Morgunblaðið - 11.08.1981, Page 3

Morgunblaðið - 11.08.1981, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 1981 3 „Þjálfun mín hefur miðast við þetta eina augnablik“ — sagði ólafur Sigurðsson, sem var skip- herra í þyrluflugi Landhelgisgæslunnar, er hún leitaði að týndum veiðimanni við Kleifarvatn „LÍÐAN mannsins er betrl og hann er úr allri hættu, en ekki er enn vitað hvað olli veikindum hans en verið er að rannsaka manninn," sagði Arnaldur Valgarðsson læknir á Borgarspitalanum, er hann var spurður um líðan mannsins, sem fannst veikur i bil sinum við ólafur Valur Sigurðsson við þyrluna sem flutti hinn veika mann á Borgarspitalann. Kleifarvatn siðastliðinn sunnudag. Eins og komið hefur fram í fréttum, stöðvaðist öndun mannsins eftir að hann kom um borð í þrylu landhelgisgæslunnar, sem átti að flytja hann upp á Borgarspitala, en skipherra þyrl- unnar, Ólafi Val Sigurðssyni, tókst að blása lífi í manninn. Morgunblaðið hafði samband við Ólaf Val Sigurðsson og bað hann að segja frá atburðinum. „Við vorum í gæsluflugi og á vesturleið yfir Þykkvabæ, þegar við fengum skeyti um að leita að bifreið við Kleifarvatn. Skyggni var afar lélegt frá Þorlákshöfn og að Kleifarvatni eða 100—500 metrar. Þegar við komum á vettvang var lögreglan í Hafnar- firði nýbúin að finna bílinn og maðurinn sat ennþá undir stýri. Stýrimaðurinn og ég drifum manninn út í þyrluna og lögðum hann á gólfið. Maðurinn var með meðvitund, þegar við færðum hann upp í þyrluna, en við flugtakið hætti hann að anda og byrjaði að blána. Ég blés þá nokkrum sinnum kröftugiega í vit mannsins og tók hann þá fljótt við sér og öndunin varð róleg og jöfn í þær 11 mínútur, sem það tók að fljúga með manninn upp á Borgarspítala." — Hvernig tilfinning var það að vinna að lífsmark var aftur með manninum? „Það er vart hægt að lýsa þeirri tilfinningu í orðum. Ég hef fengið mjög góða þjálfun hvað varðar að lífga menn úr dái með blásturs- aðferðinni. Ég hef meðal annars verið í læri á skurðstofu þar sem mér var kennt allt um öndun og öndunarfæri mannsins. Mín þjálfun að þessu leyti hefur því stefnt að þessu eina augnabliki." — Hefur þú í þínu starfi áður lent í svipaðri aðstöðu? „Nei aldrei. Auðvitað hefur ýmislegt komið fyrir í en aðstæð- ur hafa verið aðrar og þá fremur á þann veg að menn hafi verið það illa farnir, að blástursaðferð- in hefur ekki komið að neinu gagni.“ Aðdragandinn að umræddu at- viki var sá að um miðnætti aðfararnótt sunnudags var til- kynnt til lögreglunnar í Hafnar- firði að maður, sem talið var að hefði farið að renna eftir fisk hefði ekki komið heim til sín síðan snemma um daginn, en ekki var vitað hvert maðurinn ætlaði til veiða. Lögreglan fór strax að leita mannsins en án árangurs. Eftir hádegi á sunnudag kröfðust ættingjar mannins að gerð yrði önnur tilraun til að hafa upp á manninum. Við nánari eftir- grennslan kom í ljós að maðurinn hafði keypt veiðileyfi í Kleifar- vatni. Hélt lögreglan þangað og fannst maðurinn klukkan 3 á sunnudag, eins og áður hefur verið greint frá. Kjaramálaráðstefna Alþýðusambands Vestfjarða: Kaupmætti samning- anna frá 1977 verði náð Vilja semja heima í héraði „Aðalkrafan er sú að almenn grunnkaupshækkun komi á alla taxta og hún verði miðuð við að kaupmætti sólstöðusamninganna frá 1977 verði náð. en þetta eru tillögur til félaganna um kröfugerð i væntanlegum samningum,“ sagði Pétur Sigurðsson, formaður Alþýðusambands Vestfjarða i samtali við Morgunblaðið, en hann var spurður um niðurstöðu kjaramálaráðstefnu Alþýðusambands 'Vest- fjarða, sem haldin var um helgina. „Önnur aðalkrafan er, að almenn fiskvinna verði greidd samkvæmt 13. launaflokki, i staðin fyrir 8. launaflokki áður, en það munar 10%, eins og dæmið er i dag“ sagði Pétur. hann með, og því finnst mér hærri kröfumörkin eðlilegri," sagi Pétur. Þá sagði Pétur að Alþýðusam- bandi Vestfjarða fyndist eðlilegt að það semdi sér, en ekki með heildarsamtökunum. „Sú var niðurstaða ráðstefnunnar, en síð- an er meiningin að fara með þetta út í félögin og ræða málin þar, en ég á ekki von á öðru en þar verði sami andinn. Þetta var það ein- Pétur Sigurðsson dregið á ráðstefnunni. Við teljum að þessi samflot hafi ekki verið samflot, þau hafi ekki verið heil- steypt, heldur hefur útúrboru- háttur verið meira og minna í þeim alla tíð,“ sagði Pétur. Spurn- ingu um hvort þetta væri van- traust á ASI-forystuna, sagði Pétur að hann liti ekki svo á, þetta væri ekki vantraust á hana. „Forysta ASÍ hefur bara gengt því hlutverki sem henni var falið á sínum tíma, að halda þessu samfloti í gangi. Okkur finnst nú aö þetta fyrirkomulag sé ekki heppilegt, en við erum ekki þar með að dæma að það hafi ekki skilað neinu. En við álítum að eins og málin standa í dag, að eðliiegra sé að reyna annað, enda hafa ákveðnir hópar innan ASÍ gert það og fengið meira út úr því,“ sagði Pétur Sigurðsson. Aðspurður sagði Pétur að mán- aðarkaup samkvæmt 8. launa- flokki eftir eins árs starf væri 4305 krónur, en kaup samkvæmt 13. launaflokki væri það 4754 krónur. „Síðan gerum við kröfur um að eftirvinna falli út úr samningum, en það er búið að vera krafa í tugi ára, og leggjum við til að það gerist á einu ári í áföngum. Einnig krefjumst við þess að næturvinna verði aftur 100% af dagvinnu, en hún er 80% nú. Þá gerum við kröfu um lengra sumarfrí til handa þeim, sem starfað hafa í tíu ár hjá sama fyrirtæki, eða í sömu atvinnu- grein, og að matartímar á laugar- dögum og sunnudögum verði greiddir, eins og gert hefur verið hjá iðnaðarmönnum i áratugi. Þetta eru svona lagfæringar sem ætti ekki að þurfa að biðja um í dag,“ sagði Pétur. Spurningu um hve mikið kaup þyrfti að hækka til að kaupmætti samningnna frá 1977 yrði náð, sagði Pétur, að menn mætu það á mismunandi hátt og færi það eftir þeim forsendum sem menn gæfu sér. „Þetta er á bilinu 6—11%, en það fer eftir því, hvað félagsmála- pakkar síðustu ára eru mikils metnir," sagði Pétur. Pétur sagði að ef fullt tillit væri tekið til félagsmálapakka og skattalækk- anna, þá þyrfti 6% kauphækkun til að ná kaupmætti samninganna frá 1977, en ef ekki væri tekið tillit til þessa, þá þyrfti 11% hækkun á kaupi. „Ég hef tilhneig- ingu til að segja, þó ég ætli ekki að vanþakka t.d. þennan félags- málapakka með veikindapakkan- um, að hann hefði átt að koma fyrr eða síðar, án þess að menn gæfu eftir í launum. Þess vegna er kannski ekki eðlilegt að telja Jón Páll Halldórsson, formaður Viimuveitendafélags Vestíjarðæ Ekki svigrúm til kauphækkana „VIÐ MUNUM hafa samflot með Vinnuveitendasamhandinu I samningagerðinni, það liggur alveg ljóst fyrir,“ sagði Jón Páll Ilalldórsson formaður Vinnuveitendafélags Vestíjarða i samtali við Morgunblaðið. „Gn það er alveg ljóst að ef gengið verður að þessum kröfum Alþýðusambands Vestfjarða, þá þýðir það aukna verðbólgu og gengislækkanir i takt við það.“ Þorsteinn PáLsson, framkvæmdastjóri VSI: Kröfugerðin byggir ekki á raunhæfum forsendum VSÍ mun semja sem ein heild „ÉG HELD að óhætt sé að segja að þessi kröfugerð er ekki byggð á raunhæfum forsendum, hún byggir ekki á auknum þjóðartekjum á þessu ári, og er að því leyti óraunhæf,“ sagði Þorsteinn Pálsson framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambands íslands í samtali við Morgunblaðið, en hann var spurður álits á þeirri kröfu Alþýðusambands Vestfjarða, að kaupmætti samninganna frá 1977 verði náð í næstu kjarasamningum. ræðst af öðrum aðstæðum í þjóðarbúskapnum, þannig að þessi viðmiðun við óraunhæfa „Kaupmáttur verður aldrei tryggður í samningum, hann Aðspurður sagði Jón Páll, að vinnuveitendur á Vestfjörðum væru ekki farnir að ræða sínar kröfur í komandi kjarasamning- um, enda hefði samningum enn ekki verið sagt upp. „Það er vitað mál að frystiiðnaðurinn sem er ein megin uppistaðan í atvinnu- lífinu hér á Vestfjörðum, hefur verið rekin með halla á þessu ári, þannig að öllum hlýtur að vera ljóst að á sama tíma er ekki svigrúm til kauphækkana," sagði Jón Páll Halldórsson. Jón Páll Halldórsson kjarasamninga frá 1977 er auðvitað alveg út í bláinn," sagði Þorsteinn. Spurningu Morgunblaðsins um álit hans á þeim tilmælum Alþýðusambands Vestfjarða til aðildarfélaganna, um að næstu samningar fari fram heima í héraði, svaraði Þor- steinn: „Varðandi það, með hvaða hætti samningarnir fara fram, er lítið hægt að segja á þessu stigi. Það er auðvitað þeirra mál ef þeir vantreysta Alþýðusambandinu til þess að hafa forystu fyrir sínum málum, en Vinnuveit- endasambandið mun að sjálf- sögðu semja sem ein heild, þó að Alþýðusambandið riðlist." Þorsteinn sagði að vinnu- veitendur reiknuðu ekki með öðru en að verkalýðshreyfing- Þorsteinn Pálsson in tæki mið af efnahagslegum aðstæðum í komandi samning- um, en eftir síðustu samninga hefði reynst óhjákvæmilegt að taka þá kauphækkun aftur sem um var samið, til þess að koma í veg fyrir verðbólgu- áhrif samninganna. „Þannig að ég held að það sé full ástæða fyrir alla aðila að horfa á þetta verkefni af raunsæi, en ég sé ekki annað en að grunnkaupshækkanir leiði til aukinnar verðbólgu," sagði Þorsteinn Pálsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.