Morgunblaðið - 28.11.1981, Side 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1981
Maburtnn mion Sctgki m'er alltQf Qö Qkíq
hrabcxr og hrcz&Ur. "
ást er...
6K) “’7
... samband sem
stöðuyt styrkist.
TM R«o U.S Pat Oft — all rights rcserveo
« 1981 Los Angeles Tiroes Syndicate
Ilvaða réttlæti er í því ad það kom
í minn hlut að giftast þér, sé það
eins og þú segir, að þú hafir getað
valið úr miklu mannvali?
Með .
morgunkaffinu
l>að er meira sannfærandi að ég
taki stóra fiskinn þinn og þú litla
fiskinn minn, þegar við komum
heim.
HÖGNI HREKKVISI
faA'A'4 />£*• Pj/P/P /Oh/.P/A'A /
Til hamingju, strákar!
Kormákr skrifar:
„Þegar ég las mér til ánægju
stutta grein í Mbl. um skákáhuga
Ólafs Thors, rifjuðust upp fyrir
mér tvö atvik sem sýna glöggt
áhuga hans og lifandi tengsl við
íþróttirnar og þá menn, sem að
þeim málum unnu.
Árið 1959 fór landslið okkar í
handknattleik í keppnisför og
hafði af litlum efnum verið unnið
kappsamlega, eins og títt var á
þeim bæ. Birgir Björnsson var þá
fyrirliði landsliðsins og mikil
driffjöður, en skömmu fyrir ferð-
ina varð hann fyrir því óhappi að
fingurbrotna á æfingu, og var því
valinn annar maður í liðið í hans
stað.
Þótti mönnum að vonum súrt i
broti, að Birgir gæti ekki farið
þessa för, því hann hafði svo sann-
arlega til þess unnið. Þess vegna
tókum við okkur saman nokkrir
áhugamenn og settum upp sam-
skotabauk í Bókabúð Lárusar
Biöndal í Vesturveri, en þar vann
ég á þessum árum. Vel gekk að fá
samskot í baukinn, og heldur bet-
ur bættist við þegar Ólafur Thors
snaraði sér inn í bókabúðina einn
morguninn, bauð hressilega góðan
dag og sagði: „Er ekki einhver
baukur hér fyrir hann Birgi
minn?“ Undrandi og utan við mig
rétti ég fram baukinn, og með
höfðinglegri sveiflu stakk leiðtog-
inn splunkunýjum fimmhundruð-
kalli í baukinn.
Tveim árum seinna gerði lands-
Hð íslands garðinn frægan á
heimsmeistarakeppninni í Þýzka-
landi. Flestum á óvart sigraði ís-
land Sviss í undankeppni, og
komst þannig í sjálfa úrslita-
keppnina. Morguninn eftir hinn
sæta sigur gegn Sviss, barst okkur
svohljóðandi skeyti: „Eftir hat-
rammar deilur um landhelgismál
á Alþingi Islendinga sameinumst
vér í gleði yfir sigri ykkar. Til
hamingju, strákar. Ölafur Thors.“
Já Ólafur Thors kunni góð skil á
íþróttum og gildi þeirra, og kunni
að meta það sem vel var gert.“
íslensk poppmúsik engin gullnáma
UB 40 skrifar:
„Hinn 7. nóv. sl. heldur hr.
Flinkur því fram að Bubbi Morth-
ens syngi inn á plötur til að græða
peninga. Ef Bubbi hefði ekki sleg-
ið svona svakalega í gegn þá væri
hann ennþá að vinna á eyrinni eða
í einhverjum togaranum o.s.frv.
Þetta rökstyður fiinkur með plöt-
unum ísbjarnar blús / Rækju-
reggae / Geislavirkir / 45 rpm /
Plágan og í upphafi skyldi endinn
skoða. Þetta eru plötur sem Bubbi
söng inn á á rúmu ári. (Flinkur
gleymdi Flugum / Gæðapoppi /
Northern Lighthouse og kasettu
Vísnavina). Jafnframt fullyrðir
Flinkur að útgefandi Bubba,
Steinar hf., gefi ekkert út án þess
að vera öruggur um pottþétta sölu.
Nú er það svo að íslensk popp-
músík er engin gullnáma. Ég full-
yrði hiklaust að Bubbi myndi hafa
fleiri seðla milli handanna ef hann
væri ennþá sjómaður / farand-
verkamaður. — Og það þó t.d.
„Plágan“ sé söluhæsta íslenska
platan í ár. Mjög sennilega hefur
Steinar hf. gefið plöturnar út með
hagnaði. Það hlýtur eiginlega að
vera. En afsannar það að Bubbi
syngi af listþörf?
Bubbi hefur aldrei
endurtekið sig
Flinkur stendur í þeirri trú að
Bubbi sé iðnaðarrokkari vegna
þess að Bubbi hefur sungið inn á
þetta margar plötur á einu ári.
Flinkur talar um Bubba / Utan-
garðsmannafæriband. Þarna talar
Flinkur af vanþekkingu. Færibönd
framleiða sömu vöruna í fjölriti.
En í sjálfu sér þurfa færiböndin
ekki að afkasta meiru en duglegir
listamenn. Bubbi hefur þróað
músík sína meira á einu ári en
nokkur annar íslenskur poppari.
Hann hefur aldrei endurtekið sig.
Sá sem heldur því fram að t.d.
Plágan sé kópía af ísbjarnarblús-
inum er meira en lítið ruglaður á
músíksviðinu. Og sá sem skynjar
ekki muninn á sköpunargleði og
andagift annarsvegar og geldri
„session“-vinnu hinsvegar, ja,
hann ætti svo sannarlega að halda
sig utan við músíkumræðu.
Að lokum vil ég taka fram að ég
hef hlustað ailtof oft á Ricochet.
Ef Flinkur pælir svolítið í síðustu
þrem lögum Plágunnar þá fattar
hann kannski hvar hundurinn
liggur grafinn."
Ætti endilega að mal
bika Bláfjallaveginn
Ragnhildur Kristjánsdóttir,
Eskifirði, skrifar:
„Velvakandi góður. Viltu
gera svo vel að birta eftirfar-
andi:
Þakka greið svör Vegagerð-
ar. Alþingi má vera heiður að
þessari ráðstöfun almannafjár.
Það skilur náttúrlega hvert
barn að Reykvíkingar geta ekki
verið að eyða dýrmætum tíma
sínum í að hengslast við veg-
kanta meðan blikkbeljur fara
hjá, sjálfsagt einar 10—20 ,á .
tímann, ef þá langar að bregða
sér á hestbak til að létta af sér
stressinu, blessaða. Mér finnst
endilega að það ætti að mal-
bika Bláfjallaveginn í snatri,
svo að fólk þurfi ekki að leggja
bílana sína í holóttan og for-
ugan veg, þó að það skreppi á
skíði. Landshornalýðnum er
vorkunnarlaust að notast
áfram við svoleiðis vegi, hann
er hvort sem er allaf uppdrull-
ugur úr fiskslori eða kúaskít,
nema hvort tveggja sé.“