Morgunblaðið - 08.09.1981, Síða 41

Morgunblaðið - 08.09.1981, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1981 21 • Hinn snjalli og marksækni framherji Lárus Guðmundsson Víkingi, tryggði liði sínu sigur, 2—1, í hinum mikilvæga leik gegn lBV um helgina. Með sigri sínum í leiknum eru Víkingar komnir með aðra hendina á íslandsmeistaratitilinn. Sjá bls. 24—25. Ná Framarar Víking að stigum og vinna mótið á betra markahlutfalli? NÚ er aðeins einni umferð í íslandsmótinu í knattspyrnu ólokið. Staðan er nú þannig að aðeins tvö lið >?eta hreppt ís- landsmeistaratitilinn. lið VíkinKs og Fram. þessi: Staöan í 1. deild er Víkingur 17 10 3 1 28:23 23 Fram 17 fi 9 2 2fi:22 21 Akranes 17 7 6 4 2fi:lfi 20 Breiðablik 17 fi 8 3 2fi:20 20 IBV 17 8 3 fi 29:20 19 KA 17 7 4 fi 22:16 18 Valur 17 7 \ fi 28:23 18 KR 17 3 fi 8 13:23 12 Þór 17 3 fi 8 17:33 12 FII 17 2 3 12 19:39,. 7 Næsti leikur í deildinni er á föstudaKskvöldið á Akureyri. Þá leika Þór og Valur. Þór verður að sigra í leiknum ætli þeir sér ekki að falla niður í 2. deild. Lið Vals hefur að engu að keppa nema ef vera skyldi fleiri stigum og metn- aði að tapa ekki. Víst er að lið Vals er sigurstranglegra í leiknum en sýni leikmenn Þórs af sér baráttu getur allt gerst. Á laugardag verða þrír leikir. ÍA mætir FH, sá leikur gæti skipt máli fyrir ÍA, þar sem þeir hafa kært leikinn gegn KR. Sú kæra verður tekin íyrir í kvöld. Breiðablik og ÍBV leika í Kópavogi og Fram og KA á Laugardalsvelli. Fram verður að sigra í leiknum ætli þeir sér að eiga möguleika á titli. • Lið KA verður án fjögurra fastra leik- manna á laugardag. Þeirra Ás- björns Björnssönar, Eyjólfs Ág- ústssonar, Ormars Örlygssonar og Erlings Kristjánssonar. Fram ætti því að sigra í leiknum þegar á það er litið hversu mikið er í húfi fyrir liðið. Sigri Fram KA eru þeir jafnir Víkingi að stigum en með betra markahlutfall og það ræður úr- slitum séu stigin jöfn. Víkingar eiga að leika gegn KR á sunnudag kl. 14.00 í Laugardalnum. Sigri Víkingar eða nái jafntefli er íslandsmeistaratitillinn þeirra. Tapi þeir hinsvegar leiknum og Fram sigri KA verða Framarar meistarar. Lið KR er í fallhættu sigri Þór lið Vals. En hvort sem KR-ingar eru í fallhættu eða ekki má húast við því að þeir berjist vel fyrir sigri í leiknum. Það væri jú mikill sigur að vinna efsta liðið. Víkingar eru með pálmann í höndunum og ólíklegt að þeir vinni ekki titilinn. En eins og allir vita er knattspyrnan óútreiknan- leg og allt getur gerst. - I»R. isiandsmötlð t. delld „Vid sýndum hvers við erum megnugir“ - sagöi Diörik Ólafsson, fyrirliði Víkings eftir sigurinn í Eyjum „ÉG LOFA engu fyrr en dómarinn flautar til leiksloka og íslands- mótinu er lokið. En við erum nú komnir með aðra hönd á bikarinn og vissulega eru möguleikar okkar á að sigra í íslandsmótinu miklir,“ sagði Diðrik Ólafsson, fyrirliði Víkings eftir sigurinn í Eyjum. „Við sýndum hvers við erum megnugir. Allir lögðu sig fram. Mér fannst Ómar Torfason sýna stórleik, Gunnar Gunnarsson barðist eins og ljón á miðjunni, og Lárus var hættulegur frammi, en fyrst og fremst var þetta sigur liðsheildar.“ Ertu ánægður með þína frammistöðu? „Ég er ánægður að hafa verið með en ég var ekki ánægður með frammistöðu mína í leiknum. Ég hef misst mikið úr síðustu vikurn- ar, verið frá æfingum og það tekur tíma að komast í æfingu á nýjan leik.“ „Héldum að sigurinn væri í höfn“ - sagði Sigurlás Þorleifsson, fyrirliði ÍBV, eftir ósigurinn í Eyjum „VIÐ héldum að sigurinn væri í höfn þegar Heimir Karlsson var rekinn útaf og við vorum yfir í leiknum; menn héldu að þeir þyrftu ekkert að hafa fyrir sigrin- um,“ sagði Sigurlás Þorleifsson, fyrirliði ÍBV, eftir ósigur Eyja- manna gegn Víkingum. „Víkingar verðskulduðu sigur- inn, þeir börðúst af krafti allan leikinn og voru einfaldlega betri en við, við hins vegar sýndum aldrei okkar réttu hliðar, náðum ekki upp baráttu fyrri leikja. Það má segja að við höfum tapað þessu Islandsmóti hér í Eyjum, árangur- inn hreint hroðalegur, tap nú gegn Víkingi en áður höfðum við tapað gegn Breiðabliki, Akranesi og gert jafntefli við Fram og KR.“ Sat ekki þreyta í ykkur eftir leikina við Fram og Val? „Það kann að vera að svo hafi verið en fyrst og fremst vorum við ekki með rétt hugarfar. Við héld- um að sigurinn væri í höfn, það fyrst og fremst varð okkur að fallí. Én úr því að við höfum misst af titlinum, þá vona ég að Víkingar verði Islandsmeistarar; þeir eiga það skilið," sagði Sigurlás Þor- leifsson. Landsliðið gegn Tyrkjum valið Á MORGUN. miövikudag. leikur íslenska landsliðið í knattspyrnu síðari leik sinn í undankeppni lIM-keppn- innar í knattspyrnu gegn Tyrkjum. I.eikur liðanna hefst kl. 18.15 á Laugardals- vellinum. íslenska landsliðið var tilkynnt í ga rdag og er skipað eftirtoldum leik- morinum: t. Bjarni Sigurósson. ÍA 2. Ltiömundiir Baldurss.. Fram 3. Úlafur Bjurnsson. IIBK I. Marteinn (ieirssun. Fram 5. Viðar llalldórsson. Fll fi. Sigurður I.árusson. ÍA 7. Sigurður llalldórsson. |Á 8. Árni Svcinsson. ÍA 9. Atli Eðvaldss.. B. Dortmund 10. Magnús Bergs. B. Dortmund 11. Ómar Torfason. Víking 12. Lárus (iuðmundsson. Viking 13. Pétur Pétursson. Anderleeht 11. Pétur Ormslev. Fram 15. Örn Óskarsson. ( jrgryte lfi. Stt'var Jónsson. Val. Nokkuð er um meiðsli hjá leikmönnum og því geta þeir Janus Guðlaugsson, Trausti Haraldsson og Þorsteinn Bjarnason ekki leikið með liðinu. Þá er Arnór meiddur og treystir sér ekki að mæta til leiks. Sigurlás Þorleifsson ÍRV er á förum í leyfi til Bandaríkjanna og gaf ekki kost á sér í leikinn. Teitur Þóröarson og Hörður Hilm- arsson voru ekki valdir í 22 manna hópinn. Ásgeir Sigur- vinsson gaf ekki kost á sér í þennan leik þar sem hann er aö keppa með liði sínu í kvöld. Að sögn Guðna Kjartans- sonar mun hann stilla þrem- ur leikmönnum upp í frant- línuna og verður reynt aö leika til sigurs. Lið Tyrkja kom til landsins í fyrrakvöld og æfði á Laugardalsvellin- um í gærdag. Liðið er skipað ungum leikmönnum og að- eins þrír leikmenn eru úr liðinu sem ísland sigraði 3—1 í Tvrklandi. - ÞR.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.