Morgunblaðið - 14.11.1981, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 14.11.1981, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1981 3 Rut Ingólfsdóttir er formaður og framkvæmdastjóri Kammersveitar Reykjavíkur og Gunnar Egilsson fyrrum stjórnarformaður, en þau kynntu vetrarstarf Kammersveitarinnar. Ljósm. ól.K.M. Áttunda starfsár Kammersveitar Reykjavíkur: Að mestu íslensk verk á fyrstu tónleikunum FYRSTII tónleikar Kammersveitar Reykjavíkur verða á Kjarvalsstöð- um sunnudaginn 22. nóvember. Er nú að hefjast 8. starfsár sveitarinn- ar og eru fernir tónleikar á dagskrá í vetur. Nokkrir félagar Kammersveitarinnar héldu fyrir nokkru tónleika í Wándheimi og Osló og í lok mánaðarins halda þeir í tónleikaferð til Stokkhólms. Rut Ingólfsdóttir og Gunnar Egilsson kynntu vetrardagskrá Kammersveitarinnar fyrir fréttamönnum nýverið og sögðu þau hljómleikahald sveitarinnar vera orðinn fastan þátt í tónlist- arlifi Reykjavíkur. Aðsóknin væri jafnan góð að tónleikunum, enda fjölbreytni að aukast í hvers kyns tónleikahaldi og áhugi fyrir kammertónlist vax- andi. Helsta hindrun í starfi Kammersveitarinnar sögðu þau að væri sú að hafa ekki fasta æfingaaðstöðu. Færu æfingar iðulega fram á heimilum félags- manna eða í húsnæði tónlist- arskólanna þegar lausa stund væri þar að finna. Einnig vant- aði tilfinnanlega hljómleikahús, þar sem hægt væri að flytja kammertónlist í sínu rétta um- hverfi. Vegna þessa hefur Kammersveitin ekki fengið ör- uggt húsnæði fyrir tónleika sína eftir áramót. Á fyrstu tónleikunum, sem verða á Kjarvalsstöðum 22. nóv. kl. 17, verða að mestu flutt ís- lensk vérk, m.a. nýtt verk eftir Pál P. Pálsson, sem samdi það sérstaklega fyrir Svíþjóðarferð sveitarinnar. Einsöngvari er Rut Magnússon. Aðrir höfundar eru Jón Ásgeirsson, Fjölnir Stef- ánsson, Hjálmar Ragnarsson og Atli Heimir Sveinsson. Þá verð- ur einnig flutt verk eftir Jan Carlstedt. Þessi efnisskrá verður flutt á tónleikunum í Stokk- hólmi. Aðrir tónleikarnir verða í Bústaðakirkju 13. desember kl. 17. og sagði Rut Ingólfsdóttir þá vera á efnisskrá létta barokk- tónlist, sem ætti að koma gest- um í jólastemmningu. Öll verkin væru eftir Georg Philipp Tele- mann, en á árinu eru liðin 300 ár frá fæðingu hans. Eftir áramót eru ráðgerðir tónleikar 14. febrúar og 28. mars. Fyrri tón- leikarnir eru helgaðir Igor Stravinsky, sem hefði orðið 100 ára 17. júní 1982, og hafa flest verkin á þeim tónleikum ekki verið flutt hérlendis áður. Paul Zukofsky stjórnar Kammer- sveitinni á þeim tónleikum og leikur með. Síðustu tónleikar Kammersveitar Reykjavíkur verða 28. mars og eru á efnisskrá verk eftir Debussy, Barber og Beethoven. Hægt er að kaupa áskriftarmiða að öllum tónleik- unum og eru áskrifendur nú nokkuð á annað hundrað. Starfsemi Kammersveitar Reykjavíkur, sem telur 16 félaga, er sjálfboðastarf, þ.e. tónlist- armenn taka ekki greiðslu fyrir tónleikahald, en aðgangseyrir fer til að greiða ýmsan kostnað. Kammertónlist er krefjandi, en okkur er ánægja að því að leika og þegar við þurfum að leita til starfsfélaga okkar utan Kamm- ersveitarinnar eru þeir undan- tekningarlaust reiðubúnir að ljá okkur liðsinni sitt endurgjalds- laust, sögðu þau Rut og Gunnar að lokum. Yó V1WÞ Vfíj'aflR SVvPjdíWVfRíW?" Skólamót í körfubolta Grunnskólamót: Keppt er i tveimur aldursflokk- um dregnja yngri flokki 12 og 13 ára, eldri flokki 14 og 15 ára og stúlknaflokki 12—15 ára. Riðlakeppni heima í héraöi. Þátttökugjald f. 1. liö kr. 350,- f. 2. lið kr. 600,- og f. 3. lið 800,-. Framhaldsskólamót: Keppt verður í riölum stúlkna og pilta um allt land. Þátttökugjald 1. lið kr. 500,- 2. lið kr. 800,-. Þátttökutilkynningar berist KKÍ, Box 864, 121 Reykjavík, sími 91-85949. Finnur Ingólfsson, formaður stúdentaráðs: Fjármálaráðherra hefur svik- ið loforð um aukafjárfestingu „RAGNAR Arnalds, fjármálaráð- herra, hefur séð ástæðu til þess að svara mér í Morgunblaðinu sunnu- daginn 8. nóvember. Þar svarar hann ekki nema hluta af greininni og finnst þetta vera mjög ósann- gjörn árás á Alþýðubandalagið af minni hálfu og segist styðja frum- varp um námslán og námsstyrki, en það er tóm della að okkar mati og hefur það greinilega komið fram,“ sagði Finnur Ingólfsson, formaður stúdentaráðs, í samtali við Morgun- blaðið. „Guðrún Helgadóttir er eini fulltrúi stjórnmálaflokks, sem ekki hefur séð ástæðu til að svara stúdentahreyfingunni um það hver sé afstaða hennar og hennar flokks til frumvarpsins. Þess vegna lítum við svo á að það sé ekki búið að gera þessi mál upp innan Alþýðubandalagsins. Síðan er Ragnar Arnalds að skjóta sér á bak við það, bæði í svarinu til mín og útvarpsviðtali, að þetta frum- varp um námslán og námsstyrki sé ekki orðið að lögum. Þess vegna geti hann ekki tryggt lánasjóðnum aukið fjármagn til þess að hægt sé að hækka lánahlutfallið úr 90 í 95%. Ef það hefði verið vilji hjá Ragnari Arnalds fyrir því að framlag hækki i 100%, en það get- um við ekki ímyndað okkur að sé rétt, hefði honum verið í lófa lagið að gera svo, því í fjárveitinga- beiðni Lánasjóðsins er gert ráð fyrir 5% hækkun, þ.e. í 95%. Ing- var Gíslason gerir það sama að tillögu sinni frá menntamálaráðu- neytinu til fjármálaráðuneytisins. En þar er það Ragnar Arnalds, sem sker þetta niður um 5%, það er okkur kunnugt um. Það, sem við teljum okkur hafa mjög öruggar heimildir fyrir varðandi frum- varpið um námslán og náms- styrki, er að það sé Ragnar Arn- alds, sem tefji frumvarpið í ríkis- stjórn. Það sem verra er, er að hann minnist ekki á fjárveitingar til Félagsstofnunar stúdenta, sem ég gerði að umtalsefni í spjallinu við mig. Og hann segir í þessu svari sínu á sunnudaginn að hann vilji svara þessari „ósanngjörnu árás“ af hörku. Til að sannleikurinn komi ennfremur í ljós hvað varðar fjárveitingar til FS, er rétt að benda á, að um mánaðamótin maí-júní fórum við fram á að fá aukafjárveitingu til þess að við gætum haldið áfram endurbygg- ingu á Nýja-Garði til þess að hægt væri að hleypa stúdentum þangað inn í vetur vegna þess að öryggis- eftirlit ríkisins hafði sett þau skil- yrði að stúdentar myndu ekki búa þar fleiri vetur ef ekki yrðu gerðar viðunandi úrbætur á húsnæðinu. Okkar fulltrúar fóru á fund Ragn- ars Arnalds og fengu jákvæðar undirtektir hjá fjármálaráðherr- anum. Síðan var haft samband við menntamálaráðuneytið og þess óskað að það sendi fjármálaráðu- neytinu bréf þar sem þessarar aukafjárveitingar væri óskað, sem var gert. Síðan fór þáverandi framkvæmdastjóri FS á fund fjár- málaráðherra, Ragnars Arnalds, og ræddi þetta við hann og fékk þau svör að búið væri að ákveða 500.000 króna aukafjárveitingu til Félagsstofnunar stúdenta til þess að hægt væri að standa við endur- bætur á Nýja-Garði. Þá skeður það, þegar við komum í september til þess að ná í peningana eins og um var talað, að Ragnar Arnalds kannast ekki neitt við að hafa gef- ið þetta loforð. Þá höfðum við þeg- ar farið út í nauðsynlegar fram- kvæmdir vegna áðurnefnds lof- orðs, en þar sem engir peningar fást, er fjárhagur okkar mjög bág- ur. Okkur finnst það koma úr hörð- ustu átt að fulltrúi Alþýðubanda- lagsins í ríkisstjórn komi svona fram, þar sem Þjóðviljinn, mál- gagn Alþýðubandalagsins, hefur nýlega haldið uppi „leiksýningu“ í sambandi við húsnæðisvandann almennt á höfuðborgarsvæðinu. Þegar svo á að reyna að gera eitthvað í því að leysa húsnæðis- vanda stúdenta, eru fulltrúar Al- þýðubandalagsins alls ekki tilbún- ir til þess að taka þátt í því. Því lítum við svo á að húsnæðisvanda- skrif Þjóðviljans hafi ekkert verið nema sýndarmennska. Þá vil ég taka það fram, til að koma í veg fyrir misskilning, að þau orð, sem eftir mér eru höfð í Morgunblaðinu um að Ragnar Árnason, fyrrverandi stjórnarfor- maður FS, hafi gefið það í skyn að samvinna Umbótasinna og Vöku innan stúdentaráðs, gæti þýtt samdrátt á fjárveitingum til stúd- entahreyfingarinnar, eru sönn. Þau voru hins vegar ekki sögð við mig, heldur annan af oddvitum okkar, Stefán Matthiasson. Þann- ig að þau standa óhögguð," sagði Finnur að lokum. Vitni vantar ÞANN 6. nóvember síðastliðinn varð árekstur á milli kl. 17 og 18. Bifreiðirnar R-16029 og R-10450 lentu í árekstri á gatnamótum Ell- iðavogs og Súðavogs, en þar er U-beygjubann. Vitni, sem var á staðnum, er vinsamlega beðið að gefa sig fram við lögregluna. Sigrídur Asgeirsdóttir. 17 XVon ur í fremstu fylkingu Viö undirritaðir, kjósendur Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík heitum á allt sjálfstæðisfólk að leggja Sigríði Ásgeirsdóttur hdl. lið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins vegna borgarstjórnarkosninga og velja þannig hæfa konu í fremstu fylkingu. Ágúst Hafberg, framkvæmdastjóri Ásgeir Hjarnason, framkvæmdastjóri Báróur Á. Steingrímsson, fisksaii Björn l'órhallsson. viðskiptafræðingur Böðvar Einarsson, nemi Edgar (luðinundsson, byggingarverkfr. (lunnlaug Emilsdóttir, húsmóðir Haraldur Blöndal, héraðsdómslögmaður Helga Jóhannsdóttir, verslunarmaður Hilmar Xorðfjörð, loftskeytamaður Hrönn llafliðadottir, veitingamaður Kristín Magnúsdóttir, húsmóðir Kristján (luðbjartsson, fulltrúi Olafía Sigurðardóttir, matráðskona Olafur Örn Jónsson, skipstjóri Bétur Kr. Hafstein, héraðsdómslögmaður Kagnar Ejalar Lárusson, sóknarprestur Sverrir V. Bernhöft, kaupmaður l'nnur Jónasdóttir, frú Þórir Kr. Þórðarson, prófessor

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.