Morgunblaðið - 14.11.1981, Side 19

Morgunblaðið - 14.11.1981, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1981 19 • • TROLL Myndlist Valtýr Pétursson Ef meistari Þorbergur hefði verið ofanjarðar, fer það ekki milli mála, að honum hefði bætzt einn sérfræðingur í þann merka hóp þeirrar stéttar, er hann kom sér upp um ævina. Það er tröllateikn- arinn Haukur Halldórsson, sem ég á hér við, en hann hefur efnt til sýningar á teikningum sínum af tröllum í Gallery Lækjartorgi. Það eru eingöngu myndir úr þjóðsögum okkar á þessari fyrstu einkasýningu Hauks. Hann hefur lagt sérstaka stund á tröll og allt, er þeim fylgir. Á miðju gólfi er risastór krumla, er gefur manni þá tilfinningu, að komið sé á fund hinna ofurvöxnu, og þessi skúlptúr verkar eins og áminning til mennskra manna um stórleik og mátt þess óskynjanlega. Á sýn- ingu Hauks eru eingöngu teikn- ingar, enda er hann að atvinnu auglýsingateiknari. Samt virðast tröllin eiga hug hans að mestu, ef ekki að öllu. Þarna eru saman komin 38 verk, og komið víða við í þjóðtrú og réttast sagt: Tröll ráða hér ríkjum. Það er stemmning þjóðsögunnar, sem er hér við- fangsefni teiknarans, og hann seg- „Uppgjörið“ — farandsýning í skólum og á vinnustöðum ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ mun um næstu mánaðamót hefja far- andsýningar á nýju verki eftir Gunnar Gunnarsson, sem nefn- ist „Uppgjörið", eða „hvernig ung kona kemst í vanda og gerir upp hug sinn“. Aðalhlutverk eru í höndum Eddu Þórarinsdóttur og Guð- mundar Magnússonar, en hann hefur ekki leikið lengi vegna lömunar sem hann hlaut fyrir nokkrum árum. Leikritið er samið í tilefni af ári fatlaðra, og verður sýnt í skólum og á vinnu- stöðum í vetur. Karólína Ei- ríksdóttir semur tónlistina og leikstjóri er Sigmundur Örn Arngrímsson. Leikhópurinn á æfingu fyrir skömmu. Krá vinstri: Karólína, Gunnar, Guðmundur, Kdda og Sig- mundur Örn. ir sjálfur, að efnið sé hvergi tæmt. Hann eigi enn eftir efnivið í marga mynd, og er það vart að efa. Sem tjáningarform er teikn- ing sérlega viðkvæm listgrein og verður að hafa afar næma tilfinn- ingu fyrir línu og formi, ef vel á að vera. Haukur Halldórsson hefur hugmyndaflug og kemur efni hverrar sögu vel til áhorfenda. Hann nær í sum þessara verk spennu, sem nátengd er þjóðsögu og trú á hið yfirnáttúrulega. Hann hefur visst áræði í teikningu sinni, en á stundum vill vanta átak, og því ber nokkuð á grátónum, sem ef til vill eru ekki æskilegir. Haukur vinnur myndir sínar af natni og leggur í þær mikið handbragð, og enginn efast um, að þessi verk eru gerð af upplifun og kunnáttu á sínu sviði. Islenskar þjóðsögur eru guilnáma fyrir þá er vilja myndskreyta þær, og margir af okkar bestu listamönnum voru á sínum tíma iðnir við þessi við- fangsefni. Má í því sambandi nefna Ásgrím Jónsson og Mugg. Það er því skemmtilegt til þess að vita, að á þeirri tækniöld, er við nú lifum, skuli vera til menn, er sækja í þessa fjársjóði. Tröll og aftur tröll og enn tröll, gæti þessi sýning í Gallery Lækj- artorgi heitið. Hún hefur sérstak- an blæ og teikningarnar segja okkur mikla sögu. Þegar ég leit þarna við, fannst mér þessar myndir vera nokkuð jafngóðar í byggingu og meðferð allri. Það mætti því segja með sanni, að þetta væri jöfn sýning. Hlutirnir eru í föstu formi, og teiknarinn gerir fáar kórvillur. Enda hættu- legt, þegar tröll eiga í hlut. Mér finnst Haukur Halldórsson komast vel frá verkefnum sinum, en hann nær hvergi þeim styrk, sem til að mynda Muggur gæðir sín tröll, en þau eru sérstakur kapítuli í íslenskri myndlist. Þarna í Gallery Lækjartorgi er ágætt sýningaraðsetur, og verkin fara vel þar á veggjum. Þetta er í fyrsta skipti, sem ég kem þarna inn fyrir dyr, og hafði ég ánægju af. Litlu pakkarnir fara líka í gáma fljótt og örugglega WESTON POIM^ BIRMINGHAM ^ELIXSTOWE <-T^\ LONDON Fimm vörumóttökustöðvar í Englandi auðvelda flutninginn London McGregor Cory Cargo Services, Bridgewater Road, Stratford, London, E15 2 JZ. Birmingham Guymers (Transport) Ltd., Ten Acres, Station Road. RUSHALL, Staffs. Leeds Archbold Freightage Ltd. Albert Road, Morley, Nr. LEEDS, LS27 8TT. 2 hafnir Vikulega frá Felixstowe Mc Gregor Gow and Holland Ltd. Trelawny House. The Dock, Felixstowe, Suffolk IP 118TT, England. Hálfsmánaöarlega frá Weston Point C. Shaw Lovell and Sons Ltd. Dockside. Weston Point Docks, Runcorn Cheshire, WA 7 4HG, Scotland. Taktu ný skip og nýja tækni í þína þjónustu Alla leið með EIMSKIP SIMI 27100 * (Ijósm. Mbl.: Kri.stján)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.