Morgunblaðið - 21.06.1981, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 21.06.1981, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. JÚNÍ 1981 Fyrir fimm árum kom út í Bandaríkjunum athyglisverö bók, er nefnist á frummálinu The Man- agerial Woman eöa Konur viö stjórnvöl. Bók þessi hefur síöan náö miklum vinsældum og þykir varpa Ijósi á samskiptavanda kvenna og karla í atvinnulífinu almennt. Auk þess hefur hún reynst haldgóó til leiöbeiningar fyrir þær konur sem hyggjast ná til áhrifa á sínum starfsvettvangi. Höfundar bókarinnar eru tveir doktorar frá Harvard Business School, þær Margaret Hennig og Anne Jardim, en báöar hafa þær sérstaklega lagt fyrir sig ráögjöf viö fyrirtæki og stofnanir sem hafa áætlanir um aö fjölga konum í ábyrgöarstöóum. Ritiö byggist á athugunum þeirra er náöu til 3000 kvenna sem tóku þátt í viötölum og námstefnum höfunda, en auk þess áttu þær ítarleg viötöl viö 25 konur sem náö höföu æöstu met- oröum hjá fyrirtækjum í verslun og iönaöi. Þeim varð Ijóst af rann- sóknum sínum að mikill munur er á aöstööu kvenna og karla sem vilja ná frama í viöskiptalífinu og bókin er skrifuö í þeim megintilgangi aö hjálpa konum sem körlum aó öölast skilning á hinum ólíku forsendum og fyrirfram mótuöu hugmyndum sem hafa afdrifaríkar afleióingar í daglegu starfi, ef þaö mætti veröa til aö draga úr og Teikningar: Kristín Magnadóttir „Þetta er nýi forstjórinn. Hvað verður nú um nektaratriðið á aðalfundinum?‘ Konur við stjómvölinn foröa misskilningi og allskyns rangtúlkunum kynjanna hvort um annaö. Ýmislegt af því sem fram kemur í bókinni á fyrst og fremst viö bandarískar aóstæöur og banda- rískt viöskiptalíf. Þrátt fyrir þaö er margt í henni sem varpar Ijósi á almenna mótun og afstöóu kvenna og karla hvar sem er. Hér verður stiklaó á stóru um efni bókarinnar Konur við stjórnvöl. Karlamenning í inngangi fjalla þær Hennig og Jardim um ákveöiö fyrirbæri sem oftlega veröur konum aö fótakefli á framabrautinni. Þetta nefna þær hiö „óformlega kerfi" samskipta á vinnustaö, sem á rætur sínar í menningu og reynslu karlmannsins og er alveg fyrir utan hiö fasta skipulagskerfi einstakra fyrirtækja. Þaö er fólgiö í ákveönum hegöun- arreglum og tjáningarstíl sem karl- ar einir skilja og eiga hlutdeild í. Þeir hafa alist upp viö svipaöar aöstæöur, þeir „léku sér saman, lærðu saman, kepptu saman" og eiga sér sömu drauma og vonir um lífiö, skilja hver annan og styöja. Þaö er menning þeirra sem mótar allt andrúmsloft innan fyrirtækja og veröur því meir ráöandi sem ofar dregur í metoröastigann. Konur standa hins vegar utan viö þetta óformlega kerfi og flestar gera sér ekki einu sinni grein fyrir tilvist þess, hvaó þá aö þær átti sig á aó kerfiö bregst gjarnan viö utanaökomandi ógnun á þann veg aö torvelda öörum vísvitandi aö- gang aö því. Höfundarnir leggja áherslu á aó hér sé ekki um, að ræða gott fyrirbæri eöa illt. Þaö sé einfald- lega svona og þaö veröi því aö vinna aó því aó konur öólist bæöi þann styrk og þá færni sem þarf til aö vera teknar í hópinn. Þar dugi ekki lagasetning ein um forgang kvenna, þaö þurfi markvissar aö- geröir sem styöja viö konur í þessu skyni. Meginmál bókarinnar hefst á lýsingu og greiningu á ríkjandi ástandi og þeim mun sem er á konum og körlum í stjórnunar- störfum. Athuganir höfunda og viótöl leiddu í Ijós aö konur taka ákvöröun um starfsframa sinn mun síöar en karlar, þ.e. komnar vel yfir þrítugt. Stundum er ástæö- an sú aö þá skildu þær allt í einu „aö þær þyrftu líklega að vinna þaö sem eftir er ævinnar". Karlmenn taka hins vegar aö leggja drög aö frama sínum u.þ.b. tíu árum fyrr. Þeir hugsa gjarnan um líöandi starf í samhengi viö framtíöarframa, með því t.d. aö rækta vænleg sambönd og gæta þess aó loka ekki fyrir mögulegar framaleiöir. Konur aftur á móti leggja metnaö sinn í aö gera vel þaö sem þær eru aö vinna viö hverju sinni, án tillits til áhrifa þess á framavonir sínar. Þær aöskilja þetta tvennt og líta á frama sem „algerlega persónubundiö mark- miö sem einstaklingurinn einn get- ur dæmt um hvort náöst hafi... “ Þaö liggur í augum uppi hvaöa áhrif þessi munur á hugsunarhætti hefur á starfshegöun fólks. Rætur þessa eru reyndar ekki vandfundnar; þær liggja aftur í mótun bernskunnar. Karlar hafa frá blautu barnsbeini gert ráö fyrír aö sjá a.m.k. sjálfum sér farboröa. Metnaöur þeirra, vönir og reyndar einnig kvíöi ráöast alla tíö af þessu. Geta þeir þetta? Ná þeir tökum á hinu? Aö baki er þó ætíö vissan um aö þetta hafa karlmenn alltaf gert og getaó. Hvaö stúlkur varöar hefur hins vegar alltaf legiö í loftinu — þótt ekki sé þaö alltaf sagt berum oröum — aö þær þurfi aö finna einhvern til aó sjá fyrir sér og kvíöi þeirra snýst um þetta; hvort þær séu nú nógu sætar, nógu geóugar, nógu gáfaöar, ekki nógu laglegar eöa kannski of gáfaöar! Þar viö bætist svo síöar á ævinni sá tvískinnungur sem stafar af óvissunni um hvort þær muni vinna úti eöa ekki og þá hversu lengi. íþróttir og leikir Fleiri uppeldisþættir fléttast inn í viðhorf og hugsunarhátt fólks og hafa áhrif á hæfileika þess til aó stjórna öörum. Jardim og Hennig leggja mikiö upp úr þeirri uppeldis- legu mótun sem felst í leikjum barna og þá einkum íþróttum. Hér hafa piltar flest trompin á sinni hendi sem fyrr. í stjórnun fyrirtækja skiptir sam- starf ákaflega miklu máli. Sjö ára drengir hafa betri tök á hópstarfi en flestar konur um þrítugt. Hóp- íþróttir svo sem fótbolti eöa hand- bolti eru aóalleikir pilta frá því áöur en þeir byrja í skóla og fæstar stúlkur eiga þar nokkurn aögang. Strákarnir læra fljótt aö þaö þarf ellefu til aö mynda liö og aö þaö er mikilvægara aö leika saman en aö falla vel viö alla sem eru í liöinu. Þeir uppgötva fljótt hvernig á aö sigra og hvernig á aö tapa. A unga aldri læra þeir aö standa meö sínu liöi, læra þá ögun sem æfingarnar krefjast, læra aö setja sér takmark og ná því, gera áætlanir um leikaðferöir, styöja besta leikmanninn og sætta sig viö gagnrýni, en allt er þetta lærdómur sem mun síöar koma þeim í góöar þarfir viö stjórnunarstörf. Hvaö geta stúlkur svo lært af sínum íþróttaleikjum? Þær leika oftast í greinum þar sem keppnin stendur milli tveggja einstaklinga, t.d. í tennis, sundi eöa fimleikum. í þannig tvímenningskeppni hefur þaö lögmál jafnan gilt aö þaö skipti ekki máli hvort maöur sigri eöa tapi, aöalatriöiö sé hvernig maöur spili, þ.e. keppnin situr ekki í fyrirrúmi eins og hjá karlmönnum. Þegar út í störf er komið má sjá hvernig konur yfirfæra þennan hugsunarhátt; „Ég geri mitt besta og vona aö einhver taki eftir því.“ Þurfi karlar ef til vill aö draga úr yfirdrifinni sigurhvöt sinni, mega konur svo sannarlega við því aö þroska hana meö sér meir en þær gera nú. „Þetta merkir ekki aö konur eigi aö veröa líkari körlum. Þaö þýöir aö konur sem hugsandi verur ættu aö meta á hlutbundnari hátt hvaö þær geta boriö úr býtum, hvaö þær vilja sjálfar í raun og veru, hvernig þær eiga aö fara aö því aö ná því og hvaö þaö muni kosta þær eöa gefa þeim í aöra hönd aö ná marki sínu." Áhætta Enn eitt skilur aö viðhorf kvenna og karla til starfsframa síns, en þaö er áhættan. Áhætta er hlut- skipti þeirra sem leita frama viö stjórnunarstörf. Karlar líta gjarnan á áhættu sem tækifæri til aö sigra eöa tapa, en konur líta oftast eingöngu á, hvaö þær eigi á hættu aö tapa og foröast því alla áhættu sem mest þær mega. Höfundarnir rekja allítarlega sálfræöilegar rannsóknir sem geröar hafa veriö á drengjum og stúlkum og varpa Ijósi á þetta ákveöna atriöi. — O — Annar meginkafli bókarinnar fjallar um 25 konur sem náö hafa æöstu stööum innan bandarískra stórfyrirtækja. Höfundarnir leituö- ust viö aö kanna hvort draga mætti iærdóm af ferli þeirra; hvort eitthvaö væri sameiginlegt í reynslu þeirra, hvernig ákvöröun þeirra um starfsframa mótaöist, hvaöa hugmynd þær geröu sér um sjálfa sig og hvaöa sjálfs-hugsjón þær báru í brjósti. Aö lokum vildu þeir komast aö hvaöa hegöunarstíl þær tömdu sér til aö yfirvinna þá menningarlegu og félagslegu for- dóma sem þær uröu fyrir á stjórnunarferli sínum. Athugun höfunda fór fram meö mjög ítarlegum viðtölum er spönn- uöu feril kvennanna 25 frá bernsku til fulloröinsára. í Ijós kom aö hér var um óvenjulegar konur aö ræöa. Þannig skáru þær sig allar mjög frá því sem þjóöfélagið telur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.