Morgunblaðið - 11.08.1981, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.08.1981, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 1981 Fjölmennur fundur um málefni Alþýðublaðsins MIKIÐ fjolmcnni var á opnum fundi þeirra Vilmundar Gylfasonar, afleysintíaritstjóra, og Jóns Baldvins Hannibalssonar, ritstjóra Alþýðu- blaðsins, á Hótel Sógu í gærkvöldi, sem þeir boðuðu til vegna málefna Aiþýðublaðsins. Gestur fundarins var Kjartan Jóhannsson, formaður Alþýðuflokksins, en auk hans voru viðstaddir flestir forystumanna flokksins. Vilmundur Gylfason rakti laus- lega aðdraganda deilnanna um Al- þýðublaðið og kom þar meðal annars fram, að Helga Má Arthúrssyni hafi verið boðin ritstjórastaða við blaðið og launahækkun af forystu flokks- ins, en hann hafnað hvorutveggja. Einnig sagðist Vilmundur ekki halda, að það væri aðeins „grínblað- ið“, sem hafi valdið deilunum. heldur Grunaðir um f jár- svik og skjalafals ÞRÍR menn voru handteknir á sunnudaginn fyrir fjársvik og skjalafals og voru tveir þeirra úrskurðaðir f gæsluvarðhald. annar til 18. ágúst. en hinn til 25. ágúst. Mennirnir brutust inn í bóndabæ á Rangárvollum um helgina. stálu þar blöðum úr ávísanahefti og seldu falsaðar ávisanir í Hveragerði. Þá héldu þeir til Reykjavíkur og þar heltist einn úr lestinni og gaf sig fram við lögregluna, en tveir héldu afbrotum áfram. Þegar mennirnir voru teknir, kom í ljós að þeir voru með tvö seðlaveski í fórum sínum með ávisanaheftum og skilríkjum, og talið er að þeir hafi falsað ávísanir úr heftum þessum. Avísanaheftin voru frá Landsbankanum á Akureyri. Annar maðurinn var tekinn fyrir ölvunarakstur, en skömmu áður hafði hinn maðurinn lent í árekstri á sama bíl. Voru þeir á bíl sem þeir höfðu tekið á leigu. verkalýðsforingjar Alþýðuflokksins, sem bola vildu honum frá vegna skrifa hans í blaðið um verkalýðs- mál. Jón Baldvin Hannibalsson rakti málið frá sínu sjónarhorni og skýrði afstöðu sína. Velti hann þeirri spurningu fyrir sér hvort flokkurinn væri að klofna. Sagði hann tilefni þessa fundar vera það, að koma baktjaldamakkinu fram í dagsljósið. Sagði hann, að ef ekki yrði fundin lausn á þessu, þá yrði að skipta um ritstjóm. Nefndi hann nokkrar lausnir í málinu, meðal annars að skipta um blaðstjórn, draga upp- sagnarbréf blaðamannanna til baka og að núverandi ritstjórn héldi áfram. Þegar Morgunblaðið fór í prentun í gærkvöldi voru enn margir á mælendaskrá, umræðum því ekki lokið og engin niðurstaða komin fram. Útitafl í mótun. Unnið hefur verið af miklu kappi að gerð útitaflsins við Bernhöftstorfuna að undanförnu og er nú svæðið farið að nálgast endanlega mynd. Tröppur og áhorfendastæði eru þegar komin upp og nú er verið að undirbúa steypuvinnu taflsins sjálfs. Þrátt fyrir hinn mikla kraft, sem lagður hefur verið í framkvæmdirnar, eru þó litlar líkur á að þeim verði endanlega lokið fyrir þann 18. eins og áætlað hafði verið. Yona að útreikningar Flugleiða sýni að aðeins vanti 2 millj. dollara Athyglisvert að nú tala þeir um 4 milljónir í stað 6 áður, segir fjármálaráðherra Guðjón ólafur Guðjónsson Maðurinn sem fórst LÁTINN er í Reykjavík Guðjón Ólafur Guðjónsson, til heimilis að Kambaseli 65 i Reykjavik. Guð- jón varð fyrir bil á Suðurlands- hraut um verzlunarmannahelg- ina, en hann fékk höfuðáverka i slysinu og komst ekki til meðvit- undar. Guðjón heitinn var fædd- ur 21. júní 1953. „ÉG IIEF vakið athygli á því, að áður var talað um og gengið út frá þvi að Flugleiðir vantaði 6 milljón dollara aðstoð til að geta áfram haldið uppi flugi yfir Atlantshafið, en nú þegar ljóst er að Luxemborgarar leggja aðeins Svavar í opin- berri heimsókn í Sovétríkjunum SVAVAR Gestsson félagsmála- ráðherra er nú staddur í Sovét- ríkjunum i opinberri heimsókn, boðinn af sovéska félagsmála- ráðuneytinu. Svavar fór utan i gær, sunnudag, en hin opinbera hfimsokn hefst i dag. Með félagsmálaráðherra fóru utan Jónína Benediktsdóttir, kona hans, Arnmundur Bach- mann, aðstoðarmaður ráðherra, og Páll Sigurðsson, ráðuneytis- stjóri í heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðuneytinu. Hinni opinberu heimsókn lýkur á fimmtudag, og eru ráðherrann og fylgdarlið hans væntanleg heim aftur síðdegis á föstudag, segir í frétt frá blaðafulltrúa ríkis- stjórnarinnar. til eina milljón, þá segja Flugleið- ir skyndilega að þeir þurfi ekki nema fjórar milljónir,“ sagði Ragnar Arnalds fjármálaráð- herra f samtali við Morgunblaðið i gær, er hann var spurður um styrk isienskra rikisins til Flug- leiða. Ragnar Arnalds sagðist vona, að ef Flugleiðir settust nú enn niður og reiknuðu, þá kæmi í ljós að þörf þeirra væri aðeins tvær milljónir dollara, það er ein frá hvoru landi, Islandi og Luxem- borg. Sagðist fjármálaráðherra vilja undirstrika það, að alltaf hefði verið talað um hliðstæða fjárhæð frá báðum þjóðum. Út- reikninga frá Flugleiðum hf. vegna þessa máls sagðist Ragnar á hinn bóginn enga hafa séð, og því vildi hann ekki tjá sig um málið á þessu stigi. Ráðherrann var einnig spurður, hvort ekki gæti komið til greina að hans áliti, að íslendingar styrktu Atlantshafsflugið meira en Lux- emborgarar, þar sem það væri okkur mikilvægara en þeim, hugs- anlega þannig að íslenska ríkið legði fram þrjár milljónir dollara á móti einni frá Luxemborg. Fjármálaráðherra sagðist ekki vilja kveða upp úr með það á þessari stundu, en það hlyti mjög að fara eftir því hvernig yrði háttað millilendingum hér í flug- inu milli Evrópu og Bandaríkj- anna. Yrði ekki um millilendingar í Keflavík að ræða væri nánast eingöngu um atvinnu flugliða að ræða, en með millilendingum kæmu fleiri hagsmunir íslendinga til, svo sem gjöld af flugvellinum, ferðamannastraumur og tekjur af fríhöfninni, svo dæmi væru nefnd. Afstaðan hlyti því mjög að fara eftir þvi, hvort um miliilendingar hér á landi yrði að ræða eða ekki í áframhaldandi Atlantshafsflugi. Hagsmunir íslendinga meiri en Luxemborgara — segir Steingrímur Hermannsson um styrk til Atlantshafsflugs Flugleiða ÞAÐ ER augljóst að hagsmunir okkar íslendinga eru mun meiri en Luxemborgara i þessu máli, og það tel ég hafa verið i huga við ákvörðun um styrk til Flugleiða, sagði Steingrimur Hermannsson samgönguráðherra i samtali við Morgunblaðið í gær, er hann var spurður álits á þeim ummælum Ragnars Arnalds, að eðiilegt væri að tslendingar iegðu fram sömu upphæð i þessu skyni og Luxemborgarar. Steingrímur sagði rétt að minna á að um 400 manns hefðu atvinnu Vinnueftirlitið krefst að Hvalur hf. fari að lögum: „Verið að hengja bakara fyrir smið44 — segir Kristján Loftsson framkvæmdarstjóri Hvals hf. „ÞEIR STARFSMENN, sem vinna hjá Hval hf., hafa getað fengið frí, þegar þeir hafa óskað eftir því með tveggja daga fyrirvara. Ef starfsmenn hafa hins vegar ekki hug á að taka sér fri, þá höfum við talið, að þeim væri það í sjálfsvald sett,“ sagði Kristján Loftsson, framkvæmdastjóri Hvals hf., en Vinnueftirlitið hefur krafist þess að farið verði eftir lögum um lágmarks hvíldardaga hjá fyrirtækinu. Kristján Loftsson sagði enn- fremur: „Aðdragandinn að þessu máli er sá, að síðastliðið föstudagskvöld komu starfsmenn Vinnueftirlits- ins upp í hvalstöð og innsigluðu þar löndunarkrana á þeirri for- sendu að ekki væri farið að lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, sem sam- þykkt voru á Alþingi árið 1980, en komu til framkvæmda um síðustu áramót. í lögunum segir, að á hverju sjö daga tímabili skuli starfsmenn fá að minnsta kosti einn vikulegan frídag. í reynd hafa þessi lög veitt það svigrúm að hægt er að veita tveggja daga frí á tveggja vikna fresti. Telur Vinnu- eftirlitið, að Hvalur hf. hafi virt þessi lög að vettugi og sé skylt að fara eftir fyrirfram ákveðnu skipulagi, sem Vinnueftirlitið svo samþykki. Innsiglið á löndunar- krananum var því ekki rofið fyrr en ég og trúnaðarmenn starfsfólks höfðum undirritað yfirlýsingu þess efnis, að tillögur um breyt- ingar á núverandi fyrirkomulagi yrði komið á eigi síðar en á hádegi á mánudag. Finnst mér þessar aðfarir Vinnueftirlitsins ómaklegar og þarna sé verið að hengja bakara fyrir smið, því það er starfsfólkið sjálft, sem kosið hefur núverandi fyrirkomulag á frídögum." v Sagði Kristján ennfremur: „Það er ekkert vandamál hjá Hval hf., þó starfsfólkið taki sér þessi lögbundnu frí, því þó mikið sé að gera, þá er alltaf hægt að leita til varavinnuafls, sem er tiltækt og er þar einkum um að ræða fólk, sem starfað hefur hjá Hval hf. áður og er fúst til tímabundinna starfa." Helgi Sigurðsson, starfsmaður hjá Hval hf., sagði er hann var spurður um þessi mál: „í upphafi hvalvertíðar þann 11. júní þá ræddum við starfsmennirnir um það við yfirmenn Hvals hf., að við fengjum að ráða okkar frídögum sjálfir, því almennt er það ósk manna að fá að taka fleiri frídaga í einu. Einnig er hér margt starfsfólk, þar á meðal námsfólk, sem vill reyna að vinna sér inn eins miklar tekjur og mögulegt er meðan á vertíðinni stendur og vill því ekki taka sér nema takmarkað frí. Ef þetta fólk þyrfti aftur á móti að taka sér frí einu sinni í viku, þýddi það launaskerðingu. Flestir starfsmenn hafa þó tekið sér eitthvað frí þær átta vikur, sem hvalvertíðin hefur staðið yfir. Af þessu má sjá, að það er ekki við yfirmenn Hvals hf. að sakast í þessum efnum, heldur er hér farið að óskum okkar starfsmannanna." Eyjólfur Sæmundsson, forstjóri Vinnueftirlitsins, sagði: „Núver- andi staða í þessu máii er sú, að Vinnueftirlitið hefur gefið Hval hf. annan frest til að Ijúka samn- ingum í þessu máli, en fresturinn rennur út í kvöld.“ af fluginu hér, og margvíslegir aðrir hagsmunir væru í veði, svo sem ferðamannastraumur hingað frá Bandaríkjunum. Þetta yrði að hafa í huga þegar ákvörðun um styrk vegna Atlantshafsflugsins yrði tekin. Steingrímur sagði því á hinn bóginn ekki að leyna að ákvörðun stjórnvalda í Luxem- borg hefði valdið sér vonbrigðum, og upphaflega hefði verið talað um sama styrk frá báðum þjóðum. Það hefði þó verið sett fram af íslendingum í og með til að sÆtja þrýsting á Luxemborgara, en hagsmunir íslendinga hlytu auð- vitað að ráða því, hvað gert yrði. Að öðru leyti sagðist Steingrím- ur ekki vilja tjá sig um þetta mál, fyrr en skýrsla kæmi frá Flugleið- um, þar sem kæmi betur í ljós hver fjárþörfin væri, og hverjar áætlaðar framtíðarhorfur fyrir- tækisins væru. Eimskip leigir danskt skip i stað Berglindar Eimskipafélagið hefur tekið danskt skip á leigu i þrjá mánuði í staðinn fyrir gámskipið Berglindi, sem sökk út af Nova Scotia fyrir nokkru, eftir árekstur við danska skipið Charm. Skipið heitir Junior Lotto og er 180 gáma skip. Danska skipafélagið Lehmann á skipið. Lotto fer frá Portsmouth áleiðis til Reykjavíkur í sína fyrstu ferð 26. ágúst nk. I byrjun þessa mánaðar tok Eimskip Junior Longo á leigu í eina ferð til að halda uppi áætlun í staðinn fyrir Berglindi. Sjópróf hafa enn ekki farið fram í Danmörku vegna áreksturs Charm og Berglindar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.