Morgunblaðið - 01.12.1981, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 01.12.1981, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1981 25 hans hji Portland Trailblazers nema um 150 nskra nýkróna. r snýr baki í Ijósmyndarann. En hann er að m, Peter Verheufen. Til vinstri er þjálfari Ljósm. Halldór Karlsson. Pétur orðinn vinsæll meðal aðdáenda í Portland - sagt frá og spjallað við Pétur Guðmundsson atvinnumann í körfuknattleik með Portland Trailblazers PORTLAND Trailblazers, körfu- boltaliðið sem Pétur Guðmundsson leikur nú með í Bandaríkjunum, eru núna efstir í sínum riðli. Síðan 30. október hefur liðið leikið níu leiki og af þeim unnið sjö. Pétur hefur átt við meiðsli að stríða í ökkla og hefur því ekki get- að beitt sér að fullu. Hann er nú að ná sér ört á strik og sýna undanfarn- ir leikir síðustu viku þess merki, að Pétur á hcima í körfuboltanum. Pétri gengur betur með hverjum leik og eru bundnar miklar vonir við hann í framtíðinni. Pétur er nú þegar orðinn vinsæll meðal aðdáenda hér í Portland. Fór ég með honum um daginn í eitt af „Shopping Center“-unum til að versla. Væri ég orðinn nokkuð efn- aður ef ég hefði rukkað Pétur um tíkall í hvert skipti sem hann fékk að nota bakið á mér sem skrifborð til að gefa eiginhandaráritanir til að- dáenda. í stuttu máli, þá er ekki annað hægt að segja en að framtíðin brosi við Pétri sem atvinnumanni í körfubolta. Þann 9. júní í sumar er Pétur var heima á Islandi, hringdi kunn- ingi hans frá Bandaríkjunum í hann og sagði, að hann hefði verið valinn til að leika „atvinnubolta" með Blazers. Kom það Pétri mikið á óvart, þar sem hann hafði haldið að Detroit mundi velja hann. Blaz- ers, sem unnu „World Champ“-tit- ilinn 1977 (bandaríska meistara- titilinn), höfðu ekkert við Pétur talað eða sýnt nokkurn áhuga á að fá hann í sínar búðir. Var það fyrir tilstilli Bill Moores, um- boðsmanns Péturs, að Blazers völdu hann. Blazer-njósnarar höfðu séð Pétur spila með Univer- sity of Washington fyrir tveimur árum, svo þeir fóru og töluðu við þjálfara Péturs frá því er hann lék með háskólanum. Gaf hann Pétri svo góð meðmæli að þeir ákváðu að bjóða honum í æfingabúðir sín- ar. Tólf nýir leikmenn, þar með talinn Pétur, voru valdir í þessar æfingabúðir (Rookie Camp). Nokkuð fljótlega var þremur „rookie“-um sparkað, svo níu voru eftir. Þessir níu leikmenn voru sendir niður til Los Angeles til að leika í þriggja vikna móti (5.-26. júlí). Þurfti Pétur að standa sig vel til þess að verða valinn í aðal- æfingabúðirnar þar sem æfingar áttu að hefjast í september. í Los Angeles átti hann í höggi við ann- an „center“, sem var að keppa um sömu stöðu og Pétur. Sá maður, 211 sm og 150 kílóa þungur, þótti vera of þungur. Blazers sögðu hon- um að hann yrði að létta sig niður í 130 kíló, ef hann ætlaði sér að eiga eitthvert tækifæri til að verða valinn í aðalæfingabúðirn- ar. Tókst honum baráttan við kíló- in ekki betur en svo að hann var of þungur er tími var kominn til að velja í aðalæfingabúðirnar, svo hann var sendur heim ... bless, bless. Leit nú allt betur út fyrir Pétri, er hann var orðinn laus við keppinautinn. Þann 9. ágúst var sex leik- mönnum frá Blazers, þar af tveim- ur nýliðum og tveimur öðrum leik- mönnum, boðið til Israel sem full- trúum NBA. Var Pétur annar þessara nýliða sem var boðið. Þyk- ir nokkuð merkilegt að vera valinn til að fara ferð sem þessa. Ástæð- an fyrir því að Pétur var valinn til að fara þessa ferð var sú, að Blaz- ers töldu þessa ferð vera góða reynslu fyrir Pétur, áður en að að- alæfingabúðunum kæmi. í þessari ferð gafst Pétri tækifæri til að ferðast um Israel og skoða sig um. Gekk honum mjög vel og var hinn ánægðasti með árangurinn og ferðina. Frá ísrael kom liðið þann 17. ágúst. Fór Pétur þá upp til Seattle, 300 km norður af Port- land, og æfði með Seattle Sonics í mánuð. Fór Pétri mikið fram á þessum mánuði, þar til um miðjan september er hann sneri á sér ökklann. Meiðslin voru það slæm, að hann er nú fyrst að ná fullum styrk í fótinn. Hinn 21. september hófust síðan æfingar í aðalbúðum Portland Trailblazers. Leist Pétri ekkert á blikuna, þar sem hann var óvígur og átti enn eftir að sparka nokkr- um nýliðum, eða þangað til fjórir voru eftir af hinum upprunalegu tólf. En þrátt fyrir meiðsli Péturs þótti þjálfara Blazers, Jack Rams- ey, honum hafa farið svo mikið fram, að hann ákvað að halda í Pétur. Pétur var undir læknis- hendi og missti af æfingum í búð- unum að mestu. Var Pétur frá að mestu leyti í sex vikur. Frá 10.—25. október léku Blazers sjö æfingaleiki og unnu fimm þeirra. Pétur kom inná í nokkrum þeirra, en gat aðeins verið nokkrar mín- útur vegna meiðslanna. Var hann með aðallega til að kynnast leik- mönnum og fá að venjast því að spila fyrir framan hundruðir þús- unda æstra aðdáenda, í höllinni jafnt sem sjónvarpinu. Byrjaði svo leiktímabilið þann 30. október. Blazers eru nú þegar búnir að leika níu leiki og vinna sjö. Voru þeir eina ósigraða liðið í Bandaríkjunum þangað til nú í vikunni, er þeir töpuðu tveimur í röð. Pétur hefur verið með í þeim öllum og verður sterkari með hverjum leik. Alls leikur liðið 82 leiki á keppn- istímabilinu, sem stendur til 18. apríl. Þýðir það að liðið þarf að leika annan hvern dag, svo þetta er ekkert sældarlíf. Sem dæmi um hversu strangt leikið er, þá þurfa Blazers að keppa bæði á jóladag og nýársdag. Mun ekki fara mikið fyrir hátíðarandanum hjá NBA- leikmönnum. Ætla ég hér að útskýra hvernig keppnisfyrirkomulagið í NBA gengur fyrir sig. Skiptist NBA í tvær deildir, Austur- og Véstur- deild. I hvorri deild eru síðan tveir riðlar, svo alls eru fjórir riðlar í NBA. Þurfa Blazers að leika sex leiki við hvert lið i sínum riðli, og fimm leiki við hvert lið í hinum riðlinum í sömu deild. Alls eru tólf lið í Vesturdeildinni, þannig að alls spila þeir 60 leiki í Vestur- deildinni eingöngu. í Austurdeild- inni eru 11 lið sem Blazers þurfa að keppa við, tvo leiki hvert, það er heima og heiman. Þegar allt er svo komið saman, þá eru þetta 82 leikir alls. Eftir þessa 82 leiki komast síð- an sex efstu liðin úr hvorri deild í deildaúrslitin. Þessi sex lið keppa síðan í útsláttarkeppni sín á milli uns eitt lið er eftir í hvorri deild. Þessi tvö lið keppa síðan við hvort annað uns annað liðið hefur sigrað í fjórum leikjum, þannig að í mesta lagi leika þau sjö leiki alls. Það lið sem vinnur þessa baráttu, hlýtur síðan titilinn „World Champions". Eins og ég gat um áður, þá hlutu Blazers þennan titil árið 1977. Nú er of snemmt að spá um úrslitin í deildinni, en eftir það sem af er, þá eru Blazers efstir í sinni deild og er best að vera bara bjartsýnn á framtíðina. Þrír fyrstu leikir Blazers á þessu keppnistímabili voru, að flestra mati, við sterkustu liðin á vestur- ströndinni og sigruðu Blazers í öll- um leikjunum. I dag eru Blazers með fjóra ný- liða, eins og þeir ætluðu sér að hafa endanlega. Pétur skrifaði undir samning í haust sem tók gildi þann 1. nóvember. Hljóðar sá samningur upp á fimm ár af Pét- urs hálfu, það er, að Pétur er bundinn hjá Blazers í fimm ár. Af Blazers hálfu skiptist samningur- inn niður í fimm eins árs samn- inga, frá 1. desember til 1. des- ember næsta árs. Þýðir það að þeir geta sparkað Pétri, það er, selt hann eða skipt á honum, 1. desember á hverju ári næstu fimm árin. Ef þeir ákveða að losa sig við Pétur eftir 1. des., þá eru þeir skyldugir að greiða honum laun fyrir allt árið, það er, til 1. des. Blazers æfa á hverjum degi, að mestu léttar æfingar, farið í gegn- um leikaðferðir og þessháttar. Þurfa leikmenn að halda sér í formi sjálfir, sjá um úthaldið, hlaupa, lyfta og þessháttar. Hefur Pétur verið á lyftingaprógrammi til að styrkja sig og segist hann aldrei hafa verið jafn vel á sig kominn líkamlega og nú. Tek ég undir þessi orð Péturs, þar sem ég hef fylgst með honum í öllum leikjum Blazers. Hann á eftir að verða frábær. Sem dæmi um leikni Péturs, þá léku Blazers við Los Angeles Lakers núna í vikunni. Fékk Pétur það erfiða hlutverk, að flestra mati, að gæta besta mið- herja Bandaríkjanna, Karhim Abdul Jabbar. Lék Pétur alls 14 minútur af leiknum og stóð sig mjög vel, hirti fráköst og skoraði sex stig. Má á það minnast, að leiktíminn í NBA er lengri en hann gerist heima á íslandi. Hér stendur leik- urinn yfir í 48 mínútur og er hon- um skipt niður í fjórum sinnum tólf mínútur og er hálfleikur eftir tvo kvartera. Er ég spurði Pétur um hvað honum fyndist um að vera hér og leika sem atvinnumaður í körfu- bolta, þá sagðist hann hafa miklar vonir um framtíðina. Býst hann við að vera „back-up center" í vet- ur, á meðan hann er að komast inn í kramið og öðlast reynslu sem er svo mikilvæg. Sagði Pétur, að hann væri hress með hvað þjálfar- inn væri ánægður með hann. „Þeir segja, að ég eigi eftir að hitta toppinn og verða betri. Ég ætla bara að reyna að standa mig og gera mitt besta, svo tek ég því sem kemur, hvað sem það verður. Þetta er eins og hver önnur vinna," sagði Pétur svo að lokum. Við vonum bara að honum gangi vel og segjum þetta gott að sinni. Úrslit úr loknum leikjum: 30. okl. Blazers — Phoenix 104— 97 1. nóv. Blazcrs — Seattle 104— 94 3. nóv. Blazers — Los Angeles 102—100 4. nóv. Blazers — San Francisco 109—108 6. nóv. Blazers — l'tah 119—109 8. nóv. Blazers — Denver 120—116 10. nóv. Blazers — Dallas 117— 95 12. nóv. Blazers — San Diego 115—122 13. nóv. Blazers — Los Angeles 115—119 15. nóv. Blazers — San Antonio • ..Memorial Colosseum" heitir heimavöllur Portland-liðsins. Höllin tekur 12.666 manns í sæti og er þegar uppselt á alla leiki liðsins út apríl. A sama tíma og Portland leikur, sýnir kvikmyndahús þar í borg, „Paramount Theater“, leikina jafn óðum á tjaldinu. Kvikmyndahúsið tekur 2000 manns og er mæting jafnan góð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.