Morgunblaðið - 07.11.1981, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1981
7
Kristniboðs
dagurinn 1981
Eins og undanfarin ár veröur annar sunnudagur í
nóvember (8. nóvember) sérstaklega helgaöur
kristniboöinu og þess minnst í ýmsum kirkjum og á
samkomum á morgun. Á eftirfarandi samkomum vilj-
um viö vekja athygli:
Akranes:
Kristniboössamkoma í húsi KFUM og K kl. 8.30 e.h.
Helgi Hróbjartsson, kristniboði, talar.
Akureyri:
Kristniboössamkoma í kristniboöshúsinu Zion kl.
8.30 e.h. Sr. Guðmundur Óli Ólafsson talar.
Hafnarfjöröur:
Kristniboðssamkoma í húsi KFUM og K viö Hverfis-
götu kl. 8.30 e.h. Jónas Þórisson, kristniboöi, talar.
Einsöngur: Ólöf Magnúsdóttir.
Reykjavík:
Hátíðarsamkoma í Þjóðleikhúsinu kl. 3.30 e.h.
Reykjavíkurprófastsdæmi minnist 1000 ára kristni-
boös á islandi.
Dagskrá:
Kirkjukórar prófastsdæmisins syngja. Þáttur um
fyrstu kristniboðana hér á landi í samantekt Jóns
Hjartarsonar. Litskyggnur frá kristniboðsstarfinu í
Eþíópíu og Kenýu; Jónas Þórisson. Hátíöarljóö eftir
Matthías Johannessen í flutningi Helga Skúlasonar.
Ávörp flytja biskup íslands, hr. Pétur Sigurgeirsson
og séra Ólafur Skúlason, dómprófastur.
Á ofangreindum stööum og eins og áöur sagöi í
ýmsum kirkjum landsins, veröur íslenzka kristniboös-
starfsins minnst .og gjöfum til þess veitt móttaka.
Kristniboösvinum og velunnurum eru færöar beztu
þakkir fyrir trúfesti og stuöning viö kristniboöiö á
liðnum árum og því treyst, aö liðsinni þeirra bregöist
eigi heldur nú.
Samband íslenzkra kristniboðsfélaga,
aöalskrifstofa, Amtmannsstíg 2b,
pósthólf 651,
gíróreikningur 65100-1,
Reykjavík.
fciaw>i^sk(<wKfiý(flr
fyvt i iirv4c —^
TELSINN
Kirkjuhvoli, s. 20160.
Opiö alla daga kl. 1—6.
Ath.: Opið í dag, laugardag, frá kl.
10—4.
Þúsund manna þing sjálfstæðisfólks, landsfundar Sjálfstæöisflokksins,
heldur áfram aö vera umræöuefni bæöi leiöarahöfunda og annarra, er
skrifa um þjóömál í fjölmiðla. Þaö er til efs aö nokkur önnur stjórnmála-
hreyfing geti haldiö jafn fjölmennt þing, sem nær til fólks úr öllum
byggöum bólum og starfsstéttum þjóöfélagsins. Sú breidd, sem fylgiö viö
hugsjónir sjálfstæðisstefnunnar hefur, gerir flokkinn aö kjölfestu ís-
lenzkra stjórnmála, brjóstvörn borgaralegra viöhorfa, bæöi á þjóömála-
sviöi og í utanríkismálum lýöveldisins.
Kosið milli
tveggja stjórn-
arandstæðinga
Haraldur Blöndal, lög-
frædingur, ritar neðan-
málsgrein í Vísi, sem m.a.
fjallar um varaformanns-
kjör á landsfundi Sjálf-
stæðisflokksins. Hann seg-
ir ordrétL
„t>egar úrslitin í vara-
formannskosningunni eru
metin verður að hafa
tvennt í huga: í fyrsta lagi
var Friðrik Sophusson bú-
inn að tilkynna framboð
sitt með talsverðum fyrir
vara og voru stuðnings-
menn hans búnir að undir
búa vel framboð hans.
Honum tókst að ná víðtæk-
um stuðningi meðal ungra
manna í flokknum. Fram-
boð Ragnhildar Helgadótt-
ur kom seint fram, og voru
margir búnir að binda sig,
sem annars hefðu heiís
hugar stutt hana. í öðru
lagi lá það Ijóst fyrir, að
allir stjórnarsinnar studdu
Friðrik gegn Ragnhildi,
m.a. vegna |k’ss, að Ragn-
hildur hefur frá fornu fari
verið hvassari í andstöðu
sinni gegn dr. Cunnari
Thoroddsen. Friðrik er þó
síður en svo vægur í and-
stöðu sinni gegn stjórn dr.
Cunnars og hefur |>eim
lent heiftarlega saman á
Alþíngi. Stuðningur stjórn-
arsinna við Friðrik aflaði
honum atkvæða meðal
stjórnarandstæðinga, sem
enn eru þeirrar skoðunar,
að taka verði eitthvert tillit
til vilja dr. Gunnars í sátta-
skyni.
Með hliðsjón af þessu
verður ekki öðru haldið
fram en að Ragnhildur hafi
hlotið verulegt fylgi, sem
staðfesti styrk hennar inn-
an flokksins. Hún hlýtur
um 40% atkvæða og er það
svipuð tala og Matthías
Hjarnason hlaut á síðasta
landsfundi í varafor
mannskjöri."
Tveir hæfir
frambjóðendur
i kjon
Hinn landskunni fjöF
miðlamaður, Magnús
Bjamfreðsson, segir um
sama efni í annarri neð-
anmálsgrein, orðrétt:
„l>ar voru tveir vel hæfir
frambjóðendur í kjöri.
Ragnhildur Helgadóttir
fyrrum alþingismaður, sem
lengi hcfur verið í forystu-
sveit Sjálfstæðisflokksins
og náð einna mestum
frama íslenskra kvenna í
stjórnmálum ásamt Auði
Auðuns, var almcnnt álitin
fulltrúi harðlínumanna í
flokknum. Vitað var að
þeir sem harðast studdu
formanninn studdu hana
yfirleitt líka. Hinn almenni
flokksmaður áleit því að
kjör hennar til varafor
manns myndi ekki auð-
velda sættir í flokknum. A
það skal enginn dómur lag-
ður hér, enda Ragnhildur
þaulreyndur stjórnmála-
maður og mannkosta-
manncskja, en engu að síð-
ur galt hún þessa. Friðrik
Sófusson, sem kjörinn var,
hafði lýst yfir því að hann
myndi ekki vilja standa að
brottrekstri ncinna úr
flokknum, hann var því tal-
inn fulltrúi sátta.
I>egar að því kom að
kjósa milli þeirra Ragn-
hildar og Friðriks völdu
fulltrúarnir Friðrik. Lík-
lega fékk Ragnhildur þar
nokkurnveginn fylgi þeirra
landsfulltrúa, sem eru í
raun ánægðir með for
mennsku Geirs Hall-
grímssonar. Hinir kusu
Friðrik, jafnt þeir sem
fylgja forsætisráðherranum
og ríkisstjórninni að máh
um og þeir, sem honum
eru andvígir en eru
óánægðir með þróun mál-
anna í flokknum. í raun
má líklega segja að hinn
almcnni flokksmaður hafi
orðið sigurvegari í þessum
þýðingarmestu kosningum
á landsfundinum, en bæði
formaðurinn og forsætis-
ráðherrann fengið sínar
lexíur."
Varafor
mannsins bíða
verkefni
Grein Magnúsar
Bjarnfreðssonar endar á
þessum orðum:
„Hins unga varafor
manns bíða erfið vcrkefni.
Ilann lendir í Ijónagryfju,
þar sem marga þyrstir í
pínulítið pólitískt blóð. Kg
held að hann muni standa
sig vel. Hann er þeim kost-
um gæddur að vera hleyph
dómalaus og geta rætt mál
við hvern sem er, samherja
jafnt sem andsta’ðinga,
verkamenn jafnt sem for
stjóra, og það er mikill
kostur á stjórnmálamanni.
Hann hefur líka sýnt það á
stuttum þingmannsferli, að
hann er vinnuþjarkur, sem
setur sig vel inn í mál og
flanar ekki að hlutum. Til
hans munu hinir almennu
flokksmenn nú líta í von
um að hann muni geta bor
ið klæði á vopnin. Hvort
honum tekst það á þann
hátt að fiokkurinn gangi
óklofinn til næstu kosn-
inga skal ósagt látið, en
takist það hlýtur forystulið
Sjálfsta'ðisflokksins að
teljast í röð kraftaverka-
manna í íslenskri pólitík."
jiffl b&sS
adot
borðstofusettin vinsælu
Gœðahúsgögn á hagstœðu verði
Opið kl. 10—1 í dag
Húsgagnasýning
á morgun kl. 2—5
jiíctsícoqar
Símar: 86080 og 86244 J Árnfúlf 8