Morgunblaðið - 01.12.1981, Page 42
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1981
• Sundkappinn Ingi Þór Jónsson frá Akranesi, broshýr eftir eitt af metsundunum. Ingi setti fimm ný íslandsmet.
Ljósm. Sijfurgoir.
Fimm glæsileg Islandsmet Inga
- A- og B-liö Ægis strandaglópar á meginlandinu
SKAGASELURINN, Inf»i Þór Jóns-
son, setti fimm glæsileg Islandsmet í
deildarkeppninni í sundi sem fram
fór í Vcstmannaeyjum um helgina.
Mestu athyglina vakti þó kannski
fjarvera A- og B liða Ægis, en A-lióið
hefur unnið keppni þessa reglulega
síðustu árin. Liðin treystu á flug,
sem féll niður. Þegar Ijóst var að
ekki yrði flogið, var orðið of seint að
fara með Herjólfi og því fór sem fór.
Til þess að A-liðið félli ekki ofan í 2.
deild, skellti þjálfarinn Axel Al-
freðsson sér í 200 metra baksundið
og tryggði liðinu 3 stig. Það kom því
í hlut B-liðsins að falla, enda gat
Axel aðeins keppt fyrir annað liðið.
B-liðið féll því í 2. deild.
Ingi Þór setti sem fyrr segir
fimm ný íslandsmet. 50 metra
flugsundið synti hann á 27,6 sek-
úndum, 100 metra flugsundið á
59,4 sekúndum og 200 metra flug-
sund á 2:12,5 mínútum. íslandsmet
setti Ingi Þór einnig í 200 og 800
metra skriðsundi, 200 metrana
synti hann á 1:58,3 mínútum og
800 metrana á 8:48,8 mínútum.
Annars urðu Islandsmetin á
mótinu sex talsins, það sjötta setti
karlasveit HSK í 4x100 metra
skriðsundi, tíminn var 3:46,2 mín-
útur.
Ingi Þór var ekki sá eini sem gat
vel við eiginn árangur unað, ungur
piltur úr ÍBV, Árni Sigurðsson
gerði sér lítið fyrir og setti þrjú
piltamet. Hann synti 100 metra
bringusund á 1:10,6 mínútum, 200
metra bringusund á 2:32,5 mínút-
um og 200 metra fjórsund á 2:21,0
mínútum.
Sveit HSK sigraði í 1. deild að
þessu sinni, sveitin önglaði saman
233 stigum, en sveit ÍÁ kom næst
með 225 stig. ÍBV hafnaði í þriðja
sætinu með 139 stig, en síðan kom
• Árni Sigurðsson ÍBV setti þrjú
piltamet á mótinu og stóð sig mjög
vel.
„A-liði Ægis“ með 3 stig og „B-lið-
ið“ rak lestina, fékk ekkert stig.
hkj./gg.
Enska
knatt-
spyrnan
England, 3. deild:
Brentford — Chester 1—0
Bristol City — Burnley 2—3
Carlisle — Gillingham 2—0
Chesterfield — Wimbledon 2—0
Fulham — Millwall 0—0
Lincoln — Swindon 2—0
Newport — Exeter 1—1
Oxford — Preston 3—0
Plymouth — Doncaster 4—2
Portsmouth — lluddersfield 2—1
Walsall — Bristol Rovers 2—1
England, 4. deild:
Aldershot — Tranmere 2—1
Bournemouth — Sheffield Utd. 0—0
Bury — Hull 0—2
Crewe — York 1 — 1
Darlington — Colchester 1—2
Halifax — Scunthorpe 1—2
Mansfield — Hereford 2—1
Peterborough — Northampton 1—0
Port Vale — Hartlepool 5—2
Rochdale — Wigan 1 — 1
Stockport — Torquay 2—1
• Sveit HSK sem setti íslandsmet í 4x100 metra skriðsundi. Ljósm. Sigurgeir.
Asökun Viggós um
skítkast IVIbl. vísað
til föðurhúsanna
VIGGÓ Sigurðsson, hand-
knattleiksmaður hjá Bayer
læverkusen í VesturÞýska-
landi hellti sér yfir Morgun-
blaðið og „furðuleg vinnu-
brögð“ og „skítkast“ þess í
hans garð í síðustu viku. Þar
sem Viggó ber blaðið þungum
sökum, er rétt að rifja upp og
minna á þá frétt sem leggst
svona illa í Viggó.
Hún var í sjálfu sér stutt,
en inntakið og kjarninn var
sá, að fréttamaður blaðsins í
Þýskalandi, Uwe Fibbelkorn,
ræddi bæði við Viggó og
þjálfara hans eftir sigurleik
Leverkusen í þýsku deildar-
keppninni. Viggó lék lítið
með og var UF að fiska eftir
hvernig hafi staðið á því.
Viggó lýsti óánægju sinni
með fyrirkomulagið, skildi
ekki hvers vegna han.i fengi
ekki meira að vera með og
talaði um hugsanleg félaga-
skipti ef breyting yrði ekki á.
Hjá þjálfaranum var ekki
„fátt um svör“ eins og Viggó
segir í reiðibréfi sínu. Þjálfari
liðsins sagði hreint út, að það
fylgdi því áhætta að nota Viggó
mikið, hann væri of bráður í
sóknarleiknum og hann lærði
ef til vill að hafa hemil á sér
með þv{ að verma bekkinn.
Kjarni fréttarinnar i Mbl. voru
þessi ummæli beggja aðila og
því vísar Mbl. rakleiðis til loð-
urhúsanna ásökun Viggós um
„skítkast" og „furðuleg vinnu-
brögð".
Þá er það eins ósmekklegt
og hugsast getur hjá Viggó að
amast yfir því að í Morgun-
blaðinu hafi verið frétt með
stuttu spjalli við Vaismann-
inn Bjarna Guðmundsson,
sem einnig leikur í þýsku
„Búndeslígunni". Bjarni hef-
ur staðið sig með prýði og
þarf ekki að verja frétta-
flutning blaðsins af honum,
sem hefur verið of lítill frek-
ar en hitt. Viggó talar mikið
um öfundarmenn sína í bréfi
sínu á föstudaginn, en hver er
hér að öfundast?
Og loks þetta: Öfundar-
mennirnir eru á hverju strái í
niðurlaginu hjá Viggó. Hann
gefur meira að segja í skyn,
að Uwe P'ibbelkorn eigi erfitt
með að kyngja velgengni
sinni hjá Leverkusen fram til
skamms tíma vegna þjóðern-
isins. Viggó ætti að vita betur
en að vera með svona bull.
Mbl. hefur og mun halda
áfram, að fylgjast með hög-
um þeirra mörgu íslendinga
sem leika knattspyrnu og
handknattleik erlendis, en
Viggó máekki misskilja hlut-
verk blaðanna, allar fréttir
eru ekki góðar fréttir.
gg/l»r-
Tékkar til Spánar
TÉKKAR og Rússar skildu jafnir í
undankeppni HM um helgina er lið-
in áttust við í Bratislava. Jafntefli
nægði Tékkum til þess að hirða ann-
að sætið í riðlinum úr höndum
Wales-búa, sem sátu og nöguðu
neglurnar meðan leikurinn fór fram.
Annað sætið færir viðkomandi liði
nefnilega sæti í lokakeppni HM sem
fram fer á Spáni næsta sumar sem
kunnugt er.
Sovétmenn gerðu Tékkum þá
skráveifu að ná forystunni strax á
14. mínútu leiksins, Oleg Blochin
spyrnti knettinum þá í netið af 25
metra færi, þrumuskot og glæsi-
legt mark. Tékkar jöfnuðu á 33.
mínútu, Vojasec skallaði þá í netið
eftir hornspyrnu frá Anatoli Pan-
enka. Síðari hálfleikurinn var
bæði harður og grófur, jafntefli
var mjög í samræmi við gang
leiksins. Lokastaðan í riðlinum er
svo sem hér segir:
Sovétríkin 8 6 2 0 20—2 14
Tékkóslóvakía 8 4 2 2 15—6 10
Wales 8 4 2 2 12-7 10
ísland 8 2 2 4 10-21 6
Tyrkland 8 0 0 8 1—22 0
Júgóslavar öruggir
JÚGÓSLAVÍA sigraði Grikkland
2—1 í Aþcnu um helgina, en leikur
inn var liður í 5. riðli undankeppni
HM. Sigurinn innsiglaði enn frekar
sæti Júgóslava í lokakeppninni. Öll
mörkin voru skoruð í fyrri hálfleik,
Thomas Mavros skoraði fyrst fyrir
Grikki strax á 6. mínútu og átti síð-
an skot í þverslá nokkrum mínútum
síðar. En síðan tóku gestirnir öll
völdin á vellinum, Kurjak jafnaði á
23. mínútu eftir hrapalleg mistök
gríska markvarðarins. Jarkovic
skoraði síðan sigurmarkið á 39. mín-
útu. Staðan er þessi:
Júgóslavía 8 6 1 1 13
Ítalía 7 4 2 1 10
Danmörk 8 2 4 2 8
Grikkland 8 3 14 7
Luxemborg 7 0 0 7 0
10 mörk
í Rotterdam
PSV Eindhoven hefur náð nokkuð
góðri forystu í hollensku deildar
keppninni, en liðið sigraði Nac
Breda 4—1 á heimaveili sínum um
helgina. ílrslit leikja urðu annars
sem hér segir:
AZ’67 Alkmaar — Ajax 1—0
GAE Deventer — Sparta 0—0
PSV Eindhoven — Nac Breda 4—1
Willem 2. — Maastricht 1—2
Feyenoord — Pec Zwolle 5—5 (!)
Nec Nijmegen — Twente 2—1
llaarlem — De Graffchap 3—0
Roda JC — Den Haag 3—2
FC IJtrecht — Groningen fr.
Sem fyrr segir, hefur PSV nú góða
forystu, liðið hefur 25 stig að 15 um-
ferðum loknum, en næsta lið hefur
21 stig. Er það meistaralið síðasta
tímabils, AZ’67 Alkmaar. Ajax og
Sparta hafa bæði 20 stig.
Knallspyrna 1