Morgunblaðið - 14.11.1981, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 14.11.1981, Blaðsíða 48
Síminn á afgreiósiunni er 83033 orj0iit>Wí>íití» Srmi á ritstjórn og skrifstofu: 10100 LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1981 Ahrif gengisfellingarinnar: Mikil verdhækkun á heimilistækjum TALSVERÐAR verdhækkanir urdu á heimilistækjum hvers konar við gengisfellinguna á dögunum, og í gær fékk Morgunbladið nokk- ur dæmi um hækkanir í krónutölum hjá verslunum í Reykjavík. Dæmi um verðhækkun á eldavél er, að fyrir gengisfell- ingu kostaði eldavél 4.852 krónur, en kostar nú 5.175. Uppþvo'ttavél sém áður kost- aði 1271,60, kostar nú 1356,30 kr. Vöfflujárn er áður kostaði 640 kr. kostar nú 683 kr. ís- skápur er áður var á 5.405 krónur, er nú kominn í 5.765 krónur. Hlutfallslega sömu hækkanir hafa orðið á þvotta- vélum, ryksugum, brauðrist- um, hárþurrkum, sjónvarps- og myndsegulbandstækjum og hljómflutningstækjum, sem og öllum öðrum innfluttum rafmagnstækjum. Verðhækkanir hafa þó ekki alls staðar tekið gildi ennþá, vegna birgða sem til voru, en samkvæmt upplýsingum er Morgunblaðið fékk í verslun- um í gær munu þær birgðir óvíða endast nema til mánu- dags, og eru þegar búnar víð- ast hvar. Byggðasjóður: Milljón til viðbótar til Raufarhafnar Á FUNDl byggðasjóðs í vik- unni var samþykkt að ábyrgjast eina milljón króna til viðbótar vegna Jökuls hf. á Raufarhöfn. Áður hefur fyrirtækið fengið 2 milljónir króna frá Landsbankanum með ábyrgð Byggðasjóðs. Miklir erfiðleikar hafa verið í útgerð togarans Rauðanúps síðustu mánuði og lá skipið lengi bundið við bryggju. Síðustu vikur hefur skipið hins vegar verið við veiðar, en landað afla sínum erlend- is. Lítil vinna hefur því verið í frystihúsi Jökuls. Litlar breyting- ar við Kröflu LOKIi) er nú mælingum á Kröflu- svæðinu en að þeim hafa jarðvís- indamenn unnið síðustu vikur. Niðurstaða þeirra eru m.a. þær, að mjög litlar breytingar hafa orðið á svæðinu nema hvað land hcfur risið örlítið og þá helst við Leirhnjúk. Axel Björnsson hjá Orkustofn- un tjáði Mbl., að mælingar þessar væru stundaðar reglulega á tveggja mánaða fresti og bornar saman niðurstöður. Þess á milli eru framkvæmdar hallamæling- ar. Sem fyrr segir er niðurstaðan sú að land rísi hægar en áður. Hámarksrishraði er nú 1 mm á dag, en hefur verið milli 5 og 10 mm á dag að undanförnu. Þá sagði Axel að á allra síðustu dög- um hefði land tekið að síga og sprungur hætt að gliðna. Ekki kvaðst Axel geta túlkað þessar niðurstöður á einn eða annan veg, ógjörningur væri að segja hvort hræringum á svæðinu væri að ljúka. Sagði hann menn áfram vera í óvissu og að mælingum yrði haldið áfram. Billedringen, símamynd. Dr. Jónas Kristjánsson, forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar afhendir, Knud Enggárd Ijósprentaða útgáfu Skarðsbókar; gjöf frá Árnastofnun og Sverri Kristinssyni bókaútgefanda til danska Þjóðþingsins. Danska Þjóðþinginu gefín Skarðsbók ARNASTOFNUN og Lögberg, bókaforlag Sverris Kristinssonar, hafa gefið danska Þjóðþinginu Ijósprentaða útgáfu af Skarðsbók, og afhenti dr. Jónas Kristjánsson bókina við hátíðlega athöfn í Kristjánsborg í fyrradag. Ætlunin hafði verið að K.B. Andersen, forseti þingsins og fyrrum ráðherra, tæki við bók- inni, en svo varð ekki vegna óvæntra anna í þinginu. K.B. Andersen átti einna stærstan þátt í að Danir skiluðu handrit- unum aftur, og átti gjöfin að vera þakklætisvottur til hans persónulega, um leið og þinginu væri þakkað. — í hans stað tók Knud Enggárd fyrrum ráðherra við bókinni, en hann er varafor- seti Þjóðþingsins. Skammtímasamningur ASI og vinnuveitenda í burðarliðnum? MJÖG mikil hreyfíng komst á kjarasamninga milli Alþýðusam- bands íslands annars vegar, og Vinnuveitendasambands Islands og Vinnumálasambands samvinnufélaga hins vegar, síðdegis í gær og var það mat samningamanna, að dregið gæti til tíðinda milli aðila þegar í gærkveldi. Viðræðurnar snerust um samning fram á vor og var talið líklegt að kjaradeila bókagerðarmanna og blaða- manna samtvinnaðist hugsanlegri lausn heildarkjarasamninga í landinu. Eins og áður sagði, kom hugmyndin um skammtíma- samning fyrst fram á mið- vikudag, en það var ekki fyrr en síðdegis í gær, að sátta- nefnd beindi viðræðum inn á Bflar fuku af vegum og áfram er spáð roki TALSVERT hvassviðri var af suðaustri suðvestan- og vestanlands í gær og má búast við roki af suðvestan og rigningu eða slyddu yfir helgina. Síðdegis í gær fuku tvær bifreiðar út af vegum og áætlunarbifreið á leið í Stykkishólm var 4 tímaá milli Grundarfjarðar og Stykkishólms, en venjulega er sú leið ekin á 45 mínútum eða skemmri tíma. Áætlunarbifreið frá SBK fór út af veginum á Arnarneshæð um klukkan 15 í gær en vindhviða hreif bifreiðina á háhæðinni. Lenti hún á staur á vegarkantin- um, en engan sakaði. í Borgarfirði fauk jeppabifreið út af veginum, en að Síðumúla í Borgarfirði og á Stórhöfða í Vestmannaeyjum mældist mestur vindhraði síðdegis Á MIÐNÆTTI í nótt skall á verkfall Félags bókagerðar- manna. Af þeim sökum kemur Morgunblaðið ekki út á ný, fyrr en samningar hafa tekizt. Jafn- framt kemur Lesbók Morgun- blaðsins ekki út um þessa helgi. t gær. Áætlunarbifreiðin á leið til Stykkishólms lenti í erfiðleikum eins og áður sagði og sagði bíl- stjórinn að sérstaklega hefði gengið illa er komið var út fyrir Hraunsfjörðinn á leið til Grund- arfjarðar. í gærkvöldi átti að hefj- ast helgrrmót í skák á Hellis- sandi, en mótinu var frestað þang- að til í dag þar sem keppendur voru ekki allir komnir á vettvang í gær. Ýmsum samkomum var aflýst vegna veðurs og m.a. á Ólafsvík var kennsla í grunnskólanum felld niður eftir hádegi. þessa braut. Fyrstu áþreif- ingar bentu til áhuga beggja aðila og áttu samningamenn von á næturfundi og að línur myndu skýrast í nótt. Þessi var staða mála í gærkveldi klukkan 22, er Morgunblaðið fór í prentun, óvenju snemma vegna verkfalls bókagerðar- manna. Guðlaugur Þorvalds- son ríkissáttasemjari varðist í gærkveldi allra frétta af gangi mála, sagði þau til „alvarlegr- ar skoðunar", en á „afskaplega viðkvæmu stigi“. í gærkveldi var ekki farið að ræða að ráði lengd samnings, grunnkaupshækkun eða önnur atriði í hugsanlegum samn- ingi. Þó töldu fulltrúar laun- þega einsýnt, að ríkisstjórnin yrði að gefa vilyrði fyrir að vísitala Olafslaga tæki ekki gildi um áramót, eins og lög gera ráð fyrir. Þeir fulltrúar verkalýðsfélaga er Mbl. hafði tal af sögðu það ekki fýsilegt fyrir launafólk að fara út í að- gerðir í desembermánuði og því væri hyggilegt að semja nú til skamms tíma. Einnig var bent á, að sjómenn hafa hótað að hefja ekki róðra eftir ára- mót nema fiskverð liggji fyrir. Því gæti allt eins komið til verkbanna á landverkafólk með lausa samninga þá. Flugleiðir: Breiðþoturekstur gæti bætt afkomuna STJORN Flugleiða er sammála um að breiðþotufekstur í Norður Atlantshafsfluginu gæti hugsanlega orðið til að bæta verulega rekstrar afkomu félagsins, en um þetta mál var rætt á stjórnarfundi sl. fímratu- dag. I frétt frá Flugleiðum segir m.a.: Fjárhagsstaða félagsins er hins vegar svo veik, að félagið treystir sér ekki að sinni til að taka á sig alfarið þá áhættu, sem samfara er breiðþoturekstri nema til komi veruleg aðstoð stjórn- valda. Stjórn félagsins hefur þvi ákveðið að áfram verði haldið rekstri DC-8-flugvéla á Norður- Atlantshafsflugleiðinni þar til forsendur kunna að breytast.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.