Morgunblaðið - 21.03.1981, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. MARZ 1981
45
Mörgum er nauðsyn
að halda hund
Guðrún Jacobson skrifar 17.
mars:
„Velvakandi og lesendur — með
og á móti hundum.
Mig langar að taka undir skrif
eins hundeiganda í Laugarnes-
hverfi í morgun. Ég nenni ekki að
hafa eftir tilvitnun í bréf hans.
Hundaeigendur, sem ekki eru
áskrifendur að Mogganum eða
kaupa hann í lausasölu, geta lesið
hann frítt í lestrarsal Borgar-
bókasafnsins. Ég vil aðeins segja
þetta:
Þér hundaeigendur í Reykjavík.
Takið ofangreindan hundseiganda
yður til fyrirmyndar. Hann geng-
ur með skóflu og poka á eftir
sínum hundi, sem stundum gerir
stykkin sín á almannafæri.
Sjálf á ég hundtík eina. Ekki
veit ég hvað því veldur, en ég
virðist vera eini borgarinn hér á
Stór-Reykjavíkursvæðinu sem á
tík.
Þetta ágæta grey, sem aldrei
hefur valdið öðrum ónæði með
ótímabæru gelti, leggur af sér
úrganginn í sínum eigin húsa-
garði, er undirlögð tvisvar á ári,
líkt og hver önnur eftirsótt jómfrú
af annarra manna hundum!
Og nú vil ég segja þetta, án þess
að nefna nein nöfn, hvorki eigenda
né hunda — hvort sem þeir búa í
Garðahreppi. Kópavogi, Seltjarn-
arnesi, Skerjafirði, eða hér á
Stór-Reykjavíkursvæðinu:
Það er alveg nóg á vinnandi
svefnþurfi manneskjur lagt, sem
varla fá svefnfrið frá föstudags-
kvöldi fram á rauðanótt, þegar
sumir þegnar þjóðfélagsins af
öllum sortum þurfa að skvetta úr
sér, rífa mann upp með öskri og
ólátum — þótt annarra manna
hundar klári ekki afganginn!
Rikisútvarpið:
Ekki að sjá
að því
sé f jár vant
Útvarpshlustandi skrifar:
„Kæri Velvakandi!
Ég vil beina þeirri spurningu til
fjármálastjóra Ríkisútvarpsins,
hvað það kosti morgunútvarpið með
aðstoðarstarfsmönnm o.fl. Þessir
þættir eru að mínum dómi afar
lélegir, oft ekki annað en upptugga
úr blöðum og útvarpi. Það er ekki að
sjá að Ríkisútvarpinu sé fjár vant.
Og það er til dæmis einkennilegt, að
þulir skuli ekki geta annast það að
setja plötur á fóninn eftir hádegið,
heldur sé nauðsynlegt að ráða sér-
staka starfsmenn til þess.“
Mörgum er nauðsyn á að halda
hund í húsi. Hundur er einn bezti
húsvörður fólks og reykvari. Góð-
ur hundseigandi lætur ekki hund
sinn flakka lausan um götur og
garða Reykjavíkur.
Góður hundseigandi lætur ann-
aðhvort gelda sinn hund eða
skaffar honum tík úr eigin vasa!
Það er nógu lengi búið að hengja
bakara fyrir smið. Næst þegar
tíkin mín verður ólétt, skuluð þér
sjálfir, hundaeigendur góðir,
borga rándýrar auglýsingar í
blöðunum, til að koma hvolpunum
í góðra hendur, eða svæfa þá.“
Afnotagjöld sjón-
varps og útvarps:
Yrðu að vera
hærri ef
gjaldendur
yrðu færri
Jón Helgason, Hafnarfirði,
skrifar:
„Víðkunni Velvakandi!
Einn hálffertugur skrifar um
málefni aldraðra 13. þ.m. Þessi
nær 20 þúsund manns, sem töldust
vera á landinu 67 ára og eldri við
síðasta manntal, á ég erfitt með að
skilja að spari ríkinu mikið fé. En
þessum hálffertuga finnst, að und-
antekningarlaust ættu allir lífeyr-
issþegar að fá niðurfellingu á
afnotagjöldum síma, hljóðvarps
og sjónvarps.
Engin sanngirni finnst mér í
því, að við meðal öldunganna sem
eru vel stæðir efnahagslega, og
sumir stóreignamenn, fríumst við
þessar greiðslur. Augljóst er, að
þessi ríkisreknu fyrirtæki yrðu að
hafa afnotagjöldin hærri eftir því
sem gjaldendurnir yrðu færri.
Gæti þá farið svo, að byrði
fátæklings yrði þyngd um það sem
létt var á þeim ríka.“
rvær hugmyndir um
lálefni aldraðra
*** .. ki.AAvtriH of wonvarp
hélllrrlMur .kr.f.r
r .K»n V»lv»k»i*d>
j Ml,
niiltfn.
^ _____ hugmyndum um
»uir»ftr» Sú fyrri »r »
, »» »llilifryri»þ««»r »»m
. : v..l»Oir 4 v»«um hm.
mb»r» njOt.
_kv •K.ttalORum o* o»rn»n»»
hv»nu »inn. Hin hugmynd-
Hl J, allir rililif.yri»Þn»'
illingu i »fnoUO#Mum
Rv«. tu Imui tillöRur i þmrri
srvir.
J,»r •kyldföl'. þ»« 'WJ. '
h«r byrö»r. »1^'^ ^ . ,
17. ,. ,nnut þ»ö Slikt vvrou.
U fullu «r».tt U* t*kk»*.
M,« þokk fyrir birtin*un»-
Smáábending:
Til Tónlistarf élags-
ins og Þjóðleikhússins
Einn af fyrstu meðlimum
Tónlistarfélagsins skrifar:
„Tónlistarfélagið er þekkt og
vinsælt félag, sem hefur veitt
manni margar ánægjustundir,
og núna síðast í Þjóðleikhúsinu
okkar laugardaginn 7. mars.
Mér líkuðu hljómleikarnir
ágætlega, en ég ætla að leyfa
mér að finna að ýmsu.
Ilreinlæti kostar
varla svo mikið
Við erum jú menningarþjóð,
eða svo er okkur sagt! Én mikil
ósköp var flygillinn rispaður og
kámugur, og til vansa að bjóða
hinum fræga Dalton Baldwin að
sitja á samanvafinni dulu á
skítugum píanóbekk! Einnig
hefði mátt sópa eða þvo gólfið á
sviðinu. En mér og fleirum til
óblandinnar ánægju voru blóm-
in, sem listamennirnir fengu,
óvenjulega falleg og ekki pakkað
inn í sellófan.
Flygillinn í Austurbæjarbíói
er ámóta rispaður og óhreinn.
Hreinlæti kostar varla svo mik-
ið, að ekki væri hægt að ráða bót
á svona smámunum, en fleira
mætti upp telja.
Ilvernig væri nú
að hjóða engum?
Svo er annað. Nú er farið að
tala um listahátíð. Ég man því
miður ekki, hvað tapið var mikið
síðast, en mikið var það. Ég
heyrði þá, að mörgum hefði verið
boðið, og mörg sæti boðsgesta
hefðu verið auð. Hvernig væri nú
að bjóða engum. Við vitum, að
flest af því fólki, sem boðið er,
myndi fara hvort eð væri, senni-
lega er líka erfitt að gera upp á
milli, hverjum bjóða skal og
hverjum ekki! Og líklega yrði
tapið líka minna og Pétur og
Páll þyrftu þá ekki að borga
fyrir hina útvöldu.“
Víxlar og skuldabréf
Hefi kaupendur aö miklu magni af víxlum og 2—3
ára skuldabréfum.
Fyrirgreiösluskrifstofan — veröbr.sala.
Sími 16223 — Vesturgötu 17.
Þorieifur Guðmundsson heima 12469.
Hvers
vegna
Jesús?
I kvöld kl. 20.30 halda Kristi-
leg skólasamtök kynn-
ingarfund í húsi KFUM og
KFUK að Amtmannsstíg 2b.
Meöal efnis á fundinum veröur:
— kynning á félaginu
— kvikmynd úr KSS
— leikþáttur
— sönghópur syngur
— Guömundur Einarsson
framkvæmdarstj. Hjálp-
arstofnunar kirkjunnar
talar.
Allir á aldrinum 13—20 ára
eru velkomnir.
n
h
*
'M
%
fí
Hitinn er dýr
— lokið
kuldagjóstinn úti
+ VINDSÚGUR = LÁGMARKSHITATAP
Fallegar útihurðir a< mörgum gerðum — öflugar og
viðnámsgóðar — þrautreynd og rannsökuð hurðar-
bygging með tvöfaldri málmvörn og spónalögum
— Þéttar og loka úti súg og raka — Karmur með
gúmmlhéttilista — 2 ára ábyrgð. —
Scadania-hurðir.
B BÚSTOFN
Aöalstræti 9, Reykjavík,
símar 29977 — 17215.