Morgunblaðið - 11.08.1981, Side 1

Morgunblaðið - 11.08.1981, Side 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI 174. tbl. 68. árg. ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 1981 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Nifteindasprengjan: Framleidd vegna yfirburða Rússa Skipst á tillögum í ef nahagsmálum WashinKton. 1‘aris. lO.águst. AP. TALSMENN Bandaríkjastjórnar s(>nðu í daK. að sú ákvörðun RraKans forseta að hefja fram- leiðslu nifteindasprenKjunnar, sem mælzt hefur misjafnleKa fyrir um heim alian, væri nauð- synleK veKna yfirburða Sovét- manna á sviði vopnabúnaðar, en hins veKar væri ekki hægt að halda þvi fram með rökum. að ákvörðunin hefði orðið til að auka likur á kjarnorkustríði. Larry Speakes, aðstoðarblaða- fulltrúi Hvíta hússins, sagði, að engar áætlanir væru uppi um að koma upp birgðum af nifteinda- sprengjum í Evrópu, þótt hún væri fyrst og fremst hugsuð til notkunar gegn skriðdrekum Sov- étmanna þar. Hann vildi ekki segja hversu langan tíma tæki að koma sprengjunni til Evrópu ef hennar yrði þörf þar, né hversu mikið framleiðsla hennar kostaði, hvort tveggja væri leyndarmál. Caspar Weinberger varnar- málaráðherra kom fram í útsend- ingum þriggja sjónvarpsstöðva í dag til að verja ákvörðun forset- ans um að hefja framleiðslu sprengjunnar. Hann sagði hama- gang Sovétmanna af þessu tilefni eins og við hefði verið að búast, því nifteindasprengjan væri bezta vörn sem kostur væri á gegn skriðdrekum og þungavopnum Sovétmanna. Weinberger sagði Sovétmenn hafa fjórum sinnum fleiri skrið- dreka í Evrópu en Vesturveldin, eða 45 þúsund á móti 11 þúsund, og að nauðsynlegt væri að draga úr þessu misvægi, sem Sovétmenn hefðu stöðugt verið að auka, með því að framleiða nifteindasprengj- una. Weinberger sagðist jafnframt álíta, að tilkoma nifteindasprengj- unnar beinlínis drægi úr líkunum á kjarnorkustríði, þar sem erfið- ara yrði fyrir óvininn að leggja út í styrjöld eftir að hún væri komin til sögunnar. Charles Hernu, varnarmálaráð- herra Frakklands, sagði í dag, að Sovétmenn hefðu gert tilraunir til að smíða nifteindasprengju. Sjá nánar á bls.19. Er Atlants- hafsflug að stöðvast? Ottawa, Lisxabon. París. 10. áa. AP. KANADÍSKA dómsmálaráðu- neytið hóf i dag undirhúning að málsokn á hendur flugumferðar- stjórum, sem neitað hafa að sinna flugvélum á leið til <>k frá Bandarikjunum. Aðgerðir kana- disku fluKumferðarstjóranna hafa valdið truflunum á óllu fluKÍ til <>k frá Bandarikjunum i dag. þ.á m. Atlantshafsflugi. sem fer að mestu leyti um kanadiskt fluKstjórnarrými. Sum flugfélög tilkynntu að flug þeirra yfir Atlantshafið félli ekki niður, þar sem flogið yrði sunnan við kanadíska svæðið, en eftir að portúgalskir flugumferðarstjórar ákváðu í dag að hætta að sinna flugvélum á leið til og frá Banda- ríkjunum frá og með næstu helgi, stefnir allt í að allt flug milli Bandaríkjanna og Evrópu leggist niður einhvern næstu daga, ef deila bandarísku flugumferðar- stjóranna leysist ekki von bráðar. Franskir flugumferðarstjórar, sem ákváðu fyrir helgina að afgreiða ekki flugvélar á leið til Bandaríkjanna, tóku þá ákvörðun í dag, að láta af aðgerðum sínum, eftir að hafa verið fullvissaðir um að flugöryggi hefði ekki minnkað í bandarísku loftrými, þrátt fyrir verkfall flugumferðarstjóranna, en í þeirra stað hafa flugumferð- arstjórar úr heraflanum tekið við flugumferðarstjórn. Varsjá. lO.áKÚst. AP. Efnahag.sráðgjafar pólsku stjórnarinnar <>g fulltrúar Sam- stöðu skiptust i dag á hugmyndum um leiðir til að leysa efnahags- vanda Póllands á fundi i Gdansk. sem stofnað var til i þeim tilgangi að reyna að sporna við frekari mótmælum vegna matvælaskorts i landinu. Leiðtogar Samstöðu hafa verið sakaðir um áhugaleysi á lausn efnahagsvandans i Póllandi. <>g þvi hafa þeir nú lagt fram tillögur til úrbóta. Miðstjórn pólska kommúnistaflokksins hefur verið boðuð saman til „kreppu“- fundar á morgun, þriðjudag. þar sem efnahagsvandi landsins, og einkum hinn alvarlegi matvæla- skortur, verður til umfjöllunar Lech Walesa leiðtogi Samstöðu varð um helgina fyrir harðri gagn- rýni háttsettra ráðamanna, sem sökuðu hann um múgæsingar og ábyrgðarleysi í sambandi við mót- mælaaðgerðir vegna matvælaskorts að undanförnu. Svaraði Walesa fyrir sig í dag og sagði viðkomandi ráðamenn hafa meiri áhuga á að þrefa um pólitík en því hvort landsmenn hefðu nóg að bíta og brenna. Ástandið í Póllandi er að sögn þrungið mikilli spennu, og vegna „spennuástands" aflýsti Samstaða um helgina fyrirhugaðri „hungur- göngu“ kvenna. Walesa latti félaga í Samstöðu til mótmæla meðan við- ræður um úrlausnir í efnahagsmál- um færu fram. Viktor Kulikov yfirmaður herja Varsjárbandalagsins átti viðræður við ráðamenn í Varsjá um helgina, á sama tíma og sovézki herinn er við landgönguæfingar rétt við Pól- landsstrendur, og í kjölfar um- fangsmikilla mótmæla um allt Pól- land er beinst hafa gegn stjórninni. Málgagn pólska hersins sagði frá því í dag, að pólskar, sovézkar og tékkneskar hersveitir væru nú við „stríðsleiki" í suðurhluta Póilands, og austur-þýzka fréttastofan ADN sagði, að pólskar og a-þýzkar her- sveitir hefðu nýlega lokið sameigin- legum æfingum. Concorde hætt komin Ncw York, lO.áKúst. AP. TVEIR hjólbarðar á brezkri Concorde-þotu sprungu i þann mund er flugstjórinn ætlaði að hefja þotuna á loft frá Kennedy- flugvelli í dag, og fór þá loft sjálfkrafa úr öðrum hjólum þot- unnar. Fyrir snarræði flugmannanna, sem drógu af hreyflum þotunnar og stöðvuðu hana áður en flugbrautin var á enda, sakaði engan farþega, en þeir voru 96. Brezka blaðið The Sun sagði að hefði bilunin orðið fjórum sekúnd- um seinna, hefði stórslys hlotist af, því þá hefði flugbrautin ekki dugað til að stöðva vélina. Mál Raoul Wallenberg: „100% viss um að Brezhnev stjórnaði handtökunni44 — segir formaður Wallenberg-nefndarinnar í Svíþjóð Frá (áuðfinnu kagnarsdóttur. fréttarit- ara Mbl. i Stokkhólmi. 10. áffÚHt. SÆNSKA rikisstjórnin hefur beðið sænska sendiráðið i Tel Aviv að hafa nú þegar samband við Yaakov Menaker, fyrrverandi liðsfuringja 1 sovézka hernum, til þess að fá nánari fregnir af vitnishurði hans um hvarf Raoul Wallenbergs. Sænska kvöldblað- ið Aftonbladet birti á laugardag viðtal við Menaker, sem stað- hæfði að Leonid Brezhnev, forseti Sovétrikjanna, hefði verið yfir- maður þeirrar hersveitar, sem tók Wallenberg í Búdapest 1945. Raoul Wallenberg hafði starfað á vegum Rauða krossins við að bjarga ungverskum gyðinKum undan klóm nazista. Wallenberg Brezhnev „Það voru kunningjar mínir úr 18. herdeildinni, sem tóku Wallen- berg til fanga undir stjórn Leonid Brezhnevs. Síðan hefur allt verið gert til að þagga niður í þeim, sem tóku þátt í handtöku Wallenbergs í Búdapest," sagði Menaker. „Sá sem skýrði mér frá hand- tökunni var vinur minn, Peantelej Kolotilo, en hann tók sjálfur þátt í að skipuleggja handtökuna," sagði Menaker ennfremur. „Við munum gera allt til að komast að því, hvort Leonid Brezhnev hefur verið viðriðinn handtökuna," sagði Leif Lande, ritari ríkisstjórnarinnar. „Því vilj- um við hitta Menaker að máli, heyra frásögn hans og bera hana saman við vitneskju um afdrif Raoul Wallenbergs eftir handtök- una í Búdapest,” bætti Linde við. „Við höfðum af því spurnir siðastliðið haust, að Leonid Brezh- nev hefði gefið skipunina um handtöku Wallenbergs," sagði formaður Wallenberg-nefndarinn- ar, Ingrid Gjerde Widemar, hæstaréttarlögmaður. „Við vildum ekki skýra frá þátttöku Brezhnevs til að torvelda ekki rannsókn málsins. Við höfum frétt þetta frá mörgum aðilum, meðal annars í Sovétríkjunum. Ég er 100% viss um, að Brezhnev stjórnaði hand- tökunni," bætti Ingrid Gjerde Widemar við. „Leonid Brezhnev var formaður pólitísku deildarinnar í 18. her- deildinni, sem staðsett var í Ung- verjalandi. Hann sá meðal annars um stjórnmálaáróður, undirróð- ursstarfsemi og handtökur. Hand- taka Raoul Wallenbergs var vel undirbúin. Sovétmenn voru sann- færðir um, að hann væri þýzkur eða handarískur njósnari," sagði Gjerde Widemar að lokum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.