Morgunblaðið - 01.12.1981, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1981
19
Byltingartilraunin á Seychelles-eyjum:
Útlagasamtök á
bak við árásina
London, 30. nóvember. AP.
PAUL CHOW, seychellskur blaðamaður, sem er í útlegð í Englandi, lýsti því
yfir á sunnudag, að hann hefði lagt á ráðin um tilraun málaliða til að steypa
stjórn eyjanna, sem gerð var í síðustu viku. Hann neitaði einnig þeim
fullyrðingum sumra Afrikuríkja, að SuðurAfríkustjórn hefði átt þátt í bylt-
ingartilrauninni.
__\ ,'^Fr___________________
Hermaður fylgir einu fórnarlambi byltingartilraunarinnar á Seychelles-eyjum í sjúkrahús.
Öngþveiti í bíói
Napólí, 30. nóvember. AP.
SJÖ manns eru í lífshættu og 15
aðrir eru rúmliggjandi eftir að full-
komið öngþveiti varð í kvikmynda-
húsi og hundruð manna þustu á dyr.
Tilefnið var það að meðan á sýningu
stóð hrópaði einhver „jarðskjálfti,
takið til fótanna“! en 12 klukku-
stundum áður höfðu orðið jarðhrær
ingar austur af borginni.
Fólki á þessum slóðum er í
fersku minni jarðskjálftinn mikii
fyrir ári þegar hátt á þriðja þús-
Cordova kjörinn
forseti Honduras
Tegucigalpa, 30. nóv. AP.
FORSETAKOSNINGAR fóru fram í
Honduras í gær, sunnudag, og er
Ijóst orðið, að Roberto Suazo Cordo-
va, sem er læknir að mennt, muni
bera sigur úr býtum. Flokkur hans,
Frjálslyndi flokkurinn, bar sigurorð
af helsta andstæðingi sínum, Þjóðar
flokknum, í næstum öllum kjördæm-
um landsins. Þetta er í fyrsta sinn í
tíu ár sem efnt er til frjálsra forseta-
kosninga í landinu.
Cordova, sem er 54 ára að aldri,
hefur tekið mikinn þátt í stjórn-
málum i landi sínu og setið þrjú
kjörtímabil á þingi. Hann er mik-
ill stuðningsmaður stefnu Banda-
ríkjastjórnar í málefnum Mið-
Ameríku, sem hann segir, að geti
komið í veg fyrir upplausn og ein-
ræði í þessum heimshluta.
Frjálslyndi flokkurinn tekur nú
aftur við valdataumunum í Hond-
uras eftir 18 ára hlé, en árið 1963
tók herinn völdin í sínar hendur
og hefur haldið þeim síðan að und-
anskildum 18 mánuðum, 1971—72,
sem einnig enduðu með valdatöku
hersins.
Mitterrand í Alsír
Alsír, 30. nóvember. AP.
MITTERRAND Frakklandsforseti
er kominn í heimsókn til Alsír. Það
þykir tíðindum sæta, en Mitterrand
var innanríkisráðherra þegar upp-
reisnarmenn í Alsír hófu fyrir alvöru
bardaga gegn nýlendustjórninni í
landinu, en þá hafði Alsír verið ný-
lenda Frakka í eina öld. Styrjöldin í
landinu tók átta ár, en þegar henni
lauk lágu 250 þúsundir manna í
valnum.
Mitterand var sá innanríkis-
ráðherra í Frakklandi sem gaf
Öfgamenn sakaðir um að
sprengja f Damaskus
Damaskus, 30. nóvember. AP.
STJÓRNIN í Sýrlandi kennir öfga-
fullum múhammeðstrúarmönnum
Spánn:
Herforingi
handtekinn
Madrid, 30. nóvember. AP.
HÖFUÐSMAÐUR í hernum, Na-
varro að nafni, var í dag handtek-
inn fyrir að siga herlögreglu á fólk
sem var að mótmæla aðild Spánar
að Atlantshafsbandalaginu. Atvik
þetta átti sér stað í La Courna í
norðvesturhluta landsins, en mót-
mælendur munu hafa verið um
þúsund talsins.
und manns létu lífið, en Napólí-
borg varð illa úti í þeim náttúru-
hamförum. Leitað er nú mannsins
sem olli öngþveitinu í kvikmynda-
húsinu en þar voru um þúsund
Chow sagðist hafa flúið til
Lundúna fyrir hálfu öðru ári eftir
að hafa setið í átta mánuði í fang-
elsi á Seychelles-eyjum án þess að
vera ieiddur fyrir rétt. Þegar til'
Englands kom stofnaði hann
ásamt öðrum samtök seychellskra
stjórnarandstæðinga, sem kostuðu
síðan aðgerðir málaliðanna, að því
er hann sagði. Hann sagði einnig,
að önnur tilraun yrði gerð til að
steypa stjórninni, sem hann sagði,
að væri marxísk.
Yfirvöld á Seychelles-eyjum
sögðu frá því í dag, að ókunn
flugvél hefði flogið inn í lofthelgi
eyjanna tvær nætur í röð og kváð-
ust þau mundu skjóta hana niður
ef hennar yrði aftur vart.
í dag kom til Bonn í Vestur-
Þýskalandi sendinefnd háttsettra
embættismanna seychellsku
stiórnarinnar no er prinHiö hnó aó
fara fram á fjárhagsstuðning frá
ríkisstjórnum í Vestur-Evrópu.
Á Seychelles-eyjum búa 65.000
manns og er ferðaútvegurinn
stærsti þátturinn í afkomu eyja-
skeggja. Yfirvöld óttast, að at-
burðirnir í síðustu viku kunni að
hafa mjög alvarlegar afleiðingar
fyrir þennan atvinnuveg og þar
með efnahag þjóðarinnar.
III
ERLENT
VOLESWAGEN
VOLKSWAGEN hefur sannaö ágæti sitt
viö íslenskar aöstæöur
í meira en aldarfjóröung.
Verö frá kr. 138.200
fyrstu fyrirmæli um aðgerðir til
að halda aftur af uppreisnar-
mönnum í Alsír. Síðan stríðinu
lauk hefur forseti Frakklands að-
eins einu sinni komið í heimsókn
þangað, en það var Giscard sem
var á ferðinni fyrir sex árum.
Sambúð Frakka og Alsírmanna
hefur verið stirð allar götur frá
stríðslokum og virtist heimsókn
Giscard litlu breyta um það. Nú
gera ýmsir sér vonir um að Mitt-
errand takist að vingast við nú-
verandi ráðamenn í landinu.
[hIhekla
J Laugavegi 170-172 Sír
VHF
Sími 21240
um að hafa sprengt f loft upp bifreið
í íbúðarhverfi í Damaskus, en
sprengjan var svo öflug að hún lagði
í rúst 24 íbúðarhús. 64 létu lífið í
sprengingunni og 135 eru særðir.
Bræðralag múhammeðstrúar-
manna heitir hreyfing sú, sem
stjórnin telur standa að baki
þessu illvirki, en þau samtök hafa
hvað eftir annað staðið fyrir
hermdarverkum til þess að grafa
undán Baath-flokki Assads for-
seta, að því er talið er. Er ekki
talið útilokað að hreyfingin hafi
látið til skarar skríða nú til að
sýna andstöðu sína við Assad og
viðræður hans við sendiboða
Bandaríkjaforseta, Philip Habib,
sem væntanlegur er til landanna
fyrir Miðjarðarhafsbotni innan
skamms.