Morgunblaðið - 07.11.1981, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1981
31
Bridgti
Arnór Ragnarsson
Bridgefélag
Kópavogs
Aðalfundur BK var haldinn
laugardaginn 31. okt. Ný lög
fyrir félagið voru samþykkt
samhljóða en drög að nýju lög-
unum voru samin af sérstakri
laganefnd skipaðri reyndum og
traustum félögum BK. Ný stjórn
var kosin fyrir næsta starfsár og
skipa hana eftirtaldir. Þórir
Sveinsson formaður og aðrir í
stjórn eru Gróa Jónatansdóttir,
Sigurður Thorarensen, Sævin
Bjarnason og Asgeir Asbjörns-
son.
Aðalfundur BK tók til um-
ræðu og meðferðar tillögu þings
BSI um nýja tilhögun árgjalds
til Bridgesambandsins og var
hún felld að lokinni atkvæða-
greiðslu.
Þegar dagskrá aðalfundar var
tæmd var slegið á léttari strengi
og efnt til tvímenningskeppni.
Dregið var um spilafélaga og bar
mönnum saman um að lokinni
spilamennsku að þessi aðalfund-
ur hefði verið með þeim
skemmtilegri sem þeir hefðu
mæti til.
Bridgefélag
Siglufjarðar
Aðalfundur félagsins var
haldinn 19. okt. siðastliðinn. Á
fundinum var kjörin ný stjórn.
Formaður var kosinn Jón Sigur-
björnsson (96—71411) en aðrir í
stjórn eru Björn Ólafsson, Guð-
mundur Árnason, Haraldur
Árnason og Viðar Jónsson.
Að fundi loknum var spilaður
tvímenningur og varð röð fimm
efstu para þannig:
Jón Sigurbj.
— Guðbrandur Sigurbj. 49
Haraldur Árnason
— Hinrik Aðalst. 34
Anton Sigurbj.
— Bogi Sigurbj. 28
Georg Ragnarsson
— Þórleifur Haraldsson 28
Eggert Theód.
— Jóhann Þorvaldsson 27
Mánudaginn 26. okt. var hald-
inn eins kvölds tvimenningur.
Úrslit urðu þessi:
Ásgrímur Sigurbj.
— Jón Sigurbj. 89
Guðbrandur Sigurbj.
— Jóhann Þorv. 84
Haraldur Árnason
— Hinrik Aðalst. 79
Anton Sigurbj.
— Bogi Sigurbj. 78
Ari M. Þorkelsson
— Þorsteinn Jóhannsson 77
Mánudaginn 2. nóv. hófst svo
Siglufjarðarmót í tvímenningi
með þátttöku 13 para. Spilaðar
verða fjórar umferðir. Staðan
eftir fyrstu umferð er þannig:
Ásgrímur Sigurbj.
— Jón Sigurbj. 157
Niels Friðbj.
— Guðm. Árnason 143
Björn Þórðarsson
— Jóhann Möller 139
Ari M. Þorkelsson
— Þorsteinn Jóhannsson 132
Anton Sigurbj.
— Bogi Sigurbj. 132
Hreyfill — BSR —
Bæjarleiðir
Guðlaugur Nielsen og Sveinn
Kristjánsson sigruðu örugglega í
tvímenningskeppninni sem lauk
sl. mánudag. Hlutu þeir félgar
911 stig en meðalskor í keppn-
inni var 734.
Röð næstu para:
Jón Sigurðsson
— Vilhjálmur Guðmundsson 869
Flosi Ólafsson
— Sveinbjörn Kristinsson 816
Guðni Skúlason
— Halldór Magnússon 802
Svavar Magnússon
— Örn Ingólfsson 784
Jón Magnússon
— Skjöldur Eyfjörð 781
Gunnar Oddsson
— Tómas Sigurðsson 778
Birgir Sigurðsson
— Sigurður Ólafsson 763
Næsta keppni bílstjóranna
verður sveitakeppni. Spilað er í
Hreyfilshúsinu á mánudags-
kvöldum og hefst keppni kl. 20.
Bridgedeild
Breiðfirðinga-
félagsins
Fjórum umferðum er lokið í
aðalsveitakeppni félagsins og er
keppnin mjög jöfn og spennandi.
Staða efstu sveita:
Kristján Ólafsson 64
Elís R. Helgason 63
Erla Eyjólfsdóttir 61
Magnús Halldórsson 60
Marinó Kristinsson 60
Hans Nielsen 57
Kristín Þórðardóttir 50
Magnús Björnsson 48
Ingibjörg Halldórsdóttir 44
Fimmta og sjötta umferð
verður spiluð á fimmtudaginn
kemur í Hreyfilshúsinu og hefst
keppni kl. 19.30 stundvíslega.
Frá æfingu Leikfélags Keflavíkur á Rauðhettu. Hjördís Árnadóttir er þarna í
hlutverki hérans.
Leikfélag Keflavíkur
frumsýnir
LEIKFÉLAG Keflavíkur frumsýnir í
dag, laugardag, kl. 17 barnaleikritið
Rauðhettu eftir Évgeníj Schwarzt í
þýðingu Stefáns Baldurssonar. Alls
taka 18 manns þátt í sýningunni sem
verður í Félagsbíói.
Leikstjóri er Þórir Steingríms-
son og er þetta þriðja verkefni
hans hjá LK en hin voru Tobacco
Road og Sjóðleiðin til Bagdad.
Með helztu hlutverk fara Bjarney
Sigvaldadóttir, Árni Ólafsson, Jó-
-------:-------------
Rauðhettu
hann Gíslason, Ingibjörg Hafliða-
dóttir, Ingibjörg Guðnadóttir,
Lína Kjartansdóttir, Júlíus Bald-
ursson og Hjördís Árnadottir.
Leikmynd hannaði Hallmundur
Kristinsson en leikhljóð voru unn-
in í Stúdíó Stemmu. Hljómlistina í
Rauðhettu annast hljómsveitin
Box í Keflavík en hana skipa Bald-
ur Guðmundsson, Sigurður Sæv-
arsson, Óskar Nikulásson og
Ragnar Hallmannsson.
————————^
RANK XEROX
liósritunaivélar
SKRIFSTOFUTÆKNI HF
ARMULA 38.105 REYKJAVIK.
SIMI85455. PO. BOX 272.
Opið til kl. 5 í dag
ununyn
HAMRABORG 3, KÓPAVOGI, SÍMI 42011
TILBOÐ
Furusófasett: 3ja sæta sófi og 2 stólar á kr. 3.480,-
Mál: 3ja sæta I. 183 cm, d. 73 cm; stóll I. 67 cm, d. 73 cm.
Furuhillur
Hæð 180 cm, b. 80 cm,
d. 28 cm.
Verð:
2 stigar og hillur kr. 435
1 stigi og 4 hillur kr. 297
Hilla með 2 skúffum kr
357
Skrifplata 50 cm kr. 198
Hljómplöturekki kr. 274
m
llB
•TT