Morgunblaðið - 08.09.1981, Qupperneq 40
Valur
Aston Villa
eftir 22 daga
sse Ljósaperur
Þeim geturðu
”■ • ” treyst
Einkoumbod 6 jsiandi
SEGULLHF. Nýlendugötu 26
ÞIiIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1981
Niðurstöður seiðarannsókna:
Lélegir árgangar af
þorski, ýsu og loðnu
IIELZTU nirturst(W>ur seiðarann-
sókna. sem nýlega er lokið. eru
þar. að útlit er fyrir að 1981-ár-
Kanxar þorsks. ýsu ok loðnu
muni verða lélejíir. Ilins ve«ar er
útlit fyrir. að karfaárKangurinn
verði í koóu meðallaKÍ <>K óvenju
mikið var af Králúðu ok var hún
á sta-rra sva’ði en oftast áður.
Hjálmar Vilhjálmsson fiski-
fræðingur sagði í gær, að þorsk-
árgangurinn virtist vera sá léleg-
asti síðan 1974. Sá árgangur hefði
komið illa út við seiðarannsóknir
og hefði skilað sér illa í veiðinni.
Hjálmar sagði, að frá 1970 hefðu
verið fáir lélegir árgangar, flest
árin hefðu árgangarnir verið í
meðallagi góðir, en árin 1970,1973
og 1976 hefðu komið mjög stórir
árgangar.
Um ýsuna sagði Hjálmar, að
þessi árgangur virtist ætla að
verða með allélegustu árgöngum.
Ix>ðnuárgangurinn virðist ætla að
verða svipaður og 1978, en sá
árgangur var mjög lélegur. Seiðin
voru þó á stærra svæði í ár en
fyrir þremur árum og ástand
þeirra var gott núna. Um karfann
er það að segja, að þessi árgangur
karfa virðist ætla að verða mun
betri en undanfarin ár og heildar-
fjöldinn var nú þrisvar sinnum
meiri en í fyrra.
Sjá nánar á hls. 30.
Akumesingar sjóða
neyzluvatn sitt
vegna gerlagróðurs
„OFT á vorin í leysingum og
stundum á haustin þegar miklar
rÍKningar eru. þá er meiri Korla-
Fyrsta síldin
til Eyja
VESTMANNEYINGAR
fengu fyrstu síldina á þess-
ari vertíð í Ka*r. er tveir
hátar komu til hafnar með
um 360 tunnur. Síldin
fékkst í reknet um 13 mílur
vestur af Eyjum. Vonzku-
veður var á þessum sloðum
er hátarnir voru að Ijúka
við að draga. vindur um 10
vindstÍK undir það síðasta.
Bátar hafa veitt ágætlega
fyrir Norðurlandi undanfar-
ið og hefur síld verið söltuð á
Húsavík og Olafsfirði. Á
Siglufirði hefur allt farið í
beitu til þessa, en þangað
hefur Ófeigur III komið með
um 860 tunnur. í gær fékk
Gissur hvíti um 170 tunnur
af síld í Þistilfirði.
Bátarnir, sem komu með
síld til Eyja í gær voru
Jóhann Friðrik með 200
tunnur og Árni í Görðum
með 160 tunnur. Síldin verð-
ur flökuð og fryst. Mest var
af millisíld í aflanum, en
einnig talsvert af stórri síld.
Ekki er enn vitað um fitu-
innihald.
groður í vatninu heldur en heppi-
leKt Ketur talizt. en um helming-
ur af neyzluvatni Akurnesinga
kemur úr Akrafjalli. Þá heinum
við þeim tilmadum til íhúa. að
þeir sjóði allt vatn til ncyzlu.“
saKði Magnús Oddsson. bæjar-
stjóri á Akranesi. i samtali við
Mhl.
„Þetta er hins vegar vandamál,
sem er að verða úr sögunni, því við
erum búnir að panta sérstök tæki,
sem hafa útfjólubláa geisla til að
eyða þessum gróðri, en tæki þessi
verða sett upp hér í vetur. Við
fórum til Noregs fyrir nokkru,
fulltrúar bæjarins og fulltrúar
Heilbrigðiseftirlits ríkisins, og
það leizt öllum mjög vel á þau
tæki og var þá ákveðið að panta
þau,“ sagði Magnús Oddsson enn-
fremur.
Síldarstemmning á Ilúsavík
Ljósm. Mbl. RAX.
Kaupin á Suðureyri fjár-
mögnuð úr sérsjóðum SÍS
Margeir og Jón L.
eru með 2,5 vinn-
inga í Manchester
MARGEIR Pétursson og Jón L.
Arnason. sem um þessar mundir
tefla á alþjóðlegu skákmóti i
Manehester hafa hlotið 2.5 vinn-
inga að fjórum umferðum lokn-
um og eru fyrir ofan miðju í röð
60 keppenda.
Efstur á mótinu er Englending-
urinn Miles, en hann hefur unnið
allar sínar skákir, m.a. sigraði
hann Jón L. í þriðju umferð.
Á N/ESTU dogum verður gengið
frá kaupum Sambands ísl. sam-
vinnufélaga á 91% hlutafjár i
Fiskiðjunni Freyju hf. á Suður-
eyri. Kaupin verða fjármögnuð
úr „sérsjóðum sjávarafurðadeild-
ar“ SÍS að því er upplýst var á
hlaðamannafundi. sem sjávaraf-
urðadeildin efndi til í gær. Á
fundinum fékkst ekki gefið upp
hvert kaupverðið er, en Morgun-
blaðið skýrði frá þvi sl. laugar-
daK. að það yrði fimmfalt nafn-
verð hlutabréfanna. eða um 5
milljónir nkr.
Á blaðamannafundinum í gær
voru forsvarsmenn sjávarafurða-
deildar SÍS, þeir Árni Benedikts-
son og Kjartan Kjartansson
spurðir um það, hvort ekki skyti
skökku við að Samband ísl. sam-
vinnufélaga fjárfesti fyrir hundr-
uð milljóna gkr. á Suðureyri á
sama tíma og óskað væri eftir
aðstoð hins opinbera vegna verk-
smiðjureksturs á Akureyri og
sögðu þeir, að hér væri um
algerlega óskyld mál að ræða,
iðnaðardeild og sjávarafurðadeild
væru tvennt óskylt.
Forsvarsmenn sjávarafurða-
deildar voru ennfremur spurðir
um það, hvort „sérsjóðir sjávaraf-
urðadeildar" gætu hlaupið undir
Hvalvertíðinni lýkur í dag:
395 hvalir komnir
á land í gærkvöldi
IIVALVERTÍÐINNI er um það
bil að Ijúka, en tvö síðustu skipin
koma í Hvalstöðina í Hvalfirði í
daK. Vertíðin, sem er mun styttri
en á síðasta ári. hefur gengið
mjóg vel ok hafa veiðst hlutfalls-
lega fleiri hvalir.
V'ertíðin nú hefur staðið yfir í 90
daga, en vertíðin á síðasta ári stóð
í 107 daga. í gærkvöldi höfðu
borizt á land í Hvalstöðina 395
hvalir, 99 sandreyðar, 253 lang-
reyðar og 43 búrhveli, en á síðustu
vertíð veiddust 435 hvalir t það
heila.
Samkvæmt þeim upplýsingum,
sem fengust í Hvalstöðinni í Hval-
firði í gær, lýkur vinnu þar vænt-
anlega undir helgina.
Hjá Hval hf. starfa liðlega 220
manns, í frystihúsi fyrirtækisins í
Hafnarfirði, í Hvalstöðinni og á
hvalbátunum.
bagga með iðnaðardeild á Akur-
eyri og svöruðu þeir því til, að
reikningar SÍS væru lagðir fyrir
viðskiptabanka og hið opinbera
hefði aðgang að þeim, ef óskað
væri. „Aftur á móti gefum við ekki
upp stöðu einstakra deilda til
hvers sem er,“ sagði Árni Bene-
diktsson, þegar blaðamaður Morg-
unblaðsins óskaði eftir að fá að sjá
reikningana.
Hjörleifur Guttormsson iðnað-
arráðherra játti því í viðtali við
Mbl. í gær, að líkja mætti þessum
kaupum við það, að Flugleiðir
hefðu fjárfest t.d. í kaupum á
Arnarflugi á sama tíma og fyrir-
tækið stóð frammi fyrir fjölda-
uppsögnum starfsmanna sinna
vegna rekstrarerfiðleika á N-Atl-
antshafsflugleiðinni.
Sjá fréttatilkynningu sjávaraf-
urðadeildar á bls. 2 og frétt frá
blaðamannafundi, viðtal við
Hjörleif Guttormsson iðnaðarráð-
herra, einnig leiðara vegna máls
þessa á miðopnu blaðsins.