Morgunblaðið - 11.08.1981, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 11.08.1981, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 1981 5 Þorsteinn Sveinsson lögmaður látinn Fyrirspurnum eftir spar- neytnum bílum f jölgar NOKKUR aukning heíur orðið á eftirspurn sparneyt- inna bíla eftir að leýfisgjöld á þeim voru lækkuð fyrir skömmu. Fyrirspurnir um verð bílanna hafa aukizt verulega og salan byrjuð að aukast nokkuð, en þess ber að geta, að 1982-árgerðirnar eru væntanlegar á markaðinn innan skamms og gæti það dregið nokkuð úr bílakaupum nú. AÐ MORGNI fimmtudagsins 6. þessa mánaðar lést í Heilsuhæli NLFÍ í Hveragerði Þorsteinn Sveinsson lögmaður, 67 ára að aldri. Þorsteinn var fæddur 20. desember 1913 á Hvítsstöðum í Álftaneshreppi, Mýrasýslu. For- eldrar hans voru Sveinn Helgason bóndi þar og s.k.h. Elísabet Guð- rún Jónsdóttir. Þorsteinn varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1934 og cand. juris frá Háskóla íslands 27. maí 1939. Stundaði lögmannsstörf í Reykja- vík 1939—1940. Bæjarstjóri á ísa- firði 1940-1943. Fulltrúi á skrifstofu verðlagsstjóra og lög- maður Landssmiðjunnar samhliða sjálfstæðum lögmannsstörfum næstu ár. Skrifstofustjóri á skrifstofu Húsameistara ríkisins 1956—1974, en stundaði sjálfstæð lögfræðistörf eftir það meðan heilsa leyfði. Þorsteinn var mikill félags- málamaður. Hann starfaði um skeið að bindindismálum. Ritari Sólveig Eggerz Brownfeld Sólveig Eggerz varði doktorsrit- gerð í vetur SÓLVEIG Eggerz Brownfeld varði sl. vetur doktorsritgerð við „Catholic University of America“ og hlaut doktorsnafnbót i mai sl. — Ritgerð sína ncfnir Sólveig: The Tradition of Anti-Feminist Satire in German and English Medicval Literature. Verkið fjallar um gagnrýni á kvenfólk í bókmenntum frá forn- öld fram á seinni hluta miðalda. Sólveig útskrifaðist frá Mennta- skólanum í Reykjavík árið 1963 og hélt síðan til náms í Bandaríkjun- um. Hún starfar nú sem blaða- maður í Alexandríu í Virginíu- fylki, auk þess sem hún stundar kennslu. Sólveig er gift Allan Brownfeld, blaðamanni, og eiga þau tvö börn, Alexöndru Ingu og Pétur Egil. Sólveig er dóttir hjónanna Péturs Eggerz, sendiherra, og Ingibjarg- ar Pálsdóttur. _______ Hraunprýði í Garða- bæ skemmdist af eldi Á stinnudaginn klukkan liðlega 22.00 var Slökkvilið Hafnarfjarðar kvatt að hús- inu Hraunprýði i Garðabæ, á horni Ilafnarfjarðarvegar og Reykjanesbrautar. Húsið er tveggja hæða timb- urhús, en íbúar hússins voru að horfa á sjónvarp, þegar þriggja ára drengur náði að komast yfir eldspýtur og kveikja í fataskáp í milligangi. Þegar fólkið varð vart við reyk í ganginum, var eldurinn orð- inn svo magnaður, að það fékk ekkert við ráðið. Slökkvistarf gekk greiðlega eftir að reykkafarar fóru inn í húsið, en eldur hafði náð að breiðast út og urðu skemmdir miklar á neðri hæð hússins og innbúi, sem var óvátryggt. Efri hæð hússins slapp við skemmdir, að öðru leyti en því, að nokkurn reyk lagði upp.. Þingvallanefndar frá 1955 til dauðadags. Átti sæti í stjórn Tónlistarfélagsins 1948—1952. Formaður Borgfirðingakórsins 1953—1955 og einn af stofnendum Þjóðleikhúskórsins 1953 og for- maður þess kórs í aldarfjórðung. Þorsteinn var hagmæltur vel og birtust ljóð hans í blöðum og tímaritum, auk þess sem hann gaf út eina ljóðabók, „Gengin spor“, 1980. Hann var sæmdur riddara- krossi hinnar íslensku fálkaorðu 17. júní 1979 fyrir störf að söng- málum. Þorsteinn var tvíkvæntur. Fyrri kona hans, Þórunn Sveinsdóttir, lést 1969. Þau eignuðust fjögur börn, sem öll eru uppkomin. Seinni kona hans er Sigríður I. Þorgeirsdóttir kennari og lifir hún mann sinn. Útför Þorsteins verður gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 13. ágúst nk. kl. 15.00. Hjá Fordumboðinu Sveini Eg- ilssyni fengust þær upplýsingar, að um greinilegt afturhvarf væri að ræða frá amerískum bílum, bæði vegna verðhækkana vegna styrkrar stöðu dollarans og rekstrarkostnaðar. Því hefði salan á Suzuki-bílum aukizt nokkuð, talsvert af þeirri gerð væri til á lager og gengi vel að selja þá bíla nú, þrátt fyrir að næsta árgerð væri væntanleg á markaðinn inn- an skamms. Hjá Daihatzu-umboðinu feng- ust þær upplýsingar að fyrir- spurnum hefði fjölgað verulega og væri þá fólk mest að velta verðinu fyrir sér, en bein söluaukning væri enn ekki orðin mikil. Fólk virtist vera að bíða eftir nýju árgerðun-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.