Morgunblaðið - 01.12.1981, Blaðsíða 44
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1981
Atli skoraði fyrir Dusseldorf
Ásgeir lék allan síðari hálfleik
Atli Eðvaldsson skoraði
eitt mark fyrir Fortuna Diiss-
eldorf í þýsku deildar
keppninni um helgina og As-
geir Sigurvinsson lék allan
síðari hálfleikinn með Ba-
yern Miinchen og stóð sig
vel, en lið þeirra beggja
máttu þó sætta sig við að
deila stigunum með mótherj-
um sínum. Atli skoraði fyrra
mark Fortuna á heimavelli
gegn Eintracht Frankfurt og
Thomas Allofs bætti öðru
marki við, bæði mörkin
komu snemma í síðari hálf-
leik eftir að sá fyrri hafði ver
ið markalaus. En þjálfari
Frankfurt lék sterkan leik,
er hann setti varamanninn
Kunzt inn á fyrir Lorant.
Kunzt skoraði tvívegis, á 82.
og 85. mínútu leiksins og
rændi þannig öðru stiginu af
Fortuna Diisseldorf. Aður en
sagt verður frá fleiri leikjum
skulum við líta á úrslit leikja:
Darmstadt 98 — Duisburg 3—2
B. Miinchen — B. Mönch.gladb. 1—1
Braunschweig — Niirnberg 4—2
Karlsruhe — FC Köln 1—4
F. Dusseld. — Eintr. Frankfurt 2—2
Werder Bremen — HSV 3—2
B. Leverkusen — Stuttgart 0—0
B. Dortmund — Kaisersl. 2—2
Arm. Bielefeldt — Bochum fr.
Sem fyrr segir, lék Ásgeir Sig-
urvinsson allan síðari hálfleikinn
með Bayern, er liðið mætti gamla
erkifjandanum Borussia
Mönchengladbach. Paul Breitner
meiddist í fyrri hálfleiknum og
tók Ásgeir stöðu hans. Ásgeir stóð
fyrir sínu, en BMG náði engu að
síður að jafna metin í síðari hálf-
leik, en Karl-Heinz Rummenigge
hafði skorað fyrir Bayern í fyrri
hálfleik. Wolfgang Kleff, mark-
vörður BMG, var besti maðurinn á
vellinum, varði hvað eftir annað
snilldarlega og hélt liði sínu ger-
samlega á floti langtímum saman.
Jöfnunarmark BMG skoraði Loth-
ar Matthaus snemma í síðari hálf-
leik.
Köln hefur enn forystuna í
deildinni og liðið vann góðan sigur
og sannfærandi um helgina. Köln
sótti Karlsruhe heim, lið sem jafn-
an er erfitt heim að sækja. Stór-
stjörnur Kölnar, Reiner Bonhof,
Klaus Fischer, Tony Woodcock og
Pierre Littbarski skoruðu hver
sitt markið og staðan var enn
4—0, er skammt var til leiksloka,
en þá tókst Jochen Giinther að
skora eina mark Karlsruhe.
Werder Bremen, sem þykir eitt
skemmtilegasta lið þýsku deildar-
innar þessar vikurnar, sigraði
Hamburger SV 3—2, aðeins viku
eftir að hafa tapað 2—9 fyrir
Frankfurt. Reinders skoraði tví-
vegis mjög glæsilega á fyrstu átta
mínútum leiksins, en Lars Bast-
rup minnkaði muninn rétt fyrir
leikhlé með góðu marki. Erwin
Kostedde skoraði þriðja mark
Werder um miðjan síðari hálfleik,
en lokaorðið átti Felix Magath, er
hann skoraði annað mark HSV á
síðustu sekúndunum.
Eintracht Braunschweig þykir
Sá snjalli kappi Karl-Heinz Rummenigge skoraði fyrir Bayern. En það kemur
varla fyrir að Rummenigge skori ekki mark í leik. Og það skiptir ekki máli
hvort landsleikur eða æfingaleikur er á dagskrá.
Celtic efst í Skotlandi
SKOSKA knattspyrnuliðið Glasgow
Kangers varð á laugardaginn skosk-
ur deildarbikarmeistari í knatt-
spyrnu, en liðið sigraði Dundee Utd.
2—I í úrslitaleik á Hampden Park í
Glasgow.
Nokkrir leikir fóru einnig fram í
skosku úrvalsdeildinni og urðu úr-
slit þeirra sem hér segir:
Aberdeen — Airdrie 0—0
Dundee — Morton 4—1
Hibernian — St. Mirren 0—0
Partick Thistle — Celtic 0—2
Staðan í skosku úrvalsdeildinni
er nú þessi:
Celtic 14 10 3 1 31:14 23
Aberdeen 14 74 3 20:14 18
Dundee United 13 64 3 25:12 16
St. Mirren 14 64 4 21:17 16
Rangers 13 55 3 21:18 15
Hibernian 14 36 5 14:13 12
Morton 14 43 7 13:23 11
Airdrie 14 34 7 19:34 10
Dundee 14 4 1 9 22:32 9
Partick Thistle 14 24 8 11:20 8
gefa Werder Bremen lítið eftir, en
liðin komu saman upp úr 2. deild-
inni á síðasta keppnistímabili og
er mál knattspyrnuáhugamanna í
Þýskalandi, að ár og dagur sé síð-
an að tvö svona sterk lið hafi kom-
ið upp úr 2. deildinni. Braun-
Atli ítti góðan leik með liði sínu og
skoraði fallegt mark.
schweig þykir sérstaklega erfitt
lið heim að sækja og leikmenn
Nurnberg fengu að sannreyna það.
Tripacher skoraði fljótlega tvíveg-
is og Geyer bætti síðan þriðja
markinu við áður en gestirnir létu
til sín taka. Heck og Eder skoruðu
þá fyrir Núrnberg, en heimaliðið
náði öllum völdum á vellinum á
nýjan leik og Grobe átti síðasta
orðið er hann skoraði fjórða mark
Braunschweig.
Borussia Dortmund, hið gamla
lið Atla Eðvaldssonar, stefndi í ör-
uggan sigur gegn Kaiserslautern,
er Rudger Abramszic og Huber
skoruðu fyrir liðið í fyrri hálfleik,
án þess að gestirnir svo mikið sem
tifuðu ugga. En þeir gerðu meira
en það í síðari hálfleik, einstefna
var þá að marki Dortmund og
Melzer og Hofdietz skoruðu. Við
skulum svo að lokum renna augum
yfir stöðuna í deildinni:
Köln 15 9 4 2 31:12 22
Hamburger SV 15 8 4 3 42:19 20
B. Múnchen 15 9 2 4 35:25 20
B. M.gladbach 15 7 6 2 29:23 20
Eintr. Frankf. 15 8 2 5 40:27 18
Werder Bremen 15 7 4 4 26:26 18
Braunschweig 15 8 0 7 26:23 16
Bochum • 14 5 5 4 27:24 15
Bor. Dortmund 15 6 3 6 25:20 15
Kaiserslautern 15 4 7 4 31:29 15
Stuttgart 15 4 5 6 19:24 13
B. Leverkusen 15 4 4 7 19:31 12
Karlsruhe 15 4 3 8 23:30 11
F. Dússeldorf 15 3 5 7 23:32 11
Núrnberg 15 4 3 8 20:30 11
Darmstadt 98 15 3 5 7 19:36 11
Arm. Bielefeld 14 3 4 7 13:21 10
Duisburg 15 4 2 9 23:39 10
Sigurganga Fram
heldur áfram
ÞAÐ FÓR eins og við mátti búast, er
Fram og ÍR leiddu saman hesta sína
í úrvalsdeildinni í körfuknattleik á
sunnudaginn, Fram hélt áfram sig-
urgöngu sinni, sigraði ÍR mjög ör
ugglega. Þetta var leikur sem virtist
aldrei vera spurning um annað en
hversu stór sigurinn yrði þegar upp
væri staðið. Lokatölurnar urðu síðan
92—74, eftir að staðan í hálfleik
hafði verið 48—42.
Það fór kannski verst með ÍR-
ingana, að þeir gáfu Frömurum
allt of mikið forskot. Hittni og
geta ÍR var afleit fyrstu tíu mín-
útur leiksins eða svo, ÍR komst í
20—8 og fleira í sama dúr. ÍR tók
sæmilega við sér undir lok hálf-
leiksins, saxaði á forskotið, þannig
að um tíma munaði aðeins 4 stig-
um, 46—42 fyrir Fram. En Bracey,
Guðsteinn og félagar byrjuðu síð-
ari hálfleikinn með ámóta gaura-
gangi og þann fyrri, forysta liðs-
ins jókst á ný og í stað þess að síga
á brattann eins og í fyrri hálfleik,
léku ÍR-ingar síðari hálfleikinn á
meðalmennskuplaninu. Sigri
Fram var því í rauninni aldrei
ógnað.
Þetta var ekkert sérstakur leik-
ur. Framarar virtust mun sterkari
aðilinn og vissir leikmenn hittu
nánast þegar þeir kærðu sig um.
Við slíku er ekkert að gera annað
en að svara í sömu mynt. En því
miður fyrir ÍR var það ekki kleift,
getan bauð ekki upp á það. Hittni
nær allra leikmanna ÍR var í
lamasessi og undantekning var ef
leikmenn liðsins hirtu fráköst
hvort sem þeir voru undir eigin
körfu eða neti andstæðingsins.
Þeir Val Bracey og Símon Olafs-
son sýndu oft snilldartakta í
leiknum. Þegar Bracey tekur sig
til, vegur hann afar nærri Danny
Shouse sem snjallasti útlending-
urinn sem hér leikur körfuknatt-
leik. Þó gat hann ekki beitt sér til
fullnustu gegn ÍR þar sem hann
r 92:74
hleypti sér í villuvandræði
snemma leiks. Símon virðist sila-
legur og rólegur á velli en afköst
hans voru rosaleg, en hann skor-
aði 26 stig auk þess sem hann
hremmdi fjölda frákasta. Guð-
steinn Ingimarsson átti einnig
ágætan dag, en það er kannski
mesti styrkur Fram-liðsins hversu
sterk heild það er, en jafnvel menn
úr röðum „vindlanna" væru boð-
legir í sum byrjunarliðin í úr-
valsdeildinni.
Hjá ÍR bar mest á Bob Stanley,
hann skoraði mikið og tók nær öll
þau fráköst sem ÍR tók annars í
leiknum. En Stanley var engu að
síður mistækur, skaut mikið og
hitti ekki nærri alltaf.
Jón Jör. mætti nánast beint úr
eigin giftingarveislu og stóð fyrir
sínu. En þannig var með skot hans
í þessum leik, að annaðhvort voru
þau svo hnitmiðuð að knötturinn
snerti ekki járnið, eða þá að þau
geiguðu svo hrapallega að næstum
mátti mæla í metratali. ÍR-liðið
var að öðru leyti dauft, Benedikt
átti nokkra spretti, en liðið líður
mjög fyrir að Kristinn Jörundsson
getur ekkert beit sér að gagni
vegna slæmra meiðsla í nára.
Stig ÍR: Bob Stanley 34, Jón Jör-
undsson 12, Óskar Baldursson 9,
Benedikt Ingþórsson 8, Hjörtur
Oddsson og Kristinn Jörundsson 4
stig hvor, Ragnar Torfason 2 stig.
Stig Fram: Símon Ólafsson 26,
Val Bracey 24, Guðsteinn Ingi-
marsson 17, Þórir Einarsson 7,
Þorvaldur Geirsson og Björn
Magnússon 6 hvor, Þorkell Sig-
urðsson 3 stig og Ómar Þráinsson
2 stig.
— gg-
• Pétur hefur ástæðu til að brosa, írslaun
þúsund dollurum. Eða um 1,2 milljónum ísle
• Á æfingu hji Portland Trailblazers. Pétui
fara í gegn um leikkerfi með félaga sínui
Trailblazers, Jack Ramsey.
'i