Morgunblaðið - 21.06.1981, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. JÚNÍ 1981
39
Guðrún Magnúsdótt
ir - minningarorð
Fædd 27. mars 1901.
Dáin 1. apríl 1981.
„Við sjáum hvar sumar rennur
með sól yfir dauðans haf.“
Þessar hendingar voru skýrar í
huga mér og minntu á sig aftur og
aftur þegar Guðrúnu Magnúsdótt-
ur var fylgt í hinsta áfangastað.
Það var á heiðum degi. Sólin
brosti við, dýrðarfögur og verm-
andi, og vorið fór að með unað
sinn og auðlegð. — Sumarið var í
nánd.
Aldurhnigin kona, þrotin að
þreki eftir erfitt dagsverk og
margvísiega æfiraun hafði hlotið
líkn, hvíldarlausn úr jarðlífsfjötr-
um og var horfin um þá Fögrudyr,
sem skilja að tíma og eilífð —
gengin inn til þess fagnaðar, sem
þeim er trúir reynast hefur verið
gefið fyrirheit um.
Örðug reynist hún mörgum
gangan frá langa frjádegi til
páskamorguns og fékk Guðrún að
prófa það. En hún brást eigi né
bugaðist, þótt þungt væri oft fyrir
fæti og þyrna yrði vart á vegi.
Hún átti þrek og viljastyrk, einnig
örugga trú á Guð og sigur hins
góða og lét ekki bugast. Hún
miðlaði öðrum af því bezta, sem í
brjósti hennar bjó — brjósti, sem
átti nóg rúm fyrir hinn stóra
ættgarð og fjölda vina.
Á kveðjustundu fylgdu henni að
„helgri strönd" birta og hlýja frá
hugum þeirra, sem hún unni og
lagði sig fram um að lifa fyrir,
hugum, sem voru henni tengdir í
traustri þökk.
Magðalena Guðrún Magnús-
dóttir, en svo hét hún fullu nafni,
var fædd að Stóra-Eyrarlandi á
Akureyri hinn 27. marz árið 1901
og var því rétt orðin áttræð þegar
andlát hennar bar að, þann 1.
apríl sl.
Foreidrar hennar voru hjónin
Magnús Björnsson og María Frið-
finnsdóttir og ólst hún upp hjá
þeim, ásamt bræðrum sínum Birni
og Óla.
Hollt mun uppeldið hafa verið
og vegarnestið úr foreldrahúsum
þeirrar gerðar, að vel reyndist á
íangri og tíðum torsóttri æfileið.
Vinna og aftur vinna, sjálfsafneit-
un og þrautseigja var lögmál á
þeirri tíð, og ung mun Guðrún
hafa verið, er hún reyndist vel
vinnandi, skyldurækin og óhlífi-
söm við sjálfa sig. Snyrtimennska
og hirðusemi voru einnig ríkar
eigindir í fari hennar.
Ung að árum, eða árið 1922,
þann 13. apríl gekk Guðrún að
eiga Hermann Jakobsson frá
Húsabakka í Aðaldal. Beið þeirra
mikið hlutverk og ærið starf, því
að á þeim árum voru engir sjóðir
trygginga til stuðnings. Menn
urðu að bjargast af eigin ramm-
leik eða bíða lægri hlut ella.
En þau Guðrún og Hermann
lágu ekki á liði sínu. Þau kostuðu
sér öllum til að fá staðist. En
sorgin gleymir engum og hún sótti
þau heim hvað eftir annað. Þrjú
börn þeirra dóu í frumbernsku og
Minninq:
Arni Jónatansson
frá Akureyri
Fæddur 5. apríl 1888.
Dáinn 22. maí 1981.
Föstudaginn 22. maí síðastlið-
inn, andaðist á Landakotsspítala,
afi minn og fósturfaðir, Árni
Jónatansson trésmiður frá Akur-
eyri. Mér er bæði ljúft og skylt að
minnast hans nú er leiðir skilja.
Hann fæddist að Rauðá í Bárðar-
dal í Suður-Þingeyjarsýslu. Hann
missti föður sinn ungur að árum,
og ólst því upp í skjóli móður
sinnar. Afi fór snemma að vinna
fyrir sér. Hann stundaði sjó-
mennsku á sínum yngri árum,
byrjaði kornungur að róa á ára-
bátum. Þau voru nú ekki merkileg
fleyin á þeim árum, en samt var
fast sótt á sjóinn, og var þá oft
margur sjómaðurinn hætt kominn
í baráttunni við Ægi. Hinn 5. júní
1910 stígur afi eitt mesta gæfu-
spor lífs síns, er hann gengur að
eiga unnustu sína Matthildi
Gunnarsdóttur frá Húsavík. Þau
hófu búskap á Akureyri, fyrst inn
í Lækjargötu, en síðar byggðu þau
sér hús að Norðurgötu 37, og þar
bjuggu þau meðan þau voru á
Akureyri. Afi og amma eignuðust
þrjú börn:
Ólaf Fossberg, hann lést árið
1930 þá á tvítugs aldri. Guðrúnu
Indiana, gifta Snorra Jónssyni,
verkamanni býr í Reykjavík. Guð-
nýju Emilíu, býr í Bandaríkjun-
um.
Ennfremur ólu þau upp tvö
fósturbörn, sem þau tóku strax við
fæðingu. Þau eru; Óli Fossberg,
sonur Guðrúnar, hann er giftur
Báru Guðmundsd. og búa þau á
Eskifirði. Huldu Yodice, dóttur
Emilíu, hún er gift John Yodice
lögfræðingi og búa þau í Banda-
ríkjunum. Einnig var annar sonur
Guðrúnar, Reynir Bergmann mik-
ið í heimili hjá afa og ömmu.
Reynir er giftur Jóhönnu Cronin,
og búa þau í Reykjavík. Fljótiega
eftir að til Akureyrar kom, hætti
afi sjómennskunni og tók til við
það starf sem segja má að hafi
orðið lífsstarf hans, en það er
trésmíði. Hann vann mörg ár við
skipasmíðar, í skipasmíðastöð Nóa
Kristjánssonar. Einnig vann hann
mörg ár við húsasmíðar, lengst af
hjá Bjarna Rósantssyni bygg-
ingameistara. Einnig vann hann
lengi við smíðar á vegum Akur-
eyrarbæjar, við viðhald á eignum
bæjarins og aðrar smíðar. Árið
1956, flytja afi og amma til
Reykjavíkur þá fer afi að vinna
við smíðar hjá Reykjavíkurborg.
Starfaði hann við smíðarnar með-
an heilsa og kraftar leyfðu. Hann
hætti störfum árið 1969. þá 81 árs
að aldri. Árið 1962 hinn 21. janúar,
lést amma varð það afa þung
raun. Síðan hefur hann búið hjá
dóttur sinni Guðrúnu og tengda-
syni Snorra, sem reyndust honum
einstaklega vel, ekki síst í hinum
miklu veikindum hans hin allra
síðustu ár. Ungur að árum, öðlað-
ist afi lifandi trú á Jesú Krist, og
gekk hann í Sjónarhæðarsöfnuð-
inn á Akureyri. Stofnandi hans
var enskur trúboði sem settist að
á Akureyri, og hét Arthur Gook.
Starfaði afi í þeim söfnuði meðan
hann var á Akureyri. Eftir að til
Reykjavíkur kom var afi í samfé-
lagi trúaðra í Reykjavík. Hugur-
inn reikar nú til barnsára minna á
heimili afa og ömmu. Þaðan á ég
margar dásamlegar minningar,
sem ég mun varðveita í huga
mínum. Ég fæ aldrei fullþakkað,
það sem þessi góðu hjón gerðu
fyrir mig. Afi var mikill sjúkling-
ur hin síðustu ár og dvaldi hann
til skiptis á sjúkrastofnunum og
heimili dóttur sinnar Guðrúnar,
sem annaðist hann af kostgæfni
og alúð. Einnig sýndi fósturdóttir
hans Hulda, honum mikla tryggð í
veikindum hans. Hún kom árlega
frá Bandaríkjunum, dvaldi langan
tíma hverju sinni hjá afa sínum.
En nú er þessi góði maður horfinn
sjónum. Hann andaðist eins og
áður sagði á Landakotsspítala, 22.
maí síðastliðinn gjörsamlega þrot-
inn heilsu og kröftum 93 ára
gamall. Eitt er víst að hann hefur
hlotið dýrðlega heimkomu, hjá
Drottni sínum og frelsara.
„Far þú í friði, friður guðs þig
blessi. Hafðu þökk fyrir allt, og
allt.“
Óli Fossberg
Afmælis- og
minningargreinar
ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og
minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í
miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi
á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga.
Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi. Þess skal
einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort ljóð um
hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíðum
Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og
með góðu línubili.
einn sonur lézt í blóma aldurs.
Mun sú reynsla hafa verið sár og
djúpstæð.
En fjmm systkini lifa móður
sína og fylgdu henni á kveðju-
stund. Þau eru; María gift Eyjólfi
Þórarinssyni, búsett í Keflavík,
Hilmar Éyberg kvæntur Óiöfu
Jónsdóttur, býr einnig í Keflavík.
En á Akureyri eiga heima Sverrir,
kvæntur Auði Jónsdóttur, .Brynja
gift Haraldi Ólafssyni og Björn,
kvæntur Huldu Baldvinsdóttur.
Þegar barnabörnin fæddust og
uxu úr grasi fjölgaði drjúgum
geislunum, sem glöddu Guðrúnu
og veittu lífi hennar ríka fyllingu.
Með ástvinahópnum átti hún
ómældar unaðsstundir.
Á þeim árum, sem þau Guðrún
og Hermann stóðu í eldlínu starfs-
ins herjaði hinn „hvíti dauði“ án
afláts og skildi víða eftir djúp og
dreirug spor. Hin kalda hönd hitti
heimili þeirra. Hjónin veiktust
bæði og urðu að fara á Kristnes-
hæli. Þar lézt Hermann eftir 13
ára þungbært stríð, en Guðrún,
sem sjúkdómurinn hafði farið um
mun hægari höndum, komst á ný
út í lífið og lét í engu bugast.
Ótaldar urðu ferðir Guðrúnar í
Kristnes til fundar við fársjúkan
eiginmann sinn, en hún sýndi
honum mikla umhyggju og tryggð.
Get ég borið um þetta af kunnleik-
um, þar sem ég átti dvöl á
Kristneshæli um það leyti, sem
Hermann var að heyja þar sína
síðustu baráttu. En hann lézt 2.
maí 1958.
Við heimsóknir Guðrúnar í hæl-
ið urðu kynni okkar. Ræddum við
alloft saman og féll vel á með
okkur. Kom aldursmunur og ólíkt
lífshlaup þar ekki að sök.
Þessi kynni kólnuðu ekki þótt
árin liðu og fundum fækkaði mjög
eða a.m.k. sýndi Guðrún mér
ræktarsemi fram á síðustu stund,
væri henni þess kostur að ná til
mín. Á ég um þetta góðar minn-
ingar og finn mér skylt að bera
fram þakkir við þau þáttaskil, sem
orðin eru.
Mér fannst Guðrún ganga til
móts við örlögin með hetjubrag,
með skapstyrk og öruggu trausti á
hann, sem leitar og finnur og
„týnir engri sál.“ Henni var full-
ljóst að „örstutt er bil milli blíðu
og éls/og brugðist getur lánið frá
morgni til kvelds". En hún vissi
jafn vel að höndin er sterk,"„er
heldur þessum reyr/ um hæstan
vetur, svo hann ekki deyr“, og að
leiðin verður að lyktum lögð „til
borgar, sem aldrei hrynur.“
Heimili sitt átti Guðrún Magn-
úsdóttir í Innbænum á Akureyri
að Aðalstræti 54, en síðustu árin
var hún á Dvalarheimilinu Hlíð.
Heilsa hennar var brostin og
þrekið þrotið, enda tíðum verið
mikið á það lagt á langri vegferð.
Börnin hennar ásamt fjölskyldum
sínum fylgdu henni af trúfesti
fram til hinsta kvelds og létu
henni í té hlýju og umhyggju. Og
traustir vinir lögðu sitt af mörk-
um. Kom það gjarnan glöggt fram
þegar við hana var rætt, að henni
fannst hún hafa margt að þakka.
Sátt mun hún hafa verið við lífið
við komu sólarlagsins. Og sælt er
það mannsbarn, sem að lokinni för
um jarðarsvið finnur sinn auð í
fegurri heimi, fær „þegnrétt í
ljóssins ríki.“
Jórunn Ólafsdóttir
frá Sörlastöðum.
t
Þakka af alhug auösýnda samúö og vináttu vegna andláts og
útfarar mannsins míns og sonar,
SIGURÐAR GUDMUNDSSONAR og
GUDMUNDAR JÓNATANS SIGURDSSONAR,
Safamýri 38.
Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks á deild A7, Borgarspítala
fyrir frábæra umönnun Vilborg Sæmundsdóttir.
t
Þökkum innilega auösýnda samúö viö andlát eiginmanns og fööur
okkar,
ALFRED NORDGULEN.
Anna Sófusdóttir og börn hins látna.
t
Þökkum samúö og hlýhug viö andlát og útför
STEFÁNS JONSSONAR
frá Brennistöóum.
Guðfríður Stefánsdóttir, Erlendur Sveinsson,
Pálmi Eyþórsson, Elin Þorvaldsdóttir
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir til þeirra er sýndu okkur samúö og vinarhug viö
andlát og útför mannsins míns, fööur okkar, tengdafööur, afa og
sonar míns,
BJARNA P. SIGURDSSONAR,
Uppsalavegi 3, Sandgerði.
Unnur Ósk Valdimarsdóttir,
Guöbjörg Bjarnadóttir, Benedikt Gunnarsson,
Jóna Guðrún Bjarnadóttír, Egill Ólafsson,
Ósk Benediktsdóttir,
Hanna Þórunn Egilsdóttir,
Olafur Högni Egílsson,
Sigurður Oddsson.
Vegna jarðarfarar
ÞÓRÐAR K. EINARSSONAR
verður lokað kl. 2—6 mánudaginn 22. júní.
Honda-umboðið,
Suðurlandsbraut 20.