Morgunblaðið - 08.09.1981, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1981
35
„Hef viljað sýna þess
ar myndir saman“
- segir Ilallsteinn Sigurðsson í tilefni af opnun
höggmyndasýningar hans að Kjarvalsstöðum
„EG IIEF ulltaf haft áhuua á
því að sýna allar þessar myndir
saman." saKði Iiallsteinn Sík-
urðsson myndh«KKvari. um sýn-
in^u sína að Kjarvalsstdðum.
„Þessar högffmyndir eru unn-
ar á árunum 1968—1981 og segja
má að þær sýni ákveðna þróun,
því elstu myndirnar eru „fíguru-
tívar“ en þær yngri eru algjör-
lega „abstract".
Þær myndir, sem ég sýni hér
eru unnar í steinsteypu, plötu-
járn og epoxy-kvarz og er hér í
ýmsum tilfellum um myndaseríu
að ræða.
„Ég hef lagt hreyfi- og vegg-
myndirnar mínar á hilluna und-
anfarið eitt og hálft ár og hef
unnið með þessi efni nær ein-
göngu.
A sýningunni eru bæði stórar
og litlar myndir. Þær stærri eru
sýndar hér á stéttinni fyrir utan
Kjarvalsstaði en þær minni eru
innan dyra. Tel ég að þær stærri
fari ákaflega vel við hús, sjó og
himin,“ sagði Hallsteinn.
„Ég hef haft aðsetur að Kjar-
Bandamanna
saga
í skóla-
útgáfu
IÐUNN hefur gefið út Banda-
manna sögu í útgáfu sem sérstak-
lega er ætluð til lestrar í skólum.
Óskar Halldórsson hefur séð um
þessa útgáfu og samið ítarlegan
formála. Gerir hann þar grein
fyrir gerð sögunnar, listrænni
byggingu hennar og stíl. Ennfrem-
ur fjallar hann um handrit sög-
unnar, en hún er varðveitt í
tveimur aðalhandritum, Möðru-
vallabók og Konungsbók sem
geyma hvor sína gerð sem nokkuð
eru frábrugðnar sín í milli. Hér er
birtur texti Möðruvallabókar, en
síðari tíma textarannsóknir hafa
leitt í ljós að þar muni frumtext-
inn betur varðveittur. I þessari
útgáfu hefur útgefandi sýnt nokk-
ur valin lesbrigði úr Konungsbók
þar sem þau virðast helst skipta
máli.
Aftast í bókinni er skrá um
nokkur rit og ritgerðir um Banda-
mannasögu. Eins og í öðrum
skólaútgáfum eru hér allmörg
verkefni og athugunarefni handa
nemendum að glíma við, og orð-
skýringar og vísnaskýringar neð-
anmáls. — Bandamanna saga er
sautjánda bókin í flokknum Is-
lensk úrvalsrit í skólaútgáfum.
Hún er 64 blaðsíður, Oddi prent-
aði.
valsstöðum undanfarin ár án
þess að þurfa að borga leigu og
tel ég þá aðstöðu hafa verið betri
en nokkur listamannalaun. Ég
hef þó flutt vinnustofuna mína í
eigið húsnæði upp í Breiðholt.
Jafnframt því að vinna að
höggmyndalistinni hef ég starf-
að sem kennari eða steypt ann-
arra manna myndir.
Hér á Islandi eru tiltölulega
fáir sem vinna eingöngu að
höggmyndalistinni," sagði Hall-
steinn. „Tel ég það vera vegna
þess að hér hefur engin högg-
myndadeild verið við Myndlista-
og handíðaskóla íslands fyrr en
síðastliðið ár auk þess sem það
er sennilega erfiðara að lifa af
höggmyndalistinni en annar:
list.“
Það er óþarfi að kynna Hall
stein Sigurðsson frekar fyrii
lesendum Morgunblaðsins, þv
hann hefur haldið nokkrai
einkasýningar auk þess sen
hann hefur tekið þátt í mörgum
samsýningum bæði innanlands
og utan.
Hallsteinn Sigurðsson myndhöggvari íyrir framan eitt verka
sinna að Kjarvalsstöðum.
Leiðrétting
í frétt Mbl. á laugardag af
viðurkenningum fyrir fagra garða
í Garðabæ, misritaðist nafn ann-
ars eiganda garðsins við Breiðás 1.
Rétt á það að vera Ásrún Auð-
bergsdóttir.
Þá misritaðist nafn forstöðu-
manns dvalarheimilis aldraðra á
Eskifirði í frétt, en rétt nafn
forstöðumannsins er Friðgerður
Maríasdóttir.
Viðkomandi eru beðnir velvirð-
ingar á mistökunum.
INGMASTER TRIDEX
TÖLVUSTÝRDA TALKERFIP
MEÐ ÓTAL EIGINLEIKA
5 *
c
FUNDUR
Þú getur talað við 2-3
eða 4 samtímis, bætt
þeim inn í samræðurnar
einum í einu eftir
óskum.
TÖLVU
STÝRING
Stimpla inn númer og
þú getur stjórnað fjar-
stýrðum búnaði.
ÞEGAR
LIGGUR Á
Ef stöð er á tali og það
er áríðandi að ná til
hennar fljótt, geturðu
látið viðkomandi vita
af þér, með því að senda
honum tón.
SJÁLFVIRK
HRINGING
Ef sá sem þú ert að
reyna að ná til er á tali,
stimplarðu 8 á tækinu,
og mun það hringja
þegar þið eruð á lausu.
FLUTT TIL
EINKARITARANS
Hægt er að senda á
sjálfvirkan hátt allar
hringingar til einkarit-
arans sem getur síðan
gefið samband til baka
eða afgreitt samtalið
sjálf.
HÓPKALL
Möguleiki er á að kalia
ákveðinn flokk stöðva í
einu, með eða án þess
að fá svar til baka.
ALLAR STÖÐVAR
Hægt er að senda
skilaboð í gegn um allar
stöðvar með eða án
þess að fá svör til baka.
Skilaboðin slíta ekki
samtöl, sem eiga
sér stað, en koma
ofaní samtölin.
LEITAÐ
Hægt er að tengja
númer stöðva saman,
þannig að myndi keðju.
Ef einhver stöðin er
upptekin, fer samband-
ið sjálfvirkt yfir á sam-
tengda númerið, þar til
fundiö, er laust númer.
t’
FORGANGS-
RÉTTUR
Ákveðnum stöðvum
getur verið gefinn þau
forréttindi að slíta
samtöl, ef þörf er á.
HRAÐ KÖLL
Á 3 til 4 stöðvum, sem
oft þarf að ná til, er hægt
að hafa aðeins 2ja
stafa númer, það flýtir
fyrir.
MILLI HÚSA
Fjarlægð er ekkert
vandamál fyrir TRIDEX.
ffr «
SAMBAND
VIÐ BÍLA
Hægt er að tengja
talstöð við TRIDEX-
kerfið, sem gefur beint
samband við sendibíl-
inn, þannig að hægt er
að hafa samband við
hann hvenær sem er.
Qý) Radíóstofan hf.
Þórsgötu 14, simar 28377 - 11314 - 14131