Morgunblaðið - 14.11.1981, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 14.11.1981, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1981 21 Haustskemmtun Nordmannslaget AÐALFUNDUR í Nordmannslag- et var haldinn 22. okt. sl. í Nor- ræna húsinu. Jan Even Wiken var endurkosinn formaður, en í stjórn voru kosin Kolbjörn Akerli, Reid- un Jonasson, Solveig Jonsson og Sissel Einarsson. Félagið byrjar starfsárið með haustskemmtun í Kiwanishúsinu, Brautarholti 26, í dag og verður framreiddur norsk- ur matur. „Frá formennsku til fiskifræði“ „FRÁ formennsku til fiskifræði", nefnist fyrirlestur, sem Gísli Pálsson mannfræðingur heldur á vegum Félags þjóðfélagsfræðinga í dag, laugardag kl. 14. Fyrirlest- urinn verður haldinn í stofu 102 Lögbergi. Leiðrétting í FRÁSÖGN af útkomu þriðja bindis af Sögu Reykjavíkurskóla urðu hvimleiðar villur í mynda- texta, sem frásögn fylgdi. í fyrsta lagi láðizt að geta þess, að Hrólfur Halldórsson, framkvæmdastjóri Menningarsjóðs, væri á myndinni, í öðru lagi var föðurnafn Heimis Þorleifssonar rangt og í þriðja lagi var upptalning í myndatexta ekki í samræmi við röðun persóna á myndinni. Eru viðkomandi beðnir velvirðingar á þessum skekkjum. FRA DAIHATSU Hiá okkur er enn ekki komin gengisfelling Viö eigum örfáa Daihatsu Charade á sérlega hagstæöu veröi. DAIHATSUUMBOÐIÐ ÁRMÚLA 23. SÍMI 85870—39179. VANTAR ÞIG VINNU (n VANTAR ÞIG FÓLK í tP t>l ALGI.ÝSIR LM ALLT LAND ÞEGAR Þl AL’G- LYSIR I MORGLNBLADIM GUÐRÚN Á.SÍMONAR ÞURÍÐUR PÁLSDÓTTIR ENDURMINNINGAR ÚR ÓPERUM ENDURMINNINGAR ÚR ÓPERUM Flytjendur Guðrún Á. Símonar og Puríður Palsdóttir, meðsöngvarar: Guðmundur Guðjónsson, Guðmundur Jónsson, Magnús Jónsson og Kristinn Hallsson. Atriði úr m.a: La Bohéme, Carmen, Aida og Töfraflautunni. Það má heita mikið lán, að varðveist hafa þessi sýnishom af óperu- söng á íslandi frá þeim tíma, sem óperan var að stíga sín fyrstu skref hérlendis. Flestar upptökumar vom gerðar á sviði eða í hljómleikasal meðan á opinbemm flutningi stóð, en frumupptökumar hafa flestar glat- ast. Stór hluti þess, sem varðveitt er á þessum plötum, er að þakka áhugamönnum, sem hljóðritað hafa útvarpssendingar við misjöfn skilyrði. FÁLKINN*

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.