Morgunblaðið - 21.06.1981, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. JÚNÍ1981
5
Saxofónniiin, danskt sjónvarpsleikrit
Á morgun klukkan 21.15 er á
dagskrá sjónvarpsins danskt
sjónvarpsleikrit cítir Morten
Henriksen.
Leikritið fjallar um ungan,
fremur veikgeðja mann, sem
ætlar að fara að gifta sig ungri
og góðri stúlku. Hann er einnig
að taka læknispróf. Rétt áður en
hann tekur lokapróf ákveða
hann, stúlkan og nokkri vinir að
fara út og þau fara á jazzklúbb.
Áður en ungi maðurinn hafði
kynnst stúlkunni hafði hann
verið saxafónleikari. Þegar þau
eru komin á jazzklúbbinn fara
að rifjast upp gamlar minningar
og hann hittir einnig gamla
vinkonu sem ýtir undir minn-
ingarnar.
Hvernig leikritð fer, fá svo
áhorfendur að sjá annað kvöld,
en myndin er um einnar og
hálfrar stundar löng.
Rætt við Snorra Hjartarson
Klukkan 20.45 í kvöld
er á dagskrá sjónvarps-
ins þáttur um Snorra
Hjartarson, en Snorri
hlaut bókmenntaverð-
laun Norðurlandaráðs í
ár or af því tilefni sýndi
danska sjónvarpið þenn-
an þátt þar sem Ilalldór
Sigurðsson hlaðamaður
ræðir við Snorra Hjartar-
son.
Einnig er spjallað við
Sigurð A. Magnússon um
skáldskap og stöðu Snorra
í íslenskum bókmenntum.
Rætt er að lokum við
Njörð P. Njarðvík sem var
einn af dómurum fyrir
íslands hönd og hann
spurður hvernig reglur
gildi um verðlaunaúthlut-
unina og afhendinguna.
Einnig er vikið að þeirri
sérstöðu sem íslendingar
og Finnar hafa hvað varð-
ar tungumálið.
Þátturinn er u.þ.b. hálf-
tíma langur.
Hljóðvarp kl. 19.25
I Berlín fyrir
hálfri öld
- Pétur Pétursson ræðir við Friðrik Dungal
í hljóðvarpi kl. 19.25 er fyrri
viðtalsþáttur af tveim, þar sem
Pétur Pétursson ræðir við Frið-
rik Dungal um námsár hans i
Berlín. Síðari þátturinn verður
nk. sunnudag á sama tíma.
— Friðrik Dungal er kunnur
fyrir margs konar starfsemi,
sagði Pétur Pétursson. — Þess
má geta að hann setti fyrstur
manna upp tannsmíðaverkstæði
hér á landi, fyrir u.þ.b. hálfri
öld. Hann nam í Þýskalandi, fór
þangað um tvítugt og dvaldist
þar í tvö ár við tannsmíðanám. í
þessum tveimur samtalsþáttum
okkar segir hann frá dvöl sinni í
Berlín á þeim árum sem margir
hlutir voru að gerast í Evrópu.
Hann greinir frá íslenskum
námsmönnum sem hann var
samtíða í Berlin og margir urðu
þjóðkunnir menn síðar, og einnig
frá listamönnum, söngvurum og
píanóleikurum. Heimili Friðriks
var eins konar miðstöð þessara
námsmanna í Berlín, en hann er
höfðingi heim að sækja og veit-
ull mjög. Hann segir frá upp-
gangi nasismans í Þýskalandi.
Friðrik Dungal
Hann varð vitni að margs konar
átökum sem þar urðu. Eitt sinn
þegar um 20 þúsund manns
höfðu verið á fundi í Sport
Palace í Berlín og Jósef Göbbels
hafði talað þar, mætir Friðrik
fylkingunni. Hann var dökkleit-
ur og hrokkinhærður á þessum
árum, og þeir víkja sér að honum
og segja að það sé enginn vafi
hvaðan hann komi, og það sé
nauðsynlegt að taka honum tak,
en ekki varð nú meira úr því.
Hann kynntist auðugum gyðing-
um í Berlín og segir frá ótta
þeirra við það sem var í aðsigi.
Friðrik sótti þarna m.a. fyrstu
hljómleika sem María Markan
kom fram á, en það var nem-
endakonsert. Síðan segir hann
frá því þegar hann kemur aftur
á gamlar slóðir í Berlín 1951 og
sér að allt er breytt. Það er létt
yfir frásögn Friðriks, þó að
alvara sé aldrei langt undan.
Hann er sonur nafnkunnra
hjóna, en faðir hans var Páll
Halldórsson, skólastjóri Stýri-
mannaskólans, og móðir hans
Þuríður Níelsdóttir, systir Har-
alds Níelssonar prófessors.
Pétur Pétursson
Sértu að hugsa um sólarfrí....
þá skaltu panta strax því ferðimar fyllast nú óðum!
Rimini
1. júlí - biölisti
12. júli - laus sæti
22. júlf - laus sætl
2. ágúst - biölisti
12. ágúst - biðlisti
23. ágúst - biðlisti
2. september - örfá sæti laus
Portoroz
1. júli - örfá sæti laus
12. júlf - 7 sætl laus
22. júli - örfá sæti laus
2. ágúst - biðlisti
12. ágúst - biðlisti
23. ágúst - biðlisti
2. september - örfá sæti laus
Sumarhús
í Danmörku
26. júni- örfá sæti laus (2 eða 3
vikur)
Júlí: 3, 10, 17, 24. 31 - biðlisti
Ágúst: 7, 14, 21 - biðlisti
Toronto
24. júni - örfá sæti laus (3 vikur)
15. júlf - örfá sæti laus (3 vikur)
Winnipeg
28. júli - örfá sæti laus (3ja vikna
ferð á íslendingaslóðir í Kanada)
Irland
20. júli - laus sæti (11 daga ferð
til Dublin, auk þriggja stór-
skemmtilegra rútuferða um
írland).
Rútuferð um
Kanada
og Bandaríkin
24. júni - 2 sæti laus (3 vikur)
Rútuferð um
Noreg, Svíþjóð
og Finnland
17. júlf - örfá sæti laus (16 dagar)
Tjaldferð um
Noreg og Svíþjóð
17. júli - laus sæti (16 dagar)
8 landa sýn
24. júlí - biðlisti (3 vikur)
Rútuferð
um Kanada
15. júlí - biðlisti
Samvinnuferðir - Landsýn
AUSTURSTRJETI 12 - SÍMAR 27077 A 28899