Morgunblaðið - 07.11.1981, Síða 46
A
46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1981
Vfffffffffflffffffffffflffffflflffffffi
Bjarni hefur skorað
19 mörk fyrir Nettelsted
í átta leikjum með liðinu
EINS og kunnugt er leikur hand-
knattleiksmaðurinn snjalli úr Val,
Bjarni (iudmundsson, með vestur
þýska liðinu Nettelsted þetta keppn-
istímabil. Bjarni hefur staðið sig
mjög vel það sem af er keppnistíma-
bilinu og virðist enn í stöðugri sókn
sem handknattleiksmaður. Bjarni
lék með íslenska landsliðinu í mót-
inu sem fram hefur farið í Tékkó-
slóvakíu að undanförnu. En aðeins
þrjá fyrstu leikina. í gærdag varð
Bjarni að halda heim þar sem hann
á að leika með liði sínu í dag í
-deildakeppninni.
I stuttu spjalli við Mbl. sagði
Bjarni, að sér líkaði dvölin hjá
Nettelsted vel. Það hefði tekið smá
tíma að komast inn í leikkerfi lið-
sins og að kynnast þýska hand-
knattleiknum. Lið Nettelsted hef-
ur leikið átta leiki í deildinni, unn-
ið alla heimaleiki sína, fjóra tals-
ins, en tapað öllum fjórum úti-
leikjunum.
Bjarni sagði vera mikinn mun á
því að leika heima eða heiman.
Þar hefðu áhorfendur mikil áhrif
og heimaliðið væri jafnan vel stutt
af stuðningsmönnum sínum.
Bjarni hefur skorað 19 mörk í
leikjunum átta, og staðið sig með
mikilli prýði. Bjarni sagði að lið
Nettelsted gerði sér vonir um að
vera í einu af sjö efstu sætum
deildarinnar. Sterkara liðið væri
án nokkurs vafa lið Gross-
waldstad.
Varðandi landsliðshópinn sem
nú væri í Tékkóslóvakíu, sagði
Bjarni, að það væri óvenju góður
og samstilltur hópur, sem ætti
framtíðina fyrir sér.
ÞR
Nýju reglurnar í handknattleik:
Skora má úr innkasti
KINS (XI öllum er kunnugt hafa
nýjar alþjóðlegar leikreglur í hand-
knattleik tekið gildi. Sitt sýnist
hverjum um þessar reglur en ekki er
víst að öllum sé kunnugt um í hverju
þær eru fólgnar. Hér á eftir fara
mikilvægustu breytingarnar á regl-
unum.
Nýjar alþjóðlegar leikreglur í
handknattieik tóku gildi 1. ágúst
sl. og gilda næstu 4 ár.
Markmiðið með breytingunum
er: Betri og markvissari uppröðun
á reglunum, ásamt ýmsum ótví-
ræðum ákvæðum, sem auðvelda
dómgæsluna. Gefur möguleika á
hraðari leik. Kemur í veg fyrir
grófan leik án tilfinnanlegra refs-
inga hlutaðeigandi leikmanna.
Mikilvægustu breytingar: Skora
má beint úr öllum köstum, t.d.
frumkast, útkast, innkast. Horn-
kast innlimast í reglu um innkast
og framkvæmd á enda hliðarlínu.
í innkasti skal standa með a.m.k.
annan fótinn á hliðarlínunni, hinn
má vera hvar sem er.
Ef dæmt er gegn liði því, sem
hefur boltann skal sá, sem heldur
boltanum leggja hann strax niður.
(Brottvísun.)
Markvörður má yfirgefa mark-
teig án bolta og fara um allan völl-
inn.
Aðeins með leyfi dómara mega
liðsstarfsmenn eða liðsmenn um-
fram þá sem leika á vellinum,
koma inn á leikvanginn. Viðurlög
eru: fyrir leikmann, brottvísun í 2
mín., fyrir liðsstarfsmann, áminn-
ing. Regla þessi er í gildi allan
leiktímann, einnig ef leiktíminn er
stöðvaður, t.d. vegna meiðsla
leikmanns.
Brjóti leikmaður gróflega á
mótherja skal hann útilokaður;
tekur ekki meira þátt í leiknum en
skiptimaður kemur inn á eftir. 2
mínútur.
Við útkast mega mótherjar
markvarða standa við markteig-
inn.
Dómarakast: Knettinum kastað
upp milli tveggja andstæðra
leikmanna.
Refsingar gegn leikmanni á
leikvelli geta verið: Aminning,
mest ein fyrir hvern leikmann.
Brottvísun: 1. skipti 2 mín., 2.
skipti 2 mín. 3. skipti 2 mín. + útil-
okun. Utilokun fyrir gróf leikbrot,
fyrir ósæmilega hegðun. Brottvís-
un (liðið spilar með einum leikm-
anni færra það sem eftir er leiks),
fyrir ofbeldi.
Bjarkirnar 30 ára
• Yfirleitt reynir Bjarni Guðmundsson að brjótast gegnum varnir úr horn-
inu. En hér hefur hann stokkið upp fyrir utan og reynir skot.
Svona ganga hlutirnir
ekki öllu lengur
- fer meö málið fyrir
stjórnina segir Höness
EIMLEIKAFÉLAGIÐ „Björk“, sem
er starfrækt í Hafnarfirði, hefur nú
starfað í 30 ár. Þar hefur farið fram
mikil og blómleg starfsemi. Nú síð-
ustu ár hefur verið lögð áhersia á
fímleika og hefur félagið náð langt
þeirri grein.
í tilefni þess að það eru þrjátíi
ár liðin síðan félagið var stofnað,
heldur það afmælissýningu
sunnudaginn 8. nóvember kl. 15.00
í íþróttahúsinu við Strandgötu,
Hafnarfirði.'
IYHKIÐ hefur verið skrifað um það f
blöðum í Vesturl>ýskalandi hversu
illa liði Bayern Miinchcn hefur
gengið í síðustu leikjum sínum. Þá
hefur blöðunum verið tíðrætt um að
þrátt fyrir að liðið hafí leikið illa geri
Þróttur í basli
með Víkinga
TVEIR leikir fóru fram í 1. deild
íslandsmótsins í blaki í fyrrakvöld,
báðir í Hagaskólanum. Fyrst mætti
Þróttur Víkingi og sigraði Þróttur
3—2 eftir talsverðan barning. Vík-
ingur vann fyrstu hrinuna 15—11,
en Þróttur jafnaði metin, 15—4. Vík-
ingarnir ætluðu greinilega ekki að
gefa sig og unnu þriðju lotuna
15—13. Þar með var vindurinn hins
vegar úr Hæðargarðspiltunum,
Þróttur vann fjórðu hrinuna 15—5
og oddahrinuna með miklum yfír
burðum, 15—3.
Síðan mættust ÍS og UMFL og
sigraði ÍS örugglega 3—0, en loka-
tölurnar í lotunum urðu 15—3,
15-11 og 15-13.
Þá fór fram einn leikur í 1. deild
kvenna, UBK sigraði Þrótt 3—2 í
miklum baráttuleik.
þjálfarinn litlar breytingar á liðinu.
Stórgóðum leikmönnum eins og Asg-
eiri o.fl. sé haldið utan vallar og þeir
fái ekki tækifæri á að spreyta sig.
Hcfur þetta valdið mikilli gremju
meðal leikmanna þeirra sem verma
varamannabekkinn.
Uli Höness, framkvæmdastjóri
Bayern-liðins, hefur nú sagt að
fari Asgeir Sigurvinsson ekki að
fá tækifæri í leikjum með liðinu
muni hann taka fram fyrir hend-
urnar á þjálfara liðsins og ræða
málið við stjórn félagsins. Svona
gangi hlutirnir ekki öllu lengur.
Ljóst er að Höness hefur tekið upp
hanskann fyrir Asgeir.
HO/ÞR
m
,-*sr
Fimleikaflokkur frá Björkunum.
Sociedad hefur
forystu á Spáni
Ahugi á frjálsum
íþróttum í Keflavík
REAL Sociedad heldur enn naumri
forystu íspænsku deildarkeppninni í
knattspyrnu, en liðið vann góðan sig-
ur á útivelli gegn Santander um
helgina. IJrslit leikja urðu þessi:
Atl. Bilbao — Valladolid 4-0
Real Madrid — Osasuna 1-0
Real Betis — Espanol 2-0
Cadiz — Valencia 0-0
Las Palmas — Real Zaragoza 2-4
Sporting Gijon — Hercules 1-1
Castellon — Sevilla 0-3
Barcelona — Atl. Madrid 2-0
Santander — Real Sociedad 2-3
Sociedad hefur 14 stíg, en
Barcelona er í 2. sæti með 13 stig.
Real Zaragoza hefur hreppt 12
stig.
NÝVERII) fór fram innanhússmót í
frjálsum íþróttum í Keflavík. Keppt
var í atrennulausum stökkum. Drslit
urðu sem hér segir:
Langstökk án atr.: m
Hjálmtýr Ingason 3,14
Jón Jóhannsson 2,98
Stefán Friðleifsson 2,69
Yngri fl. 12—13 ára:
Garðar Jónasson 2,15
Birgir Ólafsson 2,08
Þrístökk án atr.:
Hjálmtýr Ingason 8,88
8,45
2,15
2,08
1,40
Jón Jóhannsson
Yngri fl.:
Garðar Jónasson
Birgir Ólafsson
Hástökk kvenna m. atr.:
Mikkim ísleifsdóttir
Hást. karla:
Stefán Friðleifsson 1,90
Margir af keppendunum eru
byrjendur í íþróttinni. En með til-
komu nýja íþróttahússins í Kefla-
vík hefur áhugi á frjálsum íþrótt-
um aukist mjög verulega. — þr
Ásgeir Sigurvinsson