Morgunblaðið - 14.11.1981, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1981
TISKUVERSLUN
BARNANA
MIÐBÆJARMARKAÐNUM
AÐALSTRÆTI9 SÍMI27620 REYKJAVÍI
TISKUVERSLUN
BARNANA
f
MIÐBÆJARMARKAÐNUM
AÐALSTRÆTI9 SÍMI27620 REYKJAVÍK
„Islenska landsliðið
á að hafa
NOKKRAR umræður hafa farið fram
síðustu daga þar sem gagnrýni hefur
komið fram hjá VTkingum á stjórn HSÍ
vegna ferðar landsliðsins til Tékkósló-
vakíu. Mbl. innti formann HSÍ eftir
hans sjónarmiði á málinu.
Varðandi umræðu þá sem fram
hefur farið í Morgunblaðinu síðast-
liðna daga, varðandi ummæli fyrir-
liða Víkings, að HSÍ hefði sett allan
undirbúning Víkings úr skorðum, er
rétt að benda á eftirfarandi:
1. íslenska landsliðið á og verður
alltaf að hafa forgang í verkefnum
sínum.
2 Það var vitað með meira en 'k árs
fyrirvara um ferðir landsliðsins til
Tékkóslóvakíu.
3 Það líður vika á milli síðasta
landsleiks og Evrópuleiks Víkings
við Atletico Madrid. Oft hefur tím-
inn verið miklu naumari og þá hef-
ur ekki verið kvartað.
Ég er sannfærður um það að lands-
liðsmenn úr Víkingi og Víkingur sem
lið. skaðast síst á þátttöku þeirra í
landsliði. í undirbúningi fyrir lands-
leiki fá þeir góða þjálfun og við þátt-
forgang
töku í landsleikjum dýrmæta
reynslu.
Víkingar eiga mjög gott keppnislið
og marga snjalla leikmenn. Mín
besta ósk þeim til handa í dag, er að
þeim takist vel upp á móti Spánverj-
um með þá Pál Björgvinsson fyrir-
liða liðsins og Ólaf Jónsson fyrirliða
landsliðsins í broddi fylkingar.
Víkingar, gangi ykkur vel, áfram
Víkingur.
Tekst Víkingi
að klekkja á
Atletico?
íslandsmeistarar Víkings mæta
spænska meistaraliðinu Atletico
Madrid í fyrri leik liðanna í Evrópu-
keppni meistaraliða í handknattleik
á morgun. Fer leikurinn fram í
Laugardalshöllinni og hefst hann
klukkan 20.00. Þetta spænska lið er
hið sama og Valur sló út í þessari
sömu keppni fyrir 2 árum.
Þegar Ponna bróður
svelgdist á
ÞAÐ ER leitt til þess að vita að kynn-
ing okkar Vfkinga fyrir Evrópuleikinn í
handknattleik hafi orðið þess valdandi
að bróður mínum Jóni H. Karlssyni
(Ponna) svelgdist á morgunkaffinu á
miðvikudagsmorguninn. En eins og
fram kom í grein Jóns í Morgunblaðinu
á rimmtudaginn fer það mjög í „Vals-
taugar" hans að lcikmenn Víkings og
forráðamenn handknattleiksdeildar
Víkings hafi sett fram ákveðna gagn-
rýni á skipulag landsliðsmála og sam-
skiptin við HSI. Og að gefnu tilefni vil
ég benda Jóni á að hvergi er að finna
ádeilu á landsliðsþjálfara HSÍ í skrif-
um um Evrópuleikinn nk. sunnudag.
Eins og Jón bendir á „er það HSÍ-
þing sem er æðsta vald í handknatt-
leiksmálum og þar eru tillögur sam-
þykktar og heildarstefnan mótuð“.
Því miður er ekki til nein stefna í
handknattleiksmálum á íslandi í dag.
Og á síðasta HSÍ-þingi var ekki til um-
ræðu nein framtíðarstefna í hand-
knattleiksmálum. Hinsvegar er það
nauðsynlegt að HSI móti stefnu til
3—4 ára í handknattleiksmálum á ís-
landi. Því ef fram heldur sem horfir
verða áhorfendapallarnir tómir á vel
flestum leikjum í íslandsmótinu í
handknattleik.
Mín skoðun er sú að við skipulagn-
ingu handknattleiksmála eigi að
leggja miklu meiri áherslu á ís-
landsmótið, framkvæmd þess og
skipulag.
„HSÍ er jú ekkert annað en félögin
sjálf,“ segir Jón réttilega í grein
hans og kvikmyndir. Efnisþráðurinn er oftast hversdagslegur
veruleiki sem höfundur blæs lífi í meö sínu sérkennilega hug-
myndaflugi og skopskyni, stundum sannkölluðum gálgahúmor.
FÆST HJÁ NÆSTA BÓKSALA
Hraffn
Gunnlaugsson
Smásagnasafn
eftir Hrafn
Gunnlaugsson
sver sig um
margt í ætt
viö fyrri verk
höfundarins,
bæði fyrri
skáldskap
Almenna
bókafélagið
Austurstræti 18, sími 25544,
Skemmuvegi 36 Kópavogi, sími 73055.
sinni, en ef áhugi almennings, leik-
manna og stjórnarmanna í hand-
knattleiknum dvínar á íslandsmót-
inu verður enginn grundvöllur til
frekari uppbyggingar landsliðsins.
Ég tel að við skipulagningu hand-
knattleiksmála á Islandi verði að
taka tillit til þriggja megin atriða,
þ.e. Islandsmóta, landsleikja og Evr-
ópuleikja. Nauðsynlegt er að ákveða
fyrirfram á hvað aðaláhersla skuli
lögð hverju sinni. Og ég er þeirrar
skoðunar að á þessu keppnistímabili
hefði átt að leggja aðaláherslu á Evr-
ópukeppnina og íslandsmótið og að á
næsta keppnistímabili verði að
leggja áherslu á iandsliðið vegna
B-keppninnar 1983.
Stjórn HSÍ veit á hvaða tíma Evr-
ópuleikirnir fara fram á hverju
hausti. En þegar landsliðsdagskráin
og mótaskrá HSÍ ’81—’82 er skoðuð
er Ijóst að ekkert tillit er tekið til
þess að þrjú íslensk félagslið taka
þátt í Evrópukeppninni í ár.
Hilmar Björnsson hefur bent á
nauðsyn þess að félögin og landsliöið
nái algjörri samstöðu um mótafyr-
irkomulag og forgangsverkefni á
hverjum tíma og á þar við Evrópu-
keppni og landsleiki. Þessu er ég al-
gjörlega sammála en því miður hefur
ekki verið farið eftir þessari ábend-
ingu landsliðsþjálfarans. Ég tel að
komandi Evrópuleikur Víkings hefði
átt að vera algjört forgangsverkefni
fyrir leikmenn liðsins og að þeir
hefðu ekki átt að taka þátt í keppnis-
ferðinni til Tékkóslóvakíu. En ég tel
að sú keppnisferð hafi verið tíma-
skekkja og að litlum fjármunuin HSÍ
hafi verið illa varið í ferðakostnað 20
manna til Tékkóslóvakíu.
Þátttaka Valsmanna í Evrópu-
keppni hefur á sl. árum vakið verð-
skuldaða athygli og þeir hafa þar náð
lengst íslenskra liða. En greinilegt er
á grein Jóns í Morgunblaðinu á
fimmtudaginn að honum sárnar það
mjög að Valur skuli ekki hafa komist
í Evrópukeppni síðustu keppnistíma-
bilin.
En vegna ummæla Jóns út af tapi
Valsmanna í Ungverjalandi 1976 þá
er það mín skoðun að auðvitaö töp-
uðu Valsmenn leiknum með 11 mörk-
um vegna þátttöku 5 Valsmanna í
landsliðsferð til Póllands.
Við Víkingar þökkum Jóni bróður
fyrir þátt hans í að auglýsa Evrópu-
leik Víkings og Atletico Madrid. En
það rými sem grein hans tekur í
Morgunblaðinu kostar kr. 2.754,- ef
til auglýsinga væri.
Vonandi tekst Víkingum, FH og
Þrótti að komast í þriðju umferð
Evrópukeppninnar í handknattleik.
Og vissulega yrði það mikil hvatning
og auglýsing fyrir íslenskan hand-
knattleik.
Að lokum hvet ég Ponna til þess að
mæta í Höllina á sunnudaginn og
hvetja okkur Víkinga til sigurs yfir
Atletico Madrid.
Með kveðju.
Heimir Karlsson.