Morgunblaðið - 21.06.1981, Page 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. JÚNÍ 1981
+ STEFÁN STEPHENSEN frá Holti, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 22. júní kl. 1.30 e.h. Aöstandendur
+ Móöir mín, tengdamóöir, systir og amma, ÞÓRDÍS SUMARLIDADOTTIR, Ljósheimum 2, sem lézt 13. júní, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju mánudag- inn 22. júní kl. 15.00. Höröur Steinþórsson, Brynja Pétursdóttir, Helgi Sumarliöason og barnabörn.
+ Eiginmaður minn og faöir okkar, MAGNÚS KRISTJÁN INDRIÐASON kaupmaöur, Lundahólum 6, Reykjavík, sem fórst meö flugvélinni TF-ROM, veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 22. júní nk. kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á aö láta björgunarsveitir njóta þess. Erla Lóa Jónsdóttir og synir.
+ PÁLL EINARSSON frá Þórisholti í Mýrdal, lést 14. júní. Útförin fer fram frá Reyniskirkju þriöjudaginn 23. júní kl. 14. Brsaöur hins látna.
Faöir okkar, HRINGUR VIGFÚSSON, Hringbraut 78, Reykjavík, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 23. júní kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Blindrafélagiö. Áslaug Hringsdóttir, Þórunn Hringsdóttir, ísak örn Hringsson.
+ Faöir okkar, ÞÓRDUR KJARTAN EINARSSON, Langholtsvegi 63, veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni mánudaginn 22. júní kl. 3. Edda Þóröardóttír Karlson, Guömundur Þórðarson.
+ Þökkum af alhug auösýnda samúö og hlýhug við andlát og útför litlu dóttur okkar og systur, ÞÓRHILDAR RUNÓLFSDÓTTUR, Heiövangi 34, Hafnarfiröi. Kriatín Siguröardóttir, Runólfur Runólfsson og systkini.
+ Þökkum innilega samúö og hlýhug viö andlát og útför HARTMANNS ÞORBERGSSONAR. Sérstakar þakkir til íbúa Dúfnahóla 4. Guö blessi ykkur öll. Elín Jónsdóttir og börn.
+ Þökkum samúö og hluttekningu viö fráfall og jaröarför GUORÚNAR GUDMUNDSDÓTTUR, Bergstaöastræti 40, er andaöist 4. júní sl. Sérstakar þakkir faerum viö herbergissystrum og starfsfólki á Elliheimilinu Grund. Guömundur 1. Kristjánsson og vandamenn.
Minning:
Magnús Indriðason
Fæddur 1. októbcr 1948.
Dáinn 27. mai 1981.
Svo hleypur a skan unga
óvissa dauóans lcið
scm aldur ok cllin þun^a
allt rcnnur sama skció.
InnsÍKli cnKÍr fcnKU
upp á lífsstunda hió
cn þann kost undir KcnKU
allir aó skilja vió.
Svo orti Hallgrímur Pétursson
fyrir þremur öldum siðan og enn
eru þessi orð jafn sönn, þrátt fyrir
öld tækni og framfara. En dauð-
inn er okkur fjarlægari og óraun-
verulegri í dag en á dögum
Hallgríms. Daglega lesum við um
slys og hörmungar viðs vegar um
heim, við venjumst þessu og verð-
um jafnvel smám saman ónæm.
Þetta er hinn daglegi veruleiki, og
— eitthvað sem kemur fyrir aðra
en okkur. Þess vegna, þegar
höggvið er svo nærri, finnst þér
höggið svo raunverulegt og yfir-
þyrmandi og svo þungt.
Og vissulega er það þungt og
erfitt að skilja, þegar fjórir ungir
menn í blóma lífsins eru hrifnir á
brott með svo snögglegum hætti.
Það er svo erfitt að skilja og sætta
sig við að engu verður um þokað.
Magnúsi Indriðasyni, eða
Magga eins og við kölluðum hann,
kynntumst við fyrir nokkrum ár-
um síðan og með okkur tókst
vinskapur sem aldrei síðan bar
skugga á. Maggi rak verzlunina
Áskjör, og hafði gert síðan hann
var verslunarstjóri hjá Silla og
Valda á sama stað. Við rákum
svipaða verslun. Það var alltaf
ánægjulegt þegar Maggi leit inn.
Ævinlega var hann hress og léttur
í spori, með spaugsyrði á vör.
Alltaf boðinn og búinn að aðstoða,
og var það orðinn sjálfsagður
hlutur að hjálpast að við rekstur-
inn á báða bóga. Þá voru þær
ófáar stundirnar sem setið var
yfir kaffibolla og málin rædd, á
öllum mögulegum tímum og oft
langt fram á nætur. Það var alltaf
jákvætt að ræða við Magga. Fals
átti hann ekki til og alltaf gat
maður treyst því að fá frá honum
hreinskilið svar, ef hann var
spurður, hvort sem það svar
reyndist nú þægilegt eða ekki.
Maggi starfaði mikið að félags-
málum og átti félagið hans, JC
Borg, hug hans allan.
Á fyrsta starfsári hans í félag-
inu var hann formaður hús- og
skemmtinefndar. Á öðru ári sat
hann í stjórn félagsins sem vara-
forseti og strax á þriðja starfsári
var hann fráfarandi forseti og tók
þá jafnframt að sér formennsku í
Byggðalagsnefnd Landsstjórnar,
sem hafði málefni öryrkja á
dagskrá.
Magnús var einn hæfasti leið-
beinandi í ræðumennsku innan
JC-hreyfingarinnar og þar fengu
eðliskostir hans að njóta sín. Voru
þær ófáar ferðirnar hans út á land
til að leiðbeina, alltaf jafn viljug-
ur. Þá tók hann að sér það
verkefni að endurskoða og semja
bækling með leiðbeiningum um
ræðunámskeið hjá JC. Hafði hann
nýlokið þessum verkefnum og var
að fara til að skila þeim af sér
þegar kallið kom. Þessi ábyrgðar-
miklu störf sýna vel það traust
sem menn báru til Magga og það
ekki að ástæðulausu, samvizku-
semi hans var slík.
Árið 1972 gekk Magnús að eiga
eftirlifandi konu sína, Erlu Lóu
Jónsdóttur. Þau eignuðust tvo
syni, Pál Inga, 9 ára og Magnús
Braga, 5 ára, en Magnús átti eina
dóttur fyrir, Önnu Björk, 12 ára.
Orð duga svo skammt til að lýsa
tilfinningum við aðstæður sem
þessar og aldrei finnum við betur
til vanmáttar okkar, en algóðan
guð biðjum við að veita styrk
öllum þeim sem eiga um sárt að
binda, því einungis fyrir náð hans
er unnt að komast yfir sorgina,
hinn mikla þröskuld á lífsþroska-
braut mannsins.
Sigga og Gísli.
Flugið er heillandi íþrótt og
þroskandi leið til að kynnast
okkar fagra landi. En flugið líkt
og allur annar ferðamáti hefur í
för með sér vissa áhættu. Menn-
irnir og mannanna verk eiga sér
takmörk, og örlögin gera ekki boð
á undan sér.
í tilverunni er oftlega erfitt að
sætta sig við orðinn hlut, en
sjaldan eins og þegar menn falla
frá í blóma lífsins. Á þeim stund-
um leitar hugurinn hátt og vítt í
þeirri einlægu von, að slíkt þjóni
göfugum tilgangi.
Á morgun, mánudag, verður
félagi okkar Magnús Indriðason
jarðsunginn frá Dómkirkjunni í
Reykjavík. Nú eru hartnær sex ár
liðin frá því við stofnuðum félagið
okkar, RÖM-félagið, sem við köll-
uðum svo, með kaupum á notaðri
Piper Cherokee-flugvél. Sumir
okkar þekktu Magnús frá fyrri tíð,
m.a. höfðum við flestir verið með
honum á einkaflugmannsnám-
skeiði árið áður. Flugvélin sem
Magnús flaug i sinni hinstu för,
var þriðja flugvél okkar félag-
anna. Við vorum allir mjög
hreyknir af þessum glæsilega far-
kosti, sem var útbúinn eins og best
varð völ á.
Þessa örlagaríku ferð hafði
Magnús ákveðið með talsverðum
fyrirvara. Ferðinni var heitið á
landsþing Junior Chamber á Ak-
ureyri. Magnús var mjög ósérhlíf-
inn og samviskusamur í alla staði.
Hann vildi læra sem mest á hin
fullkomnu tæki sem í vélinni voru,
og var byrjaður að undirbúa sig
fyrir blindflugsnám, sem er þó
engin skylda fyrir einkaflugmenn.
Magnús Indriðason lést í flug-
slysi á Arnarvatnsheiði miðviku-
dagskvöldið 27. maí sl. og með
honum fórust þrír félagar hans úr
Junior Chamber-samtökunum.
Magnús hafði undirbúið ferð sína
vel. Veðrið var gott, heiðskírt í
Reykjavík og á Akureyri. Að vísu
voru lágþokuský yfir heiðunum þá
leið sém mönnum er tamast að
fljúga til Norðurlands. Lagt var
upp frá Reykjavíkurflugvelli um
klukkan hálf átta þetta miðviku-
dagskvöld. Magnús hafði gert ráð
fyrir að fara miklu fyrr af stað.
En vegna tafa félaga hans varð
ekki farið fyrr. Síðast heyrðist frá
þeim félögum, þegar þeir fóru úr
flugstjórnarsviði Reykjavíkur við
Akranes. Áætlað var að lenda á
Akureyrarflugvelli rúmlega hálf
níu þá um kvöldið. Þegar flugvélin
kom ekki fram á tilsettum tíma,
hófst mikil og erfið leit, sem lauk
ekki fyrr en réttum tveim vikum
síðar, eða tæplega átta að kvöldi
þann 10. júní sl.
Magnús átti ekki mikinn frí-
tíma. Hann var alltaf eitthvað að
vinna í sambandi við verslun sína,
en ef einhver tími var aflögu, þá
var hann notaður í þágu fjölskyld-
unnar eða JC.
Magnús starfaði lengst af sem
verslunarstjóri í verslunum Silla
og Valda, en hóf sinn eigin
verslunarrekstur árið 1973.
Árið 1969 kynntist Magnús eft-
irlifandi eiginkonu sinni, Erlu
Jónsdóttur, og giftu þau sig þrem
árum síðar. Þau eignuðust tvo
syni, Pál Inga og Magnús Braga,
en Magnús átti fyrir eina dóttur,
Önnu Björk.
Við vitum að hinir mörgu við-
skiptavinir Magnúsar eiga eftir að
sakna hins ötula kaupmanns, sem
lagði sig allan fram við að halda
áfram rekstri verslunarinnar
þrátt fyrir erfiðar aðstæður.
Með þessum fátæklegu orðum
kveðjum við góðan félaga og
vottum Erlu og börnunum, for-
eldrum hans, tengdaforeldrum,
systkinum og öðrum ástvinum
okkar dýpstu samúð vegna fráfalls
hins góða drengs.
ROM-félagarnir
Þórdís Sumarliða-
dóttir — Minning
Fædd ll.júlí 1908.
IMin 13. júní 1981.
Mig langar að þakka ömmu
minni sem ég kallaði svo, fyrir
hvað hún var mér alltaf góð. Ég
kom litil stelpa og bróðir minn
dálítið eldri en ég inn í hennar
fjölskyldu þegar eldri sonur henn-
ar og mamma okkar giftu sig.
Strax tók hún okkur vel, og var
okkur svo góð, hún átti þá engin
barnabörn. Amma fæddist á Ák-
ureyri og ólst þar upp, ekki giftist
hún en eignaðist tvo syni, Hörð
sem er stjúpfaðir minn og Má sem
hún missti af slysförum úti í
Svíþjóð fyrir nokkrum árum, og sá
óskaplega mikið eftir. Amma hélt
heimili með Helga bróður sínum
lengst af sínum búskap og reynd-
ist hann bræðrunum sem bezti
faðir og henni var hann alltaf
mjög góður og hjálplegur. Þau
bjuggu í Gilinu sem Akureyringar
kalla svo og þótti henni mjög vænt
um þann stað. Til Reykjavíkur
fluttust þau svo þegar Hörður
pabbi var 16 ára og átti hún þar
heima upp frá því.
Sem betur fór eignaðist amma
alvöru barnabörn, þrjá drengi sem
henni þótti undurvænt um, í
fjögur ár voru þeir tveir og fóru
oft í heimsókn til hennar með
pabba og mömmu, og sérstaklega
þótti henni gaman að fá þann
eldri í heimsókn, bæði ber hann
nafn sonar hennar sem dó og
heitir Már og er svo prúður og
stilltur og þreytti hana ekki of
mikið, því hún var oft svo lasin.
Már var að byrja að fara einsam-
all til ömmu Díu, eins og strákarn-
ir kölluðu hana, og gista nætur-
langt, en hann er tæplega sjö ára
og við eigum heima í Garðinum.
Það var alltaf mikil tilhlökkun hjá
okkur krökkunum þegar von var á
ömmu Díu og Helga frænda, þau
voru alltaf hjá okkur á jólunum,
afmælum og öllum hátíðum, ef
hún hafði heilsu til og mikið gaf
hún strákunum af fallegum fötum,
og eftir að hún lagðist inn á
spítalann svona mikið veik var
hún alltaf að minna pabba og
mömmu á að kaupa eitthvað fyrir
sig handa þeim í afmælisgjöf, því
tveir þeirra eiga afmæli í júlí, en
sá yngsti verður eins árs seinast í
júni.
Ég þakka ömmu minni mikið vel
fyrir hvað hún var alltaf góð mér
og gaf mér fallegar gjafir. Ég vona
að nú líði henni vel og sé laus við
allar þjáningar og búin að hitta
Má sinn.
Blessuð sé minning hennar.
Lilja Berglind.