Morgunblaðið - 21.06.1981, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. JÚNÍ1981
45
Austur-Skaftafellssýsla:
Stækkun elli-
og hjúkrunar-
heimilisins
lýkur í haust
Hér segir af
vinsœlum plötum
AÐALFUNDUR sýslunefndar
Austur-Skaftafellssýslu var hald-
inn á Höfn dagana 4. og 5. júnl.
í frétt frá sýslunefnd segir að
ýmis erindi o>f málefni stofnana
hafi verið tekin til umraeðu og
afttreiðslu. en sýslufélagið annast
m.a. margskonar sameitfinleuan
rekstur og varðar alla hreppana
sem eru sex að tölu og íbúa
þeirra. Má þar einkum nefna elli
ok hjúkrunarheimili. bytftfða-
safn. úttráfustarfsemi. sýslu-
skjalasafn ok forsvar ojf stuðn-
intf ojf fjárhatfslegan stuðnintf
við félatfasamtök í sýslunni.
Helstu verkefni sem unnið hef-
ur verið að er endurreisn Gömlu-
búðar, elsta húss í sýslunni, en það
var bygKt á Papós sem verslunar-
hús 1864 og síðan flutt til Hafnar
og endurreist þar 1897. Frá 1980,
er húsið var fullbúið, hefur það
þjónað sem byggðasafn, og þar er
einnig til húsa fundarsalur sýslu-
nefndar. Var á þessu áru lokið
uppgjöri vegna framkvæmda þess-
ara.
Nú standa yfir byggingar-
framkvæmdir við elli- og hjúkrun-
arheimili sýslunnar og áformað að
ljúka þeim að hausti.
Um er að ræða verulega stækk-
un heimilisins, sem mun eftir
þetta geta hýst 33 vistmenn.
Einnig verða gerðar verulegar
lagfaeringar á eldra húsnæði til
aukinna þæginda fyrir starfsfólk
og vistmenn.
Fjárlög sýslunnar á þessu ári
nema kr. 562.800.-. Til vegamála,
þ.e. framkvæmdir við sýsluvegi,
verður varið auk þess kr. 514.000.-.
Sýslunefnd ályktaði um ýmis
mál.
Því var beint til sveitartjórna
að fylgst væri með áformum um
byggingu sumarbústaða og gætt
ákvæða um skipulagsmál því við-
víkjandi, svo og samráðs við nátt-
úruverndarnefnd.
Skorað var á hreppsnefnd Hafn-
arhrepps að ganga sem fyrst frá
friðlýsingu Óslandsins sem fólks-
vangs, enda virðist full samstaða
um þau mál.
Sýslunefnd beinir þeim tilmæl-
um til forsvarsmanna orkumála í
landinu, að kannað verði svo fljótt
sem kostur er með borunum, hvort
nýtanlegan jarðhita sé að finna er
mætti nota til húshitunar á Höfn
og í Nesjum.
Sýslunefndin skorar á viðkom-
andi stjórnvöld að gera nú þegar
úrbætur í þá átt að eftirlit allt
verði hert með ferjunni Smyrli og
farþegum hennar, svo komið verði
í veg fyrir ólöglegan útflutning
náttúrugripa og jafnvel innflutn-
ing ólögmæts varnings, en rök-
studdur grunur er um hvort-
tveggja.
Náttúruverndarnefnd sýslunnar
bendir á þau lýti og óþrifnað í
umhverfinu sem er af ýmisskonar
yfirgefnum og einskisnýtum
mannvirkjum og áformað að gera
verulegt átak í þá átt að fjarlægja
slík mannvirki með tilstyrk stór-
virkra tækja og að höfðu samráði
við umráðamenn greindra mann-
virkja.
Út er komin á vegum Austur-
Skaftafellssýslu bókin „Atvinnu-
hættir Austur-Skaftfellinga", höf-
undur Páll Þorsteinsson fyrrver-
andi alþingismaður á Hnappavöll-
um. Um er að ræða vandað
heimildarrit og varðar líf og störf
fólks í Austur-Skaftafellssýslu á
liðnum öldum.
Ákveðið er að sýsluritið „Skaft-
fellingur", þriðji árgangur, komi
út á næsta vori.
Oddviti sýslunefndar Austur-
Skaftafellssýslu er Friðjón Guð-
röðarson sýslumaður.
og hagstœðum
Hér gefur aö líta nokkrar af vinsælustu plötum á íslandi í dag, sem aö auki eru allar einnig fáanlegar á
kassettum. viö vekjum sérstaka athygli á hagstæöu veröi þessara platna og kassettna og bjóöum
tónlistarunnendur velkomna í verslanir okkar til aö kynna sér þessar eöa aörar plötur, sem viö bjóöum
uppá.
□ Starsound — Stars on 45
Án efa vlnsælasta erlenda platan
hér á landi í dag. Flytjendur nefna
sig „Starsound" og þeir hafa sett
saman 61 lag í nokkrar bráð-
skemmtilegar syrpur. Mestra
vinsælda nýtur samt 30 laga
syrpa þeirra af gömlu, góöu Bítla-
lögunum, sem er snilldarlega sam-
ansett og ótrúlegt hvaö andi þeirra
fjögurra svífur yfir vötnunum.
□ Tenpole Tudor
Tenpole Tudor er einhver vígreif-
asta hljómsveit sem komiö hefur
fram á sjónarsviöiö þetta áriö. Lag
þeirra „Swords of a Thousand
Men" nýtur nú þegar mikilla vin-
sælda hér. Skal öllum þeim er líkar
þaö lag bent á, aö þessi LP-plata
þeirra er uppfull af jafngóöum, ef
ekki betri lögum, og þar af leiöandi
þottþétt.
Allir áhangendur kraftmikillar
rokktónlistar eru sammála um aö
þessi plata Gillan sé eitthvaö hiö
besta sem fram hefur komiö á því
sviöi. Ef „Future Shock" hefur farið
framhjá þér, skaltu bæta þér þaö
upp hiö snarasta. Tryggja þér
eintak og þenjaj' botn!
.NHVINV, IB UIUIV
— •J'lllll lll lllllll —
□ Spandau Ballet —
Journeys to Glory
Spandau Ballet eru leiöandi í nýrri
tónlist og nýrri tísku sem nú fer
eins og eldur í sinu um heiminn.
Lög þeirra „To Cut a Long Glory
Short", „The Freeze" og „Muscle
Band" njóta öll vinsælda hér sem
annars staöar og er gott dæmi um
hvaö Spandau Ballet stendur fyrir.
□ Laddi — Deio
fyrsta sólóplata Ladda er alveg
meiriháttar; skemmtileg og vel-
heppnuð í alla staöi. Engin ætti að
sleppa því tækifæri aö heyra um
Jón Spæó, Miönæturdýnamóinn,
Skúla Óskarsson, Búkollu, Stebba
stuöara og Badda bomsu og alla
hina sem segir af á þessari
skemmtilegustu þlötu noröan og
sunnan Alpafjalla. Deió!
□ Flugur —
Óvenjuleg og eldhress saman-
safnsplata, þar sem er aö finna aö
mestu leyti lög, sem ekki hafa áöur
veriö til á LP-þlötu og sum þeirra
hafa aldrei komiö út áöur. Hér
koma fram nokkrir af þekktustu
tónlistarmönnum þjóöarinnar, m.a.
Björgvin Halldórsson, Laddi,
Mezzoforte, Utangarösmenn, Þú
og ég, Start o.fl. Sem sagt merki-
leg og skemmtileg plata.
□ Áhöfnin i Halastjörnunni: —
Eins og skot
Áhöfnin á Halastjörnunni hefur
hafiö aöra vertíö sína með nýrri og
betri plötu. Eins og áöur hefur ekki
staöiö á fólki aö rífa hana út
jafnóöum og hún kemur í hillurnar.
Því ættir þú aö fara aö hyggja aö,
hvernig var meö eintakið þitt.
□ Jakob Magnússon —
Jack Magnet
Sumir segja, aö þetta sé besta
platan sem nokkur íslendingur
hefur gert. Víst er, aö þvílíkt úrval
tónlistarmanna, jafnmikil stúdíó-
vinna og jafngóð og fjölbreytt lög
er ekki að finna á neinni íslenskri
plötu. Enginn tónlistarunnandi má
láta þetta meistaraverk Jakobs
Magnússonar fara fram hjá sér,
þaö eitt er víst.
□ Roger Whittaker — The Roger
Whittaker Album
Roger Whittaker hefur um langa
hríö veriö mjög dáöur hér á landi.
Þessi þlata hans er sérlega vandaö
og gott úrval af hans bestu og
nýjustu lögum. Tvímælalaust plata
sem gleöur alla hans gömlu aö-
dáendur og á eftir aö afla honum
fjölda nýrra.
□ Carpenters — Made in
America
Talsvert er nú um liöiö síöan
Richard og Karen Carpenter gáfu
út sína síöustu plötu. Þessi nýja
plata þeirra er eitt þaö besta sem
þau hafa látiö frá sér fara og á
vafalaust eftir aö koma þeim á
toppinn aftur eftir nokkra fjarveru.
□ Feels Fins —
Tvær plötur fyrir sama verö og ein
meö listamönnum eins og Neil
Diamond, Herb Alpert, Janis lan,
Kenny Loggins, Santana, Joan
Armatrading og fl. og fl. Tónlistinni
er ætlaó aö skapa gott og afslapp-
aö andrúmsloft og yfir höfuö góöa
„fílingu". Þaö tekst meö afbrigöum
vel.
□ Rod Stewart — Greatest Hits
Sumir sáu hann í sjónvarpinu á
sautjándanum. aörir ekki. Hvorum
hópnum sem þú tilheyrir, þá býðst
þér hér meö að kaupa eintak af
„Greatest Hits“ eða úrval af hans
allra bestu lögum fyrir aöeins kr.
99. Já, þú ert að lesa rétt.
Þú getur hringt eöa kíkt inn í Hljómplötudeild Karnabæjar, já,
eöa krossað viö þær plötur sem hugurinn girnist og sent
auglýsinguna.
Viö sendum samdægurs í póstkröfu.
Nafn
Heimilisfang
V______________
Heildsöludreifing
sUinorhf
Símar 85742 og 85055
___________________/