Morgunblaðið - 28.11.1981, Síða 37

Morgunblaðið - 28.11.1981, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1981 37 Minning: Guðbjörn Sigur- jónsson Selfossi Fæddur 17. september 1886. I)áinn 21. nóvember 1981. í dag er til moldar borinn frá Selfosskirkju Guðbjörn Sigur- jónsson Safamýri 93 í Reykjavík. Þótt leiðir okkar Guðbjörns hafi ekki legið saman fyrr en fyrir fáum árum, var maðurinn slíkur og vinátta hans í minn garð svo mikil að ég get ekki látið hjá líða að minnast hans og heimilis hans nokkrum orðum þegar leiðir skilja. Guðbjörn fæddist 17. september 1896 í tjaldi úti á túni á bænum Sölvholti við Selfoss. Jarðskjálft- arnir miklu á Suðurlandi höfðu þá nýgengið yfir og fólk þorði ekki að vera innan dyra. I jarðskjálftun- um létust hjónin á bænum Sel- fossi, Guðrún og Arnbjörn, þegar þau urðu undir baðstofuþekjunni þegar hún hrundi, og var Guð- björn látinn heita eftir þeim. Guðbjörn var sonur hjónanna Sigurjóns Steinþórssonar og Þorbjargar Einarsdóttur. Auk Guðbjörns eignuðust þau eina dóttur sem nú er látin. Sigurjón og Þorbjörg bjuggu lengst af í Króki í Hraungerðishreppi, þar ólst Guðbjörn upp og þar hóf hann sinn búskap. 17. júlí 1921 kvæntist Guðbjörn eftirlifandi konu sinni Margréti Ingibjörgu Gissurardóttur frá Byggðarhorni í Sandvíkurhreppi f. 26. júlí 1897, dóttir hjónanna þar, Gissurar Gunnarssonar og Ingi- bjargar Sigurðardóttur. Þau Margrét og Guðbjörn hófu sinn búskap í Króki, en fljótlega keyptu þau jörðina Jórvík í Sandvíkur- hreppi. Sú jörð var í mikilli niður- níðslu og lá mikið verk fyrir hönd- um ef þar átti að búa góðu búi. Hafist var handa af fullum krafti, en margt fer öðruvísi en ætlað er. Þau höfðu nýlokið við að byggja upp jörðina, þegar Guðbjörn fór að kenna sjúkdóms og þoldi ekki erfiðisvinnu. Þau urðu því að selja jörðina og flytja á Selfoss. Síðar náði Guðbjörn fullum bata af þessum sjúkdómi á undraverðan hátt, þegar hann var orðinn svo langt leiddur að hann gat ekki lengur stundað almenna vinnu, en það er ekki ætlun mín að segja þá sögu hér. Á Selfossi byggðu þau Margrét og Guðbjörn af stórhug og myndarskap húsið að Austur- vegi 36, sem nú er dagvistunar- heimili bæjarins. Hvorugt lá á liði sínu, hann við bygginguna, en hún við saumaskap. Margrét byrjaði sem unglingur að fást við að sauma íslenska búninga. Það hef- ur hún gert síðan af þeirri snilld að landsþekkt er, hvort heldur um er að ræða peysuföt, upphlut, skautbúning eða möttul. Til Reykjavíkur fluttu þau hjón síðan um 1960 og hafa búið þar síðan í Safamýri 93. Á Selfossi fór Guðbjörn að vinna við múrverk, og eftir að hann flutti til Reykja- víkur vann hann við þau störf hjá Mjólkursamsölunni, þar til hann varð að hætta vegna aldursmarka. Það var Guðbirni ekki að skapi, né líkt hans venju að sitja með hend- ur í skauti, og vegna vinskapar fékk hann vinnu í Stálvík hf. í Garðabæ þar sem hann gat fengið að haga sinni vinnu eftir þörfum og getu. Margrét og Guðbjörn eignuðust tvö börn, Sigrúnu og Sigurjón. Sigrún er búsett í Reykjavík. Mað- ur hennar, Valdimar Karl Þor- steinsson, lést fyrir aldur fram nú í haust. Sigurjón er kvæntur Gunnlaugu Jónsdóttur, búsettur í Njarðvík. Auk þeirra systkina, ólu þau Margrét og Guðbjörn upp tvær fósturdætur, Rögnu Páls- dóttur gifta Gunnari Ingvarssyni, búsett í Mosfellssveit, og Guðrúnu Guðmundsdóttur, gifta Sigurði Jónssyni, búsett í Ásgerði, Hruna- mannahreppi. Barna- og barna- barnabörnin eru orðin mörg og hafa oft komið í heimsókn í Safa- mýrina. Ég kynntist þeim hjónum fyrir rúmum 10 árum, þegár ég kom til Reykjavíkur til náms og fékk leigt herbergi hjá þeim. Ekki græddu þau mikið á leigjandanum því fljótlega gerðist hann heima- alningur og þáðí bæði mat og drykk af húsráðen'dá hálfu eins óg heimaalninga er siður. Og gott var að fá að horfa á sjónvarp eða fylgjast með Margréti við sauma og spjalla við Guðbjörn um liðna daga eða atburði líðandi stundar. Þau tóku mér strax sem einum úr fjölskyldunni og þótt námi lyki og ég flytti úr herberginu hef ég ásamt fjölskyldu minni alltaf ver- ið velkominn til þeirra og þar hef ég hagað mér eins og heima hjá mér. Ófáar flatkökusneiðarnar, pönnukökurnar eða súpudiskana hef ég þegið úr eldhúsi þeirra hjóna og þess eins krafist af mér að ég stæði ekki svangur upp frá borðum. Þeir sem til þekkja, vita að hér er ekkert ofsagt. Heimilið þeirra eins og ég þekkti það var einstakt rausnarheimili, þar voru allir velkomnir, þar ríkti á allan hátt sá hugsunarháttur að sælla er að gefa en þiggja. Þótt Guð- björn sé nú fallinn frá og ekki lengur til að spjalla við gesti, heldur Margrét enn heimili og þar munu áfram ríkja sömu gæðin og fyrir voru. , Fyrir um ári síðan fór Guðbjörn að kenna þess sjúkdóms sem að lokum dró hann til dauða. Um síð- ustu jól þegar ég heimsótti þau sagðist hann ekki hafa komið því í verk að skreyta jólatréð. „Ég held að það boði að við hjónin eigum ekki eftir að halda fleiri jól sam- an,“ sagði hann. Þar reyndist hann sannspár eins og svo oft fyrr. í byrjun maí lagðist hann inn á sjúkrahús og átti þaðan ekki aft- urkvæmt. Áður hafði hann verið heima og notið þar einstakrar um- önnunar konu sinnar sem síðan heimsótti hann hvern dag á spital- ann. Margrét sýndi í veikindum manns síns sitt mikla þrek og persónuieika sem aðdáunarverður er. Guðbjörn var hægur í fasi og •fjarri honum að skipta sér af hög- um annarra, en trygglyndur og vinafastur. Hann var skarp- greindur og langminnugur og taldi sig m.a. muna örugglega eftir at- viki frá því að hann var tveggja ára. Ósjaldan fræddi hann mig um tíðarfar og búskaparhætti fyrri ára eða hann sagði mér frá stjórn- málaumræðum og kosningabar- áttum liðinna daga. Hann fylgdist vel með allri þjóðmálaumræðu og hafði á þeim ákveðnar skoðanir. Guðbjörn las mikið og hafði yndi af þjóðlegum fróðleik hvort heldur það væru sagnaþættir, ævisögur, kveðskapur eða gátur. Hann var mikið náttúrubarn og ég held að hann hafi alltaf saknað sveitar- lífsins. Áhugi hans á skepnum og allt sem að hirðingu þeirra laut var honum hugleikið. Fram á síð- asta dag f.vlgdist hann með veðri og vildi fá fréttir af sauðburði og heyskap, göngum og réttum. I veikindum sínum sýndi hann staka ró og æðraðist ekki. And- legri heilsu hans hrakaði aldrei og hann gerði sér fulla grein fyrir því að hverju dró. Ég vil þakka honum samveruna og vináttuna. Hann gaf mér margt það sem ég annars hefði ekki fengið, og ég er maður að meiri eftir okkar kynni. — Guðbjörn hvíli í guðs friði. Ég og mín fjölskylda vottum öll- um ættingjum Guðbjörns okkar dýpstu samúð. Margrét mín, þinn er missirinn sárastur, en eftir lifir minningin um góðan eiginmann. Megi góður guð gefa þér styrk i sorginni. Níels Árni Lund. I dag, 28. nóvember, verður Guðbjörn Sigurjónsson jarðsung- inn frá Selfosskirkju. Kynni okkar voru ekki löng, aðeins einn áratug- ur, það er ekki mikið af heilli mannsævi en það var ánægjulegur tími og lærdómsríkur, svo heil- steypt og fordómalaus voru þau bæði gagnvart lífinu. Ég var þá við nám í þjóðbúningasaum hjá konu hans, Margréti Gissurar- dóttur, einni af færustu sauma- konum okkar íslendinga á því sviði. Guðbjörn var fæddur í Sölva- holti í Hrunamannahreppi jarðskjálftaárið mikla. Þá höfðu bæjarhús víða hrunið, fólk og fénaður orðið undir og látið lífið. Hildur Blöndal - Minningarorð Fædd 27. ágúst 1932. Dáin 22. nóvember 1981. Hildur Blöndal fæddist á Sauð- árkróki fyrir 49 árum, óskabarn foreldra sinna, Jóhönnu Árnadótt- ur Blöndal frá Geitaskarði í Langadal og Valgarðs Blöndal frá Sauðárkróki. Hún ólst upp í glöðum systkina- hópi á mannmörgu rausnarheim- ili, þar sem gleði og góðvild réðu ríkjum. Ung að árum giftist hún eftirlif- andi manni sínum, Stefáni Magn- ússyni frá Herjólfsstöðum í Lax- árdal. Þau settu saman bú í Hveragerði og bjuggu þar alla tíð síðan. Þau eignuðust 5 börn, 2 dætur og 3 syni. Elsta barnið, telpa, dó í frumbernsku, hin fjögur, glæsileg* ungmenni, lifa móður sína. Hildi man ég best á góðum stundum spilandi á gítar. Hún hafði óvenju fallega söngrödd og kunni sand af vísum og lögum. Ég hef sjaldan hitt manneskju, sem var eins einlæg og góðviljuð og Hildur Blöndal. Hún andaðist 22. nóvember síð- astliðinn eftir löng og ströng veik- •indi. Fyrir um það bil ári, á meðan hún hafði enn vald yfir tjáningum sínum, sagði hún mér, að hún væri sátt við allt og alla. Þá var hún búin að tala við prestinn, sem átti að jarðsyngja, ákveða sálma og hvar hennar hinsti legstaður yrði. Hún fékk sinn mikla styrk í trú á guð og að lífið héldi velli handan grafar. ..llvaA vr lu*l? öllum líkn. m*m lifa vol t nnill. st*m lil líknar lc*M>ir Ijosmo^ir, si*m hvílu brrirtir. Solarbros, t*r birla í*l. hvilir hel.“ (M.J.) Vinarkveðjur sendi ég öllum ástvinum Hildar Blöndal. Blessuð sé minning hennar. Sigr. G. Johnson Mannfólkið hafðist því við að mestu í tjöldum um nætur. For- eldrar Guðbjörns, Sigurjón Stein- þórsson og Þorbjörg Einarsdóttir, höfðu verið á prestssetrinu Stóra- Hrauni, þar sem Sigurjón var ráðsmaður hjá prestinum Ólafi Helgasyni er skipaður hafði verið kennari heyrnardaufra og mál- lausra 20.8. 1891. Jarðskjálftarnir urðu meðal annars til þess að miklum óhug sló á fólk og það var hvergi óhult innan dyra. Þorbjörg Einarsdóttir flúði því heim til for- eldra sinna að Sölvaholti og ól þar fyrsta barn sitt í tjaldi á þessum köldu haustdögum. Það var dreng- ur og hlaut hann nafnið Guðbjörn eftir hjónunum Guðrúnu og Arn- birni sem höfðu búið á bænum Selfossi og látið bæði lífið þegar að bæjarhúsin hrundu yfir þau. Vorið eftir flutti Guðbjörn með foreldrum sínum að Lambastöðum og síðar að Króki í Hraungerð- ishreppi, þar sem hann ólst upp við ástríki foreldra sinna og syst- ur, er bar nafnið Sigrún, en er nú látin. Guðbjörn naut aðeins far- skólakennslu í æsku. Hann var viljugur og verkhagur og kom það sér síðar vel á ævinni. 17.7. 1920 gekk hann að eiga Margréti Ingibjörgu Gissurardóttur frá Byggðarhorni í Sandvíkurhreppi, Gunnarssonar og Ingibjargar Sig- urðardóttur frá Langholti í Hraungerðishreppi. Ingibjörg og Gissur eignuðust 16 börn sem öll komust til manns. Guðbjörn flutti brúði sína heim að Króki, þar sem þau bjuggu fyrstu árin og þar fæddist fyrsta barn þeirra. Síðar fluttu þau að Jórvík í Flóa en eftir 5 ára veru þar yfirgáfu þau sveit- ina og settust að á Selfossi, þar sem mikið lífsstarf liggur eftir Guðbjörn. í félagi við múrara- meistara lagði hann fvrir þá iðn og má segja að þó svo að hann vantaði skólagönguna skorti ekk- ert á hæfni, verklagni eða vand- virkni hans í starfi. Seni dæmi má nefna að honum var falið ntúrverk við kirkjuna á Selfossi, sem ekki var vandalaust starf. Ótaldar byggingar á Selfossi og út um nærliggjandi sveitir bera vitni um handbragð Guðbjörns. Er þó ótal- ið hús það er hann byggði yfir fjöl- skyldu sína og ber nafnið Ásheim- ar og er nú notað af Selfossbúúm fyrir dagvistun barna. Megi andi glaðværðar ríkja þar unt ókontin ár. Guðbjörn hafði góða söngrödd og starfaði alla tíð í kirkjukórnum á Selfossi. Á heimili þeirra var oft glatt á hjalla, þau voru bæði gestrisin, en umfram allt góðar og hjálpsamar menneskjur sem máttu ekkert aumt sjá. Tvær litlar teipur tóku þau í fóstur og ólu upp sem sín börn til fullorðins ára. Þær eru Ragna Pálsdóttir og Guð- rún Guðmundsdóttir. Sjálf eign- uðust þau tvö börn, Margréti Sig- rúnu, fædda 28.12. 1921. Hún var gift Karli Þorsteinssyni er andað- ist fyrir tæpum mánuði og er því þungur harmur hjá fjölskyldunum er tveir ástvinir falla frá á svo skömmum tíma. Þau áttu fjórar dætur. Sonur Guðbjörns og Mar- grétar heitir Sigurjón, fæddur 30.6. 1937. Kona hans er Gunnlaug Jónsdóttir og þau eiga þrjú börn. Á sjöunda áratugnum bauðst Guðbirni föst vinna sem í augum aldamótakynslóðarinnar veitti heimilinu örugga afkomu. Þetta var hjá Mjólkursamsölunni í Reykjavík og átti hann að annast viðhald og viðgerðir. Þau kvöddu því Ásheima og Selfossbúa með söknuði og settust að í Safantýri 93, þar sem eftirlifandi kona hans býr nú. Guðbjörn var vel látinn í starfi og hélt því svo lengi sem aldurinn leyfði. Vinnuþrekið var þó ekki búið og hann fékk starf hjá Jóni Sveinss.vni í Stálvík. Margrét, kona hans, var sem hann og hefur haldið vinnuþreki fram á þennan dag. 82 ára varð hann þó að láta undan síga vegna lasleika sem ágerðist og síðustu mánuðina hefur hann legið þungt haldinn á Landakotsspítala. Hann andaðist 20.11. Við hjónin vottum Margréti, börnum þeirra og ástvinum öllum, innilega samúð og biðjum guð að blessa þeim minninguna um mæt- an ntann. Hulda Pétursdóttir, lltkoti. Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför móður okkar, tengdamóöur, stjúpmóöur. ömmu og langömmu, MARGRÉTAR HELGADÓTTUR, Njálsgötu 26. Guö blessl ykkur öll. Sigurður H. Jónsson, Elínborg Jónsdóttir, Ragnar Jónsson, Guöbjörg Gísladóttir, Guðný Jónsdóttir, Sigurður L. Ólafsson, Sigþóra Jónsdóttir, Elias Magnússon, barnabörn, barnabarnabörn. + Þökkum innilega auðsýnda samúö og hlýhug vegna andláts, FILIPPÍU ÓLAFSDÓTTUR, Grettisgötu 35B. Börn, tengdabörn og barnabörn. + Þökkum auösýnda samúð og vinarhug við andlát og útför, GEIRS GÍGJA náttúrufræðings. Svanhvít L. Guðmundsdóttir, og börn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.