Morgunblaðið - 01.12.1981, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1981
15
Arndís Björnsdóttir skrifar frá Freiburg
Helmut Schmidth
Hans Axel
Mikil spenna
í þýskum
stjórnmálum
Allir stjórnmálamenn lifa við
mikið álag. Einn þeirra, sem álag-
ið hefur leikið grátt, er Helmut
Schmidt, kanzlari Vestur-Þýzka-
lands. Schmidt hafði fundið til
óþæginda fyrir hjarta en veiktist
hastarlega í fyrri hluta október-
mánaðar og hékk líf hans á blá-
þræði. Hann gekkst undir mikla
skurðaðgerð og var settur í hann
hjartagangráður. Þótt kanzlarinn
og ráðgjafar hans reyndu eftir
megni að breiða yfir hversu al-
varlegt ástandið var, komust
fréttamenn þó að hinu rétta. Fjór-
um sinnum missti kanzlarinn
meðvitund og féll í dá frá 32 og
allt að 43 sekúndum.
Menn voru í alvöru farnir að
hugleiða hver yrði eftirmaður
Schmidts. Helzt voru nefndir Jo-
hannes Rau, sem nú gegnir for-
sætisráðherrastörfum í Nord-
rhein-Westfalen, Hans Apel, fyrr-
um fjármálaráðherra í sambands-
stjórninni, og Hans Matthöfer.
Matthöfer er nú fjármálaráðherra
í ríkisstjórn Helmut Schmidts.
Hann er mjög hæfur maður og var
afar vinsæll, en hið óvinsæla starf
fjármálaráðherra hefur dregið
nokkuð úr vinsældum hans.
Schmidt hefur vísað á bug öllum
orðrómi um að hann sé að hætta.
Hann vinnur nú meira en nokkru
sinni áður, en spurning er, hvort
þjóðin kunni honum sérstakar
þakkir fyrir að fórna heilsu sinni
á altari stjórnmálabaráttunnar.
I þýzkum stjórnmálum ríkir nú
meiri spenna en oft áður. Verð-
bólga mun á þessu ári verða um
7%, en það telja Þjóðverjar alltof
mikið. Ennfremur er hallinn á
fjárlögum talinn verða um 10
milljarðar marka og hin sparsama
og hugsandi þýzka þjóð telur slíkt
vita á illt. En verst er ástandið í
atvinnumálum. Atvinnulausum
fer fjölgandi og er áætlað, að tala
þeirra muni nema 1,7—1,8 millj-
ónum árið 1982. Ástandið í efna-
hagsmálum er því heldur ískyggi-
legt, þótt samsteypustjórn jafnað-
armanna og frjálsra demókrata
beri sig vel. Raunar má segja, að
frjálsir demókratar (FDP) hafi
lykilaðstöðu. Þeir hafa völd, sem
eru í engu samræmi við kjörfylgi
(innan við 10%). Þess vegna er
rætt í vaxandi mæli um þann
möguleika, að þeir fari í stjórn
með hinum íhaldssömu, kristilegu
demókrötum (CDU/CSU). Stjórn-
arandstaðan (CDU/CSU) gerist
sífellt háværari á þingi og bendir
m.a. á misnotkun fjármuna í ríkis-
kerfinu. Gagnrýni á fjárlögin,
halla ríkissjóðs og verðbólguna
fær einnig góðan hljómgrunn. I
þessum sviptingum þarf kanzlar-
inn að vera ímynd stöðugleika.
Það er því ekkert undarlegt þótt
stjórnarandstaðan hafi gripið
tækifærið í veikindum Schmidts
og víst er, að stjórnin stendur
heldur verr en áður. Verðhækkan
ir dynja yfir í hverjum mánuði og
spáð er jafnvel 1% samdrætti
þjóðarframleiðslu á næsta ári.
Vinsældir jafnaðarmanna-
flokksins byggjast að miklu leyti á
persónulegum vinsældum
Schmidts. Franz Josef Strauss,
formaður kristilegra (CSU) í Bay-
ern, þykir hins vegar bolalegur,
lítt aðlaðandi og heldur ofstækis-
fullur í ræðum sínum. Átti það
áreiðanlega mikinn þátt í ósigri
flokksins í síðustu kosningum.
Menn bíða spenntir eftir fram-
vindu mála. Á öllum vígstöðvum
eru menn í biðstöðu og munu vera
viðbúnir að tefla fram kandídöt-
um sínum, þegar þar að kemur.
VDLECSWAGEN
Þýskur bíll sem allir þekkja
Framhjóladrif - Halogen höfuðljós - Aflhemlar - Höfuópúóar
Þynnuöryggisgler í framrúóu - Rúlluöryggisbelti
Rafmagns- og fjöörunarkerfi eru sérstaklega útbúin
fyrir íslenskt veöurfar og vegi.
Rúöuþurrka á afturrúóu
A/erð frá kr. 104.800
rHlHEKLA
I Laugavegi 170-172 Sír
VHF
Sími 212 40
HEIMILISTÆKI BARNAFÖT HÚSGÖGN MATVÖRUR