Morgunblaðið - 08.09.1981, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 08.09.1981, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1981 Sovézkur búnaður í Angóla — A myndinni eru hermenn frá Suður-Afríku með vopn af sovézkum uppruna, sem þeir handsomuðu í Aniíóla. Á palli voruhílsins er eldflauKabúnaður, en fremst til vinstri á myndinni er loftvarnabyssa. Rússneski hermaðurinn scm suður-afriskir her- menn náðu í Anuóla í síðustu viku. Ilcrmaðurinn náðist þar sem hann neitaði að yfirKefa lík eÍKÍnkonu sinnar, scm féll í barddKunum. Atlantshafsflugið: Fargjöld hækka um 5% til 20% BREZK fluKmálayfirvold hafa fyrir sitt lcyti samþykkt 5 — 20% farj;jaldaha“kkanir á Atlants- hafsflugleiðinni, ok er búist við þvi að hin ýmsu fluKféldK til- kynni hækkanir næstu daKa. Flest fluKfélaKanna munu hækka farKjold sin á milli 5% ok 14%, cn Air Florida hefur i hyKKju að hækka farKjdld á þessari fluKleið um 20%. í lok síðustu viku hækkuðu Pan America, Laker og Trans World fargjöld sín.á Atlantshafsflugleið- inni, British Airways og British Caledonian hækka í þessari viku og Air Florida um miðjan mánuð. Flugfélögin grípa til þessara hækkana vegna aukins rekstrar- kostnaðar, vegna verðhækkana á eldsneyti og öðrum vörum. Einnig hafa þau mörg lent í rekstrarfjár- örðugleikum vegna minnkandi ferðamannastraums. Fargjöld á Atlantshafsflugleiðinni hækkuðu að meðaltali um sjö af hundraði í vor. Gífurlegur hallarekstur hefur verið í Atlantshafsfluginu síðustu ár, en um 30 flugfélög keppa á þessari flugleið. Gert er ráð fyrir að heildartapið nemi 500 milljón- um dollara á ári. Örfá flugfélög græða á Atlantshafsfluginu, sem var mjög ábatasamt fyrir nokkr- um árum. Efnahagsástæður hafa leitt til farþegafækkunar á Atlantshafs- flugleiðinni. Einkum hefur brezk- um túristum til Bandaríkjanna fækkað vegna veikrar stöðu pundsins gagnvart dollar. Hinar nýju hækkanir ná ein- vörðungu til flugfélaga sem fljúga milli Bretlandseyja og Bandaríkj- anna, en fastlega er gert ráð fyrir, að flugfélög ann'ars staðar í Evr- ópu tilkynni a.m.k. samsvarandi hækkanir von bráðar. Þá er því einnig spáð, að á fundi IATA í Cannes í október komi fram mikill þrýstingur á að far- gjöld verði almennt hækkuð um heim allan næsta vor, ef ekki jafnvel fyrr. Sadat bannfærir kristinn patríarka hairo. 7, spptombor AI*. ANWAIl Sadat. Egyptalandsfor- scti, bannfærði Shenouda III, patríarka koptísku kirkjunnar í Egyptalandi á sunnudag og hon- um var ráðlagt að halda sig innan vegKja St. Bishouy klaust- ursins. FylKjendur kirkjunnar tóku fréttunum illa. en aðrir leiðtogar hcnnar reyndu að róa þá. Mayo, málgagn þjóðarflokks Sadats, sagði að Sadat hefði haft sönnunargögn sem sýndu að kopt- íska kirkjan hefði birt greinar í tímaritum þar sem Sadat var gagnrýndur persónulega og ráðist á islömsku kirkjuna í Egypta- landi. Sadat skýrði frá bannfæringu Shenouda í þriggja tíma ræðu sem hann hélt á laugardag. Hann greindi einnig frá handtökum 1536 manna sem hann sagði að hefðu stofnað til spennu milli kristinna manna og múhameðstrúarmanna í landinu undanfarið. Hann lagði fram tillögur í 12 liðum til að leysa þann vanda þjóðarinnar og mun egypska þingið greiða at- kvæði um þær á fimmtudag. Dagblaðið Al-Akhbar spurði vegfarendur í Kairó álits á tillög- um og aðgerðum Sadats um helg- ina og voru allir hlynntir ákvörð- unum forsetans. \T/ ERLENT, Bani Sadr fyrrum íransforseti tekur sér hvíld frá störfum og lcikur borðtennis að heimili sínu skammt fyrir utan Paris. Mitterrand vill að Concorde verði lagt Mitterrand Frakklands- íorseti hefur óskað eftir því að framtíð Concorde-þot- unnar verði rædd á fundi hans ok Thatcher forsætis- ráóherra Breta í Lundúnum síðar í mánuóinum. en talið er að nái hann fram vilja sínum í málefnum Con- corde. séu endalok hennar á næstu grósum. Mitterrand vill að öllu starfi er lýtur að Concorde-áætluninni, bæði í Frakklandi og Englandi, verði hætt nú þegar. Framleiðslu þotunnar sjálfrar var hætt fyrir nokkrum misserum, en nauðsyn- legt reyndist að halda áfram ýmiss konar starfsemi tengdri henni, svo að rekstur flugvél- anna væri mögulegur. Concorde-áætluninni var þannig hagað, að leggi annar aðili niður allt starf, er ekki lengur grundvöllur fyrir rekstri þotunnar. Hvorki Englendingar né Frakkar munu í stakk búnir til að halda þotunni út einir sér. Mitterrand sagði í viðtali við Le Figaro fyrir skömmu, að ekki væri lengur hægt að réttlæta útgjöld hins opinbera vegna Concorde, og samgöngumálaráð- herra Frakka kallaði þotuna „flugvél millanna". Það hefur gert Mitterrand harðari í afstöðu sinni til Con- corde, að flugfélagið Air France hefur hótað því að hætta rekstri Concorde ef ríkissjóður taki ekki á sig 90% af árlegum rekstrar- halla þotunnar, sem eru 38 milljónir dollara, í stað 70%. Air France rekur sjö Concorde-þotur og British Airways sjö. Brezka ríkisstjórnin ákvað í apríl sl. að halda áfram að veita fé til Concorde-starfsins, þrátt fyrir að þingnefnd legði til að því yrði hætt þegar í stað. Sam- kvæmt niðurstöðum nefndarinn- ar kostaði Concorde-áætlunin brezka skattborgara jafnvirði 1,6 milljarða dollara frá 1962 þar til framleiðslu hennar var hætt 1979. Rekstur þotunnar hefur auk þess verið óhagstæður. Stjórn Thatcher sagði, að það yrði kostnaðarsamara að leggja þotunni og hætta öllu starfi á sviði Co#corde-áætlunarinnar yrði enn meiri en að niðurgreiða rekstur hennar. British Airways hefur orðið fyrir 18 milljón dollara rekstrartapi vegna Con- corde frá því í janúar 1976, og er búist við að rekstur þotunnar á þessu ári verði jákvæður, miðað við þriggja milljón dollara tap í fyrra. British Airways hætti í fyrra að nota Concorde á flugleiðunum til Bahrain og Singapore. Er þotan eingöngu notuð til flugs til Bandaríkjanna, fer þrjár ferðir í viku til Washington og tvær ferðir daglega til New York. Að sögn British Airways hækkar stöðugt hlutfall túrista sem ferð- ast með Concorde til og frá Bandaríkjunum, en hingað tii hafa kaupsýslumenn og efnafólk verið yfirgnæfandi. Voru fjórð- ungur allra farþega á flugleið- inni London-Washington í sumar túristar. Atvinnuleysi í Noregi eykst Osló. 7. septrmber. AP. Vinnumálaskrifstofa stjórnar- innar tilkynnti í dag, að atvinnu- lausum hefði fjdlgað i ágústmán- uði og væru 1,8 af hundraði atvinnufærra manna án atvinnu. I júlí voru 1,4 af hundraði atvinnufærra manna atvinnulaus- ir í Noregi. Alls voru 30.806 Norðmenn atvinnulausir í lok ág- ústmánaðar. Hafði þeim fjölgað um 5.868 frá því í júlílok og um 7.093 miðað við ágúst 1980. Sameiningu Senegal og Gambíu spáð Dakar. 7. soptombrr. AP. ABDOU DIOUF forseti SencKal hélt upp á afmæli sitt í dag, en hann cr 46 ára, ok lýsti þá yfir, að Senegal yrði samcinað Gamhíu fyrir 1. janúar næstkomandi. Forsetinn sagði að sameiningin væri hagkvæm báðum ríkjum efna- hagslega séð. Nefndi forsetinn hitt nýja land „Senegambia". Lengi hafa átt sér stað viðræður um sameiningu milli Senegal og Gambiu, en það var ekki fyrr en eftir að Senegal sendi 1500 hermenn til að kæfa uppreisn og byltingartilraun í Gambíu, að Sir Dawda Jawara Gambíuforseti lýsti sig fylgjandi sameiningunni. Diouf sagði i dag, að viðræður um sameiningu hefðu gengið framar vonum að undanförnu. Diouf hefur verið við völd í Senegal í átta mánuði. Manntjón í hvirfilbyl SpouI. Miami. 7. soptombor. AP. HVIRFILBYLURINN AKncs hcíur reynst mannskæður á fdr sinni um Suður-Kóreu, en þegar síðast frétt- ist var vitað um að 93 höfðu farist og 33 var enn saknað. Gifurlegt cignatjón hefur orðið, cn það cr áætlað að upphað 109 milljónir Bandarikjadala. Um 25.000 hús eru umflotin eða ónýt, 439 skip af ýmsum tegundum er saknað, rúmlega 96 þúsund hekt- arar ræktarlands eru undir vatni og 140 kílómetrar þjóðvega stór- skemmdir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.