Morgunblaðið - 11.08.1981, Page 45

Morgunblaðið - 11.08.1981, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 1981 45 Renesans og barokk-tónleikar menningarfélagsins". Hann hefur orðið: „Það var ekki ónýtt fyrir Hitler sáluga að eignast ötulan hand- langara í útrýmingarstríði á hend- ur Pólverjum, þar sem var Jósef Stalín." Og: „Pólskuum hermönn- um, sem hörfað höfðu undan innrásarliði nazista, buðu Rússar gistingu í eyjaklasanum Gúlag." Og og: „Meðan Þýzki herinn streittist við að breyta gamalli höfuðborg í malarhrúgu og val- köst, naut hann þegjandi sam- þykkis óvinahersins. Hersveitir rússneskra kommúnista biðu ró- legar á hinum bakka Vislu og létu nazistaherinn murka lífið úr pólskum andspyrnumönnum, sem þorað höfðu að rísa gegn ofurefl- inu.“ Og og og: „Enginn ber í bætifláka fyrir skepnuskap naz- ista. Þeir eru týndir og tröllum gefnir, og er það vel. Megurinn málsins er sá, að hinar Pólverja- æturnar eru enn við góða heilsu og ógna hverjum þeim, sem ekki fær rönd við reist." Og vitnað lítið eitt til baka: „Þessir tveir heiðurs- menn (Hitler og Stalín) gerðu friðarsamning sín á milli og skiptu Póllandi með sér bróður- lega.“ (framhald á morgun) Anægður farþegi Pálína Þorleifsdóttir skrifar: Mikið er búið að skrifa um ferðir Samvinnuferða— Landsýnar á Rimini, þá yndis- legu sólarströnd, sem hún er. Oftast skrifa þeir, sem finnst nauðsynlegt að kvarta yfir einhverju. En hinir ánægðu sem eru allur fjöldinn, lætur ekki í sér heyra. Nú skrifa ég, sem er mjög ánægður farþegi, sem fór í ferð með Samvinnuferðum í júnímánuði, til Rimini. íbúðin var með ágætum og öll fyrir- greiðsla. Og ferðir, sem þeir buðu okkur upp á, Rómarferð og til Feneyja svo eitthvað sé nefnt, voru með afbrigðum skemmtilegar. Var það ekki síst að þakka okkar ágæta fararstjóra Ólafi Gíslasyni, sem fræddi okkur mikið vel um þetta fagra land, Ítalíu. Eins voru allir hinir farar- stjórarnir, Óli Tynes, Otto Jónsson og frú, öll mjög elsku- leg, vildu og gerðu allt fyrir okkur. Hafi þau mínar bestu þakkir. því um leið og gróður tekur við sér þyrpast rollurnar að og leggja allt í auðn. — Mér finnst að bnændur ættu að vera bótaskyldir fyrir spjöll sem sauðir þeirra valda á annarra manna löndum, en það á sjálfsagt langt í lapd að slík lög nái fram að ganga hér á landi. Að gera sitt besta „Kona“ hringdi og sagði: Það er bæði uppörvandi og gleðilegt að heyra í ungmenni, sem ekki gerir mestar kröfur tií annarra, heldur fyrst til sjálfs sín. Þá á ég við Einar Vilhjálmsson, sem var að setja íslandsmet í spjótkasti og viðtal var við í útvarpinu. Spyrjandinn var að reyna að fá hann til að kvarta, einsog venjan er, en þessi piltur hefur önnur viðhorf og nýgtárleg, þau að hann vilji gera sitt besta við þær aðstæður sem fyrir hendi eru. Sumarstjörnur Ingvar Agnarsson skrif- ar: I. Hinn fyrsti ágúst sl. var mikill dýrðardagur hér á suðvesturhorni landsins: Ekki blakti hár á höfði og sólin sendi heita geisla sína frá alheiðum himni. Þeir mörgu, sem voru á ferða- lögum og í útilegu, gátu því notið lífsins í ríkum mæli, sem og þeir er heima sátu. Og fegurð kvöldsins var ekki síðri, þegar sólin seig til viðar, rauð og fagurskín- andi, nokkru fyrir kl. ell- efu. Á slíku kvöldi er erfitt að slíta sig frá dýrð sólar- lagsins og ganga til náða. Það getur meira að segja verið ómaksins vert, að vaka fram yfir miðnætti og fylgjast með þeim breyt- ingum sem himininn tekur, þegar hann er eins heiður og nú átti sér stað. Undanfarið hafa allar Hjarðmanninum og nokkr- ar fleiri. II. Mikil ástæða er til að fagna komu stjarnanna þegar skyggja tekur eftir bjartar sumarnætur. Fátt lyftir sálinni hærra eða heillar hugann meira, en að horfa á þessa blikandi, björtu depla í ríki himn- anna og gera sér grein fyrir hvað glóir þar svo undar- lega. Njótum fegurðar stjarn- anna þegar tækifæri gef- ast. Vitum, að allar eru þær systur sólar í óendanlegum geimi. Vitum einnig að ótal jarðstjörnur njóta birtu þeirra og yls. Gerum einnig ráð fyrir að þær fóstri milljónir mannkynja og að sumar þeirra séu okkur mönnum óumræðilega miklu fremri á allan hátt. I .i ' v .11 m II Sólstjarnan Vega i Hörpumerki er ein af þeim björtu stjörnum sem fyrst koma i ljós á himni þegar skyggja tekur. Hún er 50 sinnum bjartari en ukkar sól og er i 27 ljósára fjarlægð. Meðal Islendinga KenKur hún einnig undir þvi sérislenska nafni Blástjarnan. stjörnur verið okkur huld- ar, vegna bjartra nátta. En nú er næturhiminn orðinn skuggsýnn nokkuð um lág- nættið, einkum að sunnan- verðu, en að norðan leggur enn geisla sólar hátt til lofts í efri lögum gufu- hvolfsins, þótt gengin sé hún alldjúpt undir sjón- deildarhringinn. Ég gekk út um lágnættið. Öll náttúran hafði sofnað um stund eftir dýrðlegan dag. Mér varð litið til himins og þar gaf á að líta, því fyrstu stjörnur síðsum- arsins voru komnar í ljós. Aðeins þær allra björtustu voru sýnilegar: Debeb í stjörnumerkinu Svaninum, Vega í Hörpunni, Altair í Erninum, Arktúrus í Lífgeislan mun streyma frá öllu lífi og því áhrifa- meiri, sem fullkomnun er meiri. Fjarlægðir munu þar engin hindrun vera í vegi. Við jarðarbúar þurfum að komast í nánari lífsam- bönd við lengra komna íbúa stjarnanna og njóta þaðan þeirrar mögnunar og hjálp- ar, sem svo mikil er þörfin á. Og vitandi vits mætti efla þessi sambönd ef sam- tök og vilji væru fyrir hendi. Þar gætu íslendingar verið fremstir í flokki, en þyrftu ekki að vera ann- arra þjóða eftirbátar. Ingvar Agnarsson, 2. ágúst 1981. Skilin á milli endurreisnar og barokksins, um og eftir 1600, eru eitthvert stormasamasta um- brotaskeið mannkynssögunnar. Það hriktir í undirstöðum sam- félagsins og nýjar stéttir taka til við að móta það eftir þörfum sínum og smekk. Kirkjan snýst gegn þessum umbrotum af hörku. Brúnó er brenndur á báli og Rannsóknarrétturinn heldur öllu í kyrrstöðu á Spáni. í þessum suðupotti er tónlistin milli tveggja elda, þar sem togast á ríkjandi stéttir, sem enn hafa bolmagn til að einoka meginhluta hennar og ört stækkandi borgarastétt, sem í óþökk kirkjunnar tekst að leysa félagsleg vandamál sín með opnun almenningsóperu 1637 í Feneyjum og rjúfa þar með einokun hástéttanna á öllu skemmtanahaldi. Þó skilin séu nokkuð glögg sögulega séð taka breytingarnar langan tíma og fram á 18. eru starfandi tón- skáld, sem í stíl og tækni eru samstæðir við tónskáld 17. ald- arinnar. Því hefur verið haldið fram að þessir gleymdu tónhöf- undar hafi einfaldlega verið lé- leg tónskáld, háft lítið að segja og því hafi verk þeirra fallið í gleymsku og skugga þeirra, er meira höfðu til brunns að bera. Það verður að segjast eins og er, að sú tónlist sem Camilla Söder- berg, Snorri Ö. Snorrason og Ólöf Sesselja Óskarsdóttir fluttu á tónleikunum í Skálholti að þessu sinni, bar ekki merki þeirra átaka í túlkun tilfinninga, sem einkenndi tónlist 17. aldar- innar. Eina verkið sem eitthvað stóð nálægt góðri tónlist var Essex galliardinn eftir Renes- ans-tónskáldið Dowland. Svip- leysi annarra verka verður tæp- lega yfirunnið með góðum leik. Það einfaldlega vantar alla skerpu og tök í tónmálDtón- skálds eins og Visés, Ravet, Ballard og Herwich, svo nokkur nöfn séu nefnd. Ágætur leikur, einkum Camillu Söderberg, megnaði ekki að draga þessi verk Tónllst ^ftir JÓN ÁSGEIRSSON ^ Agætur leikur, einkum Camillu Söder- berg megnaði ekki að draga þessi verk upp úr grásmósku hlutleysis og þægilegra sam- hljóma.mm upp úr grámósku hlutleysis og þægilegra samhljóma. Það besta, sem hægt er að segja um þessa tónlist er, að hún er fallega litlaus og þægilega hljóðlát og hefur það aflað henni vinsælda nú á tímum hávaða og lífsgrimmdar. Jón Ásgeirsson Brlúge Umsjón: ARNÓR RAGNARSSON Sumarbridge Hótel Heklu 44 pör komust að á 10. sumar- spilakvöldi B.D.R. Spilað var í 3 riðlum, 2x14 og einum 16 para. Eftirtalin pör nældu sér í stig: A-riðill: Ólafía Jónsdóttir — Ingunn Hoffmann Magnús Oddsson 195 — Jón Oddsson Þórarinn Árnason 194 — Ragnar Björnsson B-riðiIl: 191 Friðrik Brynleifsson — Atli Konráðsson 202 Ármann J. Lárusson — Ragnar Björnsson 180 Vigdís Jónsdóttir — Steinunn Snorrad. 178 C-riðill: Hrólfur Hjaltason — Jakob R. Möller 278 Þórir Sigursteinsson — Sigurður Sverriss. 261 Sigríður S. Kristjánsd. — Bragi Hauksson 242 Meðalskor í A- og B-riðli 156. 210 í C. Keppnisstjóri var Her- mann Lárusson. Staðan i stigasmöluninni: Þórir Sigursteinsson 14,5 Jónas P. Erlingsson 13 Sigríður S. Kristjánsd. 11 Bragi Hauksson 11 Að venju er spilað n.k. fimmtudag, í kjallara Hótel Heklu, og verður riðlum startað kl. 19-19.30. Lýkur þá skráningu. EFÞAÐERFRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.