Morgunblaðið - 21.06.1981, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. JÚNÍ1981
35
Framhaldsmeimtun-
arnámskeið fyrir
leikara hérlendis
NÁMSKEIÐ fyrir starfandi leik-
ara hefur staðið yfir að undan-
förnu. Námskeiðið var i tvær
vikur, haldið á vettum Leiklistar-
skúla tslands i samvinnu við
Norrænu leiklistarnefndina sem
veitt hefur styrk til námskeiðsins.
Norræna húsið hefur ennfremur
aðstoðað skólann i þessu sam-
bandi. Kennarar á námskeiðinu
eru tveir. finnski leikstjórinn
Kaisa Korhonen. sem lesendur
kannast e.t.v. við þar sem hún
setti leikritið „Þrjár systur” upp
á listahátíð hér ok hins vegar er
Ritva Holmberit. leikstjóri ok
leikritahöfundur.
Þær hafa báðar kennt við leik-
listarháskólann í Helsingfors,
bæði við grunn- og framhalds-
menntunina en í Helsingfors er
sérstök framhaldsmenntunardeild
við háskólann sem var stofnuð
1972 og hafa síðan u.þ.b. 800
nemendur sótt nám þar.
Þátttakendur á þessu námskeiði
hérlendis voru 10 en í kringum 20
manns sóttu um. Skilyrði fyrir
þátttöku var að leikarar hefðu
a.m.k. 6 ára starfsreynslu.
Námskeiðið beindist að því að
kanna tjáningarmöguleika nú-
tímaleikarans, með andlegri nær-
veru og vali á túlkunarleiðum.
Námskeið sem þetta hefur ekki
verið haldið áður hérlendis en
standa vonir til að skólinn geti í
framtíðinni haft reglulega fram-
haldsmenntun fyrir leikara og
aðrar starfsgreinar innan leik-
hússins.
Þegar Mbl. innti eftir því hvern-
ig námskeiðið hefði tekist sögðu
leikararnir að árangur væri góður
og að konurnar hefðu náð góðum
tökum á kennslunni, bent leikur-
unum á kosti og galla og fengið
fólkið til „að nota sín eigin augu“.
Ársfundur SSK:
Sigurhanna
Gunnarsdóttir
kjörin formaður
53. ÁRSFUNDUR Sambands
sunnlenskra kvenna (SSK) var
haldinn að Árnesi dagana 11. og
12. april. Fundinn sóttu 27 full-
trúar, en féiögin innan sam-
bandsins eru 29 og félagar alls
1398. Einnig sátu fundinn kunur
úr fastanefndum SSK og ýmsir
góðir gestir.
Eftir að konur höfðu hlýtt á
messu að Stóra-Núpi hjá Sr.
Sigurfinni Þorleifssyni, setti
formaður SSK, Sigurhanna Gunn-
arsdóttir, fundinn og flutti síðan
skýrslu stjórnar.
María Pétursdóttir, formaður
KÍ, flutti fréttir af starfsemi
kvenfélagasambandsins. En þing
KI mun verða að Laugarvatni
dagana 1.—3. júní.
Samþykkt var, að öll félögin
innan SSK styrktu félagið Þroska-
hjálp á Suðurlandi á þessu ári, Ári
fatlaðra, en undanfarið hafa þau
skipst á um það verkefni nokkur í
senn.
Samþykkt var reglugerð fyrir
minningarsjóð Rögnu Sigurðar-
dóttur, Kjarri, en hún var mikil
áhrifakona um alla ræktun á
vegum SSK.
Áskorun hefir verið send ráða-
mönnum Sjúkrahúss Suðurlands,
þar sem skorað er á þá að beita sér
fyrir því, að húsnæði gamla
sjúkrahússins á Selfossi verði
breytt í hjúkrunarheimili fyrir
aldraða, þegar starfsemin flyst í
hið nýja hús. Daníel Daníelsson,
yfirlæknir Sjúkrahússins á Sel-
fossi, flutti mjög fróðlegt erindi
um sjúkrahúss- og heilbrigðismál
á Suðurlandi. En sjúkrahúsið hef-
ir verið óskabarn SSK um margra
ára bil.
Formannaskipti urðu hjá Sam-
bandinu. Sigurhanna Gunnars-
dóttir, Læk, Ölfusi, sem verið
hefur formaður undanfarin 6 ár,
lét nú af formennsku. Við tók
Halla Aðalsteinsdóttir, Kolsholti
I, Villingaholtshreppi. Aðrar í
stjórn eru Ragnhildur Ingvars-
dóttir, gjaldkeri og Ragnhildur
Sveinbjarnardóttir, ritari.
þaðer
engurn
blöðum um
haö OÖ fletta • • • Alist<nrMacLean
av íimenalAeéi aa mAfé loeni nnfnnnnr
SVIKAD^
leioarlökum
er vinsælasti og mest lesni höfundur
á íslandi mörg undanfarin ár.
Nú er komin út ný bók eftir þennan
meistara spennusögunnar:
SVIK AÐ LEIÐARLOKUM
Snjallasti glæpamaður heimsins ræðst í sitt djarfasta stórræði:
að ræna móður Bancfaríkjaforseta á ferð í París og halda
henni í gíslingu uppi í Eiffelturni. Hann hefur ráðið til sín
þrautreynda aðstoðarmenn, fólk sem á enga sína líka að
kjarki, leikni, afli og snarræði. Og hann ræður yfir ægilegu
vopni, skæðara en nokkurn getur órað fyrir, í sannleika bráð-
drepandi. Petta er MacLean saga eins og þær gerast bestar.
Kvikmynd eftir sögunni verður sýnd í Háskólabíó.
Nú eru allar 23 bækur Alistair MacLean fáanlegar:
□ Byssurnar í Navarone ................... kr. 98,80
□ Nóttin langa .......................... kr. 98,80
□ Skip hans hátignar Ódysseifur.......... kr. 98,80
□ Til móts við gullskipið ............... kr. 98,80
□ Neyðarkall frá norðurskauti............ kr. 98,80
□ Á valdi óttans ........................ kr. 98,80
□ Síðasta skip frá Singapore ........v .. kr. 98,80
□ Spyrjum að leikslokum.................. kr. 98,80
□ Arnarborgin............................ kr. 98,80
□ Hetjurnar frá Navarone ................ kr. 98,80
□ Leikföng dauðans ...................... kr. 98,80
□ Tataralestin .......................... kr. 98,80
□ Bjarnarey ............................. kr. 98,80
□ Landamæri lífs og dauða ............... kr. 98,80
□ Dauðagildran........................... kr. 98,80
□ Launráð í Vonbrigðaskarði ............. kr. 98,80
□ Sirkus ................................ kr. 98,80
□ Forsetaránið .......................... kr. 98,80
□ Svartagull ............................ kr. 98,80
□ Égsprengikl. 10 ....................... kr. 98,80
□ Vítisveiran .......................... kr. 138,30
□ Svik að leiðarlokum .................. kr. 148,20
□ Kafteinn Cook (ævisaga) ................ kr. 90,15
Bækurnar fást hjá flestum bóksöl-
um. Ennfremur getur þú merkt við
þær bækur sem þú óskar eftir og við
póstsendum þær um hæl, burðar-
gjaldsfrítt.
\ insainkgast
sendið tner
i postkrotti þær bækur
sem merkt er við
Nafn........
Heimilisfang
Bræðraborgarstíg 16, Sími 12923—19156, Pósthólf 294,
121 Reykjavík