Morgunblaðið - 21.06.1981, Qupperneq 17
17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. JÚNÍ 1981
Kristinn Pétursson
stýrimaður á Jakobi SF 66
Sæmundur Gíslason
skipstjóri
Ljósm. Mbl. SÍKunfOÍr.
Hljómsveit
um borð í
Jakobi SF 66
Um borð í Jakohi SF 66 frá
Neskaupstað hittum við þá
Kristin Pétursson stýrimann
ok Sæmund Gíslason skip-
stjóra, þar sem þeir stóðu
uppi í brúnni ok voru að ræða
málin. Eftir nokkrar kynn-
ingar spurði ég hvar þeir
hefðu verið að veiða.
„Við vorum hér sunnan á
Djöfladal rétt út af Hvalnesi,"
sagði Kristinn. „Það er senni-
lega eitt mesta veðrarassgat
við ísland, enda fara þangað
ekki nema hörðustu kallar."
Eruð þið kaldir kallar?
„Já, við erum helvíti kaldir
kallar," sagði Kristinn og þeir
hlógu dátt. „Við erum báðir
Norðfirðingar, aldir hér upp
og höfum báðir verið á sjó
síðan við vorum níu eða tíu
ára,“ sagði Sæmundur.
„Við erum að bíða eftir trolli
af verkstæðinu og förum svo
út í kvöld. Nei, nei, við höfum
aldrei lent í neinum svaðilför-
um og maður hefur aldrei
þurft að vera hræddur um
borð,“ sagði Kristinn. „Eg var
lengi með föðurbróður mínum,
það er í ættinni sjómannsblóð-
ið, en hann sótti fast á Djöfla-
dalinn. Þar er alveg ferlegur
kargi og illtogandi. Hann var
þá á gamla Barða, skipstjóri.
Hann var alltaf að festa og
rífa, og eitt sinn þegar hann
kom með allt rifið og tætt að
landi var ort um hann þessi
vísa:
ItirKÍr drt'Kur á Djofladal
druslu rifið sórhvcrt hal.
Iirr eftir hann heita skal
herra BirKÍr festival.
Það er annars að frétta af
þessum báti að hér er um borð
hljómsveit, skipuð eingöngu
áhafnarmeðlimunum, þremur
að tölu. Þeir spila á gítar,
melodíku og helenurokk og eru
bara skrambi góðir.“
Jæja, já. Og spila þeir eitt-
hvað á böllum?
„Nei, þeir spila nú bara um
borð. En það er mjög gaman
að hafa þá hérna."
Þá skeði það að landfestin
að aftan slitnaði frá bryggju
og skutinn rak í átt að fjör-
unni. Áður en við tókum við
okkur var Árni Johnsen, sem
staðið hafði á bryggjunni,
stokkinn um borð og búinn að
kasta kaðli til mannanna, sem
stóðu á bryggjunni. Kaðallin'n
var festur í stóran jeppa og
hann dró bátinn aftur að
landi. Þegar búið var að festa
aftur og menn farnir að draga
andann léttar, varð bátsmann-
inum á skuttogaranum Birt-
ingi að orði:
„Hann var ekki lengi að
bjarga þessu, helvítis Vest,-
mannaeyingurinn."
csirsraEiaiwa
»cop» JUplav
jiB fSS
ST 610
0.9 Micro V FM.
3ja stiga FM-stilliþéttir. Stillisveiflusjá
fyrir bestu móttökugæöi. Kaststilli-
hjól. Tíönistýrikerfi.
3ja ára ábyrgð.
Verð 5.655.-
Greiðslukjör.
m-----------
Skipholti 19.
Hljómtækjadeild. — Sími 29800.
cBídsfcóaar
Símar: 86080 og 86244
"I
Húsgögn
Ármúli 8
Sumarhúsgögnin
okkar
hafa
slegið
í gegn.
Ný send-
ing komin.
ÞU AUGLYSIR UM
ALLT LAND ÞEGAR
ÞÚ AUGLÝSIR í
MORGUNBLAÐINU
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 57., 62. og 67. tölublaöi Lögbirtingablaösins
1980, á Holtagerði 47, þinglýstri eign Guömundar H.
Sigurössonar, fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 26. júní
1981 kl. 16.30.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 75., 79. og 82. tölublaöi Lögbirtingablaðsins
1979, á Reynigrund 1, þinglýstri eign Óðins Geirssonar, fer
tram á eigninni sjálfri föstudaginn 26. júní 1981 kl. 15.30.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.