Morgunblaðið - 01.12.1981, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1981
Landbúnaðarvörur hækka um 9,1%-15,7% í dag:
Lítri af mjólk
kostar 6,65 kr.
Gæruverð hækkar ekki vegna niðurgreiðslna
RÍKISSTJÓRNIN staðíesti síðdeg-
is tillögur sexmannanefndar og
tekur nýtt verð á búvöru gildi í dag
lögum samkvæmt. í smásölu
hækka búvörur um 9,7-15,7%, að
undanskiidum ópökkuðum kartöfl-
um, sem hækka um 19,7%. Verð á
Athugasemd
frá Styrmi
Gunnarssyni
DAGBLAÐIÐ & Vísir birtir í
gær „kjallaragrein Styrmis
Gunnarssonar, Morgunblaðsrit-
stjóra“, svo vitnað sé til kynn-
ingar á forsíðu. Af þessu tilefni
vil ég taka fram eftirfarandi:
Ég hef ekki skrifað
„kjallaragrein" í Dagblaðið &
Vísi og hef ekki hugsað mér að
gera það.
Texti sá, sem birtist eftir
mig með þessari kynningu
er ræða, sem ég flutti á Við-
skiptaþingi Verzlunarráðs ís-
lands í haust. Ég hef ekki gef-
ið Dagblaðinu & Vísi eða öðr-
um heimild til þess að birta
þessa ræðu og er það gert í
óþökk minni.
Styrmir Gunnarsson.
gærum var ekki hækkað þar sem
skinnaiðnaðurinn er ekki talinn
geta tekið á sig hækkun á hráefni.
Til að mæta þeirri hækkun, sem
verða hefði átt á gærum samkvæmt
hækkun á verðlagsgrundvellinum,
jók ríkisstjórnin niðurgreiðslur á
kjöt og er áætlað að þær nemi
210—220 þúsund krónum á mán-
uði. Þessar niðurgreiðslur koma
ekki á aðrar afurðir en gærur.
Lítri af mjólk hækkar úr 5,85 kr.
í 6,65 krónur eða um 13,7%.
Lítri af rjóma hækkar úr 43
krónum í 47,60 eða um 10,7%.
Hvert kíló af smjöri hækkar úr
72,25 í 80,40 krónur eða um
11,3%.
Kíló af súpukjöti hækkar úr
43,45 kr. í 49,85 eða um 14,7%.
Hvert kíló af kartöflum í 5 kg.
pokum kostaði 5,36 kr. en kostar
nú 6,20 kr. og er hækkunin
15,7%. Eins og áður sagði hækka
ópakkaðar kartöflur um 19,7%.
Kíló af nautakjöti í heilum og
hálfum skrokkum hækkar úr
45,75 í 51,10 eða um 11,7%.
Verðlagsgrundvöllur landbún-
aðarvara hækkaði um 10,2% við
útreikninginn og var launaliður
bóndans stærsti liðurinn eða um
6,04%, en aðrir rekstrarliðir
hækkuðu grundvöllinn um
4,16%. Eftir því sem vörur eru
meira niðurgreiddar taka þær
meiri hækkun hlutfallslega.
ATVR:
Hækkun áfengis og tóbaks
nemur 41% á einu ári
Dýrasta áfengisflaskan kostar nú 1.725
ÁFENGI og tóbak hefur nú verið
hækkað um 15% og hefur því sam-
tals hækkað um 41% á einu ári. Eftir
þessa hækkun kostar dýrasta áfeng-
isflaskan, gallon af koníaki, sem
fæst hjá Áfengis- og tóbaksverzlun
ríkisins, nú 1.725 krónur.
Algengustu tegundir vindlinga
hafa því hækkað í kr. 19,70 úr
17,15 krónum. Algengir vindlar
kosta nú 29,50, tíu stykki og ein og
hálf únsa af Half and Half pípu-
tóbaki hækkar úr 171 krónu í kr.
196,80. Ódýrustu rauðvínin hækk-
uðu úr 43 krónum í 49, miðlungs-
vínin úr 58 krónum í 67 og þau
dýrari úr 85 krónum í 98. Flestar
vískítegundir kosta nú 267, hafa
hækkað um 35 krónur, svo og
pólskt og rússneskt vodka.
Smirnoff-vodka kostar nú kr. 275
en áður 239. Gintegundir hafa
hækkað í 267 úr 228 krónum, ódýr-
ari tegundir af koníaki hækka úr
251 krónu í 289 og dýrasta flaskan,
sem seld er í áfengisútsölum er
gallonsflaska af koníaki, og kostar
1.725 krónur.
Gísli Halldórsson hefur teiknað skautahöllina en hún á að rísa austan við íþróttahöllina í Laugardal í
Reykjavík.
Skautahöll reist í Laugardalnum
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að
reist verði í Reykjavík skautahöll
og mun hún standa við hlið íþrótta-
hallarinnar í Laugardal. Gísli Hall-
dórsson arkitekt teiknaði húsið,
sem er um 4.500 fermetrar að flat-
armáli eða nokkru stærra en
íþróttahöllin.
í skautahöllinni er ráðgert að
hafa 30 x 60 m skautasvell eða
löglega stærð fyrir ísknattleiki.
Sæti er fyrir 1.800 áhorfendur og
rými fyrir 700 til viðbótar í stæð-
um. í framhluta hússins, sem er á
tveimur hæðum er auk bún-
ingsklefa, gert ráð fyrir keiluspili
í kjallara og veitingaaðstöðu á
efri hæð. Þá er gert ráð fyrir að
skautahöllin tengist iþróttahöll-
inni og með því myndast samfellt
sýningarsvæði. í 1. áfanga er gert
ráð fyrir að ljúka undirstöðum og
koma sjálfu skautasvellinu í
gagnið, en í 2. áfanga yrði byggt
yfir það og í 3. áfanga yrði fram-
hlutinn reistur.
Kröfugerð BHM send fjármálaráðherra:
Telja kaupmátt launa hafa
rýrnað um 20% frá 1977
BANDALAG háskólamanna sendi
fjármálaráðherra kröfugerð sína í
gær um leið og samningum var sagt
upp með þriggja mánaða fyrirvara.
Þá hcfur BHM krafist endurskoðun-
ar á gildandi kjarasamningum, en í
lögum er ákvæði um gagnkvæman
endurskoðunarrétt verði breytingar
á launakjörum almennt. BHM fór
þessa á leit 20. nóvember í fram-
haldi af samningum ASÍ og vinnu-
veitenda, en fundur hefur ekki verið
haldinn með BHM og ríkinu.
Að sögn Guðríðar Þorsteins-
dóttur, framkvæmdastjóra BHM,
telja opinberir starfsmenn í BHM
að kaupmáttur launa þeirra hafi
rýrnað um 20% frá því á árinu
1977 og er ein aðalkrafan um að
þessi kaupmáttarskerðing verði
leiðrétt. Þá er lögð áherzla á aukn-
ar starfsaldurshækkanir, en Guð-
ríður sagði að þær væru yfirleitt
litlar hjá ríkinu og mun meiri á
hinum almenna vinnumarkaði. Þá
sagði hún, að kröfur væru um að
iaugardagar væru ekki vinnudag-
ar í orlofi, sex mánaða barnsburð-
arleyfi og frí vegna veikinda
barna. Guðríður Þorsteinsdóttir
sagði að kröfugerð BHM væri á
margan hátt sambærileg við
kröfugerð BSRB, sem lögð var
fram í síðustu viku.
Samningstími BHM er bundinn
til tveggja ára samkvæmt lögum.
Flugstöðvarmálið:
Utanríkisráðherra skip-
ar undirbúningsnefnd
Stór hjálparsend-
ing til Indlands
brann í Hamborg
STOR sending af meðulum, fatn-
aði og öðrum hjálpargögnum, sem
Þóra Einarsdóttir, fyrrverandi
formaður Verndar, hafði safnað
handa þurfandi fólki á Indlandi og
sent með Eyrarfossi, var meðal
þess sem eyddist í bruna á hafnar-
svæðinu í Hamborg í sl. viku. Voru
þar 22 stórir kassar, ótryggðir með
öllu.
Þóra hefur dvalið á Indlandi í
5 mánuði á þessu ári, m.a. verið í
Madras, þar sem móðir Teresa
hefur starfað meðal fátækra og
uppi í fjöllum hjá heilögum
Benediktsreglubræðrum, sem
þar vinna hjálparstarf, og því
kunnug þeirri neyð sem þar rík-
ir. Eftir að hún kom heim, tók
hún að safna því sem mest er
þörf fyrir, auk þess sem hún
leggur til sjálf úr eigin búi. Var í
sendingunni mikið af ullarfatn-
aði, peysum, nærfötum, teppum
og sængurfatnaði, því kalt er
uppi í fjöllunum á nóttunni.
Einnig var stór sending af með-
ulum og vítamínum, sem
Reykjavíkurapótek hafði lagt til,
o.fl.
Hafði Þóra skrifað út og til-
kynnt um þessa sendingu, en
ætlaði sjálf að vera komin til
Madras í tæka tíð til að útdeila
úr henni í hjálparstarfi móður
Teresu og sjá um sendingu
áfram upp í fjöllin.
— Það er sárgrætilegt þegar
maður veit um þörfina, að þetta
skuli allt vera horfið, sagði Þóra.
Þóra Kinarsdóttir
Ég er að Iáta þýða bréfið frá
skipafélaginu á ensku til að
senda, svo að þessu einstaka
óhappi verði trúað. Nú veit ég
ekki hvað ég á að gera. Mig hálf-
óar við að byrja á að safna aftur,
enda ekki heilsuhraust. Héðan af
væri fyrst og fremst um að ræða
að fara með teppi og ullarfatnað
og hann Armann Jóhannsson í
Jasmin mundi hjálpa mér sem
fyrr. Þörfin er svo gífurlega mik-
il.
Utanríkisráðherra skipaði 13. nóv-
ember sl. þriggja manna ncfnd til að
fjalla um hönnun og hugsanlega
áfangaskiptingu nýrrar flugstöðvar
byggingar á Keflavíkurflugvelli, og
jafnframt til að ákveða hvernig lánveit-
ing sem heimiluð er í fjárlagafrum-
varpi fyrir árið 1982 verður nýtt. For
maður nefndarinnar er Jóhann Ein-
varðsson alþingismaður og kemur
nefndin saman í fyrsta skipti í dag.
Aðrir í nefndinni eru Edgar Guð-
mundsson verkfræðingur og Ólafur
Ragnar Grímsson alþingismaður. í
skipunarbréfi nefndarinnar er vísað
í 6. gr. frumvarps til fjárlaga fyrir
árið 1982 þar sem er heimild til 10
miilj. kr. lánsfjárveitingar, en þess
jafnframt getið, að 3 manna nefnd
verði falið að athuga með hönnun og
hugsanlega áfangaskiptingu bygg-
ingarinnar, jafnframt að ákveða
hvernig lánveitingin verður nýtt.
Á fjárlögum Bandaríkjaþings er
20 milljónum Bandaríkjadollara
varið til stöðvarinnar, en ljóst er,
samkvæmt upplýsingum frá Helgá
Ágústssyni hjá varnarmáladeild
utanríkisráðuneytisins, að þá fjár-
hæð þarf að nota, eða að hafist verði
handa um ráðstöfun hennar fyrir 1.
október 1982 til að fjárveitingin falli
ekki niður.
Einar Asmurtdsson
í Sindra látinn
AÐFARANÓTT laugardagsins lést hér Hann var í hópi stofnenda Meistara-
í Reykjavík Einar Asmundsson, stofn- félags járniðnaðarmanna og sat í
andi og forstjóri Sindrafyrirtækjanna, stjórn þess um árabil.
áttrædur að aldri.
Einar hafði átt við vanheilsu að
stríða um langt árabil. Kona hans, Jak-
obína l>órðardóttir, lifir mann sinn,
ásamt sex bornum þeirra, en þeim varð
alls 8 barna auðið.
Einar varð áttræður 23. ágúst síð-
astliðinn. Hann var fæddur á Fróðá
í Fróðarárhreppi á Snæfellsnesi.
Hann nam járnsmíði hér í Reykjavík
og lauk iðnnámi árið 1924. Það sama
ár stofnaði hann fyrirtæki sitt, Vél-
smiðjuna Sindra. Rak Einar það
fyrirtæki af miklum dugnaði alla tíð.
Með árunum varð rekstur þess æ
umfangsmeiri og var þá Sindraíyrir-
tækjunum skipt upp í deildir.
Einar skipaði sér þegar í raðir
sjálfstæðismanna og var t.d. einn af
stofnendum Heimdalls, félags ungra
sjálfstæðismanna hér í bænum. Einar Ásmundsson