Morgunblaðið - 11.08.1981, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 11.08.1981, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 1981 Kristinn Þórðarson vélstjóri - Fa*ddur 24. maí 1913. Dáinn 29. júlí 1981. Aðfaranótt miðvikudagsins 29. júlí sl. liggur ferðbúið glæsilegt skip í höfn, en vélstjórinn er hinn rólegasti heima í notalegri íbúð sinni og ræðir við eiginkonuna um næstu framtíð, hvað skuli gera í sumarfríinu og að því loknu var ákveðið að frúin færi með í næsta túr. Að loknum þessum hvers- dagslegum umræðum er lagst til svefns. En fyrir vélstjóranum á ekki að liggja að hvílast lengi, því nú bíður skipið ekki lengur og það er enginn tími til að kveðja eða taka með sér fatnað eða aðra nauðsynlega hluti, en andlegt veganesti er gott, eða eins og stendur í Fjallræðunni „Sælir eru hjartahreinir því þeir munu Guð sjá“. Vélstjórinn var kannski ekki í fyrstu klár á þessu skipi, eða hvert það var að fara, en tók þá brátt að gera sér grein fyrir því, er áhöfn þess var öll skipuð gömlum og gengnum skipsfélögum hans. Vél- stjórinn og sjómaðurinn er við kveðjum nú er Kristinn Þórðarson fæddur 24.5. 1913 að Hávarðarkoti í Þykkvabæ. Foreldrar hans voru hjónin Sigríður Pálsdóttir, ættuð úr Vestmannaeyjum og Þórður Kristinn Ólafsson frá Hávarðar- koti, en það var föðurleifð hans. Hann bjó í Reykjavík frá 1902— 1905 en settist síðan að í Hávarð- arkoti og bjó þar til 1934, eftir það í Reykjavík til dauðadags 5. sept- ember 1941. Hann þótti merkur og framsýnn atorkumaður. T.d. eftir heimkomuna 1905 stofnaði hann smjörsamlag sem síðan var breytt í rjómabú. Einnig var hann aðal- hvatamaður þess að kirkjan var flutt frá Háfi til þykkvabæjar og einn af forvígismönnum þess að Djúpós var stíflaður og fyrir atbeina hans var reist hið mikla skóla- og samkomuhús Þykkva- bæjar. Meðan hann bjó í Hávarð- arkoti þótti ekki ráðum ráðið nema hans álits væri leitað. Þeim hjónum varð 10 barna auðið en eitt dó i frumbernsku. Kristinn Minning eða Kiddi eins og allflestir er til hann þekktu kölluðu hann var 16 ára er hann fór fyrst til sjós. Hann byrjaði á litlum bát frá Þorlákshöfn á vertíð. Síðan lá leiðin til Vestmannaeyja, en á vertíð frá Eyjum var hann í yfir 20 ár. Einnig var hann á bátum gerðum út frá Akranesi, Hafnar- firði, Grindavík og víðar og ávallt í góðum plássum, enda var hann eftirsóttur af útgerðar- og skips- stjórnarmönnum vegna hæfni sinnar sem bátasjómaður og vél- stjóri. Sem slíkur var hann búinn að reyna margt og keyra hinar ýmsu vélar, allt frá hinum einföldustu glóðarhausvélum, þar sem reyndi mjög á hæfileika vélstjórans að halda gangandi, að hinum full- komnustu dieselvélum með hinum flóknasta útbúnaði. Við gæslu allra hinna ýmsu véla stórra og smárra sl. 40 ár reyndist Kiddi ávallt starfi sínu vaxinn. Ráðgóð- ur varðandi viðhaldi véla og vel- virkur viðgerðarmaður og farsæll í starfi. Ekki hafði hann síður hæfileika til að umgangast samstarfsmenn sína. Þeim reyndist hann alltaf hinn besti bróðir, traustur og hlýr. Það leið öllum vel í návist hans, enda maðurinn með eindæmum hógvær og lítillátur. Sem dæmi um hógværð hans má nefna að ef menn voru að ræða einhverjar bilanir og orsakir þeirra og voru ekki á eitt sáttir, að hann af lítillæti kom með sína athuga- semd og menn sögðu „nei heldurðu að það geti verið", þá hló hann góðlátlega og sagði, ,ja ég veit nú svo lítið, en það má athuga þetta". Yfirleitt var það nú svo að hann sem vissi svo lítið hafði rétt fyrir sér og menn báru virðingu fyrir honum, jafnt í starfi sem í leik. Ég sem þessar línur rita hafði því miður ekki löng kynni af Kidda, en þó við sigldum ekki saman nema tæp tvö og hálft ár á m/s Eldvík, þá höfðu þau kynni mín af honum þau áhrif á mig eins og ég hefði þekkt hann alla mína daga. Mér varð starsýnt á manninn og spyr nærstaddan hver hann sé og svarið var „þetta er nýji annar meistarinn þinn“. Ég ætlaði að fá mér kaffisopa með þeim er sátu í borðsalnum, en eitthvað lítið var á könnunni og spratt hann þá upp og bauöst til að laga kaffi. Fór ég með honum fram í eldhúsi, því mér var forvitni á að kynnast manninum og virða hann um leið fyrir mér. Hann var meðalmaður á hæð og sterklega vaxinn og samsvaraði sér vel, hafði dökkt litaraft og brún góðleg augu, hárið var mikið og orðið fallega grátt. Sagði hann mér seinna að þetta væru hin sterku einkenni Vík- ingslækjarættar, en þeir sem hafa lesið bók frænda hans Guðmundar Daníelssonar, Dómsdagur, vita að menn af þeirri ætt hafa verið myndarlegir menn og gengið í augun á kvenfólkinu. Síðan við Kiddi drukkum saman fyrsta kaffibollann, höfðum við drukkið þá marga saman í okkar föstu kaffitímum kl. 10 á morgn- ana og kl. 9 á kvöldin á siglingu og rætt hin ýmsu mál varðandi skipið og ýmis önnur mál, en hann kunni frá mörgu að segja af langri starfsævi, svo sem frá sjósókn á litlum vertíðarbátum og velbyggð- um síldarbátum á síldveiðum í Norðursjó og við austurströnd Bandaríkjanna og síðar er hann hóf sjómennsku á kaupskipum fyrir um 10 árum. Það vakti athygli okkar er með honum voru hve þroskaðan tónlistarsmekk hann hafði. Hann safnaði Óperu- tónlist bæði á hljómplötum og tók sjálfur upp á segulbönd og hlust- aði á er tími gafst til frá störfum. hann hafði og gaman af því að taka lagið í góðum hópi. Seinna þegar ég kom á heimili Guðríðar og Kidda á Neshaga 19 hér í Reykjavík, þá sá ég að þar fóru hjón sem voru samhent í að skapa fallegt og listrænt heimili, hver hlutur í góðu samræmi hver til annars, en um leið notalegt og hlýlegt, þar sem manni leið vel í návist húsráðenda. Hinn 1.9. 1958 giftust þau Kristinn og Guðríður, en hún er dóttir hjónanna Helgu Bjarnadóttur og Jóhanns Árna- sonar verkamanns í Reykjavík. Guðríður kom með í búið tvö börn af fyrra hjónabandi sem Kristinn reyndist hinn besti faðir, en þau eru, Olga f. 13.9. 1938 og á hún einn son Snorra f. 23.10. 1979, Konráð f. 4.9. 1941 en hann er kvæntur Helgu Hallgrímsdóttir og eiga þau þrjú börn, Bjarna f. 15.8. 1965, Vigdísi f. 3.7. 1968 og Hallgrím f. 12.9. 1973. Guðríður og Kristinn eignuðust saman tvö börn en þau eru: Elísabet, f. 22.1.0 1950, en hún var gift Ingvari Sveinssyni viðskipta- fræðinema, en hann lést 24.12. 1976 og áttu þau einn son Kristinn f. 8.4. 1971. Síðan giftist hún Sigmundi Stefánssyni, ættuðum frá Siglufirði og eiga þau saman eina dóttur Huldu f. 15.1. 1981, en beðið var með að skíra hana þar til Kristinn kom í sumarleyfi. Og Kristinn Ómar, f. 1.2. 1957, en hann er heitbundinn Þorbjörgu Eddu Guðgeirsdóttur og eiga þau eina dóttur Kolbrúnu f. 23.11. 1978. Okkur sem voru samskipa Kidda var það snemma ljóst að fjölskylda hans átti hug hans allan, því hann bað okkur ávallt að hafa ahgun opin er við fórum í land að verzla og finna fyrir sig eitt og annað sem einhvern í fjölskyldunni vanhagaði um og láta sig vita, eða kaupa fyrir sig, en vélstjórinn hafði oft ekki mik- inn tíma til að fara sjálfur því oftast þurfti að vinna að viðgerð- um í vél er skipið var í höfn. Enginn var því útundan heima og Föðursystir okkar og mágkona^^ MARTA INGIBJÖRT ÓLAFSDÓTTIR, Starhaga 16, andaöist á Elliheimilinu Grund mánudaginn 10. ágúst. Valgerður Stefánsdóttir, Sigríöur Stefánsdóttir, Bjarnþóra Benediktsdóttir, Guórún Tómasdóttir. t Móöir okkar, MARGRÉT ÞORLEIFSDÓTTIR, Selvogsgötu 21, Hafnarfiröi, andaöist aö morgni 9. ágúst í Borgarspítalanum. Fyrir hönd vandamanna, Haukur Helgason, Erla M. Helgadóttir. t Móöir okkar og tengdamóöir, REBEKKA ÁGÚSTSDÓTTIR, Hávallagötu 29, lést í Borgarspítalanum 7. ágúst sl. Vigdis Siguröardóttir, Ólafur Valur Sigurösson, Gylfi Már Guóbergsson, Sigurást Gísladóttír. t Móöir okkar, tengdamóöir og amma, SIGRÍÐUR JOHANNSDÓTTIR, Bárugötu 29, lést 10. ágúst. Gyöa Gísladóttir Keyser, Jóhann Gíslason, Guómundur Gíslason, Erna Adolphsdóttir, Gunnar Gíslason, Björg Hermannsdóttir, Geir Gíslason, Guðrún Þorleifsdóttir Móöir okkar og fósturmóöir, INGVELDUR BJÖRNSDÓTTIR frá Grœnumýrartungu, lést í Hátúni 10b aö morgni sunnudagsins 9. ágúst. Jaröarförin auglýst síöar. Sigríöur Gunnarsdóttir, Steínunn Gunnarsdóttír, Þóróur Guómundason. Stjúpmóöir okkar og systir, JÓHANNA BJÖRNSDÓTTIR, Bjargi, lést 7. ágúst. Björg ísaksdóttir, Arnfrióur ísaksdóttir, Helga Valgeröur ísaksdóttir, Runólfur ísaksson, Guömundur Björnsson. t Systir min, KRISTRÚN KONRADSDÓTTIR, Glerárgötu 8, Akureyri, andaöist aöfaranótt 8. ágúst í Fjóröungssjúkrahúsinu á Akureyri. Svava Hjaltalin. t Eiginmaöur minn, GUDMUNDUR Þ. SIGURDSSON, Álftamýri 36, • andaöist aöfaranótt 9. ágúst. Jaröarförin auglýst siöar. Fyrir mína hönd, barna, tengdabarna og barnabarna, Geirlaug Benediktsdóttir. öllum gert jafnhátt undir höfði, þrátt fyrir annir vélstjórans. Nú er komið að leiðarlokum, hann barðist við höfuðskepnurnar í meira en 50 ár til sjós og lifði þá baráttu af. Einnig bar honum gæfa til að sleppa við að horfast í augu við dauðann í baráttu við erfiða sjúkdóma, fyrir þetta get- um við er hann þekktum, verið herra lífsins þakklát. Ég og fjöl- skylda mín þökkum honum góðar stundir er við áttum öll saman í síðustu ferð hans í maí og júní nú í sumar, þá var á heimleið haldið upp á afmælið þeirra fjögurra sem átt höfðu afmæli í ferðinni og var mikið um dýrðir. Við biðjum góðan Guð að styrkja fjölskyldu hans og vini alla í mikilli sorg þeirra. Við skipsfélagar hans á m/s Eldvík þökkum Kristni fyrir samfylgdina sem var allt of stutt, en um leið og við horfum á eftir skipi hans til æðri hafnar segjum við með Valdemar Briem: Stýr minu fari heilu heim í hófn á fridarlandi. þar mÍK í þinni gæslu Keym Ó GuA minn allsvaldandi. Ásgeir Pétursson Sjaldan verður dauðinn velkom- inn gestur. Kemur óboðinn, jafn- vel óvænt og aldrei virðast menn viðbúnir því að siíkt geti gerst. Þannig vitjaði hann Kristins Þórðarsonar. Sumir ganga heilir til hvílu að kveldi, en eru örendir að morgni. Spurning er, hvort nokkur getur óskað sér hægara andláts en að deyja í svefni, þótt ástvinum verði slík raun full hastarleg. — Aðrir glíma svo við langa sjúkdómsþraut uns yfir lýk- ur. Þrautina lifa ástvinirnir með, þjást og líða, hafa ef til vill þegar borið mestallan þunga missis og sorgar þá þegar, svo að viðskilnað- urinn sjálfur verður sem léttir að vissu leyti. I raun og veru er þó aðeins stigsmunur þarna á, eða önnur niðurröðun. Reynslan lík, þegar horft er um öxl, hvort sem við höfum borið eitthvað af henni fyrirfram eða aðlögun hugans og tilfinninganna kemur eftir á. En þegar óboðni gesturinn birtist jafn snögglega og hér, virðist höggið þungt og lamandi og við sífellt varbúin, af því að við reiknumjekki með því, sem gerist. Niðurstaðan kemur út á eitt, þá upp er staðið. Eilíf huggun og lifandi von er hjá Jesú Kristi og hvergi nema þar. Okkur kom lát Kristins á óvart. Við hittum hann að vísu ekki oft. Leiðirnar lágu fremur sjaldan saman, helst þegar afmæli voru eða aðrir stórviðburðir hjá frændfólkinu. Kristinn var alúð- legur maður að kynnast, vingjarn- legur, rósamur og jafnlyndur. Hafði yndi af söng. Lifði fyrir fjölskyldu sína og starf. Hann fæddist 24. mai 1913, sjöundi í röð níu systkina, sem náðu aldri fullorðinsáranna. Foreldrar hans voru hjónin Þórður K. Ólafsson í Hávarðarkoti í Djúpárhreppi og Birting afmœlis- og minningar- greina ATIIYGLI skal vakin á þvi, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem hirtast á í miðvikudagsblaöi, að berast i siðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera i sendibréfs- formi. Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frum- ort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasiö- um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.