Morgunblaðið - 21.06.1981, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. JÚNÍ 1981
41
Fyrstu matargestirnir í Cockpit-lnn voru íslendingar og þama
má m.a. sjá Þorstein Jónsson flugmann, Steingrím Her-
mannsson ráðherra, Birgi Guðjónsson og Þorstein Ingólfsson.
Málin eru rædd á Cockpit-lnn. Páll Andrésson, sem verið hefur
formaður íslendingafélagsins um árabil, Ólína Jónsdóttir kona
hans og Ólafur Sigurösson fréttamaður.
Starfsfólk og aðrir sem lögðu hönd á plóginn við það að
fullbúa staðinn. Frá vinstri: íris Þorkelsdóttir, Rafn Sigurðsson
trésmiður, Sígurvin Gunnarsson bryti, Valgeir Sigurðsson
veitingamaður, fyrir aftan stjórnborðið úr fjarska þar sem
benzíngjöfin stjórnar bjórdælunni, Björn Sveinsson flugvél-
stjóri og Sólrún Jónsdóttir.
SamrinuAu þjóAirnar hafa nú
viðurkennt. að að minnsta kosti
8 stofnanir innan samtakanna
hafi last fé í sjóð sem fjármaxn-
aði nreiðslur til fjölmiðla fyrir
að birta greinar hliðhollar
skoðunum Sameinuðu þjManna
á fjárhagsaðstoð við þriðja
heiminn. Aður höfðu samtökin
staðfaStleKa neitað þessum
ásökunum.
Samkva-mt trúnaðarskýrsl-
um hafa stofnanirnar greitt
GO.OOO dollara (432.000 ísl. kr.) í
reiðufé ok þjónustu fyrir fyrir-
Kreiðslu fjolmiðlanna. Þetta er
þó aðeins brot af því sem
Ryoichi Sasakwa, japanskur
kaupsýslumaður. naf til sjóðs-
ins. Hann »?af SÞ alls 1,25
milljónir dala (9 milljónir ísl.
kr.) ob fór aðeins þriðjunKur
þess í sjóðinn. Háttsettir menn í
skrifstofukerfi samtakanna sáu
um að eyða afKanKÍnum auk
þess sem nokkurt fé fór í að
fjármagna fundi sem yfirmenn
Ilr. Waldheim
nokkuð víst, að ýmsar stofnanir
hafi komið við sögu fjármála
sjóðsins sem um ræðir. Warwick
Stuart, sem starfar hjá upplýs-
ingaþjónustu samtakanna, getur
þó aðeins nefnt þrjár stofnanir:
Alþjóða flugmálastofnunina sem
gaf 5.000 dollara (36.000 ísl. kr.)
árið 1979, bróunarsjóðinn sem
gaf 5.000 dollara 1980 og Um-
hverfismálastofnunina en hún
(jaf 10.000 dollara (72.000 ísl. kr.)
í ár ok sl. ár.
Leila Doss, framkvæmdastjóri
upplýsinKadeildar fjármála og
féiagsmála SÞ nefnir tvær stofn-
anir til viðbótar: Alþjóða vinnu-
málastofnunina sem K»f 2.000
dollara (14.400 ísl. kr.) og Heil-
brigðismálastofnunina sem gaf
5.000 dollara á árinu 1979.
Alþjóðabankinn mun hafa gef-
ið 10.000 dollara árið 1979, að
sögn yfirmanna og talsmaður
Alþjóða siglingamálastofnunar-
innar segir stofnunina hafa gef-
ið 3.000 dollara (21.600 ísl. kr.)
Greiddu fjölmiðlum fyrir að
skrifa jákvætt um stofnunina
hinna og þessara aatlana á
vegum SÞ héldu víðs vegar um
Evrópu.
Yasushi Akashi, vararitari
upplýsingadeildar Sameinuðu
þjóðanna, segist ekkert hafa
vitað um greiðslur stofnananna í
sjóðinn fyrr en hann var um þær
spurður. I fréttatilkynningum,
bréfum og viðtölum hefur Akas-
hi ávallt sagt að einungis gjöf
Sasakwa hafi farið í greiðslur til
fjölmiðlanna.
Yfirmenn SÞ ákváðu, að því er
fram kemur í skýrslum, árið
1978 að stofna sjóðinn og hrinda
um leið í framkvæmd áætlunum
um betri samskipti við fjölmiðla.
Sömu skýrslur vitna í Kenneth
Dadzide, sem er næstur aðalrit-
aranum að völdum innan SÞ,
sem segir að þessi áætlun muni
tengja samtökin beint við fjöl-
miðlana, þar á meðal ritstjór-
ana, og þau tengsl muni leiða til
nánara samstarfs samtakanna
og fjölmiðlanna, sem hafi svo
mikil áhrif á álit almennings á
starfi Sameinuðu þjóðanna.
Um 16 blöð birtu það efni sem
hér um ræðir. Voru það greinar
sem bæði starfsfólk Sameinuðu
þjóðanna og ritstjórna viðkom-
andi blaða skrifuðu.
Eitt blaðanna, Jornal do Bras-
il, neitaði að taka við greiðslu
fyrir birtinguna en hin tóku
samtals við 432.000 dollurum (3,1
milljón ísl. kr.). Þar með talin
eru franska blaðið Le Monde og
japanska blaðið Ashai Shimbun
sem hvort um sig fengu 48.000
dollara (345.000 ísl. kr.)
Bresk og bandarísk blöð voru
beðin um að taka þátt í þessum
aðgerðum samtakanna en þau
neituðu því á þeirri forsendu að
um væri að ræða brot á siða-
reglum blaðamanna.
Afgangur sjóðsins fór í að
fjármagna fundi í flestum borg-
um Evrópu þar sem ritstjórar og
forráðamenn SÞ skiptust á skoð-
unum. Sjóðurinn er nú þurraus-
inn en SÞ hyggjast safna fé í
hann að nýju.
Þeir yfirmenn Sameinuðu
þjóðanna, sem undirbjuggu það
efni sem birt var, segja að Kurt
Waldheim, aðalritari SÞ hafi
mjög greinilega verið aðaldrif-
fjöðurin. Einn segir að hann hafi
einnig kvatt stofnanir SÞ mjög
til að láta fé af hendi rakna til
sjóðsins.
Trúnaðarskjöl gefa það til
kynna að hugmyndin að sjóðnum
og áætluninni hafi fæðst á fundi
helstu yfirmanna 31. október
1978. í skjölunum sést einnig að
margir hafa heitið framlagi en
ekki hafa allir efnt loforðin.
Henri Laouisse, sem þá var
yfirmaður barnahjálpar SÞ,
Unicef, mun hafa sagt það óvið-
eigandi að SÞ láti fjölmiðlum í
té fjármagn og að Unicef myndi
ekki taka þátt í siíku.
Skýrslur SÞ um þetta mál eru
þó nokkuð óljósar. En það þykir
Að lokum hefur Josep Mehan
sagt, að Unesco hafi lagt til
túlka, ritara og fleira á fundun-
um með ritstjórunum árið 1979.
Framlag stofnunarinnar þá var
jafnvirði 20.000 dollara (144.000
ísl. kr.). Arið eftir lét stofnunin
enn í té sömu þjónustu en ekki
var þá reiknað út hversu mikils
virði hún væri.
Fyrirrennari Akashis, Genichi
Aktani, tók við gjöf Sasakwa.
Aktani skipaði svo fyrir, að þær
stofnanir, sem ekki legðu fé í
sjóðinn, fengju heldur enga
kynningu í fjölmiðlunum.
Waldheim og samstárfsmenn
hans í höfuðstöðvum SÞ halda
nú áfram að fást við það, sem
þeir segja að hafi verið vanda-
mál fyrir samtökin sl. ár, ímynd
þeirra í augum almennings. Ein
þeirra hugmynda sem þeir ráða
nú, er að ráðinn verði sérstakur
ráðunautur til að sjá um vanda-
mál sem upp koma varðandi
samskipti við almenning.
Þeir munu í þeim efnum hafa
augastað á bandarískum lög-
fræðingi. Sá heitir Tom Reston.
Hann er fyrrum talsmaður
bandaríska utanríkisráðuneytis-
ins og sonur James Reston sem
er einn af virtustu blaða-
mönnum Bandaríkjanna. Reston
segist nú aðeins bíða eftir því að
undirrita samning við SÞ sem
gilda muni til 6 mánaða. — rmn.
Heimildir: The Times
og Daily Telegraph.
Marantz means more
Stillir = Tuner
ST 310
1.0 Micro V FM næmni.
Fm-stilliþéttir. Nákvæmt stöðvaval með
Ijósmælum. Ljósmælir fyrir móttöku-
styrk. FM-suðueyðir. Stereo/Mono.
Tíðnistýrikerfi.
3ja ára ábyrgð.
Verö 2.426.-
Greiöslukjör.
n n ti h inimmr
'T>( ht
Skipholti 19.
Hljómtækjadeild. — Sími 29800.