Morgunblaðið - 28.11.1981, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1981
Athugasemdir lögfræðinga um fjölgun hæstaréttardómara:
Telja bráðabirgdaákvæði frumvarps
ins brjóta f bága við stjórnarskrána
Indriði G. Þorsteinsson.
TÍU lögfræðingar hafa sent Alþingi
athugasemdir við lagafrumvarp um
breytingar á lögum frá 1973 um
Hæstarétt íslands og beinast þær
eingöngu að bráðabirgðaákvæði laga-
frumvarpsins, en það er nú til með-
ferðar Alþingis. Fjallar bráðabirgða-
ákvæðið um skipan hæstaréttardóm-
ara til bráðabirgða og telja lögfræð-
ingarnir það geta brotið í bága við
stjórnarskrána.
I bráðabirgðaákvæði þessu segir
m.a.: „Árin 1982 og 1983 getur
dómsmálaráðherra samkvæmt til-
lögum Hæstaréttar sett tvo til þrjá
dómara úr hópi þeirra manna, sem
greindir eru í 1. mgr. 5. gr. laga nr.
75/1973, til viðbótar hinum reglu-
legu dómurum allt að sex mánuð-
um hvort ár.“
þeir heldur fluttir í annað embætti
á móti vilja þeirra, nema þegar svo
stendur á, að verið er að koma
nýrri skipun á dómstólana. Þó má
veita þeim dómara, sem orðinn er
fullra 65 ára gamall, lausn frá
embætti, en eigi skal hann missa
neins í af launum sínum."
Sjá athugasemdir lögfræð-
inganna á miðopnu.
Fimmtán gírar áfram
Vilhjálmur Hjálmarsson
Raupað úr ráðuneyti
Ný bók eftir Vilhjálm Hjálmarsson
Indriði G. Þorsteins-
son ritar sögu Péturs
á Hallgilsstöðum
INDIKIDI G. Þorsteinsson hefur
sent frá sér bók sem hann nefnir
Fimmtán gírar áfram, sem er saga
Péturs Jónssonar á Hallgilsstöðum
við Kyjafjörð og fleiri manna sem
starfað hafa með honum gegnum ár
in. Almenna bókafélagið gefur bók-
ina út. í kynningu AB í bókinni segir
m.a.:
„Það var á þeim árum, þegar bíl-
stjórarnir voru hálfgerðar þjóð-
hetjur, gengu með svartar gljá-
skyggnishúfur með gylltum borða
og hölluðu þeim glannalega út í
hægri vangann. En þrátt fyrir
sjálfsöryggi á ytra borði áttu þeir
verstu trúnaðarmál við bíla sína
búna lélegum teinabremsum, harla
viðsjárverðum á mjóum og snar-
bröttum malarvegunum og veg-
leysunum.
Einn þessara bílstjóra var Pétur
á Hallgilsstöðum við Eyjafjörð.
Átján vetra var hann kominn með
ökuskírteini upp á vasann, með
undanþágu aldurs vegna. Þar með
hafði hann fest ráð sitt — við bíl-
inn — festi það aldrei frekar.
Fyrst var Pétur mjólkurbílstjóri
og skemmtiferðabílstjóri og ók
fólki í „boddý“-bílum víðsvegar um
land og upp í óbyggðir. Síðar varð
hann ásamt Valdimar bróður sín-
um brautryðjandi í vöruflutning-
um á langferðaleiðum. Fyrirtækið
heitir Pétur & Valdimar, og bílar
frá því hafa flesta daga síðustu 30
árin verið einhvers staðar úti á
þjóðvegunum með sinn þunga
fiutning.
Indriði G. Þorsteinsson færir hér
með sinni alkunnu frásagnarsnilld
sögu Péturs í letur eftir sögn hans
sjálfs. Sjálfur er Pétur kíminn
sagnamaður og alþekkt hermi-
kráka. Speglast það allt rækilega í
þessari skemmtilegu bók.“
Fimmtán gírar áfram er með all-
mörgum myndum. Bókin er 180 bls.
að stærð og unnin í Prentstofu G.
Benediktssonar og Félagsbókband-
inu.
BIRGIR ísleifur Gunnarsson, al-
þingismaður, var endurkjörinn
formaður framkvæmdastjórnar
Sjálfstæðisflokksins, á fundi mið-
stjórnar flokksins í gærdag, en fram-
kvæmdastjórnina skipa fimm menn.
Auk Birgis ísleifs sitja í stjórninni,
formaður þingflokksins, Ólafur G.
Einarsson, formaður fjármálaráðs,
Höskuldur Olafsson, formaður út-
breiðslunefndar, Jónína Michaels-
dóttir, og formaður fræðslunefndar,
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson.
Sú breyting varð á skipan fram-
kvæmdastjórnar nú, að sjálfskip-
Lagafrumvarpið var samið af
dómurum Hæstaréttar eftir við-
ræður við dómsmálaráðherra. í at-
hugasemdum lögfræðinganna tíu
eru færð rök fyrir því að bráða-
birgðaákvæðið brjóti í bága við
ákvæði í stjórnarskránni og telja
þeir að fyrri fordæmi fyrir skipun
dómara til skamms tíma séu ekki
sambærileg og geti ekki rennt stoð-
um undir þá skipan, sem nú sé
fyrirhuguð í bráðabirgðaákvæði
frumvarpsins. Telja lögfræð-
ingarnir þetta brjóta í bága við 61.
grein stjórnarskrárinnar, en í
henni segir m.a.: „Þeim dómendum,
sem ekki hafa að auki umboðsstörf
á hendi, verður ekki vikið úr emb-
ætti nema með dómi, og ekki verða
aðir eru nú formenn áðurgreindra
nefnda og ráða, en áður kaus mið-
stjórn þá.
Þingflokkurinn tilnefnir fimm
fulltrúa í miðstjórnina og að þessu
sinni eru það alþingismennirnir
Albert Guðmundsson, Matthías
Bjarnason, Matthías Á. Mathie-
sen, Salóme Þorkelsdóttir og
Steinþór Gestsson, en þau Salóme
og Steinþór koma í stjórnina fyrir
Sverri Hermannsson og Ragnhildi
Helgadóttur, sem áttu þar sæti.
Alls sitja 32 fulltrúar í miðstjórn
Sjálfstæðisflokksins.
UT EK komin hjá Bókaútgáfunni
Þjóðsögu, bókin Kaupað úr ráðu-
neyti, eftir Yilhjálm Hjálmarsson
fyrrum alþingismann og mennta-
málaráðherra. Bókin er eins konar
endurminningabók Vilhjálms úr
menntamálaráðuneytinu að Hverf-
isgötu 6, en hann var menntamála-
ráðherra í ríkisstjórn Geirs
Hallgrímssonar í fjögur ár og fjóra
daga, 1974 til 1978.
. Bókin er 271 blaðsíða að stærð, í
all stóru broti og prentuð á vand-
aðan pappír, en mikill fjöldi
mynda er í bókinni, meðal annars
myndir af öllu starfsfólki ráðu-
neytisins þann tíma er bókin tek-
ur til. Prentverk allt annaðist
prentsmiðja G. Benediktssonar, en
bókband var unnið í Arnarfelli.
í kýnningu forlags á bókarkápu
segir svo:
„Þetta er fyrsta bók höfundar-
ins. Hún er nýstárleg, því enginn
MJÖG harður árekstur varð milli
Range Roverjeppa og áætlunarbif-
reiðar í efri Hveradalabrekkunni á
Hellisheiði laust eftir hádegi í gær
dag og slasaðist ökumaður Range
Roverjeppans, sem var maður á sex-
tugsaldri, mikið. Hann var fluttur á
Borgarspítalann í Reykjavík.
Að sögn lögreglunnar á Selfossi
íslenskur ráðherra hefir áður sett
saman bók um ráðuneytið sitt.
Vilhjálmur kemur víða við og ræð-
ir m.a. stöðuveitingar, írafár á Al-
þingi, námsmannahasa og kalda
stríðið um peningana. Inn í þetta
fléttast persónuleg viðhorf og
samskipti. Kennir margra grasa
því viðmælendur ráðherra voru
bæði börn og diplómatar og allt
þar á milli.
Gamansemi Vilhjálms gægist
víða fram. Og oft er seilst eftir
svipmyndum utan dyra þótt
Hverfisgata 6 sé þungamiðja bók-
arinnar.
Frásögnin er opinská en laus við
alla beiskju. Er höfundi hugleikn-
ara að fjalla um mannsparta fólks
en ávirðingar. Mikill fjöldi
skemmtilegra mynda prýðir bók-
ina.“
var blindbylur og mikil hálka þeg-
ar slysið átti sér stað og því erfitt
að segja til um orsakir þess.
Range Rover-jeppinn var á leið
upp brekkuna, en áætlunarbifreið-
in á leið niður. Range Roverinn er
talinn ónýtur og áætlunarbifreið-
in er mikið skemmd eftir árekst-
urinn.
Framkvæmdastjórn Sjálfstæðisflokksins:
Birgir ísleifur
áfram formaður
Slasaðist mikið í árekstri
Prófkjör
Sjálfstæðismanna
29. og 30. nóv. 1981
Hulda Valtýsdóttir
Við minnum á að Hulda Valtýsdóttir er fram-
bjóðandi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík vegna borgarstjórnarkosninganna
vorið 1982.
Við vekjum athygli á störfum
Huldu Valtýsdóttur
• Hefur um árabil starfaö aö blaöamennsku.
• Hefur lagt lið verndun lands og gróöurs.
• Var framkvæmdastjóri „Árs trésins 1980“ og er nú formaöur
Skógræktarfélags islands.
• Hefur unniö þætti í ríkisútvarpið um menningarmál og annaöist
um langt skeiö barnatíma þess.
• Sat tvö kjörtímabil, frá 1970—’78 í barnaverndarnefnd Reykja-
víkurborgar og frá 1978 í félagsmálaráöi og leikvallanefnd.
• Hefur um fjölda ára starfað viö kvikmyndaeftirlit ríkisins.
• Hefur látiö til sín taka í starfi Sjálfstæöisflokksins og m.a. átt
sæti í stjórn Hvatar félags sjálfstæöiskvenna i Reykjavík og
verið varaformaöur þess félags síöastliöin tvö ár.
AUKUM HLUT KVENNA
I BORGARMÁLUM
KJOSUM HÆFAR KONUR
I BORGARSTJÓRN
X HULDA VALTÝSDÓTTIR
STUÐNINGSMENN
Alfreð Clausen
söngvari látinn
LÁTINN er í Reykjavík Alfreð
('lausen söngvari og málarameistari.
Alfreð Clausen var fæddur í Reykja-
vík 7. maí 1918 og var hann þvf 63
ára að aldri.
Alfreð Clausen var landsþekkt-
ur söngvari, en á árunum 1950 til
1960 söng hann inn á fjölmargar
hljómplötur og kom fram á
skemmtunum. Söng hann yfir 50
lög inn á hljómplötur, aðallega lög
eftir aðra, en sjálfur samdi hann
einnig nokkur lög. Alfreð Clausen
nam málaraiðn og starfaði að
henni allt þar til er hann veiktist
á sl. sumri, en hann lést á heimili
sínu á fimmtudaginn.
Síðari kona Alfreðs Clausen er
Hulda Stefánsdóttir og eignuðust
þau eina dóttur, en börn Alfreðs
eru sjö.