Morgunblaðið - 28.11.1981, Síða 35

Morgunblaðið - 28.11.1981, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1981 35 Áki Eggertsson í Súðavík - Minning Hinn 20. nóv. sl. lézt í Landa- kotsspítala Áki Eggertsson, fyrr- um oddviti og framkvæmdastjóri í Súðavík við Djúp. Útför hans er gerð í dag (27. nóv.) frá Kópa- vogskirkju. Áki hafði sl. vor gengizt undir mikla aðgerð hér syðra og náð sér sæmilega eftir þá erfiðu sjúkra- legu. Dvaldi heima í Súðavík í sumar og hélt upp á 75 ára afmæli sitt og gullbrúðkaup í góðum fagn- aði á heimili sínu í september sl. Með haustinu hnignaði heilsu hans aftur það mjög, að hann lagðist enn inn á Landakot í lok október, gekkst þá undir aðra skurðaðgerð, sem leiddi í ljós, að ekki væri bata von. Ekki hélt ég þó, er ég leit inn til hans á sjúkra- húsið fyrir u.þ.b. hálfum mánuði, að ég væri þá að kveðja þennan góða vin minn í hinzta sinn, þó að ég vissi raunar að hverju dró. Áki var fæddur að Kleifum í Seyðisfirði vestra 13. sept. 1906, sonur Eggerts Reginbaldssonar bónda þar og Júlíönu Haraldsdótt- ur, konu hans. Þeim hjónum varð 13 barna auðið. Átta þeirra kom- ust til fullorðinsára og eru nú, að Áka látnum, sex þeirra á lífi, fjög- ur búsett í Reykjavík, þau Mar- grét, Lea, Fríða og Haraldur. Ein systranna, Anna, er búsett í Danmörku og Una, tvíburasystir Fríðu, býr í Súðavík. Að þeim systkinum standa sterkir vest- firzkir ættstofnar, dugnaðar- og greindarfólk. Áki ólst upp á þeim árum, er ungmenni í íslenzkum sveitum áttu ekki margra kosta völ um menntun til undirbúnings ævi- starfs, þótt góðir hæfileikar væru fyrir hendi. Tvo vetur, er hann stundaði nám við unglingaskólann á Núpi undir handleiðslu séra Sig- tryggs Guðlaugssonar, hefir hann áreiðanlega nýtt sér til hins ýtr- asta. En fyrst og fremst var Áki sjálfmenntaður maður úr lífsins skóla, sem löngum hefir reynzt hvað notadrýgst. Fjölhæfni hans og einstök verklagni sameinuðust til að gera hann að einum þessara sístarfandi þúsundþjalasmiða, sem allt lék í höndunum á. Húsa- smíði, rafvirkjun, vélaviðgerðir — allt fór þetta Áka jafn vel og fag- mannlega úr hendi, þótt ekki hefði hann neitt próf upp á vasann. Engu að síður hlaut hann viður- kenningu og löggilt starfsréttindi rafvirkja og ófá munu þau húsin í Súðavík, sem hann lagði rafmagn- ið í. í litlu byggðarlagi, þar sem hver og einn þarf helzt að vera sinn eigin „læknir, lögfræðingur og prestur", er ómetanlegt að eiga að mann eins og Áka, enda var oft til hans leitað, þegar eitthvað þurfti að byggja eða endurbæta. Sjálf minnist ég þess sérstaklega, þegar foreldrar mínir, um eða eftir 1940, vildu freista þess að raflýsa Vig- urbæinn með vindrafstöð, er þá var pýjung, er ruddi sér nokkuð til rúms til sveita. Hver skyldi þá vera kallaður til annar en Áki í Súðavík. Þetta var nýtt og tölu- vert erfitt viðureignar tæknilega á þeim tíma. En Áki þreifaði sig áfram og spekúleraði — og það varð ljós! Þetta var ekki í fyrsta eða eina skiptið, sem Áki hjálpaði okkur. Hann tók að sér fyrir all- Jólabasar Fylkiskvenna FYLKISKONUK halda sinn árlega jólabasar í sal Árha jarskóla laug- ardaginn 28. nóv. kl. 14.00. Á boðstólum verður meðal ann- ars: Jólaföndur, bútasaumur, prjónles, kökur og laufabrauð. Ágóðanum verður varið til styrkt- ar byggingu íþróttahúss í hverf- inu. mörgum árum að treysta og endurbyggja gömlu vindmylluna okkar, sem fram á þennan dag stendur af sér veður og vinda á Mylluskansinum. Og margt fleira gæti ég talið, sem mitt gamla heimili á þessum góða vini okkar að þakka. Áki var foreldrum mín- um, og okkur öllum, alltaf mikill aufúsugestur, ekki hvað sízt, þeg- ar eitthvað stóð til á sérstökum tyllidögum. Þá lék Áki á als oddi, tók gjarnan í orgelið og það var sungið við raust. Hann var mikill söng- og músikmaður, hafði lært af sjálfum sér, eins og svo margt fleira, að spila á orgel og lék í mörg ár fyrir messusöng í Súða- vík, eða þangað til Ásta dóttir hans tók við því hlutverki. Áki settist ungur að í Súðavík, árið 1929. Tveimur árum síðar gekk hann að eiga eftirlifandi eig- inkonu sína, Rósu Friðriksdóttur, sem ættuð er frá Ósi í Bolungar- vík, vel gefin mannkostakona. Við Vigurfólk eigum margar góðar minningar frá komum okkar í Ákahús í gegnum árin með lengri eða skemmri viðdvöl, meðan beðið var eftir bát að heiman milli lands og eyjar eða í hverskonar erinda- gjörðum öðrum. Það kemur sjald- an fyrir, að viðstaðan sé svo stutt, að ekki séu þegnar góðgjörðir hjá Rósu húsfreyju og spjallað við húsráðendur í stofu eða í eldhúsi yfir kaffibolla. Þar hefir aldrei skort umræðuefni og oft hefir mann langað til að staldra við ögn lengur. Þau hjónin voru alla tíð samhent í bezta lagi, m.a. í gest- risni sinni, sem einkenndist af yf- irlætisleysi, traustleika og hlýju. Áki hafði alla tíð mikil umsvif við hin margvíslegustu störf og tók frá fyrstu tíð virkan þátt í at- vinnu- og félagslífi Súðavíkur- hrepps meðan honum entist heilsa. Gekk þar jafnan heill til verks í forystusveit, er dreif Súð- avík upp úr deyfð og stöðnun um árabil. Hann hafði á sínum tíma byggt frystihús Frosta hf. en það fyrirtæki var stofnað árið 1942 og hefir á síðari árum stóreflzt og fært út kvíarnar. Var Áki þar fyrst verkstjóri, síðan fram- kvæmdastjóri og meðeigandi. Tog- arinn Bessi, eitt af toppskipum vestfirzka fiskiskipaflotans, hleypti nýju lífi í atvinnulíf Súð- víkinga. Framfarir komu í stað kyrrstöðu, nýtt íbúðarhverfi byggðist upp á nokkrum árum, fólki fjölgaði og jókst kjarkur og bjartsýni. — Súðavík breytti um svip á meðan Kofrinn, samur við sig, hreykir sér í velþóknun yfir byggðina og speglar sig, þegar færi gefst, í lognværum fleti Álftafjarðarins. Við þetta fallega litla byggðarlag batt Áki æviiang- ar tryggðir og helgaði því af lífi og sál starfskrafta sína. Um langt árabil átti hann sæti í hrepps- nefnd, var oddviti hennar og um skeið hreppstjóri og sýslunefndar- maður, svo að nokkuð sé nefnt af þeim trúnaðarstörfum er hann gegndi fyrir hreppsfélagið. Auk þessa rak Áki ásamt Rósu konu sinni verzlun í Súðavík í 37 ár, eða þar til nú fyrir 1—2 árum, að hann hætti þeim rekstri vegna heilsubrests. Verzlunarhúsnæðið var ekki ýkja stórt eða nýtízku- legt, en „það fékkst allt í Ákabúð" og ólíkt notalegra að eiga þar viðskipti heldur en í hinum vél- væddu kjörbúðum þar sem öll mannleg samskipti kaupmanns og viðskiptavinar eru fyrir bí. Bú- skap stunduðu þau hjón einnig um árabil og fram á þennan dag hafa þau haft umboð og afgreiðslu fyrir olíufélagið Shell. Þessum marg- háttuðu störfum fylgdu óhjá- kvæmilega miklar annir og erill. Það átti vel við Áka og lítt var hirt um, hvort vinnudagurinn var inn- an lögskipaðra tímamarka. Öll sín störf leysti hann af hendi af stakri vandvirkni og heiðarleik, svo að orð fór af. Slíkir menn njóta af sjálfu sér trausts og virðingar samborgara sinna. Þau Aki og Rósa eignuðust þrjú börn, sem öll hafa fetað í fótspor foreldra sinna um manndóm og myndarskap. Tvö þeirra eru bú- sett í Súðavík, Ásta, símstöðvar- stjóri, gift Sigurði Þórðarsyni, starfsmanni Orkubús Vestfjarða, og Börkur, framkvæmdastjóri Frosta hf., kvæntur Kristfnu Jónsdóttur frá Arnardal. Eldri sonurinn, Haukur, er rafvirkja- meistari, búsettur á Húsavík, kvæntur Steinunni Sveinsdóttur. Barnabörnin eru orðin 12 talsins og eitt barnabarnabarn. Nú er stórt skarð fyrir skildi við fráfall elskulegs eiginmanns, föður og afa í Ákahúsi — pg Súðavík er ekki alveg söm og áður. Með Áka Eggertssyni er geng- inn óvenjulega heilsteyptur og gagnvandaður heiðursmaður, sem gott var að eiga að samferða- manni. Vinfesti hans og tryggð yljar minningarnar tengdar hon- um og heimili hans í gegnum ár- um. Fyrir þau kynni og vináttu skulu hér færðar heilar þakkir frá mér og fjölskyldu minni, um leið og við óskum látnum vini guðs blessunar og fararheilla til sólú fegri heima. Rósu konu hans, börnum og ættfólki öllu sendum við innilegar samúðarkveðjur. Sigurlaug Bjarnadóttir frá Vigur Bflasýning Við kynnum nýjan bfl SUZUKI Fox Á bílasýningu okkar í dag og á morgun munum viö sýna nýjan bíl — Suzuki Fox. Sýningin veröur opin frá kl. 10—17 báöa dagana. Komiö og skoöiö bíl sem markar tímamót — því meö Suzuki Fox er kominn á markaöinn fullkominn og rúmgóöur fjórhjóladrifsbíll, sem allir hafa efni á aö eignast og aka. Áætlað verd kr. 98.000.00. (Miðad við gengisskráningu 24/11 ’81). $ Sveinn Egilsson hf, Skeifan 17, sími 85100.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.