Morgunblaðið - 07.11.1981, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1981
Sprengjan sem fannst
í Grindavík gerd óvirk
- Rannsókn málsins stendur yfir
l>AÐ ER nú Ijóst að hluturinn, sem
fannst ( einni af fjarskiptastöðvum
varnarliðsins í Grindavík, var
sprengja. Hún var í fyrradag flutt út
og sprengd af sprengjusérfræðingi
varnarliðsins.
Að sögn Mik Magnússonar,
blaðafulltrúa varnarliðsins, var
sprengjan lítil en engu að síður
væri það alvarlegt mál, að hún
skyldi hafa fundizt þarna. Nú væri
verið að rannsaka hvernig á því
stæði og hver væri vaidur að því,
en þeirri rannsókn væri enn ekki
lokið og því ekki hægt að segja
meira um málið að þessu sinni.
Sáttanefndin
á fundi með
Elly Ameling og Dalton Baldwin.
Tónlistarfélagid:
Elly Ameling og
Dalton Baldwin á
tónleikum í dag
TÓNLEIKAR á vegum Tónlistarfé-
lagsins verða haldnir í Háskólabíói í
Keykjavík í dag kl. 14:30. Koma þar
fram söngkonan Elly Ameling og
Dalton Baldwin píanóleikari. Á efn-
isskrá eru verk eftir Schumann,
Gabriel Fauré, Francis Poulenc,
Granados, ('arlos Guastavino og
Joaquin Turina.
Elly Ameling fæddist í Rotter-
dam og hóf þar söngnám og
kenndu henni síðar Jacoba og Sem
Dresden í Scheviningen, Bodi
Rapp í Amsterdam og Pierre
Bernac barítónsöngvari í París.
Hún hefur haldið tónleika í Evr-
ópu, Norður- og Suður-Ameríku,
Afríku, Japan og Astralíu. Auk
ljóðasöngs hefur hún lagt stund á
flutning verka með hljómsveitum
og kórum, kirkjulega og verald-
lega tónlist.
Dalton Baldwin, sem fæddur er
í New Jersey stundaði tónlistar-
nám við Juilliard-tónlistarskólann
í New York og síðar gerðist hann
nemandi Nadiu Boulanger, Madal-
eine Lipatti, Pierre Bernac og
Francis Poulenc í Evrópu. Lengst
af hefur hann leikið undir hjá
Gérard Souzay og síðan 1970 hefur
hann einnig verið fastur undir-
leikari Elly Ameling.
| samninganefndum
SATTANEFNDIN, sem skipuð var á
miðvikudag til að vinna að lausn kjara-
deilna, sem koma til sáttameðferðar
hjá ríkissáttasemjara í vetur, mætti á
sinn fyrsta fund með samninganefnd-
um ASf, VSÍ, og Vinnumálasam-
bandsins í fyrradag.
Sáttanefndina skipa auk Guðlaugs
Þorvaldssonar, ríkissáttasemjara,
sem er formaður, þeir Árni Vil-
hjálmsson, prófessor, Geir Gunnars-
son, alþingismaður, Geir Gunnlaugs-
son, prófessor, og Gestur Jónsson,
héraðsdómslögmaður. Ein breyting
hefur orðið á sáttanefndinni frá því í
síðustu kjaradeilum, Geir Gunn-
laugsson tekur sæti Jóns Þorsteins-
sonar.
Auk fundar stóru samninganefnd-
anna í fyrradag var fundur sátta-
semjara með vörubifreiðastjórum og
viðsemjendum þeirra. Eftir helgina
verður haldið áfram fundum með
landssamböndum og félögum innan
ASÍ og á mánudag verða fundir með
Verkamannasambandinu, verzlunar-
mönnum og iðnverkafólki.
Frá fundi yfirkjörstjórnar og kjörnefndar í gær. Frá vinstri Árni Sigfússon, ritari kjörnefndar, Olafur B. Thors,
formaður kjörnefndar, Björgvin Sigurðsson, Guðmundur H. Garðarsson, Baldur Guðlaugsson og Sveinn H. Skúla-
son, en þeir eiga sæti í yfirkjörstjórn. Fremst má greina Björgu Einarsdóttur og Gunnar Hauksson.
24 tilkynntu þátttöku í próf-
kjöri Sjálfstæðisflokksins
YFIRKJÖRSTJÓRN hefur tilkynnt
kjörnefnd fulltrúaráðsins í Reykja-
vík eftirtalin 24 nöfn á lista Sjálf-
stæðisflokksins í prófkjöri vegna
borgarstjórnarkosninga á vori kom-
andi:
Albert Guðmundsson, Anders
Hansen, Árni Bergur Eiríksson,
Davíð Oddsson, Guðmundur Ara-
son, Guðmundur J. Óskarsson,
Hilmar Guðlaugsson, Hulda Valt-
ýsdóttir, Ingibjörg Rafnar, Jóna
Gróa Sigurðardóttir, Júlíus Haf-
stein, Magnus L. Sveinsson, Mar-
grét S. Einarsdóttir, Markús Örn
Antonsson, Málhildur Angantýs-
dóttir, Ólafur H. Ólafsson, Páll
Gíslason, Ragnar Júlíusson, Sig-
ríður Ásgeirsdóttir, Sigurjón
Fjeldsted, Sveinn Björnsson,
kaupmaður, Sveinn Björnsson,
verkfræðingur, Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson og Þórir Lárusson.
Kjörnefnd hefur rétt til að bæta
við nöfnum, þannig að 40 manns
skipi prófkjörslista Sjálfstæðis-
flokksins og er stefnt að því, að
birta listann á miðvikudag í næstu
viku. Prófkjör fer fram 29.—30.
nóvember næstkomandi.
Sáttatillaga í kjaradeilu bankamanna:
6% launahækkun í þremur
áföngum til 30. apríl ’83
- Samninganefnd SÍB hvetur félagsmenn til að fella tillöguna
Sáttatillagan felur í sér samn- urs að ná tali af talsmönnum
ing frá 1. nóvember í ár til 30. samninganefndar banka og spari-
apríl 1983. Grunnkaupshækkanir sjóða í gær.
á tímabilinu yrðu samkvæmt til- Vilhelm G. Kristinsson fram-
SATTASEMJARI ríkisins lagði í
gærmorgun fram sáttatillögu í kjara-
deilu bankamanna og jafnframt
frestaði hann boðuðu verkfalli til 27.
nóvember. Samninganefnd banka-
manna hvetur félagsmenn SÍB til að
fella þessa tillögu í atkvæðagreiðslu,
sem fer fram 16. og 17. nóvember.
Síðdegis í gær bárust Sambandi
bankamanna tvær hugmyndir frá
bönkum og sparisjóðum um samn-
ing til skamms tíma, en þeim var
alfarið hafnað.
menn starfsmannafélaga
og sparisjóða og stjórn
lögunni 2,5% frá 1. nóvember sl.,
1,5% 1. júlí á næsta ári og frá 1.
janúar 1983. Samtals eru þetta
rúmlega 6% til 18 mánaða, en
krafa bankamanna er um 14%
grunnkaupshækkun og eins árs
samningur sem gildi frá 1. sept-
ember sl.
Morgunblaðið reyndi án árang-
kvæmdastjóri Sambands ísl.
bankamanna, sagði hins vegar, að
samninganefndin hefði þingað um
tillöguna og væri á einu máli um
að hvetja félagsmenn til að fella
hana þar sem hún kæmi á engan
hátt til móts við þær tillögur, sem
SÍB hefði sett fram. Tillaga þessa
efnis verður borin upp við for-
Umrædur um stjórnkerfisbreytingar í borgarstjórn:
Sjiifn á móti öðrum breytingum
en fjölgun borgarfulltrúa í 21
„FJÖLGUN borgarfulltrúa hefur um
langt árabil verið ofarlega á óskalista
hinna svokölluðu vinstri flokka, AF
þýðubandalagið meðtalið, og þó ég sé
ekki alveg viss um réttmæti þess að
fjölga borgarfulltrúum, þá hef ég lát-
ið tilleiðast að styðja málið," sagði
Sjöfn Sigurbjörnsdóttir borgar-
fulltrúi Alþýðuflokksins við umræður
í borgarstjórn á fimmtudagskvöld. f
ræðu sinni lýsti Sjöfn sig ennfremur
andvíga fjölgun í borgarráði og öðr
um breytingum á stjórnkerfinu, en
slíkar breytingar eru keppikefli
hinna meirihlutaflokkanna í borgar-
stjórn, Alþýðubandalags og Fram-
sóknarflokks. Á fimmtudagskvöld
fóru fram umræður um fjölgun borg-
arfulltrúa í 21, en tillaga hefur verið
gerð um slíka fjölgun. Krefst þessi
breyting 2ja umræðna.
Davíð Oddsson borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins sagði, að Ei-
ríkur Tómasson borgarfulltrúi
hefði greinilega ekki talað fyrir
hönd meirihlutaflokkanna þegar
hann kynnti tillöguna í framsögu-
ræðu á fundinum. Sagði hann að
Sjálfstæðisflokkurinn væri á móti
fjölgun borgarfulltrúa, því slíkt
hefði í för með sér aukinn kostnað
borgarinnar og aukið flokksræði
og gerði stjórnun borgarinnar
þyngri í vöfum. Slíkt hefði sýnt sig
erlendis. Þá varpaði Davíð þeirri
spurningu fram, hví menn vildu
ekki fjölga borgarfulltúum í 27,
fyrst verið væri að fjölga á annað
borð. Slík fjölgun hlyti að vera
rökréttari en fjölgun í 21, miðað
við röksemdir meirihlutaflokk-
anna.
Eiríkur Tómasson mælti fyrir
fjölgun og sagði að borgarfulltrúar
hefðu verið 15 talsins frá árinu
1908, en þá hefðu Reykvíkingar
verið rúm 10 þúsund. Nú væru
borgarbúar rúmlega 84 þúsund og
einnig hefðu allar aðstæður í borg-
inni gjörbreyst. Taldi Eiríkur ekki
að fjölgun leiddi til þyngri máls-
meðferðar í borgarstjórn. Taldi
hann útgjaldaaukningu borgar-
sjóðs óverulega af þessum sökum.
Þá sagði hann að lýðræðið væri
ekki nægilega virkt í borgarkerfinu,
borgarfulltrúar gætu ekki rætt
ýmis mál sem skyldi.
Á fundi stjórnkerfisnefndar á
fimmtudag lagði Eiríkur fram til-
lögur sínar um breytingar á
stjórnkerfinu og gat hann tillög-
unnar við umræðurnar. Tillögurn-
ar eru m.a. á þá leið að borgarráðs-
mönnum verði fjölgað úr 5 í 7. Að
eftirtaldar nefndir verði lagðar
niður: leikvallanefnd, en verk
hennar skiptist á milli félagsmála-
og umhverfismálaráðs, stjórn Inn-
kaupastofnunar borgarinnar, en
verkefni hennar færist til borgar-
ráðs, stjórn SVR og umferðar-
nefnd, og færðust verkefni þeirra
til framkvæmda- og veituráðs,
veiði- og fiskiræktarráð, verkefni
færist til umhverfismálaráðs. Þá
verði eftirtaldar nefndir sameinað-
ar: framkvæmdaráð og stjórr
veitustofnana, íþrótta- og æsku-
lýðsráð.
Þá eru í tillögunum ákvæði um
að formenn nefnda verði úr hópi
aðalborgarfulltrúa, að skrifstofa
borgarstjórnar heyri undir forseta
borgarstjórnar. Ennfremur er þar
ákvæði um að heimilt sé að bera
einstök mál undir atkvæði borg-
arbúa, að fullnægðum ákveðnum
skilyrðum.
banka
SÍB á
fundi í dag, sem hefst klukkan
10.30.
Auk þeirrar grunnkaupshækk-
unar, sem kemur fram í sáttatil-
lögunni, sagði Vilhelm, að í henni
væru einnig lagfæringar á starfs-
aldursálagi, en á þær hugmyndir
þyrfti ekki að eyða orðum. Annað
í tillögunni væru orðalagsbreyt-
ingar og flutningur á bókunum
inn í samninginn, sem hefðu í
raun enga breytingu í för með sér.
Þá sagði Vilhelm, að bankamenn
legðu áherzlu á að samningur gilti
frá 1. september og því væri um 20
mánaða samning að ræða, en ekki
18 mánaða, samkvæmt sáttatillög-
unni.
Samninganefndir banka og
sparisjóða sendu SBM síðdegis í
gær hugmyndir sínar að skamm-
tímasamningi. í fyrsta lagi var um
að ræða samning til eins árs, frá 1.
nóvember til 1. nóvember, með
2,5% hækkun og í öðru lagi hug-
mynd um sömu prósentuhækkun í
samningi, sem gilti frá 1. nóvem-
ber til 1. júlí á næsta ári. Hann
sagði, að ekki hefði þurft langan
umhugsunarfrest til að hafna
þessum tilboðum.
ísland 2. efst
LH) ÍSLANDS, 2, er nú efst á Norð-
urlandameistaramóti framhalds-
skóla í skák, sem haldið er í skák-
heimili Taflfélags Reykjavíkur, með
5Ví vinning eftir tvær umferðir.
Úrslit 1. umferðar urðu þau að
Svíþjóð vann Danmörku 4:0, ís-
land 2 vann ísland 1, 2V4:1 'k og
Finnland vann Noreg 3:1. i 2. um-
ferð vann Noregur Svíþjóð með
3V4 vinningi gegn ‘/2, Island 1
vann Finnland 2V4:lVi og ísland 2
vann Danmörku 3:1.