Morgunblaðið - 14.11.1981, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1981
27
Ólafur Sigurðsson
Vatnskoti - Minning
\
11
I
*mm
jtleðöur
á morgun
Guðspjall dagsins:
Matt. 18.: Hve oft á að
fyrirgefa?
OÓMKIRKJAN: Kl. 11 messa. Sr.
Hjalti Guðmundsson. Kl. 2 messa.
Sr. Þórir Stephensen. Fermingar-
börn lesa bæn og ritningartexta.
Þess er vænt að börnin og foreldr-
ar þeirra fjölmenni til messunnar.
Dómkórinn syngur, organleikari
Marteinn H. Friðriksson.
ÁRBÆJARPRESTAKALL: Barna-
samkoma í safnaðarheimili Árbæj-
arsóknar kl. 10.30 árd. Guðsþjón-
usta í safnaöarheimilinu kl. 2.
Fermd verður i messunni Hjördis
Ólöf Jóhannadóttir, Hjallaseli 14.
Sr. Guðmundur Þorsteinsson.
ÁSPRESTAKALL: Messa aö Norö-
urbrún 1 kl. 2. Sr. Árni Bergur Sig-
urbjörnsson.
BREIOHOLTSPRESTAKALL:
Barnasamkoma kl. 11 árd. Messa
kl. 2 e.h. í Breiöholtsskóla. Sr. Lár-
us Halldórsson.
BÚSTADAKIRKJA: Barnasam-
koma kl. 11. Messa kl. 2. Organ-
leikari Guöni Þ. Guðmundsson. Sr.
Ólafur Skúlason.
DIGRANESPRESTAK ALL: Barna-
samkoma í safnaöarhoimilinu viö
Bjarnhólastíg kl. 11. Guösþjónusta
í Kópavogskirkju kl. 2. Sr. Þorberg-
ur Kristjánsson.
ELLIHEIMILIO GRUND: Messa kl.
14. Séra Sigurjón Guðjónsson
fyrrv. prófastur messar. Félag
fyrrverandi sóknarpesta.
FELLA- OG HÓLAPRESTAKALL:
Laugard.: Barnasamkoma í Hóla-
brekkuskóla kl.2 e.h. Sunnud.:
Barnasamkoma í Fellaskóla kl. 11.
Guösþjónusta í safnaöarheimilinu
að Keilufelli 1 kl. 2 e.h. Samkoma
n.k. þriöjudag kl. 20.30 í safnaö-
arheimilinu. Sr. Hreinn Hjartarson.
GRENSÁSKIRKJA: Barnasam-
koma kl. 11. Guösþjónusta kl. 2.
Guösþjónusta með altarisgöngu kl.
20.30. (Ný tónlist.) Almenn sam-
koma nk. fimmtudagskvöld kl.
20.30. Sr. Halldór S. Gröndal.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11.
Sr. Karl Sigurbjörnsson. Þriöjud.
17. nóv. kl. 10.30: Fyrirbænaguös-
þjónusta. Beðið fyrir sjúkum.
Kirkjuskóli barnanna er á laugar-
dögum kl. 2 í gömlu kirkjunni.
LANOSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Karl Sigurbjörnsson.
HÁTEIGSKIRKJA. Barnaguösþjón-
usta kl. 11. Sr. Tómas Sveinsson.
Messa kl. 2. Sr. Arngrimur Jóns-
son.
KÁRSNESPRESTAKALL: Barna-
samkoma í Kársnesskóla kl. 11
árd. Guösþjonusta í Kópavogs-
kirkju kl. 11 árd. Prestur sr. Lárus
Halldórsson. Sóknarnefndin.
LANGHOLTSKIRKJA: Óskastund
barnanna kl. 11. Söngur, sögur,
myndir. Guösþjónusta kl. 2.
Organleikari Jón Stefánsson.
Prestur sr. Sig. Haukur Guöjóns-
son. Minnum á aðalfund safnaöar-
ins eftir messu. Sóknarnefndin.
LAUGARNESKIRKJA: Barnaguös-
þjónsta kl. 11. Messa kl.2. Þriðjud.
17.: Bænaguðsþjónusta kl. 18. Alt-
arisganga. Æskulýösfundur kl.
20.30. Miðvikud. 18. nóv.: Almenn
samkoma kl. 20.30. Föstud. 20.
nóv.: Siödegiskaffi kl. 14.30. Sókn-
arprestur.
NESKIRKJA: Laugard. 14. nóv.:
Samverustund aldraðra kl. 3.00.
Bingó, félagsvist. Sunnud. 15. nóv.:
Barnasamkoma kl. 10.30. Guös-
þjónusta kl. 2. Sr. Frank M. Hall-
dórsson.
SELJASÓKN: Barnaguösþjónusta í
Ölduselsskóla kl. 10.30. Barna-
guðsþjónusta aö Seljabraut 54 kl.
10.30. Guösþjónusta i Öldusels-
skóla kl. 2.00. Sóknarpestur.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Messa
kl. 2. Organleikari Siguröur Isólfs-
son. Prestur sr. Kristján Róberts-
son.
Gestur frá Alkírkjuráöinu: Á
sunnudaginn kl. 17 mun Canon
Tatchell frá Alkirkjuráöinu halda
fund meö prestum og öörum for-
ráöamönnum safnaöa. Umræöu-
efniö er endurnýjun safnaöanna og
eru allir þeir sem áhuga hafa á mál-
efninu velkomnir. Fundurinn veröur
í Safnaöarheimili Bústaöakirkju.
DÓMKIRKJA Krists konungs
Landakoti: Lágmessa kl. 8.30 árd.
Hámessa kl. 10.30 árd. Lágmessa
kl. 2 síöd. Alla rumhelga daga kl. 6
siðd. nema á laugardögum, þá kl. 2
díös.
FELLAHELLIR: Hámessa kl. 11
árd.
KFUM & KFUK, Amtmannsstíg 2b:
Fórnarsamkoma kl. 20.30. Stuttur
þáttur frá starfinu í Kópavogi. Sr.
Frank M. Halldórsson flytur hug-
leiöingu.
FÍLADELFÍUKIRKJAN: Sunnu-
dagaskóli kl. 10.30. Almenn guös-
þjónusta kl. 20.
KIRKJA Jesú Krists hinna síðari
daga heilögu (Mormónar), Skóla-
vöróustíg 46: Sakramentissam-
koma kl. 14. Sunnudagaskóli kl.
15.
LÁGAFELLSKIRKJA: Barnasam-
koma kl. 11 og almenn guösþjón-
usta kl. 14. Sóknarprestur.
GARDAKIRKJA: Barnasamkoma í
skólasalnum kl. 11 árd. Guösþjón-
usta kl. 14. Sr. Bragi Friöriksson.
KAPELLA St. Jósfessystra
Garöab: Hámessa kl. 14.
VÍDISTADASÓKN: Barnaguös-
þjónusta kl. 11 árd. Almenn guös-
þjónusta kl. 14. Sr. Siguröur H.
Guömundsson.
FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Barna-
tíminn kl. 10.30. Aöstandendur sér-
staklega velkomnir. Guösþjónusta
kl. 14. Á eftir messu fundur með
fermingarfólki. Arnþór Helgason og
Kristín Sverrisdóttir kynna málefni
fatlaöra. Safnaðarstjórn.
HAFNARFJARDARKIRKJA: Guös-
þjónusta kl. 11 árd. Ath. breyttan
messtuíma. Sóknarprestur.
KAPELLA St. Jósfesspítala:
Messa kl. 10 árd.
KARMELKLAUSTUR: Hámessa kl.
8.30. Rúmhelga daga er messa kl.
8 árd.
KÁLFATJARNARSÓKN: Sunnu-
dagaskóli kl. 14. Sr. Bragi Friö-
riksson.
YTRI-NJARDVÍKURKIRKJA:
Barnasamkoma kl. 11 árd. Messa
kl. 14. Fundur með foreldrum
fermingarbarna eftir messu og
æskulýösfélagsfundur kl. 20.30.
Sóknarprestur.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli kl. 11 árd. Efni: Góðvild.
Munið skólabílinn. Sóknarprestur.
GRINDA VÍKURKIRK J A: Barna-
guösþjónusta kl. 11 árd. Sóknar-
prestur.
KIRKJUVOGSKIRKJA: Messa kl.
14. Sr. Jón Kr. ísfeld messar.
EYRARBAKK AKIRK JA: Barna-
samkoma kl. 10.30 árd. Sóknar-
prestur prédikar á Laugarvatni kl.
14.
KOTSTRANDARKIRKJA: Messa
kl. 14. Safnaöarfundur eftir messu.
Sr. Tómas Guðmundsson.
HVERAGERDISKIRKJA: Barna-
messa kl. 11 árd. Sr. Tómas Guð-
mundsson.
AKRANESKIRKJA: Barnasam-
koma kl. 10.30. Fjölskyldumessa kl.
14. Vænst er þátttöku fermingar-
barna og foreldra þeirra. Sr. Björn
Jónsson.
Hann var fæddur 21. október
1907 að Háarima í Þykkvabæ,
Rangárvallasýslu. Sonur hjón-
anna Guðfinnu Sveinsdóttur frá
Vatnskoti í Þykkvabæ og Sigurðar
Guðnasonar frá Þúfu í Vestur-
Landeyjum. Olafur ólst upp hjá
foreldrum i Háarima við algeng
sveitastörf og var sjötti af tíu
börnum þeirra, en eitt dó ungt.
Ungur kynntist hann sjómennsku
á áraskipum frá Þykkvabæjar-
sandi og hóf snemma að sækja
vetrarvertíðir til Vestmannaeyja.
Þar reri hann m.a. mörg ár á vél-
bátnum Maí með Sigfúsi Scheving
skipstjóra. Skipsfélagar Ólafs
munu fljótt hafa veitt athygli
þeirri elju og ósérhlífni, sem áttu
eftir að einkenna störf hans allt
hans tíf.
Árið 1933 byrjaði Ólafur að
stunda sjó frá Akranesi og haustið
1935 hóf hann þar búskap með eft-
irlifandi eiginkonu sinni, Ástrósu
Guðmundsdóttur frá Sólmundar-
höfða í Innri-Akraneshreppi. Þau
bjuggu mörg ár í húsinu Teig, nú
Suðurgötu 20, en byggðu síðan
húsið Skarðsbraut 2 og bjuggu þar
til vorsins 1949. Þá fluttust þau
með börn sín, sem orðin voru fjög-
ur, á heimaslóðir Ólafs í Þykkva-
bænum.
Er í Þykkvabæinn kom, settust
þau að í húsinu Baldurshaga og
vann Ólafur þá á sumrin á
skurðgröfu Ræktunarsambands
Djúpárhrepps, en á veturna á
vertíðum í Þorlákshöfn. Árið 1963
keypti hann í félagi við son sinn,
Óla Ágúst, jörðina Vatnskot I í
Þykkvabæ og stundaði þar búskap
fram á síðustu æviár.
Fáum árum eftir að Ólafur hóf
búskap í Vatnskoti, fór hann að
kenna heilsubrests, en sjúkdóm
sinn bar hann jafnan með slíku
æðruleysi, að fáa mun hafa rennt
grun í hve illa horfði undir lokin.
Síðastliðinn mánudag var hann
lagður inn í Landspítalann og lézt
þar að kvöldi þess dags.
Þeim Ólafi og Ástrósu varð sex
barna auðið. Þau eru: Sigurður
Guðmann f. 17. janúar 1936? sjó-
maður bús. í Kópavogi, Óli Ágúst
f. 11. ágúst 1940, bóndi Vatnskoti í
Þykkvabæ, kvæntur Jóhönnu B.
Bjarnadóttur frá Tjörnesi, Guð-
mundur f. 2. október 1942, starfs-
maður við Búrfellsvirkjun, kvænt-
ur Ingibjörgu H. Guðmundsdóttur
og bús. á Selfossi, Ágústína f. 1.
desember 1947, húsmóðir Hrauk í
Þykkvabæ,gift Ágústi Karli Sig-
mundssyni bónda, Hugrún f. 9.
nóvember 1949, húsmóðir Hvera-
gerði.gift Helga Haukssyni sölu-
manni. Ásmundur Þórir f. 15.
september 1958, stýrimaður, til
heimilis í foreldrahúsum. Barna-
börnum eru nú orðin fjórtán og
eitt barnabarnabarn.
Ólafur var mesta prúðmenni í
allri umgengni, oft glaðsinna og
spaugsamur. Hann var mjög ljóð-
elskur og sjálfur vel hagorður.
Ég undirritaður bar gæfu til að
þekkja Ólaf tengdaföður minn í
rúman áratug. Þar fór hinn óeig-
ingjarnasti og sannasti maður,
sem ég hef fyrirhitt á lífsleiðinni.
Ef slíkur maður uppsker eigi að
leiðarlokum, þá er til lítils sáð.
Kæra þökk fyrir ógleymanlegar
samverustundir í faðmi fjölskyld-
unnar og í hofi Braga.
Að lokum bið ég góðan guð og
hugga og blessa eiginkonu og börn
hins látna og varðveita með þeim
til hinztu stundar minninguna um
ástríkan eiginmann og elskandi
föður. Helgi Hauksson