Morgunblaðið - 08.09.1981, Side 29

Morgunblaðið - 08.09.1981, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1981 37 Forystumál Sjálf- stæðisf lokksins og framtíð f lokksins - eftir Guðjón Hansson Anders Hansen skrifar í Morgunblaðið 27. ágúst síðast- liðinn, lofgrein til stuðnings Geir Hallgrímssyni, jafnframt er þessi grein árásargrein á Gunnar Thoroddsen. Greinin er öll eitt smjaður fyrir Geir Hall- grímsson. Anders Hansen á margt eftir ólært, enda ungur maður. Það er ekki með þessum hætti sem menn fá traust fólks- ins, það fæst aðeins með því að vera eitthvað sjálfur, en ekki með því að vera að smjaðra fyrir þeim ríku í þeirri von að þeir láti mola detta af borðum sínum. Venjulegt fólk fær fyrirlitningu á svoleiðis mönnum. Þegar mað- ur les skrif Anders Hansen dettur manni helst í hug Hjálm- ar tuddi í bókinni „Maður og kona“, eftir Jón Thoroddsen, en hann var að smjaðra fyrir séra Sigvalda í þeirri von að húsbónd- inn léti mola detta af borði sínu eða agnar tóhakslús. Maður hefði haldið að Anders Hansen hefði unnið fyrir því að fá spónapottinn refjalaust með skrifum sínum í bókinni „Valda- tafl í Valhöll", en svo virðist ekki vera. Hver skyldi vera ráðskon- an sem heldur fyrir skömminni spónapottinum, það skyldi þó ekki eiga eftir að koma fram á næsta landsfundi, en þá verður allt sjálfstæðisfólk í kjöri til formanns eins og alltaf hefur verið. Það þarf engin sérstök framboð, sjálfstæðisfólk ritar bara á kjörseðil nafn þess er það vill fá sem formann. Þar af leiðandi geta mörg hundruð manns fengið atkvæði, en sá sem fær flest atkvæði verður formað- ur, hvort sem það verður Ragn- hildur Helgadóttir eða einhver annar góður flokksmaður. Gísli Jónsson skrifar grein í Morgunblaðið 24.8. síðastliðinn þar sem hann hvetur til stofnun- ar hræðslubandalags, til þess að kjósa Geir Hallgrímsson sem formann flokksins, svona hey- pokar hugsa ekki um hag flokks- ins. Morgunblaðið tekur þennan málflutning upp á sína arma í Leiðara 25. 8. síðast liðinn og telst Gísli Jónsson því til fínni heypoka í hræðslubandalaginu, en sannleikurinn um Gísla Jónsson er sá, að hann vildi ekki láta fara fram prófkjör fyrir norðan vegna þess að hann og heypokarnir í hræðslubandalag- inu fyrir norðan vissu að þá ytði Jón Sólnes efstur og heypokarnir í hræðslubandalaginu hafa per- sónulega ekkert fylgi. Fyrir nokkru síðan skrifaði Björg Einarsdóttir lofgrein í Vísi um Geir Hallgrímsson og hræðslubandalag hans. Hún hefði heldur átt að skrifa grein um kynsystur sína Ragnhildi Helgadóttur og stuðla að því að hún yrði kosin formaður flokks- ins, en á sama t íma og hún skrifaði lofgreinina um Geir fór hún suður með sjó og hélt fund með þrjátíu konum um það að auka fylgi sjálfstæðiskvenna í Sjálfstæðisflokknum, en hún tók ekki undir það að styðja Ragn- hildi til formanns, þegar ég bar þaö upp á Hvatarfundi. Allir sjá hverslags hræsni þetta er í garð kvenna, enda hefur Björg Ein- arsdóttir ekki starfað mikið í flokknum fyrr en nú upp á síðkastið, er hún var kosin for- maður Hvatar, enda veit hún iítið um flokksmál samanber hugmyndir hennar um lands- fund. í grein sinni í Vísi segir hún að aðal verkefni landsfund- ar sé að kjósa formann, vara- formann og miðstjórn, en for- maður marki svo stefnuna, en landsfundur fjalli aðeins um hið liðna. gn jan(jsfun(jur er n(j annað og meira, hann á meðal annars að móta stefnu flokksins sem forustan á svo að vinna eftir. Fólkið í landinu er svo hinn stóri dómur og það hefur kveðið upp sinn dóm og dómur- inn er sá, að fylgið hefur hrunið Albert Guðmundsson af flokknum, bæði til borgar- stjórnar og Alþingis, undir formennsku Geirs Hallgríms- sonar, þess vegna meðal annars getur hann ekki verið formaður lengur og landsfundur þarf því að kjósa nýja forystu. Það hefur komið fram í viðtali við Geir Hallgrímsson, formann Sjálfstæðisflokksins, að hann sækist eftir endurkjöri sem formaður, einnig hefur Gísli Jónsson menntaskólakennari á Akureyri hvatt til stofnunar hræðslubandalags til stuðnings Geir Hallgrímssyni og Björg Einarsdóttir skrifaði í Vísi lofgrein um Geir, en hvers vegna sækist Geir eftir formannssæt- inu? Hann hefur marg oft lýst því yfir að það sé ekki spurning um menn heldur stefnu, fyrst svo er þá ætti Geir ekki að sækjast svona eftir þessu emb- ætti. I hans formannstíð hefur hann tapað tveimur kosningum og fylgið hefur hrunið af flokkn- um. Fólkið vill ekki Geir Hall- grímsson, en fámenn klíka sem hefur haldið völdunum í flokkn- um hefur tryggt honum for- mannssætið þó að hann hafi ekki tiltrú fólksins. Ég hef gagnrýnt þessa hluti innan flokksins og flutt tillögur, hef ekki viljað bera þessi mál á torg, en hræðslubandalag Geirs Hall- grímssonar hefur kosið að ræða þessi mál í blöðunum. Þó að Geir sé kannski ágætis maður per- sónulega, þá er hann ekki mað- urinn sem hefur tiltrú fólksins og verður því að fara frá. Geir og hans félagar verða að meta meira stöðu flokksins heldur en persónulega stöðu Geirs Hall- grímssonar. Það er flokkurinn sem er númer eitt, en ekki Geir Hallgrímsson. Hræðslubandalag Geirs Hallgrímssonar hefur hamrað á því að undanförnu, að það væri hið mesta voðaverk að Gunnar Thoroddsen hafi mynd- að stjórn með kommunum, en sannleikurinn er sá að á fjöl- mennum fundi í fulltrúaráðinu í Reykjavík sem haldin var áður en núverandi stjórn var mynduð, kom ég með tillögu um að Sjálfstæðisflokkurinn færi ekki í Guðjón Ilansson stjórn með kommúnistum. Til- lagan var studd af Ragnhildi Helgadóttur og fleirum og urðu miklar umræður um þetta mál. Geir Hallgrímsson fór þá marg Matthías Á. Mathiescn oft í ræðustólinn og barðist gegn því að þessi tillaga yrði sam- þykkt, vegna þess að hann vildi fara í stjórn með kommum, það voru nú öll heilindin þá, en málið var það, að Geir vildi verða forsætisráðherra í þeirri stjórn, en kommarnir vildu ekki Geir, en þeir vildu mynda stjórn með Sjálfstæðisflokknum. Framsókn vildi ekki Geir, en vildi fara í stjórn með Sjálfstæðisflokknum, allir flokkar viljá vinna með Sjálfstæðisflokknum, en enginn með Geir sem forsætisráðherra. Þess vegna vill hræðslubandalag Geirs fórna flokknum nú fyrir persónulegan metnað Geirs, en það kemur ekki til greina, flokknum verður ekki fórnað fyrir Geir Hallgrímsson. Geir Hallgrímsson kvartar í viðtali við Helgarpóstinn yfir því að skúmaskota áróðurinn sé verst- ur, en hvar er skúmaskota áróð- Ragnhildur Ilelgadóttir ur fylgismanna hans sjálfs sem þora yfirleitt ekki að taka ákvörðun eða ábyrga afstöðu til mála í flokknum, heldur hefur Geir laumast til að láta aðra úr hræðslubandalaginu lauma sín- um áformum að og þykist svo hvergi koma nærri. Hann gat ekki tekið afstöðu í forsetakostn- ingunum, en hann vann í skúma- skotum gegn Alberti Guð- mundssyni, fyrst átti að styðja Pétur Thorsteinsson gegn Al- berti, en þegar þeir sáu að Pétur myndi ekki vinna Albert, þá var Guðlaugur Þorvaldsson fenginn í framboð og Pétur settur út í kuldann. Þannig eru vinnubrögð skúmaskotamanna í hræðslu- bandalaginu. Allir vita svo hvernig fór, flokkurinn tapaði og beið ósigur vegna skúmaskota- vinnubragða hræðslubandalags- ins. Ef að hræðslubandalagið fær Geir Hallgrímsson kosinn áfram, þá hrynur fylgið af flokknum og það getur ekki endað með öðru en því að flokkurinn klofni og frjálslynd- ari menn myndi breiðfylkingu til að standa vörð um lýðræðishug- sjónina og Sjálfstæðisstefnuna. Þess vegna er brýn nauðsyn fyrir flokksmenn að standa sam- an á landsfundi um það að mynda nýja forystu, til þess að koma í veg fyrir það, að flokkur- inn klofni. Eftirtalið fólk getur myndað nýja virka forystu sem allir ættu að vera ánægðir með og hefði tiltrú fólksins í landinu, en það eru: Ragnhildur Helga- dóttir, Albert Guðmundsson og Matthías Á. Mathiesen í Hafn- arfirði. Gjör rétt þol ei órétt. Guðjón ó. Ilansson Góður félagi GF-8989H/E Glæsilegt ferðatæki Stereo Portable Radio Cassette Kr. 3.910,- Stereo ferðatæki frá kr. 1.900.- Jbft-Töuch Sott-Touch Operation I y || CXXBY SVSTEM*] Aulo Proqram Search Syslem Feröa- og kassettutæki meö 4 útvarpsbylgjum, FM stereó, stuttbylgju, miðbylgju og langbylgju. 2x5,5 wött RMS. „2-way“ hátalarar, 2 innbyggðir míkrófónar. Óvenjulega góðir upptökueig- inleikar. Lengd 510 mm. Hæö 284 mm. Breidd 134 mm. Útsölustaöir: Karnabær Laugavegi 66 — Karnabær Glæsibæ — Fataval Keflavík — Portið Akranesi — Patróna Patreksfiröi — Epliö ísafiröi — Álfhóll Siglufiröi — Cesar Akureyri — Radíóver Húsavík — Hornabær QÍMI OCQQQ Hornafiröi — M.M. hf. Selfossi — Eyjabær OIIVII 4lOyyy Vestmannaeyjum. LAUGAVEGI 66

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.