Morgunblaðið - 11.08.1981, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 1981
23
Fram —
ÍA
1:1
Áhorfendur voru farnir að
streyma af vellinum. Leiknum
var alveg að ljúka. Þrátt fyrir
mikla pressu á mark Fram, hafði
leikmönnum ÍA ekki tekist að
skora. En á lokaminútunni, barst
boltinn út i vítateÍKÍnn til Árna
Sveinssonar ÍA og hann var ekki
að tvinóna við hlutina. Tók bolt-
ann viðstöðuiaust með vinstra
fæti, ok boltinn þaut i bláhorn
marksins alveg niður við jörð.
Jafntefli, 1 — 1, varð þvi í leik
Fram og ÍA. Guðmundur Bald-
ursson sýndi stórleik i marki
Fram allan leikinn. En undir lok
hans réði hann ekki við skot
Árna. Leikur liðanna var bráð-
skemmtileKur, mikii og góð tii-
þrif og marktækifæri hjá báðum
liðum.
Fjöldi hættulegra
marktækifæra
Áhorfendur þurftu ekki að bíða
lengi eftir því að spenna skapaðist
í leik Fram og ÍA. Strax á fyrstu
mínútu leiksins átt' Pétur
Ormslev gott marktækifæri, en
það rann út í sandinn. Þetta var
forsmekkurinn af því sem koma
skildi. Hvert dauðafærið af öðru
kom í fyrri hálfleiknum. Á 8.
mínútu komst Guðbjörn Tryggva-
son einn innfyrir vörn Fram.
Brunaði í átt að markinu og náði
að skjóta en of laust. Skot hans fór
beint í fætur Guðmundar mark-
varðar. Leikmenn Fram voru öllu
sprækari í upphafi leiksins en
töluverður sóknarþungi var þó hjá
báðum liðum.
Fram skorar:
Á 17. mínútu brunaði hinn
sókndjarfi bakvörður Fram,
Trausti Haraldsson, upp kantinn.
Hann komst alveg upp að endalínu
og gaf þar vel fyrir markið.
Halldór Arason var við nærstöng-
»' V>
• Síðasta markskot leiksins. Árni Sveinsson tók boltann viðstöðulaust og fast utanfótarskot hans hafnaði i bláhorni marksins. óverjandi fyrir
Guðmund. LhWun. GuAjón B.
Það mátti ekki tæpara standa
Arni jafnaði á 90. mínútu
Knattspyrna
ina og kastaði sér fram skallaði
boltann í jörðina og í markið. Var
vel að þessu marki Fram staðið.
Bjarni markvörður kom engum
vörnum við þrátt fyrir góða til-
raun.
Fallegustu til-
þrif leiksins
Á 25. mínútu fyrri hálfleiksins
sáust falleg tilþrif hjá leik-
mönnum beggja liða. Mikil pressa
var á mark Fram. Ekki færri en
þrír leikmenn ÍA skutu á markið
en ávallt var bjargað. í síðasta
skiptið náði Marteinn að hreinsa
frá á marklínu. Boltinn barst út
að hliðarlínu, og góð fyrirgjöf kom
inn í markteig Fram. Þar kastaði
Sigurður Lárusson sér niður og
náði að skjóta mjög föstu við-
stöðulausu skoti á mark Fram.
Flestir sáu boltann í netinu. En
svo varð ekki. Eins og elding var
Guðmundur Baldursson mark-
vörður Fram búinn að kasta sér
niður og handsama boltann á
marklínu. Fengu þeir Sigurður og
Guðmundur Iangvinnt lófaklapp
frá hinum fjölmörgu áhorfendum,
sem kunnu vel að meta þessi
glæsilegu tilþrif. Guðmundur
sýndi þarna mikla snerpu, og
markvörslu eins og hún gerist
best.
Heilladísirnar
með Fram
Leikmenn ÍA áttu þrjú góð
marktækifæri það sem eftir var
hálfleiksins. Á 36. mínútu varði
Elnkunnagjöfln
• Guðmundur Baldursson markvörður Fram varði mjög
leiknum, og var besti maður vallarins.
Lið Fram:
Guðmundur Baldursson 9
Trausti Haraldsson 7
Ágúst Hauksson 6
Marteinn Geirsson 7
Sverrir Einarsson 7
Gunnar Guðmundsson 6
Viðar Þorkelsson 6
Albert Jónsson(vm) 6
Halldór Arason 6
Guðmundur Steinsson 6
Pétur Ormslev 7
Sighvatur Bjarnason(vm)5
Guðmundur Torfason 5
Lið ÍA:
Bjarni Sigurðsson 6
Björn H. Björnsson 6
Guðjón Þórðarson 6
Sigurður Halldórsson 6
Jón Áskelsson 6
Sigurður Lárusson 7
Árni Sveinsson 8
Kristján Olgeirsson 7
Guðbjörn Tryggvason 6
Gunnar Jónsson 5
Sigþór ómarsson(vm) 5
Jón Alfreðsson 7
Guðmundur vel frá Gunnari
Jónssyni sem var í afbragðs
marktækifæri. Árni Sveinsson
sýndi gott einstaklingsframtak á
41. mínútu er hann lagði boltann
vel fyrir sig en þrumuskot hans
fór nokkuð yfir þverslá. Og loks á
44. mínútu bjargaði Marteinn
Geirsson á marklínu skoti frá
Guðjóni Þórðarsyni. Það leit út
fyrir að ÍA ætti alls ekki að skora
í leiknum.
Guðmundur varði
hvað eftir annað
skot Skagamanna
Skagamenn virtust vera
ákveðnir í því að jafna metin og
ná sér í að minnsta kosti í annað
stigið í leiknum. Það var mikill
kraftur í þeim í síðari hálfleiknum
og liðið lék vel. En vörn Fram er
ávallt erfið við að eiga. Og Guð-
mundur markvörður átti öll skot
sem á markið komu.
Það var fyrst og fremst stórleik-
ur hans sem kom í veg fyrir að ÍA
skoraði. Árni Sveinsson átti
þrumuskot á 57. mínútu. Guð-
mundur var mjög vel staðsettur og
varði skotið meistaralega. Á 68.
mínútu skall hurð nærri hælum
við mark Fram. Guðbjörn
Tryggvason komst einn í gegn.
Brunaði upp og inn í vítateig
Fram. Guðmundur hljóp á móti.
Guðbjörn lyfti boltanum yfir Guð-
mund, en gott skot Guðbjörns fór
rétt framhjá stönginni.
Leikmenn Fram átti eitt og eitt
skyndiupphlaup í síðari hálfleik
en fá góð marktækifæri. Á 80.
mínútu átti Guðmundur Steinsson
þrumuskot eftir fallegt upphlaup
Fram. En skot Guðmundar fór
yfir. Skagamenn gáfust ekki upp
og börðust eins og ljón. Og undir
lok leiksins tókst þeim loksins að
jafna. Þeir áttu það fyllilega
skilið. En til þess þurfti fallegt og
hnitmiðað skot. Skot Árna var
mjög fast og óverjandi, fyrir
Guðmund.
Liðin
Lið Fram lék vel í fyrri hálfleik.
En í þeim síðari virtist nokkuð af
liðinu dregið, og um of var stílað
upp á að halda fengnum hlut og ná
skyndisóknum. Besti maður Fram
var Guðmundur Baldursson. Guð-
mundur var kosinn maður leiksins
og átti það fyllilega skilið. Þetta er
án efa einn besti leikur hans fyrr
og síðar. Rólegur og öruggur í
markinu. Og staðsetningar hans
og grip voru mjög góð. Vörnin var
nokkuð traust. Marteinn yfirveg-
aður og ávallt þess viðbúinn að
gripa inn i á réttum augnablikum.
Sverrir og Trausti voru duglegir.
Pétur var mjög hættulegur í
framlínunni og átti margar falleg-
ar sendingar.
í lið ÍA átti Árni Sveinsson
góðan leik. Þá var Kristján
Olgeirsson sívinnandi og byggði
vel upp. Jón Alfreðsson stóð vel
fyrir sínu. Lið IA barðist af
miklum dugnaði þrátt fyrir mót-
lætið í leiknum. Mikill kraftur var
í sókn liðsins en leikmenn með
eindæmum óheppnir í dauðafær-
um. Það var einna helst að hjá í A
hve miðjuleikmennirnir slitnuðu
úr tengslum við framlínuna og svo
aftur varnarleikmennina. En ljóst
var á leik beggja liðanna, að það
var mikið í húfi. Enda er hvert
stig nú dýrmætt í hinni hörðu
baráttu um toppinn.
Í stuttu máli: íslandsmótið 1.
deild. Laugardalsvöllur Fram —
ÍA 1-1 (1-0).
Mark Fram, Halldór Arason á
17. mínútu.
Mark ÍA Árni Sveinsson á 90.
mínútu.
Gult spjald enginn.
Áhorfendur 2380.
Dómari Rafn Hjaltalín og
dæmdi hann leikinn ágætlega
ásamt línuvörðum sínum þeim
Grétari Norðfjörð og Garðari
Guðmundssyni.
- ÞR.
islandsmitlö i. delld