim tíma
þegar andstæður í pólitík voru sem
skarpastar. Inn í er fléttað tónlist
og söng frá þessum tíma þegar m.a.
Andrews Sisters og Komedian Har-
monists voru efst á vinsældalistan-
um.
Kjartan leikstýrði sjálfur verkinu
og hefur uppfærsla hans svo og
frammistaða leikenda hlotið ein-
róma lof gagnrýnenda.
Sýningar eru nú orðnar 15 og
hefur verið uppselt á flestar þeirra.