Morgunblaðið - 11.08.1981, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 1981
Beisbolta-
verkfalli
er lokið
Cleveland. 10. áxúst. AP.
FIMMTÍU daga beisboltaverkfalli
lauk opinberlega í Bandaríkjunum
í gærkvöldi, hinu lengsta i sögu
íþrótta.
Rúmlega 76.000 áhorfendur
mættu við fyrsta leikinn á keppn-
istímanum í Cleveland og það var
met.
Þúsundir
flýja átökin í
Guatemala
TeKUcÍKalpa. Ilondúras. 10. áKÚst. AP.
AÐ MINNSTA kosti tvö þúsund
flóttamenn frá Guatcmala flýðu
yfir landamærin til Ilondúras um
hclgina og fcr nú flóttamanna-
straumur vaxandi frá Guatemala
vcgna vaxandi átaka i landinu.
Flóttamennirnir, flestir smá-
bændur, flýðu frá héraðinu Zac-
apa, en þar hafa undanfarið verið
hörð átök milli stjórnarhersins og
vinstri sinnaðra skæruliða.
í síðustu viku tilkynnti Flótta-
mannastofnun Sameinuðu þjóð-
anna, að nú væru um 70 þúsund
flóttamenn frá E1 Salvador í
Hondúras. Þá eru einnig margir
flóttamenn frá Nicaragua í Hond-
úras. Stjórnvöld í Hondúras hafa
vaxandi áhyggjur af auknum
flóttamannastraumi til landsins.
Samsæri
í Líberíu
Monrovia. 10. áicÚKt. AP.
VALDAMIKLIR menn í ríkisxtjórn
Vestur-Afríkuríkisins Lfbcrfu
gerðu með sér samsæri um byltingu
og verða leiddir fyrir herdómstól.
að sogn þjóðarleiðtoga Liberiu,
Samuel Doe liðþjálfa.
Doe sagði í útvarpsávarpi að
staðgengill sinn, Thomas Weh Syen
hershöfðingi, hefði stjórnað bylt-
ingartilrauninni. Syen hugðist
myrða Doe og þrjá aðra valdamikla
ráðherra og hrifsa síðan völdin, að
sögn Doe.
Þetta er þriðja tilraunin til bylt-
ingar gegn Doe síðan hann steypti
stjórn William Tolbert forseta 12.
ágúst 1980. Tolbert beið bana í
byltingunni.
Tilræði i
3 borgum
Aþcnu. 10. áKÚNt. AP.
TVÆR sprengjur sprungu i sendi-
ráði Ísraels í Aþenu í morgun og
ollu eignatjóni en ekki manntjóni.
Sprengjur sprungu einnig í ísra-
elska sendiráðinu í Vín um svipað
leyti og í skrifstofu ísraelska flugfé-
lagsins El A1 í Róm.
I sprengjutilræðinu í Róm særðist
ítalskur starfsmaður E1 Al.
Engin samtök hafa lýst sig ábyrg
á tilræðunum.
Kuzmin vann
á Indlandi
Banxalore. Indlandi. 10. áxúst. AP.
SOVESKI stórmeistarinn Gennady
Kuzmin sigraði á alþjóðlegu skák-
móti, sem lauk um helgina f Banga-
lore á Indlandi. Kuzmin hlaut 9'A
vinning i 13 umferðum. Annar varð
Eugene Torre frá Filippseyjum með
9 vinninga. Torre gerði jafntefli við
tékkneska stórmeistarann Miroslav
Filip í síðustu umferðinni. Kuzmin
náði fyrsta sætinu í næstsíðustu
umferðinni þegar hann vann Torre á
fimmtudag. Þessir tveir háðu einvígi
um sigur í mótinu.
FJÖGUR HUNDRUÐ FERÐAMÖNNUM var bjargað þegar ferjunni Prince Ivanhoc hlekktist á og henni var siglt í strand á grynningum
undan Port Eymon i Wales. Einn maður lézt af völdum hjartaáfalls eftir björgunina.
Leiðtogi Portúgala
leggur niður völd
Lissabon. 10. ágúst. AP.
Forsætisráðherra mið-vinstri-
stjórnarinnar í Portúgal, Franc-
isco Pinto Balsemao. tilkynnti i
dag að hann mundi hiðjast lausnar
þar sem hann hefði ekki fengið
einróma stuðning i flokki sinum,
Sósfaldemókrataflokknum, sem er
klofinn.
Francisco Pinto Balsemao
57 Frakk-
ar fljúga
frá Iran
Paris. 10. átcúst. AP.
FIMMTÍU og sjö franskir
ríkisborgarar. sem var mein-
uð brottför frá Teheran sl.
fimmtudag, flugu til Parisar
á mánudagsmorgun. Francois
Mitterand, Frakklandsforseti,
bað alla Frakka i íran að
yfirgefa landið á miðvikudag,
eftir að Abolhasan Bani-Sadr,
fv. forseti íran, var veitt
landvistarlcyfi i Frakklandi.
Þremur Frökkum var enn
meinuð brottför i dag.
140 Frakkar voru í íran í
síðustu viku. Örfáir þeirra
hafa ákveðið að vera þar um
kyrrt og nokkrir eru enn við
störf í sendiráði Frakklands.
Tveir þeirra, sem fengu ekki að
fara í dag, áttu í fjármálaúti-
stöðum í Teheran, en sá þriðji
er írönsk kona, gift frönskum
manni, sem ekki hafði tilskilda
vegabréfsáritun.
Forsætisráðherrann neitaði að
halda áfram í embætti þegar at-
kvæðagreiðsla í landstjórn flokksins
sýndi að ýfingar mundu halda
áfram í flokknum. Forsætisráðherr-
ann sigraði í atkvæðagreiðslunni
með 37 atkvæðum gegn 15, en hann
sagði að úrslitin gerðu það að
verkum að honum væri „ógerningur
að halda áfram í embætti".
Allir flokkarnir þrír, sem standa
að stjórninni, ítrekuðu samstöðu
sína seinna um daginn og lýstu því
yfir að stjórnin mundi sitja út
kjörtímabilið þrátt fyrir lausnar-
beiðni Balsemao forsætisráðherra.
Osló. 10. áxúst. AP.
LÍK Vestur-þýzka njósnarans,
Paul Fuchs, virðist vera fundið,
tveimur mánuðum eftir að hann
týndist í Norður-Noregi að sögn
Ódd Enevold. lögrcglustjóra I
Hammerfest.
Hann sagði að líkfundurinn virt-
ist staðfesta þá kenningu lögregl-
unnar að Fuchs hefði lent í slysi.
Fuchs var í leyfi ásamt öðrum
Vestur-Þjóðverjum í Skoganvarre
þegar hann hvarf. Orðrómur komst
á kreik um að hann hefði stungið af
til Sovétríkjanna eða að sovézkir
útsendarar hefðu rænt honum.
Enevold segir að Fuchs virðist
Tel Aviv, Beirút, 10. áicÚHt. AP.
SIMCIIA Erlich. sem gegnir for-
sætisráðherraem bætti í ísrael I
f jarveru Menachem Begins, sagði
í dag„ að friðartillögur Saudi-
Araba í Mið-Austurlöndum yllu
straumhvörfum I sambandi land-
anna, þar sem að þetta er f fyrsta
sinn sem Saudi-Arabar viður-
kenna tilverurétt ísraela. Hann
sagði hins vegar, að ekki yrði
hægt að ganga að tillögunum þar
sem að þær myndu á endanum
leiða til upplausnar ísrael.
Erlich er landbúnaðarráðherra
Leiðtogar flokkanna komu saman
til fundar þegar Balsemao hafði
tilkynnt ákvörðunina og létu í ljós
bjartsýni um að samvinna flokk-
anna gæti haldið áfram. Fundahöld
eru hafin í flokkunum til að leggja
grundvöll að nýrri stjórn.
Balsemao mun afhenda Antonio
Ramalho Eanes forseta lausnar-
beiðni sína í fyrramálið.
Diogo Freitast do Amaral úr CDS,
sem er íhaldssamur flokkur, lét í
Ijós undrun á lausnarbeiðninni.
Goncalo Ribeiro Teles, leiðtogi kon-
ungssinna (PPM), lagði áherzlu á
nauðsyn samstöðu flokkanna.
hafa verið á göngu til vatns sem
heitir Efravatn. Til þess að stytta
sér leið til Skoganvarre hljóti hann
að hafa reynt að fara yfir straum-
harða á sem rennur úr Efravatni í
Neðravatn og dottið í ána. Líkið
fannst á reki i Neðravatni, aðeins 3
km frá Skoganvarre.
Ekkert benti til þess að átök
hefðu átt sér stað.
Fuchs var yfirmaður þeirrar
deildar Bundesnachrichtendienst,
sem stjórnar aðgerðum í Austur-
Þýzkalandi. Samstarfsmenn hans
höfðu litla trú á því að hann hefði
farið alla leið til Norður-Noregs ti)
að strjúka.
ísrael. Hann er leiðtogi frjáls-
lyndaarmsins innan Likud-band-
alagsins. Yitzhak Shamir, utan-
ríkisráðherra ísrael, er öllu
íhaldssamarii og sagði á sunnu-
dag, að ekkert nýtt væri í tillögum
Saudi-Araba. Hann sagði þær
hættulegar ísrael. Yitzhak Ber-
man, orkumálaráðherra ísrael,
fagnaði tillögunum og kallaði þær
„sólargeisla".
Saudi-Arabar lögðu til á laugar-
dag, að Sameinuðu þjóðirnar sam-
þykktu friðaráætlun, þar sem að
tilveruréttur ísrael er viðurkennd-
Gripinn með
2 kg af heróíni
ChicaKo. 10. áKÚst. AP.
TOLLVERÐIR í Chicago fundu
2 kg af heróíni, sem er um 2
milljón dollara virði, í fórum
ísraela á O’Hara-flugvelli á
laugardag. Heróínið var falið í
botni skjalatösku mannsins og
í þremur innkaupapokum, sem
hann hélt á.
Sadat og frú
snæða á Britanníu
I/ondon. 10. áffúst. AP.
ANWAR Sadat, Egyptalands-
forseti, og kona hans munu
snæða kvöldverð um borð í
Britanniu í boði prinsins og
prinsessunnar af Wales á mið-
vikudag. Buckingham-höllin
greindi frá þessu á laugardag,
en annars hefur verið þagað
þunnu hljóði um ferðir kon-
unglegu hjónanna, sem eru á
brúðkaupsferð í Miðjarðarhafi.
Engar myndir
af Yaobang
Pekinx. 10. áxúst AP.
KÍNVERJAR hafa ákveðið að
hengja ekki upp myndir af Hu
Yaobang, formanni Kommún-
istaflokksins, á almannafæri.
Það er skref í átt frá persónu-
dýrkun, sem hefur tíðkast í
Kína um áraskeið.
Eyrað á sinn stað
Cheltenham. Kniclandi. 10. áicúst. AP.
TVEIR lögregluþjónar í Eng-
landi þustu 25 mílur á bílum
sínum á sunnudag til að koma
eyra af konu, sem hafði lent í
bílslysi, á sjúkrahúsið, sem
konan hafði verið flutt á.
Eyrað hafði gleymst á slysstað,
en barst í tíma til að vera
saumað aftur á konuna.
ur í skiptum fyrir sjálfstætt ríki
Palestínumanna á Vesturbakkan-
um og á Gaza-svæðinu.
Ihaldssamari arabaþjóðir og
frelsissamtök Palestínumanna,
PLO, fögnuðu tillögunum um
helgina og álitu þær vel til þess
fallnar að sameina araba-þjóðirn-
ar gegn stefnu Bandaríkjamanna í
Mið-Áusturlöndum. Diplómatar
frá Vesturlöndum telja, að tillög-
urnar geti komið í stað Camp
David-samninganna, sem araba-
þjóðirnar hafa gagnrýnt harðlega.
Lík þýzka njósn-
arans er f undið
Friðartillögum Saudi-
Araba misvel tekið