Morgunblaðið - 07.11.1981, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1981
35
Stuðningsmenn
Hauks og Harðar
Gagnrýni Braga
Asgeirssonar
eftir Guðna Guðnason
Varðandi grein Braga Asgeirs-
sonar í Mbl. 22. okt. síðastliðinn
með fyrirsögninni „Vegna Hauks
og Harðar".
Ég verð að viðurkenna fyrir
Braga þá staðreynd að ég er dygg-
ur stuðningsmaður Hauks og
Harðar og skammast mín ekki
fyrir það. Ég hef þá sannfæringu
að list þeirra sé merkilegt og mik-
ið fyrirbæri. Og ef hægt er að
rægja menn fyrir að berjast fyrir
sannfæringu sína þá gjöri þeir svo
vel; þeir væru örugglega minni-
hlutahópur.
Og um „pennagleði" vil ég að-
eins segja að hún hefur í gegnum
árin verið sú rót hjá íslenzkum
greinahöfundum, sem byggt hefur
upp íslenzka dagblaðamenningu.
Því er óþarfi að ráðast á hana
• >r-----------------------
FYRIR nokkru eru hafnar æfingar
fyrir jólatónleika l’assíukórsins, en
á dagskránni eru Dettingen Te De-
um eftir Hándel, auk nokkurra
smærri verka eftir innlenda og er
lenda höfunda.
Jólatónleikarnir verða í Akur-
eyrarkirkju 6. desember nk. og
koma þar fram með kórnum ein-
söngvararnir Þuríður Baldurs-
hvort heldur hjá mér eða öðrum.
Bragi'segir orðrétt: „Þótt ég sé
ekki vanur að svara lesendabréf-
um og leiði þau yfirleitt hjá mér
vegna oft á tíðum ógrundvallaðra
fullyrðinga ...“
Að mínu áliti er margt gott sem
kemur fram í þessum bréfum og
finnst mér að enginn ábyrgur fjöl-
miðlaskrifari ætti að leiða þau hjá
sér. Einstaklingar sem skrifa í
þau eru oft á tíðum ekkert ófróð-
ari eða heimskari en fræðimenn
sem hafa fasta dálka í dagblöðum.
En varðandi orðalagið „ógrund-
vallaðra fullyrðinga", sem ég tek
sem persónulegt skot á mig, er það
að segja að engar slíkar voru í
grein minni eins og lesendur geta
dæmt um. í henni tek ég fyrir
tvær „staðhæfingar" Braga úr
grein hans „Hugleiðingar á
Haustsýningu" frá 8. okt. síðast-
liðnum. Sú fyrri varðar það er
Bragi segir að það hafi mátt búast
við að verkum Hauks og Harðar
dóttir og Robert Bezdek, auk
hljómsveitar.
Á næsta ári eru liðin 10 ár frá
stofnun Passíukórsins. Af því til-
efni verður á páskatónleikum
flutt Messías eftir Hándel, sem
kórinn flutti síðast árið 1977. í
júní er svo ráðgert að flytja afr-
íkanska messu með slagverks-
hljómsveit, rokkhljómsveit og
einsöngvurum.
væri ekki óhætt á sýningunni. í
grein minni er engin ógrundvölluð
fullyrðing heldur bendi ég á þá
„staðreynd" að sýningarnefndin
hafi fullyrt að ekkert kæmi fyrir
verkin ... Einnig staðhæfir Bragi
í sömu grein að „kostnaður við
uppsetningu glerkassa sem hlíf
við verkin hafi reynst hinum ungu
listamönnum ofviða“. Við þessu
kom ég heldur ekki með „ógrund-
vallaða fullyrðingu" heldur blá-
kalda staðreynd fengna hjá Hauki
og Herði sjálfum.
Það má vera að Bragi hafi feng-
ið margar upplýsingar hjá sýn-
ingarnefndinni en ekki þær er lúta
að fjárgetu Hauks og Harðar.
Nema þessi aðili innan hennar sé
hreint og beint að segja ósatt.
Bragi segir í grein sinni 22. okt.,
að hann staðhæfði ekkert í grein
sinni „Hugleiðingar á Haustsýn-
ingu“. Ég hef bent á þessar tvær
ógrundvölluðu staðhæfingar hans
og vil því biðja Braga að taka
sjálfan til athugunar sín eigin orð:
„Það væri líka í hæsta máta al-
varlegt ef ábyrgir aðilar strá um
sig röngum fullyrðingum um jafn
viðkvæmt mál.“ (Orðrétt úr grein
Braga frá 22. okt.)
í umfjöllun sinni um „myndirn-
ar“, sem óvart eru nú sculpture-
verk (formverk), smá misritun hjá
Braga vonandi, segist hann þekkja
nægilega inn á vettvanginn til að
hafa efni á slíkum framslætti. Ég
efa ekki að hann hafi vit á hlutun-
um en framsláttur hans bendir á
óvönduð vinnubrögð og virðingar-
leysi við hinn almenna lesanda.
Sem fjölmiðlaskrifari um list
verður hann að skila hlutunum frá
sér þannig að lesandinn fái réttar
og skýrar myndir af hlutunum.
Hann verður að virða lesendur
sína og ekki henda í þá hverju sem
er. Órökstuddar fullyrðingar eru
ekki framsláttur sem er hongm til
sóma. Síst af öllu ef hann hefur
„þekkingu á vettvanginum" eða vit
á hlutunum m.ö.o.
Guðni Guðnason
A&AMi&imm vu un rna mmn
FORIÍRR RfETUR
. . hann þrýsti henni aö sér í gieðivimu .
„Fornar rætur“
Ný bók Aðalheið-
ar frá Garði
SKJALDBORG á Akureyri hefur gef-
ið út bókina „Fornar rætur“ eftir Að-
alheiði Karlsdóttur frá Garði. Þetta er
þriðja bók höfundar, hinar fyrri eru
„Þórdís á llrauná" og „Spor á vegi“.
Sagan „Fornar rætur" gerist í
svcit og kauptúni á íslandi, en leiðir
aðalsögupersónanna, Arnheiðar og
Lýðs, liggja til Svíþjóðar og Banda-
ríkjanna. Á kápusíðu segir að sagan
fjalli um örlög og ólgandi ástir.
Jólatónleikar Passíu-
kórsins í Akureyrarkirkju
er vel þekkt gæðamerki um allan heim.
Sendið ættingjum og vinum aðeins það
besta í íslenskum ullarvörum. Við göngum
frá pakkanum og sendum hann yður að kostnaðarlausu
’Tlilda Litfí
ICELAND
Opiö 9—5 virka daga
9—12 laugardaga
Hilda hf„
Borgartúni 22