Morgunblaðið - 07.11.1981, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1981
39
Eyjólfur Hallfreðs-
son Bakka - Minning
Kæddur 13. júlí 1907.
Dáinn 30. október 1981.
Eyjólfur Hallfreðsson, Bakka í
Geiradalshreppi er látinn. Hann
verður jarðsettur í heimabyggð
sinni að Garpsdal í dag.
Eyjólfur var fæddur 13. júlí árið
1907, sonur hjónanna Hallfreðs
Eyjólfssonar og Kristrúnar Jóns-
dóttur er bjuggu á Bakka.
Eyjólfur var næstelstur syst-
kina sinna en alls voru börnin sex
er upp komust, því kom það
snemma í hans hlut að vinna í
þágu heimilisins. Jörðin var frem-
ur lítil og ræktun skammt á veg
komin, bústofninn gat því ekki
verið stór.
Á fyrri hluta aldarinnar var fá-
tækt almenn hjá íslenskum bænd-
um, því varð ekki komst hjá að
vinna oft langan vinnudag til að
framfleyta stórri fjölskyldu. Þetta
var fjölskyldunni á Bakka fullljóst
því var hún samhent um að hver
stund skyldi notuð eftir því sem
best var hægt til að vinna heimil-
inu gagn.
Eyjólfur naut lítillar skóla-
menntunar, nema í skóla lífsins,
hann var betri verkamaður en al-
mennt gerðist, það var næstum
sama hvaða verk honum voru fal-
in, þau einkenndust af vandvirkni,
Skólastjórn FS á Selfossi:
Húsnæði skólans
alls ófullnægjandi
MORUGNBLAÐINU hefur borist álit
skólastjórnar Fjölbrautaskólans á
Selfossi vegna byggingarmála skólans,
og birtist það hér ordrétt.
„I ljósi þess að í fjárlagafrum-
varpi fyrir árið 1982 eru aðeins ætl-
aðar 300.000 kr. til byggingar fyrir
Fjölbrautaskólann á Selfossi bendir
skólastjórn FS á eftirfarandi:
1. Húsnæði það sem skólinn hefur
nú til umráða er alls ófullnægjandi
þannig að stofnun skólans nú í
sumar hlýtur að hafa verið með öðr-
um og veigameiri rökum, en þeim að
aðstaða væri fyrir hendi til skóla-
halds.
2. Það er augljóslega brýnt hags-
munamál Sunnlendinga að svo vel
takist til með þessa skólastofnun að
nám við Fjölbrautaskólann á Sel-
fossi verði talinn góður kostur og
nemendur sæki ekki nám við aðra
framhaldsskóla vegna þess að þeir
séu betri skólar.
3. Nemendur og kennarar við
Fjölbrautaskólann á Selfossi gera
sér grein fyrir því að það orð sem
skólinn mun fá á sig eftir fyrstu
starfsárin mun lengi loða við skól-
ann. Þeir munu því ugglaust leggja
nokkuð að sér til þess að ná góðum
árangri þrátt fyrir erfiðar ytri að-
stæður.
4. Sýni stjórnvöld byggingarmál-
um skólans hins vegar sinnuleysi
þannig að úrbætur verði ekki innan
sjónmáls mun það fljótlega hafa
mjög slæm áhrif á allt innra starf
skólans enda ekki sýnt að unnt verði
að taka nýja nemendur í skólann
nema í hæsta lagi næsta haust.
Verði Fjölbrautaskólinn á Sel-
fossi í upphafi dæmdur annars
flokks skóli verður erfiðara um vik
að hnekkja þeim dómi. Það yrði öllu
mennta- og skólastarfi á Suðurlandi
til mikils tjóns um ófyrirsjáanlega
framtíð."
trúmennsku og miklum afköstum.
Samstarf okkar Eyjólfs varð
langt eða um þrjátíu og fimm ára
skeið, á hverju ári vann hann um
lengi eða skemmri tíma í þágu
Kaupfélags Króksfjarðar, sem ég
veitti forstöðu á því tímabili, aldr-
ei féll neinn skuggi á samstarf
okkar. Samhliða landbúnaðar-
störfum og byggingavinnu í ná-
grannasveitum var Eyjólfur land-
póstur að vetrinum um áratuga-
skeið á leiðinni Króksfjarðarnes
— Búðardalur. Oft hreppti hann
vond veður og þunga færð í Gils-
firði og á Svínadal. Þetta starf
sem önnur stundaði hann með
stakri samviskusemi og atorku.
Þegar vegasamband batnaði og
farið var að ryðja snjó af vegum
var þessum ferðum landpóstsins
hætt.
Nú er glæsilegt íbúðarhús á
bakkanum fyrir ofan ána og stór
grasgefin tún, þar býr nú bróðir
Eyjóifs ásamt stórri fjölskyldu
sinni.
Það hafa margir notið hjálpandi
handa Eyjólfs á Bakka. Foreldrar
mínir bjuggu á næsta bæ við
Bakka — Valshamri — þar áttum
við börnin okkar æsku. Stutt er á
milli bæjanna, Bakkaá skiptir
löndum. Það er ánægjulegt að geta
nú rifjað upp margar góðar minn-
ingar okkar barnanna í dalnum
frá þessum árum, betri nágranna
hafa tæplega aðrir átt en við. þar
sem var fjölskyldan á Bakka.
Nafn Eyjólfs á Bakka var ekki
tengt titlum, en að mínum dómi
hefði hann borið titilinn heiðurs-
maður með sanni.
Nú hefur Eyjólfur lokið ferð
sinni hér á meðal okkar. Ég og
fjölskylda mín munum lengi
minnast hans með virðingu,
þakklæti og vinarhug.
Olafur E. Ólafsson
frá Króksfjarðarnesi
Bifreiðaeigendur athugið!
Höfum opið á laugardögum.
Bón- og þvottastööin hf.,
Sigtúni 3.
SUPRBRAIN
viðskiptatölvur
TM
SKRIFSTOFUTÆKNI HF
ARMULA 38.105 REYKJAVIK.
SiMI 85455. PO. BOX 272.
ERTU BARNSHAFANDI?
MEÐGANGA OG FÆÐING suarar þuí sem allar konur
uilja uita um meðgönguna og nýfædda bamið . . .
• Hvemig veistu fyrir víst að þú
I<)iwn
3
Laurence Pemoud
GUÐJÓN GUDNASON, yfirlæknir
mæðradeildar Heilsuvemdarstöðvar
Reykjavíkur og Fæðingarheimilis
Reykjavíkur, skrifar formála íslensku
útgáfunnar og segir þar m. a.:
„Bamsfæðing er einn merkasti atburður í
lífi konu, og allt verður að gera til þess að
hún takist sem best. Ég tel útkomu þessarar
bókar í íslenskri þýðingu stuðla meðal
annars að því að svo megi verða. “ —
- SIGURÐUR THORLACIUS læknir
þýddi bókina.
sért bamshafandi?
Verður bamið þitt eðlilegt?
Hvaða mataræði er hollast fyrir
bamið og fyrir þig sjálfa?
Hvaða lyf er óhætt að taka inn á
meðgöngutímanum?
Þartu að borða á við tvo?
Er óhætt að hafa samfarir á meðgöngutímanum?
Hvað geturðu gert til þess að varðveita vöxt þinn
og útlit?
Hvenær þarf að leggja af stað á
fæðingarstofnunina?
Hvemig slökunaræfingar henta best?
Hvemig fer fæðingin fram?
Hvemig er fæðingarstofan?
^eóganéa og fæóing
I býður upp á mikið safn hagnýtra
V upplýsinga og segir þér allt sem þú
\ þarft að vita um bamið þitt og þig
sjálfa, frá getnaði til fæðingar.
L
cc*C Bræðraborgarstíg 16, Simar: 12923 og 19156
,,Bókin ergædd mikilli hlýju og
nákuæmni, allt niðurí minnstu
smáatriði. . . framsetningin er
traustvekjandi og hefur veitt mörgum
konum öryggiskennd. “
FIGARO
,, Þú geturfræðst um allt sem þú þarft að
uita um meðgöngu og fæðingu bams . . .
skrifuð af nærfæmi og samúð. “
FEMINA
hjá
okkur
kl. 10—5 í dag
KM
-húsgögn,
Langholtsvegi 111, Reykjavík,
símar 37010 — 37144.
KÍKTU VIÐ, ÞÚ FÆRÐ ÖRUGGLEGA EITTHVAÐ VIÐ ÞITT HÆFI