Morgunblaðið - 01.12.1981, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1981
13
Lífæðin
Laugavegur
Eftir Hjört Jónsson
Síðastliðin 10 ár hefur hvað
eftir annað komið fram krafa frá
stjórn Strætisvagna Reykjavíkur,
um að almenn bifreiðaumferð á
Laugavegi, frá Hlemmtorgi að
Lækjargötu væri takmörkuð meir
og meir, og að bifreiðastöður
væru bannaðar við götuna, svo
vagnar SR ættu greiðari leið
þennan spöl. Sumar þessara tak-
markana hafa náð fram að
ganga.
Þessi krafa SR byggist á því að
á einstökum umferðar-„toppum“
— tiltölulega fáum umferðar-
„toppum“ — tekur það vagnana
lengri tíma, að aka þessa vega-
lengd, en áætlað er í tímaáætlun
strætisvagnanna. í timaáætlun-
inni eru vögnunum ætlaðar 5—6
mínútur að aka þessa leið, sem er
of lítið á mestu annatímunum, en
langoftast nægilegt. Sennilega
hefur sérstaða þessarar mestu
verzlunar-, umferðar- og göngu-
götu borgarinnar ekki verið tekin
nógu vel til greina í áætlanakerfi
SR í upphafi.
Það er mjög skiljanalegt að SR
gefi vögnunum ekki í öllum ferð-
um það rúman tíma að nægði
fyrir fáar ferðir mesta annatím-
ann. Slíkt væri óeðlilegt, þar sem
mesti umferðarþunginn stendur
aðeins yfir lítinn hluta dagsins.
Það verður því að fara meðalveg,
sem þýðir máske nokkuð rúman
tíma fyrir vagnana í langflestum
ferðunum og knappan tíma í
þeim tiltölulega fáu ferðum, sem
umferðin er í hámarki. Auðvitað
eru aðrar leiðir, sem SR getur
farið, til þess að leysa þetta af-
markaða tilfelli á Laugavegi og
síðar máské víðar.
En eins og það er fráleitt að
gefa strætisvögnunum hámarks-
tíma í öllum ferðum, þegar þeir
þurfa hann ekki nema í örfáum
ferðum, eins er það alveg fráleitt
og óhugsandi, að ryðja umferð af
götunni einungis til þess að
strætisvagnarnir geti ekið hana
með fullum hraða, þann stutta
tíma, sem umferðin er mest.
Lausnina er því ekki þar að finna.
Ekki liggur fyrir hve umferðar-
„topparnir" á Laugavegi, frá
Helmmtorgi að Lækjartorgi, er
mikill hluti af allri umferðinni.
SR halda því fram, að á mesta
annatímanum geti það tekið
vagnana 10—15 mínútur, jafnvel
20 mínútur að aka þessa leið, en
samkvæmt könnun Kaupmanna-
samtaka Islands, getur þetta
ferðalag tekið mest 10 mínútur á
annatíma. Hér skakkar æði
miklu, og engum er til gagns, og
síður góðrar lausnar að vænta, ef
menn halda sig langt frá hinu
sanna. Þetta með umferðar-
„toppana“ og aksturstímann þarf
að kanna alveg hlutlaust.
Nýjar gamlar tillögur
Nú nýverið hafa komið fram,
enn á ný, tillögur um umferðar-
hömlur á Laugavegi og tillögur
um sérstaka akgrein fyrir
strætisvagna, eitir Laugavegi,
alla leið frá Hlemmtorgi niður á
Lækjartorg. Tilgangurinn með
þessum tillögum er sá einn, eins
og fyrr segir, að strætisvagnarnir
geti ekið hratt þennan spöl, og
náð þannig gamla tímaplaninu á
þessari leið.
Tillagan um umferðarhömlur,
gerir ráð fyrir því, að öll umferð
vestur Laugaveg frá Snorrabraut
verði stöðvuð við Barónsstíg, og
bifreiðum beint upp eða niður
Barónsstíg. Aftur verði Lauga-
vegi lokað við Frakkastíg og um-
ferð beint niður á Hverfisgötu,
svo þægilegt sem það er að kom-
ast inn á þá götu, eða yfir hana.
Enn verði lokað við Klapparstíg,
og allri umferð mokað upp
Klapparstíg. Sjá menn ekki hve
gaman yrði þá á gatnamótum
Njálsgötu, Klapparstígs og
Skólavörðustígs? Og loks yrði
ennþá lokað við Þingholtsstræti
og öllum bifreiðum troðið inn í
Þingholtsstræti til suðurs. Auð-
vitað eiga strætisvagnarnir að
aka Laugaveg alveg hömlulaust
samkvæmt tillögu þessari. Svona
tillaga hefur verið lögð fram í
Umferðarnefnd, að því er virðist í
fullri alvöru. Sem betur fer
glampar stundum á mikla hug-
kvæmni og töluverða snilld hjá
einstöku mönnum.
Hin tillagan er frá stjórn SR að
strætisvagnar fái sér akrein alla
leið frá Hlemmtorgi niður á
Lækjartorg. Þessi tillaga þýðir að
leggja verður niður 100 bílastæði
við Laugaveg.
Svo sem allir borgarbúar vita,
er tilfinnanlegur skortur á bif-
reiðastæðum við Laugaveg, í
nágrenni hans og í allri miðborg-
inni. Þetta hefur verið mikið
vandamál í mörg ár, og fer auð-
vitað hraðversnandi. Segja má að
ekkert átak hafi verið gert til
þess að leysa þennan vanda, þrátt
fyrir ýmsar tillögur, óskir og að-
varanir. Það kemur því úr hörð-
ustu átt sú tillaga, sem stefnir að
því að loka 100 bifreiðastæðum á
Laugavegi, og ætla mætti að mik-
ið lægi við. Þessi tillaga ætlast
einnig til þess, að hvergi megi
stöðva bifreið, á þessari leið niður
Laugaveg, án þess að öll umferð,
önnur er strætisvagna stöðvist að
baki. Gatan yrði sennilega að
hraðbraut, án þess að þjóna um-
hverfi sínu, eða gjörsamlega af-
kastalaus fyrir aðra umferð en
strætisvagna.
Þetta vilja borgarbúar ekki.
Það er ekki í verkahring
stjórnar SR að breyta lífsviðhorf-
um manna eða háttalagi, frekar
hið gagnstæða, að semja sig að
lifnaðarháttum fólksins sem býr í
borginni. Reykvíkingar ætlast til
þess, að þjónustufyrirtæki borg-
arinnar hafi góða yfirsýn, ekki
aðeins yfir eigin rekstur, heldur
einnig yfir hagsmuni heildarinn-
ar.
Umferðin um Laugaveg hefur
gengið frekar vel undanfarin
mörg ár, síðan stöðumælarnir
voru fluttir yfir götuna, og svo er
enn. Umferðin er hæg og á að
vera það, því þetta er mesta
göngu- og verslunargata borgar-
innar. Gangstéttir eru víða mjóar
og slæmar. Hraðari umferð býður
slysum heim.
Það eru hátt á þriðja hundruð
fyrirtæki starfandi við Laugaveg,
frá Rauðarárstíg að Lækjartorgi.
Þessi fyrirtæki sækir fólk úr
Reykjavík og af öllu landinu.
Þessi starfsemi væri ekki við
þessa götu, og verður ekki, ef
fólkið kemst ekki í götuna eða að
henni á venjulegum farartækj-
um.
Strætisvagnar eru nauðsynleg
og ágæt tæki, það er einkabíllinn
og leigubíllinn líka. Bæði farar-
tækin ejga fyllsta rétt á sér.
Einkabíllinn lýtur vilja eiganda
síns, en strætisvagninn á að lúta
vilja almenningsþarfa. Góð nýt-
ing strætisvagna er að sjálfsögðu
rekstrarlegt takmark, en þjón-
ustan við almenning — og undir
það falla líka 300 fyrirtæki við
Laugaveg, og þeir sem þangað
eiga erindi, — á að hafa forgang.
Breidd Laugavegs er ekki talin
Hjörtur Jónsson
„Það eru hátt á þriðja
hundrað fyrirtæki starf-
andi við Laugaveg frá
Rauðarárstíg að Lækj-
artorgi. Þessi fyrirtæki
sækir fólk úr Reykjavík
og af öllu landinu. Þessi
starfsemi væri ekki við
þessa götu, og verður
ekki, ef fólkið kemst
ekki í götuna eða að
henni á venjulegum far-
artækjum.“
leyfa þrjár akreinar með svo
stórum vögnum sem strætisvagn-
arnir eru, en götuna verður að
nýta til fulls. Þess vegna kemur
ekki til greina að ætla helming
hennar eingöngu strætisvögnum
svo þeir geti ekið hratt og sparað
nokkrar mínútur á mestu um-
ferðar-„toppunum“. Sé góður vilji
fyrir hendi, þá er auðvelt að leysa
hugsanlegan vanda strætisvagn-
anna á Laugavegi, án þess að
þrýsta götunni niður í lág-
marksnýtingu, eða eyðileggja
hana með hraðakstri.
Að lokinni könnun á aksturs-
„toppunum" og raunverulegum
töfum vagnanna á annatímum
dagsins, getur stjórn SR gert sín-
ar ráðstafanir, ef niðurstöður
könnunarinnar gefa tilefni til.
Hún getur t.d. gefið vögnunum
meiri tíma á aðalumferðartímun-
um, stytt viðdvöl þeirra á enda-
stöðvunum, hætt við tímasetingu
á hverri viðkomustöð og látið
vagnana renna áfram með nokk-
urn veginn jöfnu millibili, svo
sem erlendis tíðkast — það eitt
mundi auka nýtingu vagnanna
mikið — og margar aðrar lausnir
koma áreiðanlega til greina.
Strætisvagnaáætlunum verður að
breyta ef þröf krefur, það er
miklu stærra mál að breyta göt-
unum eða lífsvenjum borgarbúa.
Allar borgir hafa sína mið-
borgarkjarna og sínar hefbundnu
verslunar- og göngugötur. Aðal-
athafnagötur Reykjavíkur eru
Laugavegur, Bankastræti og
Austurstræti. Þessa götulínu
megum við ekki skemma, hún
verður að halda tilgangi sínum og
svip.
Eftir því sem borgin stækkar,
rísa upp myndarlegar verslun-
armiðstöðvar, fyrirtæki og stofn-
anir í nýjum borgarhverfum. Það
er sjálfsagt, eðlilegt og gott. En
slíkir borgarkjarnar koma aldrei
að öllu leyti í stað okkar einu
gömlu og góðu miðborgar, og
vissulega finnst manni að mið-
borginni hafi of lítill gaumur ver-
ið gefinn, og of lítill sómi sýndur
lengi undanfarið. Vonandi verður
þar breyting á með komandi vori.
matar-og kaffistell
frá Ro^pnthril ^
1 M V% 'JL M U MVMM Lotus: Frábært matar- og kafti
Suomi
Suomi postulínið frá Rosenthal á
sér fáa líka, enda er lögð ótrúleg
vinna í framleiðslu þess. Suomi
er hannað af Timo Sarpaneva.
í raun og veru er ekkert postulín
fullkomið. En Suomi er það
pbstulín, sem listamenn Rosen-
thal telja einna fullkomnast.
Suomi er gljáð í handavinnu.
Vélar skila ekki nægilega fínlegri
vinnu. Hluti af framleiðslu Suomi
er valinn til skreytingar með gulli
og hvítagulli af heimsfrægum
listamönnum.
Komið og skoðið Suomi í Ros-
enthalverzluninni.
Lotus: Frábært matar- og kaffistell hannað af
Björn Wiinblad. Glasasett og hnífapör í sama
stíl. Lítið á gjafavöruúrvalið í Rosenthal verzl-
uninni, — skoðið jólaplatta, mánaðardiska og
postulín.
Rosenthal vörur. Gullfallegar — gulltryggðar.
Romanze
Romanze — dýrindisstell frá Ros-
epthal. Fágað form. Því sem næst
gegnsætt postulín. Romanze er
árangur margra ára þróunar í efn-
isblöndun og framleiðsluaðferð-
um. Þess vegna hefur Wiinblad og
Wohlrab tekist að hanna svokallað
meista/averk: Romanze — dýr-
indisstell frá Rosenthal.
.oúervÁxs
studio-line
A. EINARSSON & FUNK
Laugavegi85
SÍMI:18400